Fótbolti

Hvetur Ís­lendinga til að minnast Sarkic sem var í fríi með ís­lenskri konu

Sindri Sverrisson skrifar
Matija Sarkic í síðasta landsleik sínum fyrir Svartfjallaland, þar sem hann var maður leiksins í tapi gegn Belgum.
Matija Sarkic í síðasta landsleik sínum fyrir Svartfjallaland, þar sem hann var maður leiksins í tapi gegn Belgum. Getty/Alex Gottschalk

Svartfellingar mæta Íslendingum á Laugardalsvelli á föstudaginn í sínum fyrsta leik eftir andlát markvarðar liðsins, Matija Sarkic, sem lést í júní 26 ára að aldri.

Leikurinn á föstudag er í fyrstu umferð Þjóðadeildar karla í fótbolta og kom íslenska liðið saman til æfinga í Reykjavík í gær.

Gestirnir frá Svartfjallalandi eru svo væntanlegir en þeir verða án Sarkic sem hafði verið besti maður liðsins í síðasta landsleik sem hann spilaði, 2-0 tapi gegn stórliði Belga 5. júní.

Tíu dögum eftir þann leik lést Sarkic en hann var þá í sumarfríi með kærustu sinni Phoebe, gömlum liðsfélaga úr Aston Villa, Oscar Borg (fyrrverandi leikmanni Stjörnunnar og Hauka), og íslenskri kærustu Borgs, Þórhildi Björgvinsdóttur, í bænum Budva í Svartfjallalandi. Fjölskyldu hans var tjáð að hann hefði fengið skyndilega hjartabilun.

Blaðamaðurinn Vladimir Novak skrifar grein um svartfellska liðið í Morgunblaðinu í dag og hvetur þar Knattspyrnusamband Íslands til þess að minnast Sarkic.

„Á heimaleiknum gegn Wales næsta mánudag verður einnar mínútu þögn, eða einnar mínútu klapp, til heiðurs Matija Sarkic. Ég þekki ekki reglur UEFA um slíkt en það yrði fallega gert af Knattspyrnusambandi Íslands ef það hefði mínútu þögn til heiðurs Matija Sarkic á Laugardalsvellinum á föstudagskvöldið,“ skrifar Novak.

Leikmenn Wolves og Chelsea heiðruðu minningu Matija Sarkic fyrir leik sinn í ensku úrvalsdeildinni á dögunum, en Sarkic var á sínum tíma leikmaður Wolves.Getty/Malcolm Couzens

Sarkic var leikmaður Millwall á Englandi þegar hann lést, en hafði áður verið á mála hjá bæði Wolves og Aston Villa og farið víða um England sem lánsmaður. Hans var því víða minnst á leikvöngum á Englandi þegar leiktíðin þar hófst í ágúst.

Jovetic enn stærsta stjarna liðsins

Novak bendir á að nokkra leikmenn vanti í svartfellska hópinn vegna meiðsla og að óvissa ríki um miðvörðinn þekkta Stefan Savic, sem lengi lék í vörn Atlético Madrid, en hann hefur átt við meiðsli að stríða. Hann er nú orðinn leikmaður Trabzonspor í Tyrklandi.

Stærsta stjarna Svartfjallalands sé hins vegar enn Stevan Jovetic, sem verður 35 ára í haust. Hann er án félags eftir að hafa síðast leikið með Olympiacos, en lék áður með liðum á borð við Fiorentina, Manchester City, Inter og Monaco.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×