Fleiri fréttir

Ákæra gegn Geir illa ígrunduð og óskýr að mati verjanda

Verjandi Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, útilokar ekki að reynt verði að fá málinu vísað frá Landsdómi. Hann segir ákæruna gegn Geir illa ígrundaða og óskýra og efast um hvort hægt sé að reka mál fyrir Landsdómi á grundvelli hennar.

Útgerðamenn ætla að berjast gegn kvótafrumvarpi

Útgerðarmenn ætla að berjast gegn hinum umdeildu kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar og finna þeim flest til foráttu. Verið sé að færa vinnu frá atvinnumönnum í hobbístarfsemi, draga úr hagræðingu, sérhæfingu, uppbyggingu og skerða afkomu og tekjur þjóðarinnar af auðlindinni.

Gæslan leitaði hvítabjarna

Þyrla Landhelgisgæslunnar leitaði ísbjarna á friðlandinu á Hornströndum eftir hádegi í dag. Segir Landhelgisgæslan að mikill almennur þrýstingur hafi verið um að farið yrði í slíkt flug, eftir að hvítabjörn var felldur í Rekavík 2. maí síðastliðinn.

Fjórir mánuðir óskilorðsbundið fyrir kannabisræktun

Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur kannabisræktun. Maðurinn játaði að hafa ræktað og haft í vörslum sínum 143 kannabisplöntur og um fimmtán grömm af maríjúana.

Ríkisendurskoðun gagnrýnir umhverfisráðuneytið harðlega

Umhverfisstofnun og umhverfisráðuneytið brást skyldum sínum í eftirliti með sorpbrennslustöðvum. Þetta er niðurstaða Ríkisendurskoðunar sem skilaði skýrslu um málið í dag. Evrópusambandið gaf árið 2000 út tilskipun sem meðal annars setti strangari reglur en áður höfðu gilt um hámarkslosun sorpbrennslustöðva á mengandi efnum út í andrúmsloftið. Íslendingum bar að innleiða tilskipunina vegna aðildar að EES samningnum en gerðu það ekki.

Assange fékk friðarverðlaun

Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, fékk í gær gullmedalíu Friðarstofnunarinnar í Sidney. Assange er sá fjórði sem hlotnast þessi heiður í fjórtán ára sögu verðlaunanna en þau eru tengd háskólanum í borginni og studd af borgaryfirvöldum. Assange er enn að berjast gegn framsali frá Bretlandi til Svíþjóðar þar sem hann hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot.

Opnunarhátíð Hörpunnar á sama tíma og Eurovision

Eurovision partý eru órjúfanlegur hluti af Eurovision hefðinni og líklega verða göturnar í Reykjavík fáfarnar þegar íslenska lagið verður flutt í Dusseldorf. Nema kannski í nágrenni við Hörpuna, en opnunarhátíð tónlistarhússins er einmitt á laugardaginn og mun dagskráin halda áfram langt fram á kvöld.

Sætir furðu að forseti Landsdóms láti töfina viðgangast

Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra segir það sæta furðu að Saksóknari Alþingis hafi tekið sér sjö mánuði til að skrifa upp nánast orðrétta þingsályktunartillögu Alþingis á nýjan leik og telur með ólíkindum að forseti Landsdóms láti viðgangast svona langa töf á málsmeðferðinni.

Ólafur Elíasson: Óánægður með að Harpan opni ókláruð

Ólafur Elíasson gagnrýnir íslenska ríkið fyrir upplýsingaskort þegar kemur að tónlistarhúsinu Hörpunni. Fjölmargir erlendir aðilar hafi ekki hugmynd um að húsið sé nú að opna. Hann segist þurfa að veita sjálfum sér meðferð vegna þess að húsið opni nú hálfklárað á byggingarsvæði.

Bifreiðastöður nálægt þróttavöllum vandamál

Bifreiðastöður ökutækja nærri íþróttavöllum hafa í gegnum tíðina verið vandamál. Ökumenn leggja þá gjarnan sem næst leikvöngum og þá upp á graseyjum, gangstéttum og göngustígum. Í stöku tilvikum er einnig lagt á og við gangbrautir.

Þúsundir flýja Róm vegna jarðskjálfta

Bílastraumur hefur verið frá Róm í dag af ótta við að þar verði risastór jarðskjálfti. Sá ótti er byggður á spádómi jarðskjálftafræðingsins Raffaele Bendandi sem lést árið 1979.

Móðir Sjonna: Sjonni var með okkur

„Við erum að springa úr gleði, það er ekkert annað hægt," sagði Bjarney Sigríður Sigurjónsdóttir, móðir Sjonna Brink, í gærkvöldi eftir að ljóst var að lagið Aftur heim eða Coming home var komið áfram úr undanriðli Eurovision.

