Fleiri fréttir

Umferðin gengur vel

Umferð úr bænum hefur gengið vel í dag að sögn lögreglu. Umferðarþunginn dreifir sér nú á dagana fyrir og eftir helgi en ekki einungis á föstudag og mánudag eins og áður.

Börnin fá óvenjulegt kraftaverkameðal

Vannærð börn fylla flóttamannabúðir nærri Sómalíu, en stríðsátök og hungursneyð þjaka landið. Öll fjárframlög til Rauða kross Íslands fara nú í að kaupa óvenjulegt kraftaverkameðal fyrir börnin, vítamínbætt hnetusmjör, sem reynst getur þeim lífgjöf.

Fíkniefnasali handtekinn

Karl á þrítugsaldri var handtekinn í Breiðholti í gærkvöld en í fórum hans fundust nokkrir tugir gramma af marijúana. Ætla má að fíkniefnin hafi átt að selja um verslunarmannahelgina.

Barist til að tryggja aðstoð

Friðargæsluliðar Afríkusambandsins börðust í gær við skæruliðahópa í Mogadisjú, höfuðborg Sómalíu, til að tryggja að hjálpargögn skili sér.

Alls hafa 77 nöfn verið birt

Norska lögreglan birti seinnipartinn í dag nöfn 36 þeirra sem létu lífið í hryðjuverkaárásunum í Útey og höfuðborginni Osló fyrir viku. Áður hafði lögreglan birt 41 nafn en í heildina hafa verið birt 77 nöfn. Fyrstu jarðarfarir fórnarlamba fjöldamorðingjans Anders Breivik fóru fram í dag.

Foreldrar Sturlu færðu gjörgæsludeildinni gjöf

Kristín Dýrfjörð og Friðrik Þór Guðmundsson, foreldrar Sturlu Þórs Friðrikssonar sem lét lífið eftir flugslys í Skerjafirði árið 2000, hafa fært gjörgæsludeildinni í Fossvogi að gjöf sjónvarp, DVD tæki og nokkra mynddiska til minningar um hann.

Krummi gerir sig heimkominn í Norðlingaholtinu

Svo virðist sem krumminn gæfi, sem Vísir greindi frá þann 20. júlí síðastliðinn, hafi gert sig heimkominn í Norðlingaholtinu, en hann vakti fyrst athygli fréttastofu þegar íbúar höfðu samband eftir að hrafninn hafði eytt 40 mínútum að leik með krökkum á svæðinu.

Rennsli eykst í Skaftá

Rennsli í Skaftá hefur aukist á ný, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar. Leiðni hækkar áfram en aur og grugg hefur vaxið á ný. Merki eru um að hlaupið hafi úr vestari Skaftárkatli. Ekki eru merki um hlaupóróa en náið er fylgst með svæðinu.

Þriggja ára fangelsi fyrir amfetamínsmygl

Benedikt Pálmason var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa flutt inn rúmlega 3,8 kíló af amfetamíni til landsins með Goðafossi þann 13. júní síðastliðinn.

Stoltenberg sagði fórnarlömbin hetjur

Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, sagði að fórnarlömb fjöldamorðingjans Anders Breivik væru hetjur, þegar hann ávarpaði minningarsamkomu sem haldin var í Osló í dag á vegum ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins. Hreyfingin var skotmark árásarinnar á Útey.

Fyrstu jarðarfarirnar fóru fram í dag

Hundruðir fylgdu í dag til grafar hinni norsku Bano Rashid sem var aðeins átján ára þegar fjöldamorðinginn Anders Breivik myrti hana í Útey á dögunum. Þetta var fyrsta fórnarlamb hans sem er jarðsett.

Sundlaugaverðir lenda í útistöðum við foreldra

Starfsmenn sundlauga lenda mjög oft í útistöðum við foreldra vegna kæruleysis. Foreldrarnir ætlast í sumum tilfellum til að starfsmennirnir taki að sér barnagæslu á meðan þeir sjálfir liggi í sólbaði. Þetta segir Hafþór B. Guðmundsson, lektor við HÍ að Laugarvatni. Hann tók þátt í að semja nýja reglugerð um hollustuhætti á sundstöðum.

Bleikir pennar stofna nýjan vef

Heiða Þórðardóttir og Steinunn Fjóla Jónsdóttir, sem báðar eru pistlahöfundar vefritsins Bleikt.is, virðast hafa ákveðið að breiða út vængi sína og fljúga úr bleika hreiðrinu, en þær koma til með að opna nýjan vef þann 1. ágúst næstkomandi, sem bera mun nafnið Spegill.

