Leik lokið: KA - Breiða­blik 2-3 | Kristófer Ingi tryggði Blikum mikil­væg stig

Árni Gísli Magnússon skrifar
Fram - KA Besta Deild Karla Sumar 2024
Fram - KA Besta Deild Karla Sumar 2024 vísir/Diego

Breiðablik verður áfram á toppi Bestu deildar karla eftir að hafa unnið góðan sigur á KA á Akureyri í dag. Kristófer Ingi Kristinsson tryggði Blikum sigur með marki þegar átta mínútur voru eftir af leiknum.

Leikurinn í dag var góð skemmtun og á 20. mínútu kom fyrsta markið þegar Daniel Obbekjær kom Breiðablik í 1-0 forystu. Viðar Örn Kjartansson jafnaði metin fyrir KA á 36. mínútu með glæsilegu marki og staðan í hálfleik var 1-1.

Í upphafi síðari hálfleiks kom Ísak Snær Þorvaldsson Blikum yfir á nýjan leik en Viðar Örn jafnaði metin á ný eftir mistök í öftustu línu Breiðabliks. Það var síðan Kristófer Ingi sem skoraði sigurmarkið á 82. mínútu og sá til þess að Blikar verða í toppsæti Bestu deildarinnar að umferðinni lokinni.

Nánari umfjöllun og viðtöl má lesa á Vísi síðar í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira