Fótbolti

„Erfitt að vinna með ein­hverjum betri en Heimi“

Aron Guðmundsson skrifar
Samstarf Guðmundar Hreiðarssonar og Heimis Hallgrímssonar teygir sig aftur nokkur ár í tímann. Fyrst voru þeir andstæðingar, nú eru þeir samherjar og miklir vinir.
Samstarf Guðmundar Hreiðarssonar og Heimis Hallgrímssonar teygir sig aftur nokkur ár í tímann. Fyrst voru þeir andstæðingar, nú eru þeir samherjar og miklir vinir. Vísir/Getty

Samstarf Heimis Hallgrímssonar og Guðmundar Hreiðarssonar teygir sig mörg ár aftur í tímann og hefur Guðmundur fylgt Eyjamanninum í alls konar ævintýri víðs vegar um heiminn. Hann segir erfitt að vinna með einhverjum betri en Heimi sem laði fram það besta í fólki. 

Það var í júlí fyrr á þessu ári sem greint var frá því að Heimir Hall­gríms­son yrði næsti lands­liðsþjálfari írska karla­lands­liðsins í fót­bolta. Heimir hafði þá áður verið með lands­lið Jamaíka og líkt og áður skipaði hann Guð­mund Hreiðars­son mark­mannsþjálfara liðsins.

Þrátt fyrir að árangur írska lands­liðsins hafi ekki verið upp á marga fiska undan­farin ár er pressan mikil á liðinu og þar með þjálfurum þess. Því fengu Heimir og Guð­mundur fljótt að kynnast en pressan kom þeim ekki á óvart.

„Það er eitt­hvað sem við vissum. Þetta lands­lið er þjóðar­eign Íra. Írar eiga þetta lið og þetta skiptir þá gríðar­legu máli,“ segir Guð­mundur við Vísi. „Að þetta lands­lið geti eitt­hvað í fót­bolta, skaffi stig, skaffi sigra. Írar eru upp til hópa frábært fólk. Yndis­legt fólk sem býr í Ír­landi og okkur hefur verið tekið mjög vel. Ekki yfir neinu að kvarta og um­gjörðin í kringum liðið er alveg 100%, fyrsta flokks. Allt til staðar er varðar þjálfara- og sjúkra­t­eymi sem og allt annað er snýr að leik­mönnum. Árangurinn hefur ekki verið eins og þeir vilja og ætlast til undan­farin ár. Það er okkar hlut­verk, allra sem koma að liðinu að reyna breyta því. Okkar mark­mið frá fyrsta degi hefur verið að búa til lið sem kemst á HM. Það er okkar mark­mið. Okkar stefna. Í það verk­efni erum við ráðnir. Síðan verður tíminn að leiða það í ljós hvort það gangi eftir.

Stefnan hjá írska landsliðinu undir stjórn Heimis er sett á Heimsmeistaramótið 2026 í Bandaríkjunum. Takist það verður það í fyrsta sinn frá árinu 2002 sem Írland myndi eiga sæti á mótinu í karlaflokkiVísir/Getty

Auðvitað eigi að vera kröfur til staðar.

„Fólk á að hafa skoðanir og í Ír­landi er það bara þannig að allir hafa skoðanir. Sumir vinna við að hafa skoðanir. Það er bara gott. Aðhald er gott og menn verða að hafa leyfi til að tjá sig. Svo kemur nýr leikur. Ef hann vinnst eru yfir­leitt allir ánægðir. Ef hann tapast eru allir óánægðir. Það er ekkert öðru­vísi með Íra.“

Heimir í hringiðunni

Ekki er hægt að segja að írska lands­liðið hafi upp­lifað fljúgandi start undir stjórn Heimis í fyrstu leikjunum í Þjóða­deild UEFA en hafa ber í huga að Róm var ekki byggð á einum degi. Það tekur tíma að setja saman lið.

Hins vegar var neikvæða um­ræðan í kringum liðið og Heimi áberandi í írskum fjölmiðlum. Fólk hafði skoðanir. Menn sem hafa verið hluti af fót­boltasögu Íra. Menn á borð við fyrr­verandi at­vinnu- og lands­liðs­mennina Richard Dunne og Eamon Dun­p­hy sem vildi að Heimir yrði rekinn eftir tap í fyrstu tveimur leikjum Ír­lands undir hans stjórn.

