Körfubolti

Sjáðu höggið og lætin í Kópa­vogi

Sindri Sverrisson skrifar
Það tók sinn tíma að róa menn niður eftir lætin í hálfleik í gærkvöld, og menn voru enn reiðir eftir að leiknum lauk.
Það tók sinn tíma að róa menn niður eftir lætin í hálfleik í gærkvöld, og menn voru enn reiðir eftir að leiknum lauk. Stöð 2 Sport

Upp úr sauð í hálfleik í leik Grindavíkur og Hattar í Smáranum í Kópavogi í gærkvöld, í Bónus-deild karla í körfubolta. DeAndre Kane, leikmaður Grindavíkur, sló þá í andlit Courvoisier McCauley, leikmanns Hattar.

Leikmenn liðanna voru mættir aftur út á völl til að hita upp fyrir seinni hálfleik, þegar lætin urðu.

Ljóst er að Kane og McCauley höfðu skipst á orðum í aðdragandanum, og eins og sjá má hér að neðan fór Kane svo inn á þann vallarhelming sem Egilsstaðabúar hituðu upp á, og að McCauley.

Þeir héldu svo áfram að skiptast á orðum áður en McCauley virtist lyfta fingri að andliti Kane sem þá virtist slá McCauley í andlitið.

Leikmenn beggja liða þustu þá að og var mönnum skiljanlega heitt í hamsi en ekki urðu þó frekari áflog.

Klippa: Lætin í hálfleik í Smáranum

Dómarar leiksins urðu ekki vitni að atvikinu og bæði Kane og McCauley fengu að klára leikinn. Það verður svo að koma í ljós hvort aganefnd KKÍ tekur málið fyrir og hvort að annar þeirra eða báðir séu á leið í leikbann.

Viðar Hafsteinsson, þjálfari Hattar, var að minnsta kosti ekki í vafa um að taka þyrfti hart á hegðun Kane sem áður hefur orðið uppvís að ósæmilegri hegðun en hann var dæmdur í bann í upphafi úrslitakeppninnar á síðustu leiktíð, og hlaut einnig sekt í úrslitakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×