Fleiri fréttir

Frelsið kostar eina milljón í Taílandi

„Þetta mál snýst ekki um sekt, sakleysi eða líf heldur peninga. Ef ég gæti farið út til Taílands og greitt til að leysa Brynjar út myndi ég gera það. En ég á ekki neitt,“ segir Borghildur Antonsdóttir, móðir Brynjars Mettinissonar sem handtekinn var úti á götu í Bangkok í Taílandi á mánudag og úrskurðaður í þriggja mánaða gæsluvarðhald. Brynjar varði 25 ára afmælisdeginum innan fangelsismúranna í gær.

Kollvarpa hefðbundnum skýringum á landnámi Íslands

Fornleifarannsóknir á mannvistarleifum í Höfnum á Reykjanesi benda til þess að þar sé fundinn skáli sem hafi verið byggður talsvert fyrir hið hefðbundna landnám undir lok níundu aldar. Fornleifafræðingur telur að í skálanum felist nánari skýring á ástæðum þess að landnámsmenn settust að á Íslandi.

Kostar íslenska ríkið 29 milljónir

Á fimmta hundrað erlendra hermanna eru komnir til landsins til að taka þátt í heræfingunni Norðurvíkingi, sem hófst í gær. Kostnaður við æfinguna er áætlaður um 29 milljónir króna.

Ráðherra vill rökstuðning vegna boranaleyfis

"Það er augljóst að það er eitthvað að í lagaumhverfinu ef þeir telja sig knúna til að komast að þessari niðurstöðu,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra um veitingu rannsóknarleyfis í Grændal í Ölfusi. Orkustofnun veitti leyfi til rannsókna á jarðhita, grunnvatni, yfirborðsvatni og efnisnámum á rannsóknarsvæðinu.

Mikilvægt að sýna sjálfsaga

Mikilvægt er að sýna sjálfsaga til að halda utan um ríkisfjármálin þegar áætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) rennur sitt skeið í ágúst og sýna að hægt sé að taka á strúktúrveikleikum í íslensku efnahagslífi, að sögn Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra.

Spá mesta samdrætti í 35 ár

Umferðin í maí 2011 á sextán völdum talningarstöðum á Hringveginum var tíu prósentum minni en í sama mánuði í fyrra. Frá áramótum nemur samdrátturinn tæpum níu prósentum. Þetta er gífurlega mikill samdráttur í sögulegu samhengi, að sögn Vegagerðarinnar.

Bjarni gagnrýnir landsdómsmeðferð

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir ganga út fyrir allan þjófabálk hvernig farið hafi verið með Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í málsmeðferð saksóknara Alþingis. Ummælin féllu í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær.

Ratko Mladic neitar að svara ákærunum

„Ég er Ratko Mladic og allur heimurinn veit hver ég er,“ sagði fyrrverandi yfirmaður herliðs Bosníu-Serba og vildi engu svara ákærum, sem hann sagði viðbjóðslegar.

John Edwards ákærður

Fyrrum öldungadeildarþingmaðurinn og varaforsetaefnið John Edwards var í dag ákærður fyrir samsæri og brot á lögum um fjárframlög til kosninga auk fjögurra ákæruliða til viðbótar. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að 30 ára fangelsisvist og greiðslu sektar sem gæti numið allt að 1,5 milljón bandaríkjadala.

Uppsetning á tölvukerfi í uppnámi vegna ágreinings um ESB-styrki

Uppsetning á tölvukerfi fyrir nýtt tollkerfi, sem er ófrávíkjanlegt skilyrði aðildar að Evrópusambandinu, er í uppnámi vegna ágreinings innan ríkisstjórnar um móttöku styrkja. Utanríkisráðherra segir að greitt verði fyrir kerfið með skattfé fáist ekki styrkir.

Stuðningur Íslendinga getur skipt miklu máli

Fulltrúi líbíska þjóðarráðsins, bandalags uppreisnarmanna, segir að stuðningur Íslendinga geti skipt miklu máli við að koma Gaddaffi einræðisherra frá völdum og stuðla að lýðræði í landinu.

