Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu Lovísa Arnardóttir skrifar 26. febrúar 2025 06:46 Hópur fólks sem áður elskaði Eurovision skorar á RÚV að beita sér fyrir því að Ísrael fái ekki að taka þátt líkt og RÚV gerði þegar Rússlandi var svo meinuð þátttaka árið 2022. Vísir/Arnar, Getty og Einar Hópur sem segir sig fyrrverandi aðdáendur Eurovision skorar á RÚV að beita sér fyrir því að KAN, ísraelska ríkisfjölmiðlinum, verði vikið úr Eurovision árið 2025. Hópurinn sendi bréf á útvarpsstjóra í vikunni. Tæp fjögur þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista til að mótmæla þátttöku Íslands í Eurovision á meðan Ísrael er leyft að taka þátt. „
Við erum einfaldlega bara hópur venjulegs fólks sem elskar Eurovision og hefur á undanförnum tveimur árum kynnst í gegnum baráttuna fyrir frjálsri Palestínu,“ segir Guðný Nielsen um hópinn sem stendur að bréfinu og undirskriftarlistanum. Sjálf skrifar hún undir bréfið til útvarpsstjóra fyrir hönd hópsins. „Við erum með undirskriftalista í gangi og vorum með annan eins í fyrra. Þegar við lokuðum honum voru um 10.000 manns komnir á hann og núna er hann kominn í 3.700,“ segir Guðný. Hljómsveitin Væb fer fyrir Íslands hönd til Basel í ár með lagið Róa.Vísir/Hulda Margrét „Framganga Ísraels í Palestínu stríðir gegn yfirlýstum friðarboðskap Söngvakeppninnar. Yfir fjörutíu þúsund manneskjur hafa verið drepnar í sprengjuregni Ísraels á Palestínu. Ísrael hefur eyðilagt nánast öll sjúkrahús og skóla á Gaza, jafnað heilu þorpin og borgirnar við jörðu, brennt tjaldbúðir flóttafólks, myrt óbreytta borgara þar á meðal: börn, barnshafandi konur, sjúklinga, lækna, hjálparstarfsfólk alþjóðlegra stofnana, kennara og blaðamenn. Þrátt fyrir þetta fær Ísrael að taka þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2025 í stað þess að þeim sé meinuð þátttaka eins og Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu,“ segir í kröfunni sem fylgir undirskriftalistanum. Í bréfi hópsins og í lýsingu með undirskriftarlistanum er bent á að EBU, samband evrópskra sjónvarpsstöðva, hefur frá árinu 2022 bannað Rússlandi að taka þátt í keppninni vegna innrásarinnar í Úkraínu. Þegar EBU tók ákvörðun sína var vísað til þess að þátttaka Rússlands gæti skaðað orðspor keppninnar, að EBU væru ópólitísk samtök og að Eurovision væri vettvangur sem legði áherslu á að varðveita fjölbreytileika og vera sameinandi afl. Þá benda þau einnig á að þegar Rússlandi var meinuð þátttaka var RÚV einn þeirra aðila sem skoruðu á EBU að vísa Rússlandi úr keppninni. Hópurinn telur sömu rök gilda um þátttöku Ísrael og skora því á RÚV að beita sér gegn þátttöku Ísrael eins og þau gerðu 2022 vegna þátttöku Rússlands. Sjá einnig: Rússum meinuð þátttaka í Eurovision „Við væntum þess af stjórnendum Ríkisútvarpsins að þeir fylgi sömu viðmiðum og árið 2022 og beiti sér fyrir því að Eurovision verði ekki vettvangur fyrir þátttakendur sem brjóta svo alvarlega gegn grunngildum keppninnar að það grafi undan trúverðugleika hennar sem vettvangs samstöðu, fjölbreytileika og friðar,“ segir í bréfinu. Slóvenía styður brottvísun Í einu fylgiskjali bréfsins er svo bent á mögulega samstarfsaðila. Sem dæmi hafi Slóvenía þegar kallað eftir því að Ísrael verði vísað úr keppni. Þá telja þau upp þá ríkisfjölmiðla sem beittu sér fyrir því að Rússlandi yrði vísað úr keppni 2022 og ríkisfjölmiðla sem hafa annaðhvort nýlega eða lengi viðurkennt sjálfstætt ríki Palestínu. Eurovision fer fram í Basel í Sviss í ár.Vísir/Getty Yuval Raphael tekur þátt fyrir hönd Ísrael í ár en hún er ein þeirra sem var á Nova tónlistarhátíðinni þegar Hamas réðst inn á hana þann 7. október 2023. Keppnin fer fram í Basel í Sviss en framlag Ísrael verður kynnt þann 9. mars samkvæmt vefnum Eurovisionworld. Sjá einnig: „Það er ákveðinn tvískinnungur í afstöðu allra“ Í bréfinu vísa þau, sínum máli til stuðnings, í ótal fréttagreinar og viðtöl sem þau segja að stangist á við grunngildi EBU. Með því að heimila þáttttöku KAN sé EBU að grafa undan þessum grunngildum og trúverðugleika sínum. Í bréfi þeirra segir að sem dæmi hafi KAN í fyrsta lagi birt efni sem „réttlæti og dragi úr alvarleika stríðsglæpa, nauðungarflutninga og annars ofbeldis gegn Palestínumönnum.“ Slík umfjöllun skaði orðspor keppninnar. Í öðru lagi hafi KAN birt efni sem dragi upp „ímynd af Palestínumönnum sem ógn, síbrotafólki og hryðjuverkamönnum“. Það stuðli að afmennskun Palestínumanna og hvetji til haturs gegn þeim. Nemo frá Sviss sigraði keppnina í fyrra.Vísir/Getty „Þetta er í beinni andstöðu við skuldbindingu EBU um að standa vörð um gildi almannaþjónustu og hlutverk ljósvakamiðla í þágu samfélagsins,“ segir í bréfinu til útvarpsstjóra. Efni sem réttlæti kerfisbundið ofbeldi Þá segja þau að, í þriðja lagi, hafi KAN birt efni sem réttlæti kerfisbundið ofbeldi og útilokun Palestínumanna með aðskilnaðarstefnu [e. apartheid]. „Með því að heimila Kan þátttöku grefur EBU undan Eurovision sem vettvangi sem á að efla samskipti og skilning þvert á landamæri, sameina áhorfendur, fagna menningarlegri fjölbreytni með tónlist og vera tákn friðar og samstöðu í Evrópu.“ Í bréfi þeirra er svo að finna langan lista með dæmum um slíka umfjöllun fjölmiðilsins. Dæmi sem þau benda á er til dæmis þegar sjónvarpsmaður lýsir vonbrigðum með að aðgerðir ísraelska hersins séu ekki nægar til að jafngilda þjóðarmorði. "We are not committing genocide in the (Gaza) Strip in way. Unfortunately."Prominent TV writer and genocidal scum Roy Iddan is not satisfied with how genocide-y the Gaza genocide is.This is from a comedy show on state-owned Kan 11. The person he's talking to, Barak Cohen, is… https://t.co/PiVvPVyvSu pic.twitter.com/RTdQ03koyh— B.M. (@ireallyhateyou) November 12, 2024 Þá benda þau einnig á viðtal fréttamanns Kan við hermenn þar sem fréttamaðurinn áritar sprengju sem á að senda á Gasa. Einnig vísa þau á myndband af niðurrifi húss á Rafah á Gasasvæðinu þar sem þau segja „A small push and a crash,“ með myndbandi sem fylgir umfjöllun um niðurrif á vegum hersins á Rafah. Hópurinn segir að með þessari framsetningu sé „gjöreyðilegging borgaralegra innviða sett fram eins og um léttvægar aðgerðir sé að ræða en ekki grundvallaratriði í yfirstandandi dómsmáli fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag, þar sem hún kann að falla undir skilgreiningu þjóðarmorðs“. דחיפה קטנה - והתרסקות: תיעוד מפעילות צה"ל בהריסת מבנה ברפיח@ItayBlumental pic.twitter.com/mwDmZUsHAQ— כאן חדשות (@kann_news) June 14, 2024 Þá vísa þau einnig í viðtal við byggingarverktaka sem segir frá því að hann ráði aðeins gyðinga í vinnu. Þau segja verktakann í viðtalinu „afmennska Palestínumenn með því að tortryggilega sem kynferðislega siðspillta hryðjuverkamenn“. State-owned KAN - Israel's Public Broadcasting Corporation, keeps serving as a fascist and racist right wing propaganda outlet. This time they made a 7-minute mini-documentary about an extreme settler's Jews-only construction company.The so-called journalist seems very… pic.twitter.com/ovGpxLGlPd— B.M. (@ireallyhateyou) June 15, 2024 Hópurinn bendir einnig á þennan þátt sem sýndur var 5. febrúar og fjallaði um nauðungarflutninga frá Gasa en forseti Bandaríkjanna viðraði þá hugmynd á svipuðum tíma að Bandaríkin tækju yfir Gasa-ströndina. Undir lýsingu þáttarins kemur fram að Trump sé ekki sá fyrsti til að viðra slíkar hugmyndir og því velt fram hvort það hafi einhvern tímann verið tækifæri til að rýma ströndina. „Í þættinum er fjallað um nauðungarflutninga, sem teljast glæpur gegn mannkyni, eins og um eðlilegar og löglegar aðgerðir í stríðsátökum væri að ræða,“ segir hópurinn um þáttinn. Fleiri dæmi er að finna í bréfinu sem sent var á útvarpsstjóra í fylgiskjali A sem hægt er að skoða hér að neðan. Tengd skjöl Áskorun_fyrrum_aðdáenda_EurovisionPDF131KBSækja skjal
