Fleiri fréttir

Eldhúsdagsumræður á Alþingi í kvöld - Jóhanna talar ekki

Almennar stjórnmálaumræður, svokallaðar eldhúsdagsumræður, fara fram á Alþingi í kvöld og hefjast klukkan tíu mínútur fyrir átta. Þær fara þannig fram að hver þingflokkur fær 22 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð. Formenn allra flokka á þingi taka til máls í umræðunni að Jóhönnu Sigurðardóttur undanskilinni.

Létust í árekstri við fljúgandi skógarbjörn

Tveir létust í undarlegu bílslysi í Kanada á mánudaginn þegar 130 kílóa skógarbjörn kom fljúgandi í gegnum rúðu fólksbíls. Björnin hafði lent fyrir flutningabíl sem var á leið í gagnstæða átt við fólksbílinn og við höggið tókst hann á loft yfir á hinn vegarhelminginn. Þar kom fólksbíllinn aðvífandi á fullri ferð og lenti björninn með fullum þunga á honum.

Jussanam fær ríkisborgararétt

Allsherjarnefnd Alþingis leggur til að tónlistarkonan brasilíska, Jussanam Da Silva, fái ríkisborgararétt. Nefndin lagði í dag fram frumvarp með nöfnum fimmtíu einstakling sem hún leggur til að verði veittur ríkisborgararéttur.

Fílar gengu berserksgang

Að minnsta kosti einn týndi lífinu þegar tveir villtir fílar gengu berserksgang í Mysore í suður Indlandi í dag.

Áfram í gæsluvarðhaldi til að verja aðra gegn árásum

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni vegna líflátshótana í garðlögreglumanna og læknis. Maðurinn var í síðasta mánuði dæmdur í Héraðsdómi Austurlands fyrir að hóta lögreglumönnunum en ekki er komið að afplánun. Samkvæmt framburði vitnis sagðist maðurinn ætla að drepa annan lögreglumanninn með sporjárni. Þá segist maðurinn vera smitaður af lifrarbólgu C og HIV og hefur hótað því að smita lögreglumennina af þessum ólæknandi sjúkdómum. Hæstiréttur kemst að þeirri niðurstöðu að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum mannsins. Maðurinn hefur verið í samfelldri brotastarfsemi frá árinu 2000 og margoft farið í fangelsi á síðustu ellefu árum. Síðast fór hann í fangelsi í desember 2010, losnaði úr í maí, en byrjaði svo til strax aftur í alvarlegri brotastarfsemi. Þann 10. maí var maðurinn dæmdur í 9 mánaða fangelsi fyrir hótanir í garð lögreglumannanna. Áfrýjunarfrestur rann út þann 7. Júní en ekki er hægt að láta kærða byrja af afplána dóminn fyrr en ákærufrestur er liðinn og að dómur Hæstaréttar hafi gengið eftir áfrýjun. Héraðsdómur Austurlands úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald til 22. júní og staðfestir Hæstiréttur þann úrskurð.

Sprækir kópar í selalauginni

Þrír sprækir kópar fylgja nú mæðrum sínum í selalauginni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Allar þrjár landselsurtur garðsins hafa nú kæpt. "Móðurástin er mjög áberandi hjá urtum sem láta vel að kópum sínum og gefa þeim orkuríka mjólk fyrstu fjórar til sex vikurnar," segir í tilkynningu.

Ræddu um fundarstjórn í rúmar 40 mínútur

Þingmenn ræddu um fundarstjórn forseta Alþingis í meira en 40 mínútur á þingfundi í hádeginu. Margir þeirra töluðu um svokallað minna kvótafrumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og málsferðina í kringum málið. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar sagðist telja að þingmenn þyrftu að reyna að jafna ágreining á fundum en ekki í þingsal því slíkt væri Alþingi ekki til framdráttar.

Nú þarf að leggja pinnið á minnið

Á næstu mánuðum verður æ meira áríðandi að fólk muni pin-númer debet- og kreditkorta sinna. Verslanir og fyrirtæki eru byrjuð að setja upp posa þar sem viðskiptavinir staðfesta greiðslu með því að slá inn pin-númer í stað undirskriftar.