Baugsmálið slær í gegn á Íslandi

Bók Björns Bjarnasonar um Baugsmálið er söluhæsta bókin á Íslandi. Björn segist ekki vera hlutlaus greinandi í ljósi stöðu sinnar en segist ekki halda neinum skoðunum að lesandanum.

Geir Haarde velkomið að birta gögn á vefnum

Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, er meira en velkomið að að birta athugasemdir og viðbætur við vefsíðu saksóknara Alþingis. Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu frá Sigríði J. Friðjónsdóttur, saksóknari Alþingis, en vefsíða saksóknarans hefur verið gagnrýnd, m.a. af verjenda Geirs.

Telur breska kvótakerfið hafa brugðist

Í Bretlandi er líkt og hér á landi hávær umræða um kvótakerfið. sjávarútvegsráðherra Breta segir kerfið hafa brugðist. Óþolandi sé að einstaklingar eða félög sem ekki komi nálægt sjávarútvegi fái kvóta sem þeir geti selt einsog hverja aðra vöru.

Fótunum kippt undan sjávarútveginum

Kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar er vanhugsað og kippir fótunum undan sjávarútvegi að mati sjálfstæðismanna. Sjávarútvegsáðherra segir frumvarpið festa í sessi eignarétt þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni. Ekki náðist samkomulag um þinglok á fundi þingflokksformanna í dag vegna ágreinings um sjávarútvegsmál.

Allt stefnir í að það verði sumarþing

Ágreiningur um sjávarútvegsmál varð meðal annars þess valdandi að ekki náðist samkomulag um þinglok á fundi þingflokksformanna í dag. Upphaflega stóð til að þingmenn færu í sumarfrí 9. júní næstkomandi. Núna stefnir hins vegar allt í að það verði sumarþing. Óljóst er hve lengi það mun standa.

Vilja lögin tafarlaust felld úr gildi

Hagsmunasamtök heimilanna skora á Alþingi að nema breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu, sem var staðfest á Alþingi undir lok síðasta árs, úr gildi tafarlaust, þar sem á lögunum séu alvarlegir meinbugir. Samtökin hafa nú sent kvörtun til Eftirlitsstofnunar EFTA en þau telja að álits stofnunarinnar hefði átt að leita áður en lögin voru samþykkt.

80% hjólreiðafólks telja leið sína örugga

Tæplega 900 ábendingar bárust í hjólakönnun Reykjavíkurborgar sem opnuð var í tilefni af átakinu „Hjólað í vinnuna“ í maí. 80% þeirra sem tóku þátt telja hjólaleið sína til og frá vinnu eða skóla vera örugga, 7% telja hana óörugga og 13% voru á báðum áttum. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. 85% svarenda voru karlar og 15% konur, þá voru 65% svarenda á aldursbilinu 25-44 ára.

Sérstakur saksóknari og efnahagsbrotadeild sameinast 1. september

Frumvarp um sameiningu embættis Sérstaks saksóknara og efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra er til meðferðar á Alþingi. Róbert Marshall, formaður allsherjarnefndar, segir að frumvarpið bíði annarar umræðu. Vonast er til að hún geti hafist í næstu viku, en það fer eftir því hvernig gengur að afgreiða sjávarútvegsfrumvörpin í þinginu.

Löggan mætir í Laugardalinn á morgun

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þetta sé nefnt sérstaklega vegna landsleiks Íslendinga og Dana í knattspyrnu sem fram fer á Laugardalsvellinum annað kvöld.

Yfirheyrslur standa enn yfir vegna VÍS

Enn standa yfirheyrslur hjá sérstökum saksóknara yfir vegna VÍS málsins. Yfirheyrslur stóðu yfir í dag og má gera ráð fyrir að þær standi yfir næstu daga, segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í samtali við Vísi. Hann var þó ekki viss hvort yfirheyrslur færu fram yfir helgina eða hvort tekið yrði helgarhlé.

