Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjálfstæðismenn gagnrýna breytingar á samkeppnislögum Breytingar á samkeppnislögum voru samþykktar á Alþingi í dag en breytingarnar gera Samkeppniseftirlitinu meðal annars kleift að brjóta upp fyrirtæki án þess að þau hafi gerst sek um brot á samkeppnislögum eða öðrum landslögum í starfsemi sinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum. Þingmenn flokksins greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. 23.2.2011 15:35
Menn ættu að hugsa um hvað þeir segja í stjórnarandstöðu Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði á Alþingi í dag að mikill hávaði hafi myndast á Alþingi og í fjölmiðlum fyrir nokkrum árum þegar fjallað var um að íslenskt flugfélag væri að fljúga með hergögn milli landa. Í fréttum Stöðvar 2 í gær var sagt frá því að íslenska flugfélagið Atlanta væri að fljúga með hergögn til Afganistan. 23.2.2011 15:23
Jóhanna sendir Nýsjálendingum samúðarkveðjur Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur einng sent samúðarkveðjur fyrir hönd ríkisstjórnar og íslensku þjóðarinnar til John Key, forsætisráðherra Nýja-Sjálands. Hugur Íslendinga sé með Nýsjálendingum vegna manntjóns og annarra hörmulegra afleiðinga sem jarðskjálftinn í gær hefur haft í för með sér. 23.2.2011 14:47
Tileinkaði Sjonna Brink Edduverðlaunin - myndband Árni Filippus, bróðir Nínu Daggar, tók við Edduverðlaununum fyrir hönd systur sinnar á laugardaginn en hún vann verðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki. Hann sagði í þakkarræðu sinni að Nína Dögg hafi viljað tileinka bróður þeirra, Sigurjóni Brink, verðlaunin en hann lést í síðasta mánuði úr heilablóðfalli aðeins 36 ára að aldri. 23.2.2011 14:25
Örsmá tölva á stærð við bókstaf á peningamynt Vísindamenn hafa nú kynnt til sögunar litla tölvu sem er um millimetri á stærð, eða jafnstór og bókstafur á peningamynt. Í tölvunni er að finna örgjafa, minniskubb, þráðlaust útvarp og rafhlöðu sem gengur fyrir sólarljósi. 23.2.2011 14:00
Snöggreiddist og kastaði glasi framan í konu Tuttugu og þriggja ára gömul kona var dæmd í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að kasta glerglasi framan í aðra konu á veitingastað í miðborg Reykjavíkur í febrúar í fyrra. 23.2.2011 13:31
Of margir vinir á Facebook geta valdið kvíða Samkvæmt nýrri könnun sem skoski sálfræðingurinn Dr. Kathy Charles framvkæmdi á 200 nemendum í Edinburgh Napier háskólanum, geta notendur Facebook, sem eru í dag um 500 miljónir, fundið fyrir meiri kvíða en aðrir ef þeir eiga of marga vini á vefsíðunni. Fleiri en einn af hverjum tíu nemendum, fullyrtu að vefsíðan gerði þá kvíðafulla. Einnig kom í ljós að þrír af hverjum tíu sögðust finna fyrir samviskubiti ef þeir neituðu vinabeiðnum. 23.2.2011 13:00
Rán á skyndibitastöðum upplýst - fimm handteknir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst tvö rán sem voru framin í Reykjavík, annað í vesturbænum um síðustu helgi en hitt í Grafarvogi um þar síðustu helgi. Að sögn lögreglu voru fimm menn handteknir og hafa þeir allir játað aðild sína. 23.2.2011 12:27
