Íbúar í Kænugarði sem fréttastofa AP ræddi við í dag höfðu litla trú á friðarviðræðum við Rússa. Sendinefnd Úkraínu fundaði í dag með Bandaríkjunum í Sádi-Arabíu.
Á morgun munu Rússar bætast við og funda um frið, en verða í öðru herbergi en Úkraínumenn, og bandaríska sendinefndin mun ganga á milli.
Steve Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjaforseta, sagðist í samtali við Fox News hafa fulla trú á því að Vladimír Pútín Rússlandsforseti vilji frið.
„Ég held að hann [Pútín] vilji frið. Forsetinn átti tvö mjög árangursrík símtöl í vikunni, eða í síðustu viku öllu heldur, annað við Selenskí og hitt við Pútín. Ég hlustaði á þau bæði,“ sagði Steve við Fox. „Bæði samtölin snerust um varanlegan frið. Málum miðaði vel áfram í síðustu viku.“
Witkoff sagði stöðuna allt aðra en fyrir 80 árum og sagðist hann trúa orði Pútín.
„Ég hef sagt það að ég geti ekki séð að hann vilji taka alla Evrópu. Þetta er allt önnur staða en var í heimsstyrjöldinni síðari. Í heimsstyrjöldinni var ekkert NATO. Það eru ríki sem eru vopnuð þarna. Ég trúi því sem hann segir hvað þetta varðar. Og ég held að Evrópubúar séu farnir að trúa því líka,“ sagði hann einnig.