Erlent

Ætla að sleppa þremur gíslum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Hamas-liðar hafa tilkynnt nöfn þriggja gísla sem sleppa á á morgun.
Hamas-liðar hafa tilkynnt nöfn þriggja gísla sem sleppa á á morgun. AP/Abdel Kareem Hana

Hamas-liðar hafa tilkynnt nöfn þeirra þriggja gísla sem þeir koma til með að sleppa á morgun. Gegn því eiga Ísraelar að sleppa 369 palestínskum föngum. Fyrr í vikunni var óvíst hvort að fangaskiptin myndu eiga sér stað þar sem báðir aðilar sökuðu hinn um brot gegn vopnahléi.

Hamas-liðar ætlar að láta þá Iair Horn, Sagui Dekel-Chen og Alexandre Sasha Troufanov lausa á morgun í skiptum fyrir 369 fanga Ísraela. Gíslarnir þrír hafa verið í haldi frá 7. október 2023.

Þetta kemur fram í umfjöllun Reuters

Fyrr í vikunni sagði Hamas að gíslarnir yrðu ekki látnir lausir þar sem að Ísrael hefði brotið gegn vopnahléinu sem er í gildi. Þeir sögðu Ísraela neita Palestínumönnum að snúa aftur til norðurhluta Gasa, ráðast á Palestínubúa og hindra aðgengi mannúðaraðstoðar að svæðinu.

Ísraelar sögðu  Hamas brjóta gegn vopnahléinu með þessari ákvörðun sinni. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, sagði á þriðjudagskvöld að ef fangarnir yrðu ekki látnir lausir yrði umræðum um vopnahlé slitið.

Fyrsti fasi vopnahlés milli Ísrael og Hamas er í gildi í sex vikur og hófst 19. janúar. Viðræður eru í gangi um endanlegt vopnahlé þar sem Ísraelar myndu yfirgefa Gasa og svæðið endurbyggt.

Donald Trump hefur lýst því yfir að hann girnist Gasaströndina til að byggja þar glæsibaðströnd. Hann segist þá ætla flytja alla íbúa úr landi, til Egyptalands eða Jórdaníu, og mættu þau ekki snúa aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×