Orðrómur hefur verið á kreiki frá því að greint var frá andláti stúlkunnar um að það tengdist einhvers konar uppgjöri í undirheiminum og aðrir en Sigurður Fannar Þórsson, faðir hennar, tengdust því.
Sigurður Fannar hringdi sjálfur á lögreglu að kvöldi 15. september síðastliðinn og sagðist hafa orðið dóttur sinni að bana. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan þá.
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að lögregla hafi fylgt eftir ábendingum um aðkomu skipulagðrar glæpastarfsemi að andlátinu.
Grímur sagði í samtali við fréttastofu tveimur dögum eftir andlát stúlkunnar að lögregla eyddi ekki tíma í að eltast við sögusagnir í tengslum við andlátið.
„Við fylgdum eftir ákveðnum upplýsingum í þessu sambandi en það er að okkar mati ekkert sem bendir til þess að það séu aðrir sem komu að þessu máli heldur en sá sem situr í gæsluvarðhaldi,“ segir hann nú.
Ítrekar að faðirinn hringdi sjálfur
Hvað varðar rannsóknina segir Grímur að lögregla telji sig vera með skýra mynd af atburðum sem leiddu til andlátsins. Sigurður Fannar sé ekki yfirheyrður reglulega heldur aðeins þegar tilefni er talið til þess.
Spurður um það hvort játning liggi fyrir í málinu segist Grímur ekki geta greint frá því sem fram hefur komið í yfirheyrslum.
„Ég hef bent á það að viðkomandi sem var handtekinn og situr í gæsluvarðhaldi, hann náttúrulega hringdi inn sjálfur.“
Engin myndskeið velt þúfum
Fjórum dögum eftir handtöku Sigurðar Fannars óskaði lögreglan eftir myndefni frá vegfarendum sem óku um Krýsuvíkurveg, á milli Vallahverfis í Hafnarfirði og Vigdísarvallavegar, á milli klukkan 13 og 18 á sunnudaginn 15. september.
Grímur segir að nokkuð hafi borist af myndefni og enn sé verið að fara yfir það.
„Það er kannski ekki búið að skoða allt myndefnið í þaula en það er allavega ekkert sem hefur velt einhverjum þúfum.“
Gefur ekkert upp um morðvopn
Grímur segir að bráðabirgðaniðurstöður frá réttarmeinafræðingum liggi fyrir þó að endanleg krufningarskýrlsa liggi fyrir. Hann geti ekkert farið út í hvert banamein stúlkunnar var né hvort vopni hafi verið beitt eða lögregla hafi fundið hugsanlegt morðvopn.
„Ég bara ítreka það að við teljum okkur vera með nokkuð góða mynd af því sem þarna gerðist.“
Reiknar með að skila málinu frá sér á tíu vikum
Grímur segir að rannsókn málsins miði vel og hann geri ráð fyrir því að henni verði lokið innan lögbundins frests. Samkvæmt lögum um meðferð sakamála er heimilt að halda sakborningi í gæsluvarðhaldi í tólf vikur án þess að ákæra sé gefin út.
Grímur reiknar með því að málið verði komið á borð ákærusviðs um tíu vikum eftir handtöku, svo því gefist rými til þess að taka ákvörðun um útgáfu ákæru. Nú eru rétt rúmar þrjár vikur liðnar frá handtöku Sigurðar Fannars.