Unglingur hætti að taka lyf við ADHD og byrjaði að neyta kannabis

Faðir ungs manns sem hætti að taka lyf við ADHD og fór í dagneyslu á kannabisefnum, segir erfitt að hafa horft upp á son sinn dofinn af fíkniefnum. Í dag hefur sonurinn farið í meðferð og er aftur byrjaður að taka lyfin sín, með jákvæðum árangri.

Össur afléttir trúnaði

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, mun aflétta trúnaði af gögnum utanríkisráðuneytisins til utanríkismálanefndar varðandi stuðning Íslands við aðgerðir Nató í Líbíu. Þetta gerði hann í kjölfar áskorunar Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, í utandagskrárumræðu um málið á Alþingi í dag sem Bjarni var málshefjandi að.

Fallið frá því að láta hlutfall af veiðigjaldi renna til sveitarfélaga

Verulegar breytingar voru gerðar á minna kvótafrumvarpi ríkisstjórnarinnar þegar málið var afgreitt með ágreiningi úr sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd í morgun. Fallið hefur verið frá áformum um að láta fimmtán prósent af veiðigjaldi renna til sveitarfélaga. Minna kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar nær til breytinga sem eiga taka gildi á næsta fiskveiðiári. Nokkrar breytingar voru gerðar á frumvarpinu þegar málið var afgreitt úr sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis í morgun en ríkisstjórnin leggur áherslu að klára málið á yfirstandandi þingi. Fallið hefur verið frá áformum um að búa til nýjan flokk smábáta í strandveiðikerfinu og var þá tekin út grein er varðar viðbótarkvóta í keilu og löngu. Stærsta breytingin snýr að ráðstöfun veiðigjalds en upphaflega var gert ráð fyrir því að fimmtán prósent af veiðigjaldi rynni til sveitarfélaga. Þessi grein var felld út og bíður nánari útfærslu í haust. Sjálfstæðis- og framsóknarmenn hafa gagnrýnt frumvarpið harkalega og enginn sátt náðist um afgreiðslu málsins á fundi nefndarinnar í morgun. Sjálfstæðismenn ætla að skila sérálti sem og framsóknarmenn.

ASÍ á móti "litla" kvótafrumarpinu

ASÍ getur ekki mælt með samþykkt "litla" kvótafrumvarpsins en leggur þess í stað til að sumarið verði nýtt til þess að vinna að nauðsynlegum breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu í víðtæku samráði. Í umsögn ASÍ segir að í núverandi mynd veiki frumvarpið rekstrargrundvöll sjávarútvegsins, það veiki stöðu þeirra sem hafa aðalstarf sitt af fiskveiðum og fiskvinnslu auk þess að ýta undir leigubrask og mismunun.

Lionsklúbburinn Ásbjörn færir lögreglunni hjartastuðtæki

Lionsklúbburinn Ásbjörn færði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær hjartastuðtæki sem verður til taks í útkallsbíl lögreglunnar í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lögreglunnar en það var Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, sem veitti gjöfinni viðtöku.

Pétur Blöndal sprakk úr hlátri í ræðustól

Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, átti erfitt með að haldi andliti í umræðum um fundarstjórn forseta á þingfundi rétt fyrir miðnætti í gærkvöld þegar fram fór umræða um gjaldeyrismál og tollalög.

Ekki sér fyrir endann á rannsókninni

Ekki sér fyrir endann á rannsókn Samkeppniseftirlitsins á meintu samráði Byko, Húsasmiðjunnar og Úlfsins á byggingarmarkaði. „Það er ennþá verið að vinna úr gögnum og upplýsingum og það er í sjálfu sér ekki hægt að tímasetja það ennþá hvenær henni lýkur. Þetta er viðamikil rannsókn og það sér ekki fyrir endann á henni,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Bók Björns uppseld hjá útgefanda - 1500 eintök í fyrstu prentun

