Íslenski boltinn

Tíminn naumur hjá KSÍ

Valur Páll Eiríksson skrifar
Haukur Hinriksson, yfirlögfræðingur KSÍ, segir málið í ferli og vonast til að klára það fyrir dagslok.
Haukur Hinriksson, yfirlögfræðingur KSÍ, segir málið í ferli og vonast til að klára það fyrir dagslok. Vísir/Samsett

KSÍ hefur borist áfrýjun frá KR vegna niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar sem greint var frá í gær. KR krefst 3-0 sigurs á HK þar sem Kópvogsfélaginu tókst ekki að hafa Kórinn leikhæfan þegar félögin mættust á dögunum.

Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hafnaði kröfu KR þess efnis að liðinu yrði dæmdur sigur í leik gegn HK í Bestu deild karla. Leiknum var aflýst þar sem annað mark Kórsins var brotið og varamörk ekki til staðar.

Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, staðfesti í Sportpakkanum á Stöð 2 í gærkvöld að KR hyggðist áfrýja þeim dómi. Hann kallar eftir því að málið fái efnislega umfjöllun.

„Því miður virðist aga- og úrskurðarnefnd KSÍ falla í þá gryfju að vísa málum frá svo þau fá ekki efnislega umfjöllun. Ég held það vilji allir fá, sama hvort þeir hafi samúð með KR eða HK í þessu tiltekna tilfelli, umfjöllun um þetta og hvað sé raunverulega í lagi og hvað sé ekki í lagi. Það er þá eitthvað sem fólk verður að gera upp við sig,“ er á meðal þess sem Páll sagði í samtali við Stöð í gær.

Tíminn naumur

Nýr leiktími var fundinn fyrir leik liðanna í síðustu viku og hann á að fara fram klukkan átta annað kvöld. Tíminn er því naumur fyrir áfrýjunardómstól KSÍ að fara yfir málið.

Haukur Hinriksson, yfirlögfræðingur KSÍ.Mynd/KSÍ

Haukur Hinriksson, yfirlögfræðingur KSÍ, segir málið í ferli og að stefnt sé að því að klára það fyrir dagslok.

„Það barst áfrýjun frá knattspyrnudeild KR í morgun, um níuleytið. Sú áfrýjun var strax sett í ferli. Varnaraðilum í málinu, stjórn KSÍ og HK, gefinn frestur til að andmælum eða taka til varnar í málinu til klukkan þrjú í dag,“ segir Haukur í samtali við íþróttadeild.

„Svo mun dómstóllinn koma saman seinni partinn í dag og taka málið fyrir. Svo hugsanlega ná að klára málið í kvöld eða fyrramálið,“ bætir Haukur við.

Vegna knapps tímaramma er vonast til að eyða óvissunni fyrir alla aðila máls sem allra fyrst.

„Við reynum að gefa sjónvarpsrétthafa og leikaðilum sjálfum nægan fyrirvara. Vonandi verður þetta klárað í dag en í síðasta lagi í fyrramálið. Það er uppleggið, nema eitthvað annað óvænt komi upp,“ segir Haukur.

Hver er forsaga málsins?

Upprunalega átti leikur KR og HK að fara fram fimmtudaginn 8. ágúst en hafði þá þegar verið frestað um einn dag vegna framkvæmda í Kórnum. Þar hafði verið skipt um gervigras í aðdraganda leiksins.

Bæði lið voru mætt til leiks þegar upp kom að annað markið á vellinum var brotið. Leikmenn, stuðningsmenn og fleiri voru mættir í Kórinn en hætta þurfti við leikinn.

Í kjölfarið sendu KR-ingar stjórn KSÍ erindi vegna ákvörðunar mótanefndar að setja leikinn á 22. ágúst. Athugasemdir þeirra virðast ekki hafa fengið hljómgrunn.

Stjórn KSÍ vísaði málinu frá með vísun í grein 15.6 í reglugerð um knattspyrnumót, en þar er talað um „óviðráðanlegar orsakir“ fyrir því að leikur fari ekki fram, svo sem veður eða ástand vallar.

Að mati KR-inga á sú grein ekki við. Að HK, sem framkvæmdaraðili leik beri ábyrgð á því að mörkin séu í lagi. Í reglum KSÍ segir að varamörk eigi að vera til staðar, en svo var ekki í Kórnum.

Í kæru sinni segja KR-ingar HK hafa vitað af því á hádegi á leikdag að markið væri brotið og því haft nægan tíma til að bregðast við. Framkvæmdastjóri HK sagði í samtali við Vísi að fjöldi mistaka hefði átt sér stað í aðdraganda leiks.

Í yfirlýsingu KR er bent á að málið sé fordæmisgefandi og því telja KR-ingar brýnt að dómstólar KSÍ úrskurði í málinu. Þeir velta því upp hvað gerist þegar græjurnar eru ekki í lagi á leikstað og hver beri ábyrgð á því.

Sú afstaða, að málið sé fordæmisgefandi, rímar við orð Birkis Sveinssonar, mótastjóra KSÍ, sem segir mál sem þetta ekki hafa komið upp áður.

Ekki var leikhæft mark í Kórnum.Vísir/VPE

Aga- og úrskurðarnefnd tók málið fyrir í gær og hafnaði kröfu KR. Í úrskurði nefndarinnar segir að skýr viðurlagaheimild þurfi að vera fyrir hendi til að HK verði refsað með „afar íþyngjandi viðurlögum sem KR gerir kröfu um.

Sú heimild sé því ekki fyrir hendi, enda er ekki klippt og skorið í lögum KSÍ hvað skuli gera í málum sem þessum.

Aga- og úrskurðarnefnd vísaði því í sömu grein og stjórn KSÍ gerði í síðustu viku, grein 15.6, sem segir til um „óviðráðanlegar orsakir“.

Þrætueplið er því að stóru leyti hvort brotna markstöngin sé dæmi um óviðráðanlegar orsakir. Önnur dæmi um slíkar orsakir eru slæmar veðuraðstæður eða ófærð milli staða.


Tengdar fréttir

KR kærir og segir KSÍ mismuna félögum

Knattspyrnudeild KR hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frestunar á leik liðsins við HK, í Bestu deild karla, og ætlar að kæra ákvörðun stjórnar KSÍ varðandi málið.

Stjórn KSÍ vísaði erindi KR frá

Stjórn KSÍ vísaði erindi KR frá, þar sem krafist var þess að KR yrði dæmdur sigur gegn HK eftir að leik liðanna var frestað á dögunum.

KR þrýstir á stjórn KSÍ vegna brotna marksins

KR-ingar sendu inn erindi til stjórnar KSÍ sem tekið verður fyrir á stjórnarfundi í dag, vegna leiksins við HK sem ekki fór fram í síðustu viku vegna brotins marks í Kórnum. Mögulegt er að HK verði dæmt 3-0 tap vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×