Enski boltinn

Metin sex sem Salah setti í gær

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mohamed Salah hefur skorað þrjátíu mörk og gefið 21 stoðsendingu í 38 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili.
Mohamed Salah hefur skorað þrjátíu mörk og gefið 21 stoðsendingu í 38 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili. getty/Catherine Ivill

Mohamed Salah hefur átt stórkostlegt tímabil með Liverpool og átti enn einn stórleikinn þegar liðið sigraði Manchester City. Hann setti sex met í leiknum á Etihad í gær.

Salah kom Liverpool yfir á 14. mínútu eftir vel útfærða hornspyrnu og sendingu frá Dominik Szoboszlai. Dæmið snerist við á 37. mínútu þegar sá ungverski kom Rauða hernum í 0-2 eftir sendingu frá Egyptanum. Fleiri urðu mörkin ekki, Liverpool vann 0-2 sigur og náði ellefu stiga forskoti á toppi deildarinnar.

Salah hefur nú skorað 25 mörk og gefið sextán stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og er með þrjátíu mörk og 21 stoðsendingu í öllum keppnum. Samkvæmt úttekt tölfræðisíðunnar Squawka setti Salah hvorki fleiri né færri en sex met í leiknum á Etihad í gær. Þau eru eftirfarandi:

  • Salah er fyrsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar sem kemur með beinum hætti að fjörutíu mörkum á tveimur tímabilum
  • Salah er fyrsti leikmaðurinn í fimm sterkustu deildum Evrópu til að koma að fimmtíu mörkum á þessu tímabili
  • Salah hefur núna bæði skorað og lagt upp í ellefu leikjum í ensku úrvalsdeildinni sem er það mesta sem leikmaður í fimm sterkustu deildum Evrópu hefur náð síðan Lionel Messi afrekaði það tímabilið 2014-15
  • Salah hefur þegar lagt upp sextán mörk sem er það mesta sem leikmaður Liverpool hefur gert á einu tímabili í ensku úrvalsdeildinni
  • Salah er fyrsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar sem skorar og leggur upp í báðum leikjunum gegn ríkjandi meisturum á sama tímabilinu
  • Salah er fyrsti leikmaðurinn sem skorar 25 mörk og gefur fimmtán stoðsendingar á einu tímabili í ensku úrvalsdeildinni

Salah mun svo væntanlega slá metið yfir flest mörk og stoðsendingar á einu tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Alan Shearer og Andy Cole eiga metið en þeir komu báðir að 47 mörkum á einu tímabili þegar 22 lið voru í ensku úrvalsdeildinni og leikirnir því 42 en ekki 38 eins og núna.

Svo gæti farið að þetta ótrúlega tímabil Salahs yrði hans síðasta í ensku úrvalsdeildinni en samningur hans við Liverpool rennur sem kunnugt út í sumar og hefur ekki enn verið framlengdur.

Salah og félagar í Liverpool eru í kjörstöðu til að vinna Englandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn síðan 2020 og í tuttugasta sinn alls. Þeir eru með ellefu stiga forskot á Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Skytturnar eiga þó leik til góða.

Auk þess að vera á toppnum í ensku úrvalsdeildinni er Liverpool komið í úrslit enska deildabikarsins og mætir Paris Saint-Germain í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. B-deildarlið Plymouth Argyle sló hins vegar Liverpool úr leik í sextán liða úrslitum í ensku bikarkeppninni.


Tengdar fréttir

„Við þurfum annan titil“

Mohamed Salah var frábær í 2-0 sigri Liverpool á Manchester City í dag. Hann var vitaskuld hæstánægður með sigurinn eftir leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×