Játuðu fyrir dómi að hafa hreinsað út úr íbúð Tvær konur játuðu í gær fyrir Héraðsdómi Reykjaness að hafa hreinsað allt innbú út úr íbúð áður hún var sett á uppboð. Íbúðin var veðsett fyrir 30 milljónir. Tvö mál voru þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær þar sem ákært er fyrir sömu sakir. 23.2.2011 12:22
Útsmoginn þjófur stöðvaður í tölvuleikjaverslun Karl á þrítugsaldri var handtekinn í verslun á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær en þar hafði maðurinn stolið allnokkrum tölvuleikjum. 23.2.2011 12:21
Segir ríkisstjórnina hugleiða að beita 11. greininni Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur, bendir á að Alþingi geti beitt 11. grein stjórnarskrárinnar til að leysa forseta Íslands frá embætti áður en kjörtíma hans er lokið. 23.2.2011 12:09
Ísland í ESB: 28% segja aðild af hinu góða - 34% á móti 28% Íslendinga eru á því að innganga í Evrópusambandið yrði til góðs. 30% segja að innganga yrði hvorki góð né slæm og 34% segja að aðild yrði slæm fyrir landið. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem gerð var fyrir sendinefnd ESB hér á landi í nóvember síðastliðinn. 23.2.2011 12:07
175 banaslys undanfarin 10 ár 175 banaslys og 1372 slys þar sem alvarleg meiðsl urðu á fólki hafa orðið á vegum landsins undanfarin tíu ár. Þar af komu vörubílar við sögu í 16% banaslysa og 6,6% slysa þar sem alvarleg meiðsl urðu á fólki. Hins vegar má rekja helming þess kostnaður sem ríkið veitir til viðhalds vega til aksturs vörubíla, en fjárveiting til viðhalds fyrir árið 2011 er tæplega 4,7 milljarðar. Þetta kom fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur, þingmanns Hreyfingarinnar, um umferðarslys og vöruflutninga á þjóðvegum. 23.2.2011 11:35
Breiðafjörður og torfbæir tilnefndir á yfirlitsskrá UNESCO Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur afhent heimsminjaskrifstofu UNESCO nýja yfirlitsskrá Íslands í tengslum við samning UNESCO um verndun menningar- og náttúruminja heims frá árinu 1972. 23.2.2011 11:09
Forsetinn sendir samúðarkveðjur til Nýja Sjálands Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, senti í dag Sir Anand Satyanand, landstjóra Nýja Sjálands, samúðarkveðjur vegna jarðskjálftanna í Christchurch sem kostað hafa tugi mannslífa og valdi gríðarlegu eignatjóni. 23.2.2011 10:58
Íslenskar útgerðir á umdeildu hafsvæði Íslensk útgerðarfyrirtæki hafa um árabil stundað fiskveiðar á umdeildu hafsvæði út frá ströndum Vestur-Sahara. Evrópusambandið (ESB) hefur löngum haft veiðiheimildir á svæðinu í krafti samnings við Marokkó, sem hefur stjórnað Vestur-Sahara frá árinu 1975 í óþökk flestra landsmanna og ýmissa ríkja og alþjóðastofnana. 23.2.2011 10:15
Handrit fannst af óútgefinni bók eftir Enid Blyton Handrit að óútgefinni bók breska barnabókahöfundarins Enid Blyton hefur fundist í skjalasafni hennar. 23.2.2011 07:50
Rahm Emanuel kjörinn borgarstjóri Chicago Rahm Emanuel, náinn ráðgjafi Baracks Obama bandaríkjaforseta og fyrrverandi starfsmannastjóri Hvíta Hússins náði kjöri sem borgarstjóri Chicago. 23.2.2011 07:47
Grindhvalir hugsanlega fyrirboðar jarðskjálftans í Christchurch Yfir hundrað grindhvalir sem syntu á land á strönd í Nýja Sjálandi á mánudag og drápust gætu hafa verið fyrirboðar jarðskjálftans í borginni Christchurch. 23.2.2011 07:32