Fyrsta útförin eftir hryðjuverkin í Osló

Fyrsta útför fórnarlambs hryðjuverkaárásanna í Noregi fyrir viku fer fram í dag þegar hin 18 ára gamla Bano Abodakar Rashid verður jarðsungin. Þá verður einnig minningarathöfn í Osló á vegum ungliðahreyfingar norska verkamannaflokksins, en hreyfingin var skotmark árásarinnar á Útey. Meðal viðstaddra verður Jens Stoltenberg, forsætisráðherra landsins, og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra Íslands, auk formanns ungra jafnaðarmanna á Íslandi.

Hælisleitandi með fölsuð skilríki á Norrænu

Lögreglan á Egilsstöðum hefur nú í haldi erlendan mann sem kom til Seyðisfjarðar með Norrænu í gær. Maðurinn var tekinn höndum þegar í ljós kom að skilríki hans voru fölsuð, en hann segist vera frá Palestínu og er hingað komin í hælisleit.

Lögmaður Breivik: Þetta er ekki spurning um sýknu eða sakfellingu

Geir Lippestad, verjandi Anders Behring Breivik, segir í viðtali við norska miðilinn Verdens Gang að það hefði ekki verið auðvelt að taka ákvörðunina um að verja hryðjuverkamanninn, sem varð valdur að dauða 76 manns þann 22. júlí síðastliðinn.

Kvartanir vegna hávaða í heimahúsum í nótt

Nokkrar kvartanir bárust lögreglu vegna hávaða í heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu á öðrum og þriðja tímanum í nótt. Eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglu var nóttin annars fremur róleg í umdæminu.

Færri í Eyjum, fleiri á Siglufirði

Heldur færri virðast ætla að leggja leið sína á þjóðhátíð í Eyjum en í fyrra, en fleiri gestir eru komnir til Akureyrar og Siglufjarðar en í fyrra og búist er við miklu fjölmenni á Egilsstöðum. Færri voru á svonefndu Húkkaraballi í Eyjum í gærkvöldi, en það er talið marak upphaf þjóðhátíðarinnar þar. Erill var hinsvegar meiri en undanfarin áren lögreglu tókst að stilla til friðar og þurfti ekki að vista neinn i fangageymslum í nótt. Þrír þurftu að leita læknis á sjúkarhúsinu vegna óhappa, sem rekja má til ölvunar og ærsla. Fjölmenni var komið til Egilsstaða á unglingalandsmót Umgmennafélags Íslands, en búist er við allt að tíu þúsund manns þar, eða jafnvel fleiri vegna góðrar veðurspár þar framan af helginni. Ein með öllu á Akureyri hófst degi fyrr en venjulega, með dagskrá og þrjú þúsund manna brekkutónleikum. Í gærkvöldi voru mun fleiri gestir komnir til bæjarins en sama dag í fyrra. Undir morgun var ráðist á tvo menn í miðbænum svo þeir þurftu að leita læknis, en málið er óupplýst. Svoneft húsbíla- og tjaldvagnafólk fjölmennir svo á Síldarævintýrinu á Siglufirði sem aldrei fyrr, svo stiklað sé á stóru í hátíðarhöldum verslunarmannahelgarinnar.

Greinilegt að hlaup hefur orðið

Enn hafa menn ekki orðið varir við hlaupið úr Skaftá í byggð. Flugmaður sem flaug yfir Vatnajökul í morgun segir greinilegt að hlaup hafi orðið í vestari katlinum. Veðurstofan segist alltaf hafa búist við því að hlaupið yrði lítið.

Líklega frekari lokanir á Laugavegi

Fjölmargar hugmyndir eru á lofti varðandi mögulega lokun Laugavegarins fyrir bílaumferð. „Sumir vilja loka honum varanlega, aðrir eru hræddir við það, en það er nú líklegt að það verði einhverjar lokanir fyrir bílaumferð í framtíðinni, hvort sem það verður lengri," segir Örn Sigurðsson, settur sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg. Borgarráð hefur ákveðið að göngugatan á Laugavegi verði opin lengur en áformað var. Til stóð að Laugavegurinn, frá Vatnsstíg að Skólavörðstíg, yrði opnaður fyrir bílaumferð um mánaðarmótin en það voru verslunarmenn við götuna sem óskuðu eftir framlenginu á lokuninni. Borgarráð ákvað á fundi sínum í gær að verða við beiðninni og verður hluti Laugavegar því göngugata til og með 7. ágúst. Jafnframt veitti borgarráð leyfi fyrir götuhátíð á skólavörðustíg dagana annan til sjöunda ágúst, en þá verður gatan lokuð frá Bergstaðastræti að Bankastræti. Mánudaginn 8. ágúst verður síðan opnað fyrir bílaumferð á ný bæði niður Skólavörðustíg og Laugaveg. Framhaldið verður síðan skoðað í ljósi reynslunnar.