Kanar fá eiginkonur Osamas

Líklegt er talið að Bandaríkjamenn fái að yfirheyra eiginkonur Osama bin Ladens, að sögn bresku Sky fréttastofunnar. Opinberlega segja Pakistanar að engin ákvörðun hafi verið tekin ennþá.

Konungur sáttur við forsætisráðherra

Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs hefur viðurkennt að það hafi verið mistök að fela ekki Haraldi konungi að sæma norska hermenn heiðursmerkjum á degi uppgjafahermanna um síðustu helgi. Mjög sterk viðbrögð urðu við því þegar norska Dagbladet skýrði frá því að ríkisstjórnin hefði hafnað aðkomu konungs.

Verkfall í Grikklandi

Tvö stærstu verkalýðsfélög Grikklands hafa boðað til verkfalls í dag sem búist er við að lami landið að miklu leyti. Félögin vilja með þessu mótmæla niðurskurðar- og sparnaðaráformum ríkisstjórnarinnar en landið glímir við mikinn fjárhagsvanda og nýtur aðstoðar Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum við að rétta úr kútnum.

Þriðjungur stjórnar FIFA í spillingarmálum

Vaxandi þrýstingur er á Alþjóða knattspyrnusambandið um að rannsaka ásakanir um spillingu innan þess. Fyrrverandi formaður breska knattspyrnusambandsins Triesman lávarður bar vitni fyrir íþróttanefnd breska þingsins í gær.

Ekkja Stiegs Larsson á Íslandi í dag

Eva Gabrielsson, rithöfundur og ekkja Stieg Larsson, er væntanleg til landsins í dag. Hún ætlar að vera gestur á Höfundakvöldi í Norræna húsinu á morgun.

Enn í haldi lögreglunnar

Karlmaður sem handtekinn var í Grindavík í gær er enn í haldi lögreglunnar og verður yfirheyrður síðar í dag. Karlmaðurinn hafði í hótunum við föður sinn. Hann var ekki vopnaður, en lögreglan á Suðurnesjum fékk aðstoð frá sérsveit lögreglustjóra við að handtaka manninn.

Röng íþróttasíða fylgdi Fréttablaðinu

Vegna mistaka fylgdi röng íþróttasíða Fréttablaðinu í dag. Síðan sem birtist í blaðinu í gær var birt aftur í dag. Beðist er velvirðingar á þessu, en rétt síða er í vefútgáfu blaðsins sem má sjá með því að smella hér.

Palli át hattinn sinn

Páll Óskar Hjálmtýsson var einn þeirra sérfræðinga sem höfðu slegið því föstu að Íslendingar kæmust ekki upp úr forkeppninni í Eurovision í gærkvöldi. Þegar annað kom á daginn lofaði Palli að hann skyldi éta hatt sinn og við það stóð hann í útvarpsþættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun þegar hann mætti með glæsilegan brauðtertuhatt sem hann át í beinni útsendingu.

Breskur almenningur var hrifnari en gagnrýnendur

Þótt breskir gagnrýnendur hafi ekki brugðist svo vel við Næturvaktina, sem BBC 4 sýnir þessa vikuna, gegnir allt öðru um almenning í Bretlandi sem virðist hafa skemmt sér ágætlega yfir fyrsta þættinum í fyrrakvöld. Nokkrir áhorfendur lýstu hrifningu sinni á Twitter sama kvöld og þetta fór allt saman fram.

Rybak í losti á meðan Íslendingarnir brjálast

Norðmenn eru með böggum hildar eftir að framlag þeirra í Eurovision þetta árið kolféll í keppninni í gær. Laginu „Haba Haba“ hafði verið spáð góðu gengi og voru frændur okkar vissir um að fara létt í úrslitin. Annað kom á daginn og þegar Ísland kom síðast upp úr hattinum í gærkvöldi var Alexander Rybak, sigurvegari Norðmanna hér um árið, þrumu lostinn.

Bandaríkjamenn taka upp símaviðvörunarkerfi

Bandaríkjamenn taka á næstunni í notkun nýtt kerfi sem gerir yfirvöldum kleift að senda almenningi smáskilaboð í farsíma til þess að vara þá við bráðri hættu. Kerfið verður fyrst tekið í gagnið í New York og í höfuðborginni Washington.

Banaslys á Austfjörðum

Banaslys varð laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi á þjóðveginum um Kambanes á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur. Í tilkynningu frá lögreglu segir að fólksbifreið hafi verið ekið út af veginum og hún farið nokkrar veltur. "Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, kastaðist út úr henni og lést á vettvangi skömmu seinna. Hann var á fimmtugsaldri.“

Vildu ekki vöfflur

Samningamenn Framsýnar,- verkalýðsfélaga í Þingeyjasýslum og verðalýðafélags Þórshafnar, höfnuðu hefðbundnu vöfflukaffi í húsakynnum Ríkissáttasemjara eftir að þeir höfðu undirritað nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins í gærkvöldi.