Fyrsta prentun af bók Björns Bjarnasonar, Rosabaugur yfir Íslandi, er uppseld hjá útgefanda. Jakob F. Ásgeirsson, útgefandi bókafélagsins Uglu, segir að við fyrstu atrennu hafi verið prentuð 1500 eintök af bókinni. Þegar hafa verið gerðar ráðstafanir til að prenta fleiri eintök og býst hann við að álíka fjöldi verði í annarri prentun. „Salan hefur gengið alveg skínandi vel. Mér finnst það sérstaklega gleðilegt og vona að salan sé til marks um að fólk sé að ná áttum í þessu máli," segir Jakob og á þar við Baugsmálið svonefnda. Hann segist ekki hafa vitað við hverju hann ætti að búast þegar hann ákvað að gefa út bókina, enda erfitt að segja til fyrirfram hversu vel bækur seljast. Hann er því ánægður með viðtökurnar. Sem kunnugt er tókust Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, og eigendur Baugs, feðgarnir Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson, harkalega á vegna Baugsmálsins í ræðu og riti. Jakob hefur þó ekki áhyggjur af því að í bókinni sé aðeins birt ein hlið málsins. „Þeir sem skoða bókina sjá að þetta er byggt á opinberum heimildum. Auðvitað leggur hann út af sumu með sínum hætti. Fyrst og fremst er hann samt að draga saman efnisatriði í þessu stóra máli," segir Jakob. Spurður hvort Rosabaugur yfir Íslandi sé mest selda bók Uglu á árinu segir Jakob að hún slagi nú þegar hátt upp í þá vinsælustu, Engan þarf að öfunda eftir Barböru Demick þar sem flóttamenn frá Norður-Kóreu lýsa reynslu sinni. Bók Björns er enn til í bókabúðum en Jakob vonast til að fá aðra prentun í hendur um miðjan mánuðinn.

Bandaríkjamenn líklegri til að lenda í tölvuvandræðum

Bandaríkjamenn eru mun líklegri en Íslendingar til að lenda í vandamálum tengdum IP-tölu breytingunni sem mörg stór fyrirtæki á borð við Google, Facebook og Yahoo eru að prufukeyra í dag að sögn Hjálmtýrs Hafsteinssonar, dósents í tölvunarfræði við Háskóla Íslands. Íslendingana sem enn tengist við internetið í gegnum módem megi nánast telja á annari hendi, ef þeir eru yfirleitt einhverjir.

Notkun sýklalyfja veldur áhyggjum

Velferðarráðherra segir fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af notkun sýklalyfja hér á landi. Fyrir tveimur árum var sala á sýklalyfjum á Íslandi 50% meiri en í Svíþjóð, 20% meiri en í Danmörku og 12% meiri en í Noregi. Salan var áþekk hér á landi og í Finnlandi.

Fékk dauðan svan í hausinn

Tólf ára gömul norsk telpa varð fyrir þeirri lífsreynslu á mánudaginn að dauður svanur féll á hana og slasaði nokkuð. Jenny Hegg var í útilegu á smáeyju ásamt bekkjarfélögum sínum þegar þetta gerðist. Hún segir í samtali við Aftenposten að þau hafi séð þrjá svani nálgast í lágflugi.

Danir verða að sleppa sjóræningjum

Danskir sjóliðar um borð í herskipinu Esbern Snare eru sárir og gramir yfir því að þurfa að hætta lífi sínu í baráttu við sjóræningja undan ströndum Sómalíu og sjá þá svo ganga frjálsa frá borði vegna þess að enginn fæst til að draga þá fyrir dóm.

Eyjamenn áhyggjufullir

Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar lýsir yfir þungum áhyggjum af frumvörpum ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu.

Þrettán verktakar í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu

Alls voru 13 starfandi á verktakasamningum í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu í síðasta mánuði. Flestir þeirra eða sex vegna svars stjórnvalda til Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, vegna tilskipunar um innstæðutryggingar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, um verktakasamninga. Vigdís beindi sömu fyrirspurn til annarra ráðherra en svör þeirra hafa ekki borist.

