Innlent

Rann­sókn lög­reglu á á­höfn Hugins VE lokið

Lovísa Arnardóttir skrifar
Karl Gauti er lögreglustjóri í Vestmannaeyjum. 
Karl Gauti er lögreglustjóri í Vestmannaeyjum.  Vísir/Ívar Fannar

Rannsókn lögreglu á áhöfn Hugins VE í Vestmannaeyjum er nú lokið. Karl Gauti Hjaltason lögreglustjóri í Vestmannaeyjum segir lögreglu hafa lokið rannsókn sinni nýlega, í lok sumars, og hafi þá sent málið til ákærusviðs. Hann á von á ákvörðun þeirra á næstu vikum.

Lögreglan hefur frá því í nóvember í fyrra haft málið til rannsóknar en þá slitnaði akkeri skipsins með þeim afleiðingum að neysluvatnlögn HS Veitna til Vestmannaeyja skemmdist verulega. Áætlað er að viðgerð muni kosta um einn og hálfan milljarð og geti tekið allt að tvö ár. Fyrst var greint frá lokum rannsóknarinnar í Heimildinni. 

„Við vorum að rannsaka þetta atvik sem átti sér stað í nóvember í fyrra,“ segir Karl Gauti í samtali við fréttastofu. Til skoðunar hjá lögreglu hafi verið til dæmis myndbandsupptökur úr skipinu. Þá fóru fram sjópróf í janúar sem hann segir hafa verið umfangsmikil.

Hann segir það ekki hafa verið efni rannsóknarinnar að athuga hvort að áhöfnin hafi verið allsgáð.

„Það er bara þetta atvik, þegar akkerið fer í vatnslögnina. Rannsóknin gengur út á það hvers vegna það gerðist og hvort það sé einhver sök hjá skipverjum, áhöfninni eða stjórnendum skipsins.“

Hann segir skaðabótaábyrgð algjörlega utan þeirra umfjöllunar, það eina sem lögregla hafi skoðað sé refsiábyrgðin.

Hafi vanrækt skyldur sínar

Bæjaryfirvöld ákváðu í sumar að leggja fram skaðabótakröfu á hendur Vinnslustöðinni. Framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar sagði í desember tvo skipstjórnarmenn hafa vanrækt skyldur sína þegar akkerið féll frá borði.

Guðmundur Ingi Guðmundsson og Gylfi Viðar Guðmundsson, skipstjórar sem skiptust á að gegna hlutverki skipstjóra og stýrimanns á túrum Hugins, voru í brúnni þegar akkerið olli skemmdunum. Samið var við þá um starfslok eftir innanhússskoðun Vinnslustöðvarinnar.

Sjá einnig: Segir skip­stjórana tvo hafa van­rækt skyldur sínar

Þrjú hundruð þúsund á hvern íbúa

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar sagði í júlí það hafa verið þung skref, að höfða mál gegn Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Bæjarfulltrúar væru þó ekki að sinna hlutverki sínu ef tekin yrði ákvörðun um að bæjarbúar ættu að greiða fyrir skemmdirnar.

„Það er reiknað með að viðgerðin á leiðslunni kosti einn og hálfan milljarð, og það er yfir 300 þúsund á hvern íbúa í Vestmannaeyjum. Við getum náttúrulega aldrei ekki látið á þetta reyna.“

Sigurgeir hefur í viðtölum áður sagt fyrirtækið bera bótaábyrgð í málinu og að það sé tryggt en að samkvæmt siglingalögum sé heimild til að takmarka tjónabæturnar við 360 milljónir.

Sjá einnig: „Í mínum huga alveg útilokað“

„Í tjóni sem þessu er það þannig að hámarksbætur eru til staðar. Þetta byggir á alþjóðalögum sem við heyrum undir. Sambærilegt atvik átti sér stað þegar skip sigldi niður brú í Bandaríkjunum, þar átti sama regla við. Bæturnar takmörkuðust við ákveðið hlutfall af verðmæti skipsins. Þannig eru bara reglurnar í þessu og lögin. Tryggingafélagið er annars bara með þetta mál,“ sagði Sigurgeir í viðtali við Vísi í júlí.


Tengdar fréttir

Afríka bíður meðan Eyjamenn fá búnað sem tryggir drykkjarvatn

Vinnslustöðin hefur fest kaup á þremur gámum með hollenskum tæknibúnaði sem breytir sjó í drykkjarvatn og má reikna með að fyrsti gámurinn komi til landsins milli jóla og nýárs og hinir tveir í upphafi næsta árs. Þar sem félagið þarf bara einn gám til að fullnægja eigin þörfum hefur Ísfélaginu og Vestmannaeyjabæ verið boðið að kaupa hina tvo.

Til skoðunar hvort bilun eða mistök hafi valdið skaðanum

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur til skoðunar hvort einhver bilun hafi orði í tækjabúnaði eða mistök gerð þegar akkeri um borð í Hugin VE féll frá borði með þeim afleiðingum að neysluvatnslögn Eyjamanna varð fyrir skemmdum. Hættustig almannavarna hefur verið lýst yfir vegna stöðunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×