Hafa safnað 45 milljónum fyrir álkaplaverksmiðju

Framtaksfélag Seyðisfjarðar hefur á innan við þremur sólarhringum safnað 45 milljónum til kaupa á álkaplaverksmiðju til bæjarins. Framtaksfélagið var stofnað af Seyðfirðingum fyrr í þessari viku á Facebook eftir að Framtakssjóður Íslands hafnaði því að taka þátt í fjárfestingunni. Yfir þúsund manns hafa skráð sig í félagið á Facebook og eru komin um 200 innlegg þar sem fólk gefur vilyrði fyrir því að leggja til alls 45 milljónir í verkefnið. Afar mismunandi er hversu mikið fólk ætlar að leggja til, allt frá nokkur þúsund krónum og upp í nokkur hundruð þúsund. Til stóð að Framtakssjóður Íslands myndi leggja verkefninu til 250 milljónir. Voru það mörgum Seyðfirðingum mikil vonbrigði þegar sjóðurinn dró sig út úr verkefninu og tóku til sinna ráða.

Doktor Dauði dauður

Jack Kevorkian, betur þekktur sem “Doktor Dauði”, gaf upp öndina í Bandaríkjunum í dag, 83 ára að aldri, en hann er sagður hafa veitt hjálparhönd í 130 sjálfsmorðum í gegnum tíðina.

Hrottalegt dýraofbeldi í sjónvarpsauglýsingu

Áströlsku grasrótarsamtökin GetUp! vinna nú hörðum höndum að því að koma átakanlegri auglýsingu í sjónvarpið þar sem sjá má hrottalega meðferð á dýrum sem flutt eru frá Ástralíu til Indónesíu. Rúmlega tvö hundruð þúsund Ástralir rituðu nafn sitt á undirskriftalista sem afhentur var á ástralska þinginu í gær en undirskriftunum var safnað á aðeins tveimur dögum.

Börn yngri en tíu ára þurfa fylgd í sund

Nú þegar sumarið er komið og aðsókn að sundlaugum landsins eykst vill Umhverfisstofnun vekja athygli fólks og þá sér í lagi foreldra og forráðamanna barna á að ný reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum tók gildi um síðustu árarmót. Í reglugerðinni eru ýmis ný og breytt ákvæði sem stuðla að öryggi barna í sundlaugum. Börn yngri en 10 ára verða að vera í fylgd með syndum einstaklingi sem er 15 ára eða eldri. Viðkomandi má ekki hafa með sér fleiri en tvö börn, nema um sé að ræða foreldri eða forráðamann barna. Þegar hópar barna yngri en 10 ára fara í sund mega ekki fleiri en 15 börn vera í umsjá hvers leiðbeinanda, sem er ábyrgur fyrir hópnum, og gæslumanna lauga. Forráðamenn hópa skulu kynna sér reglur sund- og baðstaða og aðstoða starfsfólk við gæslu barnanna. Til að auðvelda leiðbeinanda eða ábyrgðarmanni hópa að fylgjast með hverju barni skulu hópar barna sérstaklega auðkenndir með áberandi lit á sundhettum, armböndum, vestum eða á annan sambærilegan hátt, sem hóparnir útvega sjálfir.

Hlaupararnir nálgast Vík

Hjónin tvö sem eru á hlaupum hinginn í kringum landið eru nú að nálgast Vík í Mýrldal. Signý Gunnarsdóttir, ein úr hópnum, segir í samtali við Vísi að ferðin gangi mjög vel. Hjónin hlupu í gegnum Hellu í morgun og segja að móttökurnar hafi verið með ólíkindum. Hópur bæjarbúa hafi hlaupið með þeim inn í bæinn.

