Fleiri fréttir

Séra Karl Sigurbjörnsson tjáir sig ekki

Biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson, ætlar ekki að tjá sig um skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings fyrr en eftir fjóra daga. Fréttastofa óskaði eftir viðtali við Karl í ljósi þess að í skýrslunni kemur fram að hann hafi brugðist á margan hátt og gert mistök þegar biskupsmálið svokallaða kom upp árið 1996 þegar séra Ólafur Skúlason, þáverandi biskup, var sakaður um kynferðisbrot. Þá kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að viðbrögð presta og annarra starfsmanna kirkjunnar þegar málið kom upp hafi einkennst af ráðaleysi og skorti á faglegum og vönduðum vinnubrögðum. Kirkjuþing verður haldið á þriðjudag og munu kirkjunnar menn ekki tjá sig um skýrsluna fyrr en þá. Uppgefin rök eru þau að skýrslan hafi fyrst verið birt í morgun og að menn þurfi tíma til að fara yfir hana.

Ólafur með ráðandi persónuleika - dró kirkjunnar menn í dilka

Persónuleiki Ólafs Skúlasonar, þáverandi biskups, hafði mikil áhrif á viðbrögð kirkjunnar manna þegar Ólafur var sakaður um kynferðisbrot árið 1996. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings sem birt var í morgun. "Þá verður ráðið af framburði þeirra sem fyrir nefndina komu að áhrif Ólafs Skúlasonar á samstarfsmenn sína og aðra starfsmenn kirkjunnar voru verulega mikil. Biskupinn hafi verið með mikinn og ráðandi persónuleika, hann hafi farið sínu fram og óhikað látið í ljósi afstöðu sína um stöðu málsins. Menn hafi verið dregnir í dilka sem annaðhvort "með honum eða á móti". Hafi hann þannig með framgöngu sinni haft mótandi áhrif á aðgerðir einstaklinga sem að málinu komu, hvort sem er á vettvangi kirkjuráðs, Prófastafélags Íslands eða stjórnar Prestafélags Íslands," segir í skýrslunni.

Handtóku meinta Vítisengla - með fíkniefni og haglabyssur

Tveir karlmenn á þrítugsaldri sem lögreglan telur að séu meðlimir Íslandsdeildar Hells Angels, voru handteknir á miðvikudag við iðnaðarhúsnæði í austurborginni. Við húsleit þar fundust rúmlega 120 kannabisplöntur á nokkrum ræktunarstigum.

Karl gerði mistök í máli Guðrúnar Ebbu

Rannsóknarnefnd Kirkjuþings kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að Karl Sigurbjörnsson biskup hafi orðið á mistök sem forseti kirkjuráðs varðandi úrlausn mála Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur varðandi erindi sem hún sendi í mars 2009 vegna meintra kynferðisbrota föður síns, Ólafs Skúlasonar.

Skýrsla um biskupsmálið: Ráðaleysi og skortur á vönduðum vinnubrögðum

Rannsóknarnefnd kirkjuþings hefur lokið við gerð skýrslu um viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot. Skýrslan er rúmlega 300 síður að lengd en nefndinni var falið að leggja mat á viðbrögð kirkjunnar eftir að ásakanirnar komu fram á sínum tíma. Nefndinni var hinsvegar ekki ætlað að "fjalla um sannleiksgildi ásakana um kynferðisbrot sem fram hafa komið á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi."

Brown stýrði samsæri gegn Blair

Aðeins nokkrum vikum eftir þingkosningarnar árið 2005 hóf Gordon Brown, sem þá var fjármálaráðherra, herferð gegn Tony Blair forsætisráðherra ásamt nánum samstarfsmönnum sínum.

Með ferðamenn niður að Titanic

Ferðaskrifstofan Bluefish ætlar að hefja köfunarferðir með ferðamenn niður að flakinu af risaskipinu Titanic sem sökk á Norður-Atlantshafi árið 1912. Skipið liggur á hérumbil fjögurra kílómetra dýpi og farið verður niður að því í sérsmíðuðum dvergkafbáti.

Endist ekki ævin til þess að borga námslánin

Af þeim sem hófu endurgreiðslu námslána árið 2010 skulduðu um 16 prósent námsmanna meira en 6 milljónir króna og samtals rúmlega 40 prósent af heildarskuldum hópsins. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar þar sem lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) er skoðaður.

