Lewandowski tryggði Börsungum stigin þrjú

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Robert Lewandowski tryggði Barcelona þrjú stig í kvöld.
Robert Lewandowski tryggði Barcelona þrjú stig í kvöld. Rico Brouwer/Soccrates/Getty Images

Robert Lewandowski reyndist hetja Barcelona er liðið vann 2-1 sigur gegn Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Börsungar tóku forystuna á 24. mínútu með marki frá ungstyrninu Lamine Yamal áður en Oihan Sancet jafnaði metin fyrir gestina úr vítaspyrnu stuttu fyrir hálfleikshlé.

Pólska markamaskínan Robert Lewandowski sá hins vegar til þess að Börsungar tóku stigin þrjú mað marki á 75. mínútu.

Niðurstaðan varð því 2-1 sigur Barcelona sem nú er með sex stig af sex mögulegum eftir fyrstu tvo leiki tímabilsins. Athletic Bilbao er hins vegar aðeins með eitt stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira