Þetta var fjórði leikur Inter í röð án sigurs. Liðið er í 2. sæti deildarinnar með 39 stig, tíu stigum á eftir toppliði Juventus. Fiorentina er í 4. sætinu með 35 stig.
Undir lok fyrri hálfleiks í leiknum í Mílanó í dag fékk Fiorentina víti. Spænski reynsluboltinn Veronica Boquete fór á punktinn en Cecilía varði spyrnu hennar.
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn kom hins vegar engum vörnum við þegar Agnese Bonfantini kom Fiorentina yfir í upphafi seinni hálfleiks. Það reyndist eina mark leiksins og gestirnir frá Flórens fóru með sigur af hólmi.
Cecilía hefur spilað nítján af 21 leik Inter í ítölsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Liðið hefur aðeins fengið á sig tuttugu mörk, fæst allra í deildinni.