Andri birti hugleiðingar sínar um málið á Facebook síðunni Loftslagbreytingar - umræða og fréttir.
Undanfarna mánuði hefur mikil umræða skapast um loftslagsverkefnið Coda Terminal á vegum Carbfix. Til stendur að sigla með koltvísýring í fljótandi formi frá Norður-Evrópu til hafnar í Straumsvík í Hafnarfirði, þar sem honum verður dælt ofan í jörðina með borteigum.
Sjá einnig: Ólga meðal íbúa vegna fyrirhugaðra framkvæmda
Sjá einnig: Þakklát fyrir spurningar íbúa og varpa nýju ljósi á framkvæmdir
Var skeptískur í fyrstu
„Ég hef fylgst með Carbfix nánast frá upphafi og hef haft mætur á því vísindafólki sem þróaði lausnina. Ég var skeptískur þegar niðurdælingin hófst á Hellisheiði og gat spurt ,,heimskulegu" spurninganna. Gæti þetta mengað Gvendarbrunna? ...“ segir Andri.
Carbfix hafi lagað vandann við brennisteinsmengun á Hellisheiði og þannig bætt loftbæði á höfuðborgarsvæðinu.
Þá kunni hann að meta gagnrýna fréttamennsku en finnst of langt gengið „í að hneykslis og glæpavæða þessi áform í Straumsvík.“
Fyrir um viku síðan birti Heimildin grein þar sem fram kom að fyrirætlanir Carbfix væru mun umfangsmeiri en fram hefði komið, og fyrirtækið hefði blekkt Hafnfirðinga um starfsemi sína. Framkvæmdastjóri Carbfix sagði umfjöllunina uppfulla af rangfærslum.
Baráttan við loftslagsbreytingar ekki einfalt verkefni
Andri Snær segir baráttuna við loftslagsbreytingar ekki einfalt eða línulegt verkefni, og það þurfi að gera margskonar tilraunir og allskyns mistök.
„Heimurinn er á algeru frumstigi og lausn Carbfix um bindingu í basalti er merkileg og lofandi, tilraunir með bindingu með saltvatni eða sjó gefa vonir um að hægt væri að nýta þessa aðferð mjög víða í heiminum,“ segir Andri.
Þá segir hann að ýmilegt megi ræða varðandi verkefnið. Hann kannist jú við að vera mótfallinn trylltri stóriðjustefnu, en í þessu tilfelli sé meira í húfi.
„Mér finnst umræðan komin út fyrir gagnrýni og komin í eyðileggingarstarf og niðurrif og næstum ómögulegt að blanda sér inn í umræðuna af því hún verður strax persónuleg og ómálefnanleg.“
„Ég tel að þeir sem hafa unnið að Carbfix hafi unnið að heilindum og kannski hafa þau gert einhver mistök í kynningu, kannski fannst þeim málefnið og málstaðurinn það góður að þeim datt ekki í hug að reikna með svo hörðum viðbrögðum.“
Þá sé það ef til vill til marks um heiðarleika og klaufaskap að fyrirtækið hafi klúðrað PR málum. Það segi ekkert um fagmennsku vísindanna.