Innlent

Fram­lengja gæslu­varð­hald vegna á­rásar á Vopna­firði

Lovísa Arnardóttir skrifar
Árásin átti sér stað í október á þessu ári.
Árásin átti sér stað í október á þessu ári. Vísir/Vilhelm

Búið er að framlengja gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni þar til 10. janúar á næsta ári. Það staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari. Maðurinn hefur verið í varðhaldi frá því í október þegar hann var handtekinn. 

Rannsókn lögreglunnar á málinu lauk í síðasta mánuði og sent til héraðssaksóknara. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um framhaldið hjá héraðssaksóknara en lögreglan rannsakaði málið sem tilraun til manndráps og til vara sem stórfellda líkamsárás.

Fyrrverandi sambýliskona mannsins, Hafdís Bára Óskarsdóttir, steig fram í viðtali við Kastljós í vikunni og lýsti þar alvarlegu ofbeldi mannsins gegn henni. Hún sagði réttarkerfið hafa brugðist henni og nefndi í því samhengi höfnun á nálgunarbanni gagnvart honum aðeins nokkrum klukkustundum áður en hann réðst svo á hana. Þar sagði hún einnig manninn hafa ráðist að sér með járnkarli.

Í greinargerð lögreglunnar sem fylgdi gæsluvarðhaldsúrskurði í málinu segir að talið sé að árásin hafi átt sér stað milli klukkan sex og hálf sjö um kvöldið 16. október síðastliðinn. Maðurinn hafi reynt að stinga konuna í kviðinn með járnkarli og reynt að kyrkja hana með verkfærinu með þeim afleiðingum að hún sá hvítt.

Í úrskurðinum er einnig haft eftir vitni að það hafi komið að konunni liggjandi á gólfinu eftir að maðurinn var farinn. Hún hafi þá sagt manninn hafa ætlað að drepa sig. Maðurinn var handtekinn í kjölfarið en hann viðurkenndi á vettvangi að hafa ráðist á konuna.

Alvarlegri en gert var ráð fyrir

Í gæsluvarðhaldsúrskurðinum kemur jafnframt fram að árásin hafi reynst alvarlegri en upphaflega var gert ráð fyrir.

Tveimur dögum eftir árásina hafi borist skýrsla sem lögreglan á Norðurlandi eystra tók af konunni, en konan var á sjúkrahúsi í umdæmi hennar. Þar hafi mjög alvarlegri líkamsárás verið lýst sem hefði getað leitt til dauða konunnar.

Hún væri með mikla áverka víðs vegar um líkamann. Meðal annars væri hún tilfinningalaus og máttlaus í annarri hendinni. Svo virðist sem manninum hafi verið sleppt lausum eftir fyrri handtökuna, en eftir að þessi skýrsla barst var hann handtekinn á ný.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×