Hitastig sjávar sem um hávetur

Fimm íslensk skip leituðu að norsk-íslenskri síld í veiðanlegu magni norðaustur af landinu nú í byrjun vikunnar. Til þessa hefur leitin lítinn árangur borið, segir í frétt á heimasíðu HB Granda.

Grunaður um rúm 40 auðgunarbrot

Sú ákvörðun innanríkisráðherra að veita Geirmundi Vilhjálmssyni lausn frá starfi fangelsisstjóra á Kvíabryggju um stundarsakir, var rétt samkvæmt niðurstöðu nefndar fjármálaráðuneytis um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Geirmundur, sem taldi ákvörðunina óréttmæta og síðar óupplýsta, sætir rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna meintra auðgunarbrota hans á kostnað fangelsisins.

Ákærðir fyrir milljónaþjófnaði

Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur ákært tvo menn um tvítugt fyrir að brjótast ítrekað inn og stela munum að verðmæti á þriðju milljón króna. Mennirnir eru einnig ákærðir fyrir fjársvik.

Snjór í öllum fjöllum kringum borgina

Það snjóaði í nótt í öll fjöll, sem eru í sjónmáli frá höfuðborgarsvæðinu. Esjan var meðal annars alhvít alveg niður að rótum undir morgun.

Samningaviðræðum slitið

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands og Flóafélaganna slitu í gærkvköldi viðræðum við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fangelsisrefsing fyrir skjalafals

Rúmlega tvítugur karlmaður, með ríkisfang í Kongó, hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir skjalafals.

Samkomulag um þinglok á morgun

Formenn þingflokkanna og forseti Alþingis náðu samkomulagi um að þinglok verði á morgun gegn því að ýmsum málum verði frestað til haustsins.

Stakk konu tvisvar í höfuð

Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir fimmtugri konu, Bergþóru Guðmundsdóttur, sem dæmdi hana í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir ýmis brot. Konan var meðal annars dæmd fyrir að stinga aðra konu tvívegis í höfuðið með eldhúshnífi í fyrra

Ísland ákjósanlegt til rannsókna

Alþjóðleg ráðstefna á vegum SÁÁ var sett í gær, en þar er umræðuefnið vímuefnafíkn og afleiðingar hennar. Dagskráin hófst með málþingi og umræðum, en í dag fer fram aðalráðstefnan þar sem íslenskir og erlendir fræðimenn fara yfir málin, með sérstakri áherslu á amfetamín- og rítalínneyslu.

Gömlu bankarnir í limbói

"Það er engum til góðs að skilanefndir verði til sjálfs sín vegna um langt árabil,“ segir Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra.

Um þrjú hundruð lömb drápust vegna campylobactersýkingar

Á þriðja hundrað lömb drápust á Leiðólfsstöðum í Dölum á Sauðburði. Svæsin camphylobactersýking kom upp í ánum á bænum og ljóst er að tjónið hleypur á milljónum króna. Þetta kemur fram í Bændablaðinu í dag.

Landsbankinn fagnar því að niðurstaða sé komin í málið

Landsbankinn fagnar því að niðurstaða sé komin í máli Landsbankans hf. gegn þrotabúi Mótormax ehf. og mun bankinn senda nánari upplýsingar til viðskiptavina á næstu dögum. Í tilkynningu segir að mikil vinna sé framundan við endurútreikninga lána sem falla undir dóminn og má búast við að sú vinna taki talsverðan tíma.

Síðustu þorpin gætu þurft að bíða lengi eftir malbikinu

Patreksfjörður, Tálknafjörður og Bíldudalur stefna í að verða síðustu þéttbýliskjarnar á Íslandi, ásamt Borgarfirði eystra, til að tengjast öðrum landshlutum með bundnu slitlagi. Ráðherra vegamála gat engu svarað á Alþingi um hvernig vegamál staðanna á sunnanverðum Vestfjörðum verða löguð.

Manndráp af gáleysi: Dómur þyngdur verulega

Hæstiréttur Íslands þyngdi í dag dóm yfir karlmanni á fertugsaldri sem var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi um mitt síðasta ári. Maðurinn ók ölvaður á vitlausum vegarhelmingi á Grindavíkurvegi í maí 2009 og lenti í árekstri við bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Maðurinn var sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis þegar slysið varð.

