Innlent

Vara gangna­menn við snjó­flóða­hættu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Snjórinn er byrjaður að setjast í fjöll víða um land.
Snjórinn er byrjaður að setjast í fjöll víða um land. Myriam Dalstein

Veðurstofan varar við snjóflóðahættu á Tröllaskaga og Flateyjaskaga þar sem göngur verða á mörgum svæðum næstu daga. Gangnamenn þurfi að vera meðvitaðir um stöðuna.

Myriam Dalstein tók þessa mynd af Sandárgilinu er af snjóflóði sem féll í vikunni.Myriam Dalstein

Fé er safnað um allt land þessa dagana og verða réttir í framhaldinu. Leitum var frestað víða um land fyrr í vikunni þegar appelsínugul veðurviðvörun var á norðanverðu landinu. Veðurstofan segir enn hættu á flóðum. Sérstaklega geti göngumenn sett þau sjálfir af stað.

„Næstu daga verða göngur á mörgum svæðum á Tröllaskaga og Flateyjaskaga og þurfa gangnamenn að hafa snjóflóðahættu ofarlega í huga og varast brattar og snæviþaktar hlíðar, sér í lagi þar sem dregið hefur í skafla og stærri vindfleka. Þó líkur á náttúrulegum snjóflóðum hafi minnkað mikið eftir að veðrinu slotaði getur enn verið hætta á að göngumenn setji af stað snjóflóð sjálfir,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spáð er rigningu á laugardag og fram á sunnudag og gæti bætt í snjó í efstu fjöll.

„Það snjóaði töluvert til fjalla í áhlaupinu 9-10. sept. og snjóflóð féllu. Flekahlaup hafa sést í Svarfaðardal og Héðinsfirði, sum bresta á auðri jörð neðantil í hlíðum þar sem gróður er meiri en einnig hafa farið flekar frá fjallsbrúnum niður í brekkurætur og skafið í upptökin svo þau sjást ekki lengur. Sólbráð næstu daga getur orsakað fleiri flekahlaup sem gætu verið hættuleg göngufólki.“ 

Ítarlegri fréttir eru að finna á vef Veðurstofunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×