Jólaboðið byggir á verki Tyru Tønnessen, Julemiddag, sem er innblásið af The Long Christmas Dinner eftir Thornton Wilder.
List og töfrar leikarans heilla okkur öll á aðventunni
Leikarar í sýningunni eru margir af fremstu leikurum þjóðarinnar en þetta eru Ebba Katrín Finnsdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Oddur Júlíusson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson og Örn Árnason. Sýningin er mikil leikarasýning enda spreyta þau sig á að leika ólíkar persónur á ýmsum aldursskeiðum.
Sprellfjörug og frumleg en um leið hjartnæm sýning
Í Jólaboðinu býðst okkur að fylgjast með sögu íslenskrar fjölskyldu með því að gægjast inn í stofu á aðfangadagskvöld, reglulega, á einnar aldar tímabili. Við fylgjumst með fjölskyldunni koma saman á jólunum, á ólíkum tímum, og upplifum með henni umrót heillar aldar; seinni heimsstyrjöldina, breytingar í sjávarútvegi, hippatímabilið, tæknivæðingu þjóðfélagsins og um leið vandræði fjölskyldunnar við að laga sig að breyttum háttum og innbyrðis venjum. Fjölskyldan reynir að halda í hefðirnar en hin óhjákvæmilega framrás tímans setur hlutina úr skorðum og vekur sífellt nýjar spurningar og ný átök.
Gísli Örn Garðarsson ekki einhamur
Gísli Örn Garðarsson hefur sett upp fjölda leiksýninga á Íslandi og erlendis, sem höfundur og leikstjóri, og hefur leikið á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. Hann hefur starfað við fjölda virtra leikhúsa á Íslandi, í Noregi, Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi og víðar. Gísli Örn er auk þess einn af stofnendum Vesturports. Aðspurður um efni sýningarinnar segir hann: „Efniviðurinn sem við vinnum úr er jafn litríkur og jólin sjálf. Þetta eru sannar sögur – skemmtilegar, átakanlegar, ótrúlegar… um okkur sjálf og aðrar íslenskar fjölskyldur.“
Listrænir stjórnendur sem hafa marga fjöruna sopið
Það er valinn maður í hverju rúmi þegar kemur að aðstandendum sýningarinnar. Dramatúrg sýningarinnar er Melkorka Tekla Ólafsdóttir. Leikmyndahöfundur er Börkur Jónsson sem hefur um árabil starfað með Gísla.
Helga I. Stefándsóttir hannar búninga, Halldór Örn Óskarsson hannar lýsingu, Kristján Sigmundur Einarsson er hljóðhönnuður og Salka Sól og Tómas Jónsson semja tónlistina. Í tengslum við sýninguna var lagið Æskujól eftir þau tvö fyrrnefndu gefið út þegar verkið var sýnt upphaflega. Lagið er í anda sýningarinnar, hugljúft og smellið.
Matur og leikhús eru dásamlegt kombó
Í tengslum við sýningar á Jólaboðinu er hægt að panta dýrindis snittur og njóta þeirra á fráteknu borði í fallegum forsal leikhússins áður en sýningin hefst. Þjóðleikhúsið er nú í samstarfi við veitingahúsið Kastrup um framboð á veitingum. Það er tilvalið að tryggja sér ljúffengar veitingar og gera enn meira úr leikhúsheimsókninni.
Jólaboðið er sýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins og hefjast sýningar fimmtudaginn 14. Nóvember. Tilvalin sýning fyrir hópa!