Guð­mundur segir þá Heimi ekki hugsa of mikið í þessa um­ræðu sem blossar upp í fjölmiðlum.

„En auðvitað er Heimir í hringiðunni. Hann er á blaða­manna­fundunum, fær spurningarnar og þarf stundum að undir­búa sig, mæta með mark­manns­hanska en er yfir­leitt alltaf mjög undir­búinn og kúlti­veraður. Þetta truflar ekki neitt en auðvitað er alltaf, í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur, jákvæð um­fræða skemmti­legri en sú neikvæða. Kannski verðurðu var við þessa neikvæðu um­ræðu þegar að hún á sér stað en ég hef nú bara tamið mér það í gegnum tíðina að vera ekkert að velta mér upp úr því sem er skrifað og sagt. Heldur bara að reyna vinna mína vinnu. Gera það af heilindum og það hefur yfir­leitt gengið alveg ágæt­lega.“

Búnir að fá svör

Ír­land er á leið í um­spil um áfram­haldandi sæti í B-deild Þjóða­deildarinnar gegn Búlgaríu í mars. Eftir þessa fyrstu leiki segir Guð­mundur að Heimir og þjálfara­t­eymið sé heilt yfir sátt með þróunina á leik liðsins hingað til.

Á æfingu með írska landsliðinuVísir/Getty

„Þessir leikir sem við erum búnir að vera fá gefa okkur svör. Þetta snýst um það. Við höfum verið að skoða leik­menn hingað og þangað. Höfum líka verið óheppnir með meiðsli. Þannig er bara boltinn og lands­liðs­um­hverfið. Þú ert ekki að þjálfa leik­menn dags­dag­lega, ert að fylgjast með þeim hjá öðrum liðum. Svo velurðu þá sem að þú vilt fá. Ef þú ert heppinn færðu alla þá sem þú hefur valið í verk­efnið. Ef þú ert óheppinn þá færðu ein­hverja aðra inn og þeir fá þá tækifæri til að sýna sig.

Við höfum heilt yfir verið mjög ánægðir með allt það sem við höfum verið að prófa. Þetta er nauð­syn­legt en það er alltaf dýrt að vera með ein­hverja til­rauna­starf­semi og prófa hluti í móts­leikjum. Það er hins vegar bara það sem þú færð í þessum lands­liðs­gluggum í dag. Þú færð móts­leiki. Færð í raun og veru enga æfingar­leiki.“

Sagði já eftir tíu mínútna fund

Þetta er enn eitt ævintýrið sem Guð­mundur slæst í för með Heimi í. Hann fylgdi honum til Jamaíka á sínum tíma og þá var hann í þjálfara­t­eymi Eyja­mannsins hjá ís­lenska lands­liðinu. Saga þeirra nær hins vegar aðeins lengra aftur í tímann.

„Við vorum búnir að þekkjast ágæt­lega sem and­stæðingar í fót­bolta. Hann með ÍBV og ég með KR, Víkingi og Val. Við spiluðum á móti hvor öðrum, vissum hvor af öðrum og áttum sam­eigin­lega vini. Svo at­vikast þetta þannig að ég var í raun búinn að leggja lands­liðsþjálfara­starfið á hilluna þegar ég fékk árið 2012 og var boðaður á fund með Lars Lager­back og Heimi.“

Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson eru góðir vinir eftir að hafa stýrt saman íslenska landsliðinu og komið því í átta liða úrslit EM 2016.Getty/Catherine Sleenkeste

„Ég sagði við konuna mína sem hafði sagt við mig „þú ert ekki að fara taka þetta að þér“ að ég ætlaði bara að hitta þessa höfðingja og lofaði henni því að ég myndi ekki taka þetta að mér. En eftir tíu mínútur á fundi með þeim var ég búinn að hand­sala það að ég myndi verða áfram.“

Frá þeim tíma­punkti hófst mikil vinátta milli Heimis og Guð­mundar í kringum ís­lenska lands­liðið.