Átta ára fangelsisdómur fyrir dópsmygl staðfestur

Hæstiréttur hefur staðfest átta ára dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Elenu Neuman, þýskri fertugri konu, sem sakfelld var fyrir að reyna að smygla til landsins á síðasta ári tæplega 20 lítrum af vökva sem innihélt amfetamínbasa.

Foringi Black Pistons: Ekki kallaður nunna - þeir myndu aldrei þora því

"Það hljóp einn náungi að mér og sló mig fyrirvaralaust, segir Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, um átök sem urðu á milli hans og nítján ára pilts á Litla-Hrauni fyrir skömmu. Ríkharð, sem er foringi Black Pistons hér á landi, sem nú heitir Outlaws prospect, segir fyrri fréttaflutning Vísi ekki réttan um málið.

Öskufok í allt sumar?

“Ég hugsa að við séum að fara að standa í þessu í allt sumar” segir Þorsteinn Kristinsson, lögreglumaður á Kirkjubæjarklaustri, um öskufokið sem enn heldur áfram að gera íbúum á svæðinu lífið leitt.

Sáttafundur í deilu flugvirkja

Samningamenn Flugvirkjafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins komu saman í húsnæði Ríkissáttasemjara um tvöleytið í dag vegna deilu flugvirkja hjá Icelandair við Samtök atvinnulífsins. Fundurinn stendur enn yfir, að sögn Magnúsar Péturssonar ríkissáttasemjara. Hann sá ekki ástæðu til að kalla samningamenn Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair saman til funda í gær þar sem kjaradeilan var í hnút.

Boxerhundar drápu á þriðja tug lamba og kinda

Tveir boxerhundar drápu á þriðja tug lamba og kinda í nágrenni Eyrarbakka. Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning um dýrbítana rétt fyrir hádegi í dag. Lömbin og kindurnar voru á túni bæjarins Þórðarkots. Bændurnir á bænum skutu hundana þegar upp komst um drápin, enda hafa bændur heimild til að skjota dýrbíta. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er staðfest að hundarnir drápu 23 kindur og lömb. Enn eru menn þó að leita á svæðinu sem er heldur víðfemt. "Þau voru mjög illa leikin, vægast sagt," segir lögreglumaður sem sinnir málinu um hræin. Hundarnir höfðu strokið frá eigendum sínum en óvíst er hversu lengi þeir voru að drepa sauðféð. Næstu skref lögreglu eru að yfirheyrahundaeigendurna, en samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru þeir að teknu tilliti til aðstæðna ekki ósáttir við að þeim hafi verið lógað. "Hundur sem bítur lamb, hann bítur aftur. Þegar þeir finna blóðbragðið vaknar villidýrið í þeim," segir lögreglumaðurinn. Búast má við að eigendur hundanna þurfi að greiða bændunum bætur vegna sauðfjárins sem þeir drápu, en lamb á fæti kostar um 25 þúsund krónur. Mögulegt er að aflífa þurfi fleiri lömb og kindur sem eru illa farin eftir árásina.

Vísindagarðar og hátt í 300 stúdentaíbúðir

Borgarráð hefur samþykkt breytingar á aðalskipulagi borgarinnar vegna háskólasvæðisins þar sem gert er ráð fyrir að þétt byggð rís með allt að 300 stúdentaíbúðum, starfsemi Háskóla Íslands og Vísindagörðum. Um er að ræða um uppbyggingu á um 74 þúsund fermetra lóð sem afmarkast af Eggertsgötu, Oddagötu og Sturlugötu.

