Lífið samstarf

Troð­full Smára­lind af krökkum að fylgjast með Birgittu

Forlagið
Láru og Ljónsa aðdáendur tóku yfir Smáralind þegar Birgitta Haukdal kynnti þrjár nýjar bækur.
Láru og Ljónsa aðdáendur tóku yfir Smáralind þegar Birgitta Haukdal kynnti þrjár nýjar bækur.

Birgitta Haukdal ásamt Ljónsa frá Þjóðleikhúsinu, Sylvíu systur sinni og Sögu Júlíu dóttur sinni, fylltu Smáralindina af gestum um helgina þegar þau tróðu þar upp með skemmtidagskrá og kynningu á nýjum bókum.

Fjöldi fólks lagði leið sína í Smáralind til að horfa á þau syngja og sprella, ásamt því að gæða sér á veitingum og fá áritun frá metsöluhöfundinum Birgittu Haukdal.

Birgitta var alsæl með móttökurnar og mjög þakklát öllum þeim sem mættu í Smáralindina og fögnuðu með henni útgáfu nýju bókanna. „Þetta var ótrúlega skemmtilegt og ég vona að allir hafi skemmt sér jafn vel og við gerðum,“ sagði Birgitta.

Þrjár nýjar bækur

Stóri Láru og Ljónsa dagurinn var haldinn í tilefni þess að Birgitta var að gefa út þrjár nýjar bækur hjá Forlaginu: Bakað með Láru og Ljónsa, Lára fer á fótboltamót og Atli eignast gæludýr. Einnig er hægt að sjá leikrit um Láru og Ljónsa í Þjóðleikhúsinu og kaupa ýmsar Láru og Ljónsa vörur í Hagkaup.

Hér má sjá nokkrar myndir frá deginum:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×