Enginn hefur lokið greiðsluaðlögun

Embætti umboðsmanns skuldara hafa borist 2813 umsóknir um greiðsluaðlögun og eru þar meðtaldar 278 umsóknir sem bárust Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna fyrir 1. ágúst 2010. Embættið hefur afgreitt samtals 896 umsóknir en þar af eru 719 mál til vinnslu hjá umsjónarmönnum.

Stórmynd Scotts tekin á Íslandi

Stórmyndin Prometheus eftir Ridley Scott verður að hluta til tekin upp hér á landi í næsta mánuði. Óskarsverðlaunaleikkonan Charlize Theron og er væntanleg til landsins til að leika í myndinni en tökurnar standa yfir í um viku. Umfangið verður svipað og þegar tökur á kvikmyndinni Lara Croft fóru fram við Jökulsárlón fyrir rúmum áratug en alls munu 350 starfsmenn koma að þessu verkefni.

Stefnir Teiti Atlasyni fyrir meiðyrði

Gunnlaugur M. Sigmundsson, fyrrverandi alþingismaður, hefur stefnt bloggaranum Teiti Atlasyni fyrir meiðyrði. Tilefnið er bloggfærsla sem Teitur skrifaði 16. febrúar síðastliðinn um viðskipti Gunnlaugs á tíunda áratuginum.

Smádýr gætu liðið fyrir ösku

Ætla má að gróður á láglendi muni víðast hvar standa af sér öskufallið frá Grímsvatnagosinu. Fer það þó mjög eftir tíðarfari á komandi vikum. Neikvæð áhrif á smádýr geta orðið veruleg, einkum á jarðvegsdýr af ýmsu tagi og smádýr.

Atvinnuleysisbætur hækka

Atvinnuleysistryggingar hækka frá og með 1. júní 2011. Grunnatvinnuleysisbætur hækka um tólf þúsund krónur sem svarar til krónutöluhækkunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Þær verða því 161.523 kr. á mánuði í stað 149.523 kr. áður.

Telur kólígerlasmitið hafa náð hámarki

Daniel Bahr heilbrigðisráðherra Þýskalands er hóflega bjartsýnn á að kóligerlasmitið í norðurhluta Evrópu hafi náð hámarki og að það versta sé að baki.

Ríkisstjórnin sögð beita Alþingi ofbeldi

Hörð gagnrýni kom fram á starfshætti Alþingis við umræður í gær. Gagnrýnin var nokkuð kunnugleg; allt of mörg mikilvæg mál kæmu of seint fram og ætlast væri til þess að þingmenn afgreiddu þau í flýti. Athygli vakti að stjórnarþingmaður tók undir gagnrýnina.

Ólýðræðislegasti samningurinn

„EES-samningurinn er einn sá ólýðræðislegasti alþjóðasamningur sem nokkurn tíma hefur verið gerður af sjálfstæðri þjóð,“ sagði Baldur Þórhallsson, prófessor og varaþingmaður Samfylkingarinnar, á Alþingi í gær.

Engin heilsufarsógn staðfest í mælingum

Fyrstu niðurstöður heilsufarsrannsóknar vegna díoxínmengunar frá sorpbrennslum sýna að starfsmenn Funa og íbúar á Ísafirði þurfa ekki að óttast heilsufarsleg áhrif vegna mengunarinnar. Þetta er mat sóttvarnalæknis.

Varar við neikvæðum áhrifum

Sjávarútvegsteymi Íslandsbanka telur að flestar þær breytingar sem boðaðar eru í tveimur frumvörpum um breytingar á stjórnkerfi fiskveiða hafi í för með sér neikvæð áhrif á rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja.

Thriller jakkinn á uppboð

Heimsfrægi jakkinn rauði og svarti, sem poppgoðið Michael Jackson klæddist í tónlistarmyndbandinu við lagið "Thriller", verður boðinn upp á svokallaðri tónlistargoðasýningu í Beverly Hills þann 25. og 26. júní næstkomandi. Auk jakkans verða boðnir upp minjagripir frá Bítlunum, Madonnu, Lady Gaga, Frank Sinatra, Elvis og Justin Bieber svo dæmi séu nefnd.

Sjá næstu 50 fréttir