Innlent

Fimm með réttar­stöðu sak­bornings vegna and­láts í Grinda­vík

Lovísa Arnardóttir skrifar
Umfangsmikil leit fór fram í kjölfar þess að Lúðvík féll ofan í sprunguna.
Umfangsmikil leit fór fram í kjölfar þess að Lúðvík féll ofan í sprunguna. Vísir

Lögreglan á Suðurnesjum lauk í síðustu viku rannsókn sinni á banaslysi í Grindavík þann 10. janúar í fyrra. Fimm hafa réttarstöðu sakbornings í málinu að sögn Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum. Málið er nú á borði héraðssaksóknara. 

Fyrst var greint frá á mbl.is. Sá sem lést í slysinu hét Lúðvík Pétursson en hann var við störf í Grindavík við götuna Vesturhóp. Þriggja daga leit fór fram eftir að hann hvarf sem var að endingu blásin af vegna erfiðra og hættulegra aðstæðna á vettvangi. Lúðvík var fæddur árið 1973 og lét eftir sig unnustu, fjögur börn, tvö stjúpbörn og tvö barnabörn.

Úlfar segir rannsóknina beinast að 215. ákvæði hegningarlaga sem fjallar um manndráp af gáleysi og um brot á lögum um aðbúnað og hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. 

Úlfar vill ekkert segja í samtali við fréttastofu um það hverjir sæta réttarstöðu sakbornings en í frétt mbl.is segir að samkvæmt þeirra heimildum hafi einn starfsmaður verkfræðistofunnar Eflu réttarstöðu sakbornings. Verkfræðistofan tók verkefnið við húsið að sér að beiðni Náttúruhamfaratrygginga Íslands.

Lúðvík segir lögregluna hafa sent málið til héraðssaksóknara í síðustu viku.Vísir/Vilhelm

Vinnueftirlitið rannsakaði slysið og sagði í skýrslu sinni um slysið, sem kom út í október, að það hefði mátt rekja til þess að ekki hafi verið til staðar fullnægjandi áhættumat og að ekki hafi farið fram nægilega góð kynning á helstu hættum sem gætu steðjað að þeim sem ynnu á vettvangi. Þá velti Vinnueftirlitið því fram hvort verkið sem var unnið hafi verið áhættunnar virði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×