Innlent

Skoða hvort lög hafi verið brotin við rann­sókn lög­reglu

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Flóki Ásgeirsson lögmaður segir málið snúast meira um stöðu blaðamanna og tjáningarfrelsis en einstaklingana sjálfa.
Flóki Ásgeirsson lögmaður segir málið snúast meira um stöðu blaðamanna og tjáningarfrelsis en einstaklingana sjálfa. Vísir/Vilhelm

Lögmaður Blaðamannafélgsins, vegna rannsóknar lögreglunnar á Norðurlandi eystra á meintri byrlun- og símastuldi, segir tjáningarfrelsi blaðamanna undir í málinu. Hvaða blaðamaður sem er hefði getað orðið fyrir því að lenda á sakamannabekk, fyrir það eitt að sinna vinnunni sinni. Félagið skoðar nú hvort lögregla hafi brotið lög.

Þetta sagði Flóki Ásgeirsson lögmaður í Pallborðinu á Vísi á dögunum. Þar var til umræðu rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á meintri byrlun Páls Steingrímssonar skipstjóra, símastuldi og aðför hennar að sex blaðamönnum, sem fengu réttarstöðu sakbornings í málinu.

Þessir sex höfðu annað hvort skrifað fréttir um - eða unnið með blaðamönnum, sem það höfðu gert - svokallaða skæruliðadeild Samherja, hóp starfsmanna fyrirtækisinsm, og einkasamskipti þeirra á milli.

Aðalsteinn Kjartansson, einn þeirra sem fékk réttarstöðu sakbornings og blaðamaður á Heimildinni, sagði meðal annars að hann hafi verið spurður níu sinnum af lögreglu við skýrslutöku hver heimildarmaður hans hafi verið.

Rannsókn lögreglu var felld niður fyrir mánuði síðan og hafði þá staðið yfir í rúm þrjú ár en Páll Steingrímsson hyggst kæra niðurfellinguna til ríkissaksóknara.

Málið snúist um tjáningarfrelsi stéttarinnar

Flóki segir að verði lyktir eins og þær liggi fyrir núna þá sé ljóst að blaðamennirnir sex hafi verið rannsakaðir að tilefnislausu. Spurningin sé þá hvernig hægt sé að bregðast við því fyrir einstaklingana. Þeir geti sjálfir leitað réttar síns en að mati Blaðamannafélagsins snúist málið um allt önnur atriði.

„Þetta mál snýst, frá sjónarhóli félagsins, stéttarinnar og almennings, að engu leyti um atvik þessi eða þessa einstaklinga, sem fyrir þessu urðu, heldur miklu frekar um prinsippin í málinu og tjáningarfrelsi allrar stéttarinnar,“ segir Flóki.

„Þetta er dæmi um mál, alvarlegt dæmi, sem hvaða blaðamaður sem er hefði getað orðið fyrir. Hvaða blaðamaður sem er hefði getað mætt í vinnuna og lent í nákvæmlega þessu.“

Hann vísar í að það eina sem liggi fyrir í málinu fyrir víst sé að blaðamennirnir sex hafi annað hvort verið skrifaðir fyrir fréttum eða unnið með fólki sem það hafði gert.

„Þannig að hvaða blaðamaður sem er, sem skrifaði fréttir um málið hefði í raun getað sætt þessari sömu meðferð. Það er ekkert sérstakt við einstaklingana í málinu. Þau eru einfaldlega þeir blaðamenn sem fjölluðu um þetta,“ segir Flóki.

Alvarlegt ef eina sökin sé að skrifa fréttir

Það sé það sem geri málið alvarlegt frá sjónarhóli Blaðamannafélagsins: Að málið varði ekki einhverjar sérstakar aðstæður þar sem blaðamenn hafi farið út fyrir blaðamannasiðferði eða reglur.

„Þvert á móti blaðamenn sem hafa akkúrat gert það sem blaðamenn gera og eiga að gera á hverjum einasta degi. Þegar það er gert að sakarefni sakamáls hlýtur félagið að bregðast við því og reyna að fá úr því skorið hvort það sé virkilega staðan - bara með því að skrifa fréttir á grundvelli gagna sem lögreglan veit ekki hvaðan koma, þá séi þeir þar með orðnir sakborningar í sakamáli. Það er mjög alvarleg staða ef það er tilfellið.“

Pallborðið í heild má finna hér neðar:

Til að bregðast við þessu hafi félagið ýmsar leiðir og það komi til greina að fara fram á athugun og úrlausn um það hvort rannsóknin hafi í heild sinni samrýmst þeim grundvallarreglum og -prinsippum sem félagið telji gilda hér á landi.

„Það er að segja að blaðamenn njóti tjáningarfrelsis og ekki bara almenns tjáningarfrelsis heldur rýmkaðs tjáningarfrelsis vegna þess að þeir gegna sérstöku hlutverki sem að, að minnsta kosti þessir, blaðamenn taka mjög alvarlega,“ segir Flóki

„Það er að upplýsa almenning um það sem máli skiptir og er að gerast í samfélaginu og þeir nýti sér þær leiðir, sem eru tiltækar til þess og bregðist ekki þeirri frumskyldu sinni að segja ekki frá heimildarmönnum sínum því það mega þeir einfaldlega ekki gera.“

Auk Flóka voru Þóra Arnórsdóttir fyrrverandi ritstjóri Kveiks og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Heimildinni í Pallborðinu.Vísir/Vilhelm

Skoða hvaða leiðir eru færar

Hann segir að enn eigi eftir að taka ákvörðun hvaða leiðir komi helst til greina.

„Blaðamannafélagið er náttúrulega hagsmunasamtök og stéttarfélag blaðamanna og sem slíkt getur það leitað réttar félagsmanna sinna og það getur líka látið reyna á það með fordæmisgefandi hætti hvort að í þessu máli hafi einhvern vegin verið farið á svig við einhverjar grundvallarreglur sem gilda um stéttina og eiga að vernda starfsskilyrði hennar,“ segir Flóki.

„Þannig að það er hugsanlegt að það verði látið reyna í dómsmáli, þó það liggi ekki fyrir á þessu stigi máls. Varðandi einstaklingana eru auðvitað bara þau úrræði sem þeir einstaklingar hafa, sem hafa ranglega verið bornir sökum um refsiverða háttsemi. Þeir geta leitað eftir leiðréttingu á því.“

Fréttastofa hefur óskað eftir viðtali við Páleyju Borgþórsdóttur, lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, vegna málsins en ekki fengið svar.


Tengdar fréttir

„Þetta mál er lögregluembættinu til ævarandi skammar“

Lögreglan á Norðurlandi eystra var harðlega gagnrýnd í Pallborði Vísis í gær en gestir voru þau Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður Heimildarinnar. Þau voru sakborningar í máli sem varðar meinta byrlun og svo símastuld af Páli skipstjóra Steingrímssonar.

Páll skipstjóri hvergi nærri hættur

Eva Hauksdóttir, lögmaður Páls Steingrímssonar fyrrverandi skipstjóra hjá Samherja, er að leggja lokahönd á kæru á niðurfellingu rannsóknar lögreglunnar á Norðurlandi eystra á meintri byrlun til ríkissaksóknara. 

Afar ólíklegt að byrlunar- og símastuldarmálinu sé lokið

Sigurður G. Guðjónsson lögmaður segir afar ólíklegt að byrlunar- og símastuldarmálinu svokallaða sé lokið en embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra greindi frá því í síðustu viku að ákveðið hefði verið að hætta rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×