Tala látinna hækkar í Christchurch, gífurlegt eignatjón Tala látinna í borginni Christchurch á Nýja Sjálandi er komin í 75 en menn óttast að hún fari í um 300 manns áður en öll kurl eru komin til grafar. 23.2.2011 07:29
Gaddafi sagði Berlusconi að allt væri í lagi hjá sér Muammar Gaddafi leiðtogi Líbýu hringdi í gærdag í vin sinn Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu. Gaddafi mun hafa tjáð Berlusconi að allt væri í stakasta lagi hjá sér og að ofbeldið í landinu beindist einkum að hernum. 23.2.2011 07:26
Öryggisráðið fordæmir stjórnvöld í Líbýu Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi ofbeldi stjórnvalda í Líbýu gagnvart almenningi á fundi sem ráðið hélt í gærkvöldi um ástandið í landinu. 23.2.2011 07:25
Þyrla sótti veikann sjómann út af Malarrifi Sjómaður veiktist alvarlega um borð í línuskipi, þegar það var djúpt út af Malarrifi á Snæfellsnesi í gærkvöldi. 23.2.2011 07:22
Loðnuskipin ná góðum köstum í Faxaflóanum Loðnuskipin eru nú dreifð um Faxaflóann og hafa þau náð góðum köstum vítt og breitt. 23.2.2011 07:09
Brotist inn í pizzustað í nótt Brotist var inn í pizzustað í Breiðholti um klukkan þrjú í nótt, en þjófurinn var á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang. 23.2.2011 07:06
Fundu roskinn alzheimersjúkling Ábending frá borgara leiddi til þess að björgunarsveitamenn og lögregla fundu roskinn alzheimersjúkling heilann á húfi á ellefta tímanum í gærkvöldi. 23.2.2011 07:02
Icesave snýr stjórnlagaþingi Flest bendir til að nefnd um framhald stjórnarskrárbreytinga leggi til að þeir 25 sem kjörnir voru til setu á stjórnlagaþing verði skipaðir í stjórnlagaráð. Það verði Alþingi ráðgefandi um breytingar á stjórnarskránni. Ákvörðun forsetans um að vísa Icesave-málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu hleypti upp áformum nefndarinnar. 23.2.2011 07:00
Óttast að um 100 manns hafi látist Björgunarsveitir og hermenn leituðu enn að fólki í húsarústum í borginni Christchurch á Nýja-Sjálandi í gærkvöldi eftir að jarðskjálfti sem mældist 6,3 á Richter reið yfir um miðnætti að íslenskum tíma á mánudagskvöld. 23.2.2011 07:00
Goðafoss kominn á flot Tveir öflugir dráttarbátar drógu flutningaskipið Goðafoss af strandstað við Noregsstrendur nú fyrir nokkrum mínútum. 23.2.2011 06:59
Aldrei verið sóst eftir mælingum á mengun Hvorki verktakar né eigendur gamalla bygginga hafa nokkru sinni leitað eftir því að kannað sé hvort PCB-efni, sem flokkast sem krabbameinsvaldandi, leynist í húsum vegna niðurrifs eða viðhalds. Engin rannsókn hefur heldur verið gerð á því hvort, og þá í hversu miklu magni, PCB leynist í gömlum byggingum. Þeir sem taka mengunarhættuna alvarlega hafa engar upplýsingar um hvert á að leita. 23.2.2011 06:00
Fá ekki bækur af ótta við sýkla Sjúklingar Landspítala - háskólasjúkrahúss hafa ekki lengur aðgang að bókasafni Rauða krossins sem starfað hefur í fjörutíu ár. 23.2.2011 06:00
Ný kjörstjórn á næstu dögum Kjördagur fyrir Icesave-samkomulagið verður kynntur á föstudag, sem og hvort og hvenær kosið verði til stjórnlagaþings. Ný landskjörstjórn verður kosin á Alþingi á næstu dögum. 23.2.2011 05:45
Brotamenn í meðferð og eftirlit sem dugir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kveðst leggja þunga áherslu á að íslensk yfirvöld taki þátt í alþjóðlegu samstarfi til að uppræta glæpastarfsemi sem snýst um miðlun og vörslu á kynferðislegu ofbeldismyndefni af börnum. 23.2.2011 05:30