Eurovision Ríkisútvarpið Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Vilja að Íslandi verði vísað úr keppni ef ekki er fallist á kröfur þeirra Frétt ísraelska dagblaðsins Israel Hayom hefst á eftirfarandi orðum: „Ísrael – Ísland, er stríð í uppsiglingu?“ 25. febrúar 2025 13:33 Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Lagið Róa bar sigur úr býtum á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar 2025 sem fram fór í beinni útsendingu á RÚV síðasta laugardagskvöld. Lagið var hlutskarpast í símakosningu almennings bæði í undankeppninni og lokakeppninni. Þá voru erlendu dómararnir líka ánægðastir með lagið. 24. febrúar 2025 15:33 Setja markið á 29. sætið Sigurvegarar Söngvakeppni sjónvarpsins eru alsælir með sigur laugardagskvöldsins, og eru enn að átta sig á því að þeir verði fulltrúar Íslands í Eurovision. Aðalmarkmið þeirra er að gleðja þjóðina og gera hana stolta. 24. febrúar 2025 07:46 Mest lesið Hugsi yfir ríflegum launahækkunum kennara Innlent Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Innlent „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Innlent Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Innlent Engin röð á Læknavaktinni Innlent Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu Innlent Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Innlent Ógeðslega stoltur af kennurum Innlent Sturluðu myndskeiði af „Nýja-Gasa“ deilt á samfélagsmiðlum Trump Erlent Kjarasamningur kennara í höfn Innlent Fleiri fréttir Bæjarskrifstofan snýr aftur til Grindavíkur Brugðist við biðlaunum Ragnars Þórs: „Mesta bull sem ég hef heyrt“ Furðu lostin að sjá bílastæði planað í grænmetisparadís Tekur varaformannsslaginn Jakob Reynir Aftur reyndi aftur og fær að reyna aftur Ráðist í skipulagsbreytingar og þremur sagt upp Hugsi yfir ríflegum launahækkunum kennara Kátt á hjalla í Karphúsinu í gærkvöldi Leggjast aftur yfir myndefnið Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Vilja hvalkjöt af matseðlinum Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Handtökur vegna nágrannaerja og slagsmála í miðbænum Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Ógeðslega stoltur af kennurum Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Kjarasamningur kennara í höfn Engin röð á Læknavaktinni Segir lífeyrisgreiðslur skertar á fölskum forsendum Reykjavík ekki ljót borg Hefur enga skoðun á máli Ragnars Þórs Ókunnugir og fyrrverandi meðal þeirra sem gætu verið að fylgjast með Segir upp eftir rúma tvo áratugi í starfi: „Það virðist enginn hlusta“ Bylgjan og FM957 liggja niðri Skjálftavirkni fer vaxandi Kjaftshögg, falin hætta og deila um íslenska atriðið Vilja styrkja viðgerðir á sögufrægum byggingum Kjarnorkukafbátur í Eyjafirði Sjá meira
Vilja að Íslandi verði vísað úr keppni ef ekki er fallist á kröfur þeirra Frétt ísraelska dagblaðsins Israel Hayom hefst á eftirfarandi orðum: „Ísrael – Ísland, er stríð í uppsiglingu?“ 25. febrúar 2025 13:33
Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Lagið Róa bar sigur úr býtum á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar 2025 sem fram fór í beinni útsendingu á RÚV síðasta laugardagskvöld. Lagið var hlutskarpast í símakosningu almennings bæði í undankeppninni og lokakeppninni. Þá voru erlendu dómararnir líka ánægðastir með lagið. 24. febrúar 2025 15:33
Setja markið á 29. sætið Sigurvegarar Söngvakeppni sjónvarpsins eru alsælir með sigur laugardagskvöldsins, og eru enn að átta sig á því að þeir verði fulltrúar Íslands í Eurovision. Aðalmarkmið þeirra er að gleðja þjóðina og gera hana stolta. 24. febrúar 2025 07:46