Gagnrýnir ákæruna á Geir

Andri Árnason verjandi Geirs Haarde fyrrverandi forsætisráðherra er gagnrýninn á ákæruna gegn Geir sem gefin var út í gær fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð. Í samtali við Fréttablaðið segir hann að ákæran sé nánast orðrétt upp úr þingsályktunartillögunni um ákæruna á hendur Geir og engum rökstuðningi sé bætt við, eins og lög geri þó ráð fyrir þegar um flókin ákæruatriði sé að ræða.

Biskupinn fékk bréf til andmæla

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, var einn þeirra sem fengu sent bréf til andmæla frá rannsóknarnefnd þjóðkirkjunnar um síðustu mánaðamót. Þetta fékkst staðfest hjá Biskupsstofu í gær.

Frægasti hjólabrettamaður heims á Íslandi

Hjólabrettagoðsögnin Tony Hawk kom til landsins í gær ásamt fjölskyldu sinni, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hawk er í fríi á landinu og stoppar stutt, þar sem hann sýnir listir sínar í Svíþjóð á laugardaginn.

Slys á Austfjörðum

Alvarlegt umferðarslys varð á þjóðveginum á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur á Austfjörðum í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum Fréttastofu voru einhverjir fluttir á sjúkrahús og rannsóknarnefnd umferðaslysa kölluð á vettvang, en ekki hefur náðst samband við lögregluyfirvöld sem rannsaka málið.

Lögreglan hefur ekki undan við rannsókn kynferðisbrota

Nær áttatíu kærur vegna kynferðisbrota bárust kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs, samtals 76 mál. Um var að ræða 33 kærur vegna nauðgunar, tuttugu kærur vegna brota gegn börnum, fjögur barnaklámsmál frá Europol og Interpol og nítján blygðunarsemisbrot. Auk þessa bárust nítján mál vegna heimilisofbeldis til deildarinnar.

Facebook logar - hvar er Sigmar!

Þeir voru ófáir sem vildu fá gamla Eurovison-kynninn Sigmar Guðmundsson til þess að kynna keppnina á nýog lýstu yfir óánægju sinni á samskiptavefnum Facebook. Þannig greinir fréttasíðan Fréttir af Facebook frá almennri óánægju með nýja þulinn, Hrafnhildi Halldórsdóttur, sem lýsir nú keppninni.

Vill ekki skjóta mávana - vinsamleg tilmæli nægja

Borgarfulltrúi Besta flokksins beinir því til fólks að hætta að gefa öndunum á Tjörninni Reykjavík brauð til að sporna við ágangi máva. Ekki stendur til að banna brauðgjafirnar að svo stöddu.

Ísland fjórtánda í röðinni

Eurovision er hafið og er bein útsending á RÚV. Um er að ræða fyrri undankeppnina sem Íslendingar taka þátt í. Alls munu nítján lönd keppa um að komast áfram í kvöld. Tíu lönd komast áfram.

Uppstokkun á kvótakerfinu

Fimmtán prósent heildarafla hvers árs verða komin á frjálsan leigumarkað eftir fimmtán ár, samkvæmt frumvörpum sjávarútvegsráðherra um stjórn fiskveiða sem afgreidd voru út úr ríkisstjórn í dag. Veiðigjald verður hækkað um fimmtíu prósent.

Saksóknari hefur ákært Geir

Saksóknari Alþingis hefur gefið út ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, vegna meintra brota hans á tímabilinu febrúar 2008 og fram í októberbyrjun sama ár. Í ákærunni er Geir sakaður um að hafa framið brotin af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi. Ákæran er í tveimur liðum og skiptist fyrri liðurinn í fimm undirliði.

Grunnframfærsla LÍN hækkuð

Grunnframfærsla Lánasjóðs íslenskra námsmanna hækkar um 10% samkvæmt tillögu Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra, sem samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í tilkynningu frá ráðherra kemur fram að hækkunin tekur gildi á frá og með skólaárinu 2011-2012 og verður þá tæplega 133 þúsund krónur. Á yfirstandandi skólaári er grunnframfærslan tæplega 121 þúsund krónur og er því um 10% hækkun að ræða.

Heldur fyrirlestur um staðgöngumæðrun

Karen Busby, feministi og lagaprófessor við Háskólann í Manitoba, heldur fyrirlestur um staðgöngumæðrun á Hótel Cabin klukkan fimm í dag. Í fréttatilkynningu frá félaginu Staðgöngu segir að nýjustu rannsóknir hennar sem varða staðgöngumæðrun á Vesturlöndum séu með þeim ítarlegustu og yfirgripsmestu hingað til. Fyrirlesturinn er í ráðstefnusal á sjöundu hæð á Hótel Cabin í Borgartúni.

Sjá næstu 50 fréttir