Ekkert heyrt í syninum frá handtöku: Alveg svakalega erfitt

"Ég bara bið til Guðs, það er ekkert annað sem ég get gert," segir Borghildur Antonsdóttir, móðir Brynjars Mettinissonar, sem var handtekinn í vikunni í miðborg Bangkok í Taílandi fyrir fíkniefnamisferli. Hann situr nú í fangelsi í landinu en hvorki móðir hans né lögfræðingur hafa fengið að tala við hann.

Lögðu hald á yfir hundrað kannabisplöntur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í tveimur íbúðum í Hafnarfirði á dögunum. Við húsleit á öðrum staðnum fundust tæplega 60 kannabisplöntur, flestar á lokastigi ræktunar, en á hinum voru um 50 kannabisplöntur, sem voru skemmra á veg komnar.

Enn sprengt í Trípólí

Að minnsta kosti tíu sprengjuárásir voru gerðar í nótt og í morgun í Trípólí höfuðborg Líbíu en flugvélar NATO hafa undanfarið hert árásir sínar á borgina. Í nótt var ráðist á herstöð nálægt höfuðstöðvum Gaddafís einræðisherra í miðborginni og á lögreglustöð í nágrenninu. Ekki er ljóst hvort mannfall hefur orðið. Árásum á borgina var hætt fyrr í vikunni þegar Jakob Zuma forseti Suður Afríku ræddi við Gaddafí og reyndi að finna lausn á málinu, án árangurs.

Sérstakur kafli um utanríkismál í stjórnarskrána

C-nefnd stjórnlagaráðs leggur til að settur verði sérstakur kafli um utanríkismál í stjórnarskrá í þremur greinum, um meðferð utanríkismála, um samninga við önnur ríki og um framsal ríkisvalds. Þetta er meðal þess sem C-nefndin leggur til á fundi stjórnlagaráðs í dag. Í tillögum C-nefndar kemur fram að það sé ráðherra en ekki forseti Íslands sem fari með utanríkisstefnu og geri samninga við önnur ríki í umboði og undir eftirliti Alþingis eins og hefð er. Alþingi þurfi að samþykkja samninga sem fela í sér afsal eða kvaðir á landi, landhelgi eða breytingar á landslögum, eða eru mikilvægir af öðrum ástæðum. Að mati C-nefndar er aðkoma utanríkismálanefndar jafnframt tryggð varðandi mikilvæg utanríkismál og ákvarðanir. Lagt er til að heimilt verði að gera samninga sem fela í sér framsal á ríkisvaldi til alþjóðlegra stofnana sem Ísland á aðild að í þágu friðar og efnahagssamvinnu. Með því verði fylgt fordæmi nágrannaríkjanna og fest að hluta óskráð meginregla sem leidd hefur verið af 21. gr. stjórnarskrár. Slíkir samningar skulubornir undir þjóðaratkvæði. 11. fundur stjórnlagaráðs hófst klukkan tíu í morgun. Auk utanríkismála eru þar á dagskrá tillögur um embætti forseta Íslands og trúmál.

Níðingur dæmdur í 430 ára fangelsi

Hjónin Philip og Nancy Garrido hafa verið dæmd í fangelsi fyrir ránið á Jaycee Lee Dugard árið 1991. Parið rændi stúlkunni þegar hún var aðeins ellefu ára gömul fyrir utan heimili sitt í Kalíforníu. Þau fóru með hana heim til sín og héldu nauðugri í tæpa tvo áratugi uns hún fannst fyrir tilviljun.