Ætluðu til Túnis en enduðu á Íslandi „Í stað þess að keyra um í sól og 30 stiga hita í Túnis eru ferðamennirnir hér í snjó og þriggja stiga hita,“ sagði Jón Baldur Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins ISAK, staddur á Kaldadal í gær. Hann var þar fararstjóri í ellefu bíla flota og bílstjórarnir voru allir þýskir ferðamenn. Jón Baldur leigir út sérútbúna Land-Rover Defender og aðrir ellefu bílar frá honum fóru um Kjöl í gær og að Langjökli, með hluta af sama hópi. 23.2.2011 05:15
1.800 gistirými eru ekki á skrá 1.800 gistirými á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri eru án starfsleyfa. Þetta kemur fram í könnun sem Samtök ferðaþjónustunnar gerðu nýlega, en þetta jafngildir því að um 15 prósent gistirýma á höfuðborgarsvæðinu séu rekin án leyfa og um 30 prósent á Akureyri. 23.2.2011 05:00
Nýtt mat er 50% lægra Land sem Hafnarfjarðarbær tók eignarnámi í Kapelluhrauni í apríl 2008 var 400 milljóna króna virði á þeim tíma segja tveir fasteignasalar sem voru dómkvaddir sem matsmenn af Héraðsdómi Reykjaness. 23.2.2011 05:00
Braut glerglas á höfði manns Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega þrítugan mann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. 23.2.2011 04:30
Forsetahjónin heimsóttu Lækjarskóla „Börnin voru himinlifandi því forsetahjónin tóku sér tíma til að vera með þeim. Þau voru ekkert að flýta sér,“ segir Arna B. Arnardóttir, aðstoðarskólastjóri Lækjarskóla í Hafnarfirði. 23.2.2011 04:00
Aflaverðmæti jókst milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst um 15,3 prósent milli áranna 2009 og 2010, samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. 23.2.2011 04:00
Stálu gámi fullum af dósum Lögreglan á Vestfjörðum leitar nú eins eða fleiri sem stálu gámi í eigu björgunarsveitarinnar á Drangsnesi. 23.2.2011 03:45
Ný neytenda-samtök stofnuð Ný neytendasamtök, Samtök lífrænna neytenda, hafa nú litið dagsins ljós. Tilgangur þeirra er að stuðla að aukinni framleiðslu og neyslu lífrænna vara á Íslandi með hagsmuni neytenda, búfénaðar, bænda og umhverfisins að leiðarljósi. 23.2.2011 03:45
Strípuðu íbúðir fyrir uppboð Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært tvær konur í Garði fyrir að hreinsa allt innan úr íbúð, sem var veðsett Landsbankanum fyrir ríflega 30 milljónir króna, áður en þær misstu hana. Þá var par í Sandgerði ákært fyrir sömu sakir. Hús þess var veðsett Glitni fyrir 22 milljónir. 23.2.2011 03:00
Réðust á mann og stórslösuðu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann á þrítugsaldri fyrir mörg brot, þar á meðal líkamsárás, sem hann er talinn hafa staðið að ásamt öðrum manni. 23.2.2011 03:00
Avant heldur samningum Avant er fyrsta fjármögnunarfyrirtækið sem hefur samþykkt kröfur Samtaka lánþega (SL) og riftir ekki lánasamningum til bílakaupa við fólk í greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara. 23.2.2011 03:00
Markmiðið miðstöðvarinnar að útrýma ofbeldi Rannsóknarmiðstöð um ofbeldi var opnuð í Háskólanum á Akureyri á mánudag. Markmiðið með miðstöðinni er að útrýma ofbeldi. 23.2.2011 02:45