Innlent

FA klagar Willum Þór til um­boðs­manns

Jakob Bjarnar skrifar
Ólafur telur Willum rífa af sér grímu forræðishyggjunnar á lokametrum ríkisstjórnarinnar og gangi freklega gegn meðal annars atvinnufrelsi fyrirtækja með reglugerð sinni.
Ólafur telur Willum rífa af sér grímu forræðishyggjunnar á lokametrum ríkisstjórnarinnar og gangi freklega gegn meðal annars atvinnufrelsi fyrirtækja með reglugerð sinni. vísir/vilhelm

Félag atvinnurekenda hefur sent umboðsmanni Alþingis kvörtun vegna reglugerðar Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra, sem hann undirritaði í lok október. Félagið telur ráðherra, sem nú situr í starfsstjórn, ganga alltof langt í forræðishyggjuátt og að hann troði meðal annars á stjórnarskrárvörðum eignar- og atvinnuréttindum.

Þar er meðal annars kveðið á um að tóbaksvörur skuli vera í einsleitum umbúðum í „ljótasta lit í heimi“ og afmá skuli vörumerki af þeim.

Hvað kemur næst?

Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA er ekki sáttur.

„Einhvers staðar verður að draga mörkin hvað varðar inngrip stjórnvalda í starfsemi fyrirtækja sem selja löglegar vörur. Það geta verið lýðheilsurök fyrir takmörkunum á réttindum framleiðenda og seljenda tóbaks, en slíkt inngrip í grundvallarréttindi á að vera í höndum Alþingis en ekki geðþóttaákvörðun ráðherra. Ef þetta er látið óátalið, hvað kemur þá næst?“ spyr Ólafur forviða.

FA telur reglugerðina ekki hafa lagastoð og hún sé svo veigamikið inngrip í stjórnarskrárvernduð eignar- og atvinnuréttindi að ótækt sé að ráðherra ákveði slíkt upp á sitt einsdæmi. Willum var orðinn ráðherra í starfsstjórn er reglugerðin var sett.

Vísað er til ákvæða í grein 6.c í tóbaksvarnarlögum þar sem finna má tæmandi upptalningu á því hvaða merkingar sé óheimilt að hafa á tóbaksumbúðum. En vörumerki fyrirtækja eru ekki þar á meðal.

Skrítið að ráðherra í starfsstjórn skuli ráðast í annað eins og þetta

„FA fær því ekki séð að lagastoð sé til staðar hvað varðar ákvæði 20 gr. reglugerðarinnar um einsleitar umbúðir. Ráðherra, sem meira að segja situr í starfsstjórn er reglugerðin er undirrituð, getur ekki upp á sitt einsdæmi ákveðið að setja reglugerð sem hefur ekki stoð í lögum. Þetta hefur umboðsmaður staðfest í álitum sínum, t.d. áliti nr. 1792/1996. Þar kom fram „að nauðsynlegt sé að skýrt sé frá því gengið í lögum, hvaða kvaðir verði lagðar á borgana“,“ segir í kvörtun FA.

Þá er bent á að um veigamikil inngrip sé að ræða í bæði eigarréttindi sem og atvinnufrelsi fyrirtækja. Rétt sé að Alþingi fjalli um slíkt, en það sé ekki ákveðið af ráðherra með reglugerð. Bent er á að þegar séu í gildi ákvæði um að bannað sé að hafa tóbak sýnilegt á sölustöðum og því vandséð hvaða markmiðum ákvæði um einsleitar umbúðir eigi að ná. Enginn rökstuðningur hafi komið fram af hálfu heilbrigðisráðuneytisins hvað þetta varðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×