Fótbolti

Griezmann skoraði og lagði upp í öruggum sigri Atlético Madrid

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Antoine Griezmann kom Atlético Madrid á bragðið og lagði svo upp annað mark liðsins.
Antoine Griezmann kom Atlético Madrid á bragðið og lagði svo upp annað mark liðsins. Diego Souto/Getty Images

Antoine Griezmann var allt í öllu er Atlético Madrid vann öruggan 3-0 sigur gegn Girona í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Griezmann kom heimamönnum í forystu á 39. mínútu leiksins með marki beint úr aukaspyrnu áður en hann, lagði upp annað mark liðsins snemma í síðari hálfleik fyrir Marcos Llorente.

Llorente var hins vegar ekki hættur og hann lagði upp þriðja mark liðsins fyrir Koke á fjórðu mínútu uppbótartíma og þar við sat.

Niðurstaðan því öruggur 3-0 sigur Atlético Madrid sem nú er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leiki tímabilsins, en liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Villarreal í fyrstu umferð. Girona, sem kom öllum á óvart á síðasta tímabili og hafnaði í þriðja sæti, er hins vegar aðeins með eitt stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×