Erlent

Græn­lenskir ráð­herrar takast á um Paul Watson

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Ósætti ríkir innan grænlensku ríkisstjórnarinnar vegna máls umhverfisaðgerðarsinnans Paul Watsons.
Ósætti ríkir innan grænlensku ríkisstjórnarinnar vegna máls umhverfisaðgerðarsinnans Paul Watsons. Vísir/Samsett

Mál umhverfisaðgerðarsinnans og hvalavinarins Paul Watsons sem handtekinn var á Grænlandi í síðasta mánuði hefur vakið mikla athygli og úlfúð jafnt innan landsins sem utan. Ósætti ríkir innan grænlensku ríkisstjórnarinnar vegna málsins.

Pele Broberg, viðskiptaráðherra gaf nýverið frá sér yfirlýsingu þar sem hann hvatti ríkisstjórnina til að koma Watson fyrir í gæsluvarðhaldi í Danmörku en Naaja Nathanielsen dómsmálaráðherra gefur lítið fyrir fullyrðingar hans.

Í viðtali við grænlenska ríkisútvarpið segir Naaja að brottvísun Paul Watson næði ekki nokkurri átt.

Hefur valdið nægum vandræðum

Pele Broberg ráðherra í iðnaðar-, viðskipta-, utanríkis- og loftslagsmálum, gaf á dögunum frá sér yfirlýsingu til grænlenskra fjölmiðla þar sem Grænland hafa þurft að þola nógu marga álitshnekki af völdum gæsluvarðhaldsins yfir Watson.

„Grænlenska þjóðin er föst í miðjunni á dönsku ábyrgðarsvæði. Lögreglan er dönsk. Dómsmálaráðuneytið er danskt. Það verður tekin dönsk ákvörðun um það hvað verður gert í máli Paul Watsons,“ sagði hann.

„Vísum því Paul Watson til Danmerkur og leyfum Danmörku að sjá um það í gegnum eigin stofnanir. Hvað ætlum við að gera við hann? Hann hefur valdið nægum vandræðum,“ sagði hann svo.

Pele hafði áhyggjur af þeirri neikvæðu umfjöllun á heimsvísu sem handtaka Watsons hefur vakið.

„Okkar land má ekki - aftur - borga fyrir afglöp Dana, sem hafa valdið þvílíku bakslagi í sjálfbærum veiðum sela og hvala og orðspori okkar,“ sagði hann.

Kostnaðarsamt og óraunhæft

Naaja Nathanielsen dómsmálaráðherra gefur þó ekki mikið fyrir yfirlýsingar Pele og segir í viðtali við ríkisútvarpið grænlenska að möguleg brottvísun á Watson næði hreinlega engri átt.

„Ríkisstjórnin hefur ekki íhugað að óska eftir flutningi á Watson til Danmerkur. Paul Watsn var handtekinn hér á landi og því þarf að fara með mál hans hér á landi, bæði hjá lögreglu og fyrir dómstólum,“ segir hún.

Paul Watson var handtekinn við höfnina í Nuuk þann 21. júlí síðastliðinn á grundvelli alþjóðlegrar handtökuskipunar sem gefin var út af japönskum stjórnvöldum árið 2012 vegna aðildar hans á árás á japanskan hvalveiðibát í suðurskautinu.

Síðan þá hefur hann sætt gæsluvarðhaldi í Nuuk og verður honum haldið þar í það minnsta til fimmta september vegna áhyggja um að hann flýi land, sem hann gerði síðast þegar hann var handtekinn í Þýskalandi fyrir nokkrum árum síðan.

Drægi varla úr áhuga fjölmiðla á málinu

Naaja Nathanielsen segir það að flytja Watson í danska fangageymslu hafa í för með sér mikinn kostnað fyrir grænlenska ríkið.

„Ef hann yrði fluttur í danska fangageymslu þyrfti að flytja hann fram og til baka á milli Danmerkur og Grænlands í hvert skipti sem réttarhöld fara fram þar serm lögsagan er á Grænlandi,“ segir hún.

„Slík atburðarás mun varla verða til þess að draga úr áhuga fjölmiðla á málinu. Þannig mun formaður Naleraq-flokksins varla fá sínu framgengt með því að koma Paul Watson fyrir í dönsku fangelsi á meðan málið fer sinn farveg,“ segir Naaja Nathanielsen dómsmálaráðherra Grænlands.


Tengdar fréttir

Gæsluvarðhald yfir Paul Watson framlengt

Gæsluvarðhald yfir umvherfisaðgerðarsinnanum Paul Watson hefur verið framlengt til fimmta september næstkomandi. Héraðsdómurinn í Sermersooq staðfesti þetta í dag.

Frakklandsforseti blandar sér í mál hvalavinarins

Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur hvatt dönsk yfirvöld til þess að framselja ekki hinn bandarísk-kanadíska umhverfis- og aðgerðarsinna Paul Watson í hendur Japönum. Paul sætir gæsluvarðhaldi á Grænlandi eftir að hafa verið handtekinn við höfnina í Nuuk á sunnudaginn síðasta.

Umhverfisaðgerðarsinni og Íslandsóvinur handtekinn á Grænlandi

Aðgerðarsinninn og hvalavinurinn Paul Watson hjá samtökunum Sea Shepherd var í morgun handtekinn í höfninni í Nuuk á Grænlandi en alþjóðleg handtökuskipun hafði verið gefið út á hendur honum vegna aðgerða hans í þágu umhverfisverndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×