Takmarka á setu forseta Íslands við þrjú kjörtímabil

B-nefnd stjórnlagaráðs kynnir í dag tillögur sínar um forseta Íslands. Samkvæmt þeim er lagt til að setutími forseta takmarkist við þrjú kjörtímabil. Ekki hefur enn verið tekin afstaða til málskotsréttar forseta, hvort hann haldi heimild sinni eður ei og þá með hvaða hætti. Í tillögunum kemur fram að mikilvægt sé að lýsa í stjórnarskránni með skýrum orðum ábyrgð og völdum hvers fyrir sig eins og þau eru í raun og veru þannig að stjórnarskrá sé gegnsæ og skiljanleg. Einhugur er í nefnd B um að forsetinn hafi menningarlegt hlutverk og sé verndari ýmissa gilda. Í samræmi við framangreint miða tillögur B-nefndar við að ,,lepporðalag" um hlutverk ráðherra og forseta sé afnumið en af því leiðir að ekki verði talað um að forseti framkvæmi tiltekna stjórnarathöfn þegar það sé í reynd ráðherra sem það geri og beri lagalega og pólitíska ábyrgð á athöfninni. Því er m.a. lagt til að 13., 18. og 19. greinar núverandi stjórnarskrár, séu felldar brott ásamt öðrum ákvæðum. Þá eru lagðar til breytingar á forsetakjöri og meðmælendafjölda, þannig að forseti verði kosinn með hreinum meirihluta. B-nefnd leggur einnig fram tillögur til afgreiðslu inn í áfangaskjal um störf Alþingis sem kynntar voru í síðustu viku þar sem meðal annars er kveðið er á um takmörkun á setutíma ráðherra, að Alþingi kjósi forsætisráðherra sem ákveði síðan skipan ráðuneyta og tölu ráðherra og að leggja megi fram á Alþingi tillögu um vantraust á forsætisráðherra eða aðra ráðherra. 11. fundur stjórnlagaráðs hófst klukkan tíu í morgun. Auk embættis forseta lýðveldisins, verða þar til umræðu trúmál og utanrikismál.

Ákærður fyrir að eyðileggja húsið sitt

Þingfesting í máli Björns Braga Mikkaelssonar, sem skemmdi húsið sitt á Álftanesi fyrir tæpum tveimur árum síðan, fer fram í Héraðsdómi Reykjaness í næstu viku.

Leggja til þjóðaratkvæðagreiðslu um þjóðkirkjuna

A-nefnd stjórnlagaráðs leggur til einfaldað þjóðkirkjuákvæði, sem lagt verði í dóm þjóðarinnar á sama tíma og atkvæði verða greidd um tillögur Stjórnlagaráðs í heild sinni. Þannig muni þjóðin sjálf kveða úr um það hvort ákvæði um þjóðkirkjuna eigi að standa í stjórnarskránni eða ekki. 11. fundur stjórnlagaráðs hófst klukkan tíu í morgun. Meðal þess sem þar er á dagskrá eru tillögur A-nefndar í dag um breytingar á greinum um trúfrelsi og jafnræði trúfélaga. Tillögurnar skiptast í tvo hluta; annars vegar ítarlegt trúfrelsisákvæði, þar sem er meðal annars lagt til að hið opinbera verndi öll skráð trú- og lífsskoðunarfélög. Hins vegar er það fyrrnefnd tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu.

Bjarni: Ekki þýðir að bjóða upp á hvað sem er

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur miklar efasemdir um hið svonefnda stærra kvótafrumvarp sem Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mælti fyrir á Alþingi í morgun. Bjarni krafði Jón að því loknu um svör við því hvort honum finnist réttlætanlegt að þeir sem á grundvelli gildandi laga hafi keypt til sín kvóta, þurfi nú að sæta skerðingu til að ráðherra fái heimilt til að úthluta kvótanum að nýjum. Jón benti á að engin sátt hefur ríkt um það kerfi sem er nú við lýði og að vandað hafi verið til verka við gerð nýs frumvarps um heildarlög um fiskveiðar. „Hér er gætt mjög vandaðs meðalhófs," sagði hann. Þá tók hann fram að skoðanakannanir hafi sýnt nýverið að meirihluti þjóðarinnar vill breytingar á kerfinu. Bjarni sagði að jafnvel þó ekki ríkti sátt um gildandi kerfi þýddi ekki að „bjóða upp á hvað sem er" í staðinn. Jón lagði áherslu á að markmið frumvarpsins sé meðal annars að styrkja stöðu sjávarbyggðanna í landinu.