„Heimir bað mig um að halda áfram þegar að hann tók einn við ís­lenska lands­liðinu eftir EM 2016. Bæði er þetta mikill vin­skapur en einnig mikil fag­mennska. Það er ótrú­lega skemmti­legt að vinna með Heimi og að hafa séð hann vaxa sem þjálfara. Hann var góður þjálfari fyrir. Þegar að hann var að þjálfa í efstu deild hér heima ÍBV. Hann sagðist alltaf vera með ákveðna leið sem hann vildi fara. Ætlaði að gera það með lands­liðinu. Hann sagði að ef hann hefði ekki kynnst Lars á þeim tíma­punkti hefði hann bara farið í tóma vit­leysu, hlutirnir hefðu farið á allt annan veg en þeir fóru.“

Íslenska landsliðið naut mikillar velgengni undir stjórn HeimisVísir/Vilhelm

„Verður hálf lítill í sér við hliðina á honum“

Margir kostir prýði heimi sem þjálfara og ein­stak­ling. Guð­mundur hefur fylgst með honum verða að betri og betri þjálfara.

„Heimir sýgur í sig kunnáttu annarra. Notar það og er mjög klókur í því að lesa leikinn. Hann setur upp skemmti­legar æfingar sem snúast um leikinn fyrst og síðast. Hann er mjög taktískur og maður verður hálf lítill í sér við hliðina á honum því hann er svo svaka­lega skipu­lagður.

Hann er með allt á hreinu, veit allt og veit allt um næsta and­stæðing áður en leik­greinandinn kemur í hús og er með sýna leik­greiningu. Heimir er þá mættur með fullt af spurningum, sogar að sér allar upp­lýsingar um alla leik­menn sem við erum að fara spila á móti og notar starfs­fólkið í kringum sig mjög vel. Það eru allir með hlut­verk. Það fá allir að blómstra. Fá allir að vera þeir sjálfir og sýna sinn styrk. Það eru allir með rödd.

Heimir og Guðmundur hafa þurft að sökkva sér í írska boltann og afla sér þekkingu um þá leikmenn sem standa þeim til boða. Hér má sjá þá á leik Galway United og Derry City í írsku úrvalsdeildinniVísir/Getty

Það sé rosa­lega gott að vinna með honum því Heimir leyfir fólkinu í sínu teymi að njóta sín sem ein­staklin.

„Þú færð hlut­verk en hann ætlast líka til þess að hlut­verkið sé í lagi og að þú sért að skaffa og sinna vinnunni þinni. „Fyrir utan það að vera góður þjálfari er þetta frábær manneskja og góður vinur. Það er erfitt að vinna með ein­hverjum betri en Heimi.“

Heimir hafi lært rosa­lega mikið þegar að hann fór til Katar árið 2018 þar sem að hann tók við liði Al-Arabi þar í landi.

Heimir Hallgrímsson er þjálfari Al Arabi í Katar.Getty/Simon Holmes

„Hann fór þangað og var þar í langan tíma og bjó til gott lið. Ég man ekki hvað þeir hjá Al-Arabi voru búnir að skipta oft um þjálfara þegar að Heimir kom til þeirra. Þó hann hafi ekki unnið alla leiki skiptu þeir Heimi ekki út af því að hann er með ákveðna sýn sem að skiptir máli, fær menn með sér í að vinna í þá átt sem hann vill fara. Þó að menn hafi rödd þá á endanum hefur hann loka­svarið. Yfir­leitt er sam­staðan og sam­vinnan í kringum hann þannig að menn eru fljótir að róa í sömu átt.

Ég sé mikla breytingu á honum frá því að ég kynntist honum fyrst. Hann var góður þá. Nú er hann orðinn enn betri. Hann getur í raun þjálfað þá bestu og er að því. Búinn að gera það í mörg ár. Hann hefði aldrei fengið þetta starf á Ír­landi nema fyrir þær sakir að menn vissu hvað hann væri að gera. Gríðar­lega taktískur þjálfari. Fáir sem eru betri á því sviði heldur en hann.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×