Á netinu er vinaverð þegar komið í gang og gildir til miðnættis í kvöld. Rúnar Ólafsson, eigandi Stóra flugeldamarkaðarins segir sprengjugleði Íslendinga síst hafa dvínað síðustu ár. Met var slegið í fyrra.
„Ég hef verið í flugeldabransanum í 35 ár og við höfum aldrei selt eins marga flugelda og á síðasta ári, við áttum ekki eftir eitt einasta prik þegar við lokuðum á gamlársdag," segir Rúnar.
12 ára afmæli Vinadagsins!
,,Þetta er í 12. skiptið sem við höldum vinsæla Vinadaginn og því verður allt tryllt þetta árið, engar hækkanir á verði, stærri sprengjur og mjög veglegur leikur í gangi á Facebook síðunni okkar.”
Vinadagurinn fyrir alla

„Við erum með mjög breiða línu af flugeldum og höfum frá upphafi flutt inn stórar sprengjur fyrir dellukalla. Við tókum upp á því að vera með lokaðan vinadag á facebook þar sem hægt var að nálgast flugelda á sérstöku verði. Við gátum þá afgreitt alla dellukallana á einu bretti. Ásóknin var alltaf gríðarleg og fyrir nokkrum árum ákváðum við því að opna Vinadaginn almenningi. Það sló í gegn.
Síðustu 3 ár höfum við verið með vinadaginn á netinu líka og þá teygist hann yfir þrjá daga, 26., 27. og 28. desember. Það er eins í ár.
Vinadagurinn gildir til miðnættis þann 28. desember og þarna erum við að tala um verð sem sjást ekki annarsstaðar enda ákváðum við að hækka ekki verðin milli ára, enn er hægt að kaupa á "vinaverði" núna á vefsíðunni okkar www.storiflugeldamarkadurinn.is.
Þar getur þú lagt inn pöntun og sótt frá 28. desember þegar við opnum og til 31. desember þegar við lokum. Þú keyrir til okkar niður í verslun okkar Smiðshöfða 19, við Gullinbrú. Við hvetjum alla til að taka þátt í stórskemmtilegum Facebook leik okkar þar sem einn heppinn getur unnið bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 kr.“ segir Rúnar
Hægt er að taka þátt í leiknum hér. Dregið verður í dag, þann 28. desember.