Ráðherra mælir fyrir stærra kvótafrumvarpinu

Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, hóf umræðu um stærra kvótafrumvarpið á Alþingi nú klukkan hálf ellefu. Þar er um að ræða heildarlög um stjórn fiskveiða. Jón segir markmið frumvarpsins að tryggja stöðu sjávarbyggða í landinu en frumvarpið er afar umdeilt. Fyrstu umræðu um minna kvótafrumvarp ráðherra lauk á Alþingi aðfararnótt fimmtudags. Stærra frumvarpið hefur verið kallað svo þar sem það gengur mun lengra en það minna, og er mun umdeildara. Þegar Jón hefur lokið því að mæla fyrir frumvarpinu tekur við umræða á Alþingi. Fyrstur á mælendaskrá er Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Myrti fimm í Arizona

Sjötíu og þriggja ára gamall maður í bænum Yuma í Arizona myrti í gær fimm manns og særði einn alvarlega, áður en hann tók sitt eigið líf. Lögregla segir enn óljóst hvað manninum gekk til en svo virðist vera sem hann hafi þekkt öll fórnarlömb sín. Á meðal hinna látnu voru fyrrverandi eiginkona hans og lögfræðingurinn sem sá um skilnað þeirra hjóna.

Stríðið gegn fíkniefnum virkar ekki - vilja lögleiða maríjúana

Baráttan gegn eiturlyfjum í heiminum hefur misheppnast að því er fram kemur í skýrslu alþjóðlegrar nefndar. Nefndin er skipuð heimsþekktum einstaklingum á borð við Kofi Annan fyrrverandi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, kaupsýslumanninum Richard Branson og Nóbelsverðlaunahafanum Mario Vargas Llosa. Þá sitja fyrrverandi forsetar Brasilíu, Kólombíu og Mexíkó í nefndinni.

Messi kýldur í andlitið í Argentínu

Þær voru ekki blíðar móttökurnar sem Lionel Messi, besti knattspyrnumaður í heimi, fékk þegar hann heimsótti heimabæ sinn í Argentínu í gær. Þegar knattspyrnumaðurinn var að gefa áhorfendum eiginhandaráritun fyrir utan veitingastað kom ungur maður upp að honum og kýldi hann í andlitið.

Dregur úr HIV-smitum

HIV smitum fækkaði um næstum 25 prósent frá árinu 2001 til 2009 samkvæmt nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum.

Makríltorfur við Vestmannaeyjar

Makríltorfur hafa fundist við Vestmannaeyjar og hafa þrjú skip að minnsta kosti, veitt úr þeim og landað í Eyjum. Veiðarnar fara hinsvegar ekki í gang af fullum krafti fyrr en eftir sjómannadaginn, sem er á sunnudag.

Uppselt í flestar bestu árnar

Uppselt er í flestar bestu og dýrustu laxveiðiár hér á landi í sumar, en veiðin hefst í Norðurá og Blöndu á sunnudag. Upp úr því verður svo ein áin af annarri opnuð og eru veiðimenn almennt bjartsýnir á góða veiði í sumar.

Ratko fyrir rétt í Haag

Ratko Mladic mætti fyrir stríðsglæpadómstólinn í Haag í dag í fyrsta sinn, en hann var handtekinn í Serbíu á dögunum. Hershöfðinginn fyrrverandi er sakaður um þjóðarmorð í Bosníu stríðinu árið 1995, sérstaklega fyrir fjöldamorðin á um átta þúsund múslimskum körlum og drengjum í bænum Srebrenica. Lögfræðingur hans hefur sagt hann of veikan til þess að mæta fyrir réttinn en læknar hafa úrskurðað hann heilan heilsu. Á fyrsta degi réttarhaldanna verður Mladic beðinn um að segja til um sekt sína eða sakleysi.

Sjá næstu 50 fréttir