Drusluganga í Reykjavík

Drusluganga verður farin í Reykjavík þann 23. júlí. Yfirlýst markmið göngunnar er að uppræta þá fordóma sem endurspeglast í áherslu á klæðaburð og ástand brotaþola í umræðu um kynferðisofbeldi. Þannig vilja skipuleggjendur göngunnar vekja athygli á því að það eru gerendur sem bera ábyrgð á kynferðisofbeldi, en ekki þolendur. Fyrirmynd Druslugöngunnar er hin svonefnda Slut walk sem fyrst var farin í Toronto í Kanada fyrr á þessu ári. Tilefni göngunnar voru umdeild ummæli lögreglustjórans í Toronto, Michael Sanguinetti, sem sagði á háskólafyrirlestri að "konur þyrftu að forðast að klæða sig eins og druslur til að verða ekki fórnarlömb." Sanguinetti baðst síðar afsökunar á orðum sínum. Konum í Toronto var engu að síður misboðið og skipulögðu gönguna sem fór fram í apríl á þessu ári. Þar var konum uppálagt að klæða sig eins druslulega og þeim þóknaðist, í þágu kynferðislegs frelsis. Konur um allan heim hafa tekið hugmyndinni fagnandi. Þegar hafa margar druslugöngur verið farnar um víða veröld og enn fleiri sem hafa verið skipulagðar, meðal annars í Danmörku, Svíþjóð, Bretlandi, Ástralíu og Suður-Afríku. "Við höldum að þetta sé málefni sem snerti alla, ekki bara konur, þrátt fyrir að nafnið Drusluganga sé vissulega með tilvísun í það að konur eigi að geta klætt sig og hagað sér eins og þeim sýnist án þess að það sé "ávísun" á að vera nauðgað," segir Anna Jóna Heimisdóttir, ein af skipuleggjendum göngunnar. Hún segir það einmitt oft vera viðkvæðið, bæði í fjölmiðlum og samfélaginu almennt, að konur geti sjálfar sér um kennt þegar þær eru beittar kynferðislegu ofbeldi ef þær voru klæddar á ögrandi hátt. Fyrsti fundur skipuleggjenda Druslugöngunnar var í gærkvöldi og var þá bæði ákveðið að þýða nafnið á þennan hátt, sem og dagsetningin sem gangan verður farin.

Umboðsmaður skammar Lánasjóðinn

Stjórn LÍN og mennta-og menningarmálaráðuneytið gáfu námsmönnum ekki fullnægjandi ráðrúm til þess að bregðast við breytingu á framkvæmd útreiknings á hámarki skólagjaldalána, en breytingin átti sér stað í lok júní á síðasta ári. Þetta kemur fram í áliti frá Umboðsmanni Alþingis, Tryggva Gunnarssyni, þar sem hann segir viðeigandi lagasjónarmiða og vandaðra stjórnsýsluhátta ekki hafa verið gætt af hálfu lánastofnunarinnar og ráðuneytisins.

Íslendingar hafa greitt 4,2 milljarða í þróunarsjóð EFTA

Frá árinu 1994 hafa Íslendingar greitt 4,2 milljarða króna til Þróunarsjóðs EFTA. Sjóðurinn veitir styrki til fátækari landa innan ESB og hafa framlög Íslands aukist mikið síðustu ár. Þannig hafa 2,3 milljarðar farið í sjóðinn árin 2009 og 2010.

Niðurstöðu að vænta í jafnréttismálinu

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir unnið að því að ljúka sátt við Önnu Kristínu Ólafsdóttur vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála sem komst að því í mars að jafnréttislög hefðu verið brotin þegar karl var tekinn fram yfir Önnu Kristínu við ráðningu skrifstofustjóra hjá forsætisráðuneytinu. Jóhanna segir að hugsanlega fáist niðurstaða í málið á næstu dögum.

Foringi Black Pistons í átökum á Litla-Hrauni

Foringi Black Pistons, Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, virðist ekki eiga sjö dagana sæla inni á Litla-Hrauni en hann lenti í átökum við tvo pilta á tvítugsaldrinum fyrir skömmu. Samkvæmt heimildum Vísis á Ríkharð að hafa verið skallaður í andlitið af nítján ára samfanga sínum eftir að hann á að hafa ruðst inn í klefa piltsins með það að markmiði að taka rafmagnstæki af honum í leyfisleysi.

Jón Gnarr leitar að Reykvíkingi ársins

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur leitar nú eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking sem verið hefur til fyrirmyndar. Ábendingarnar verða notaðar til að velja Reykvíking ársins. Sá sem hlýtur nafnbótina fær meðal annars laxveiðidag í Elliðaánum með Jóni og frítt í sund.

Gengu brattar hlíðar vegna skipsstrands

Björgunarsveitir frá Tálknafirði, Patreksfirði og Bíldudal ásamt björgunarskipinu Verði voru kallaðar út um hálf ellefu í morgun eftir að hjálparbeiðni barst frá bát sem strandaði skammt utan við Tálknafjörð nánar tiltekið við Mölvík.

Sjá næstu 50 fréttir