Innlent

Átti sam­tal við Höllu Hrund fyrir stjórnar­slitin

Rafn Ágúst Ragnarsson og Kristín Ólafsdóttir skrifa
Formaðurinn vermir annað sæti framboðslista Framsóknar í Suðurkjördæmi og segir mikilvægt að hugsa út fyrir kassann þegar knappur tími er til kosninga.
Formaðurinn vermir annað sæti framboðslista Framsóknar í Suðurkjördæmi og segir mikilvægt að hugsa út fyrir kassann þegar knappur tími er til kosninga. Vísir/Vilhelm

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segist sjálfur hafa ákveðið að óska eftir því við kjörstjórn að Halla Hrund Logadóttir fengi oddvitasætið á lista flokksins í Suðurkjördæmi.

Hann segir að þegar efnt sé til kosninga með stuttum fyrirvara þurfi að hafa hraðar hendur og þar sem Framsóknarflokkurinn hafi ekki verið að mælast ásættanlega þurfi að horfa til djarfari lausna.

Stuttur fyrirvari

„Ég átti von á því að kosningar yrðu næsta vor eða jafnvel næsta haust en á hverjum tíma þarf stjórnmálaflokkur að horfa í kring um sig, hvar hann gæti styrkt sig, með hverjum hann gæti unnið. Við höfum auðvitað átt samtal meðal annars um orkumál og auðlindanýtingu, við Halla Hrund, og síðan núna í haust áður en að þetta var komið til hafði ég tekið samtal við hana um þessi mál,“ segir Sigurður í samtali við fréttastofu.

Sjá einnig:  Halla Hrund gengin til liðs við Fram­sókn og tekur sæti for­mannsins

„En síðan þegar hlutirnir gerast með þessum hætti, það var á sunnudaginn fyrir sex dögum sem að formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra einhliða ákvað að slíta ríkisstjórninni og nú sex dögum síðar er þetta niðurstaðan,“ segir hann þá.

Sigurður segist ekki vera hræddur um að detta sjálfur af þingi en formaðurinn hefur sjálfur ekki mælst inni á þingi sem kjördæmakjörinn þingmaður.

„Ég er ekki hræddur. Kjósendur ráða en ég vildi með þessu búa til öflugan valkost og segja einfaldlega að ef formaðurinn þorir ekki að taka slaginn með sínu fólki þá er hann ekki mikill leiðtogi,“ segir Sigurður.

Hvergi af baki dottinn

Hann segir engan bilbug finna á sér og að hann stefni ekki að því að hætta í íslenskum stjórnmálum í bráð.

„Ég er formaður flokksins og við höfum fulla trú á því að við getum snúið þessu tafli við á næstu vikum og komið út sem sigurvegarar kosninganna eins og við gerðum 2021 og verið mikilsvert afl í íslenskum stjórnmálum á næstu árum. Þar ætla ég að vera,“ segir Sigurður Ingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×