Forseti Alþingis fékk frumvarp að stjórnarskrá

Stjórnlagaráð afhenti forseta Alþingis, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, frumvarp að nýrri stjórnarskrá í Iðnó í morgun. Frumvarpið var samþykkt einróma með atkvæðum allra ráðsfulltrúa á síðasta fundi ráðsins á miðvikudaginn.

Sundkennara meinað að fara með barnabörnin í sund

Sundkennari til fjörtíu ára var stöðvaður þegar hann ætlaði með fjögur barnabörn sín í sundlaugina að Laugarvatni í gær. Ástæðan er nýjar reglur um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Samkvæmt reglunum er fullorðnum einstaklingi óheimilt að hafa fleiri en tvö börn með sér í sund, nema um sé að ræða foreldri eða forráðamann barna.

Erill í Eyjum - samt bara einn í fangageymslu

Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt og má segja að hátíð hafi byrjað í gærkveldi með svokölluðu Húkkaraballi. Töluverð ölvun var í bænum og þurfti lögreglan að hafa afskipti að nokkrum aðilum vegna ölvunarástands. Þó gistir aðeins einn aðili fangeymslu lögreglunnar vegna ölunarástands. Sinna þurfti nokkrum útköllum vegna ónæðis á tjaldsvæðum í bænum og einnig hávaðaútköllum í heimahúsum. Þá komu upp fjögur minniháttar fíkniefnamál í gær og nótt þar sem ræða kannabisefni, amfetamín og e-töflur, eða „Extacy" eins og segir í tilkynningu frá lögreglunni. Allir þessir aðilar sögðu efnin til eigin nota. Mjög öflugt fíkniefnaeftirlit verður á hátíðinni og auk lögreglumanna munu þrír fíkniefnahundar starfa með þessum lögreglumönnum.

Bylting í baráttu gegn flensu

Vísindamenn segjast hafa fundið mótefni gegn öllum tegundum af flensuveiru í fyrsta sinn. Rannsóknir á flensusýktum músum sýna góðan árangur af notkun þessa mótefnis.

Íslenskir unglingar fávísir um endurvinnslu

Íslenskir unglingar hafa margir litla trú á endurvinnslu auk þess sem þau virðast hafa litla vitneskju um heimilissorpið. Grænn fræðsluleiðbeinandi í vinnuskóla Reykjavíkur ræddi við Vísi um málið.

Dannebrog í heimsókn í Reykjavíkurhöfn

Danska snekkjan Dannebrog er nú í stuttri heimsókn í Reykjavíkurhöfn. Skipið hefur hér skamma viðdvöl á leið yfir hafið og heldur áfram ferð sinni á sunnudag. Þetta kemur fram á vefsíðu Faxaflóahafna.

Nærbuxur Greifanna fundnar - stolið í flippi

Nærbuxur stórhljómsveitarinnar Greifarnir, sem stolið var nýverið, eru aftur komnar í réttar hendur. Hljómsveitarmeðlimir fagna þessu mjög og segjast nú geta haldið verslunarmannahelgina eins og vera ber. Í tilkynningu frá Greifunum segir að þjófurinn sé að öllum líkindum ungur maður sem hafi stolið nærbuxunum „í einhverju flippi," Hann hafði síðan samband, með númeraleynd, og sagðist munu skilja þær eftir á stað þar sem hægt væri að sækja þær. „Sjálfsagt hefur honum orðið um og ó yfir þeirri athygli sem uppátæki þetta fékk og viljað bæta fyrir gjörðir sínar," segja Greifarnir.

Glæpamenn setja fé til höfuðs Breivik

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun ekki kemba hærurnar lengi í norsku fangelsi. Hann er svo gott sem dauður. Þetta eru skilaboðin sem glæpaheimur Noregs hefur komið áleiðis til Verdens Gang stærsta dagblaðs landsins.

Hestamenn íhuga að stefna Kópavogsbæ

Hestamannafélagið Gustur hyggst sækja rétt sinn gagnvart Kópavogsbæ ef ekki semst um nýja aðstöðu fyrir félagið að Kjóavöllum. Bæjaryfirvöld hafa ekki staðið við samning um uppbyggingu á svæðinu.

Helguvíkurkaleikurinn kostar

Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir stjórnvöld sýna atvinnuuppbyggingu grátlega lítinn áhuga. Fréttablaðið sagði frá því í gær að tvö fyrirtæki væru með áform um hátæknifiskeldi á Reykjanesi.

Ný kenning um hvarf Neanderdalsmanna

Ný rannsókn bendir til þess að Neanderdalsmenn hafi dáið út í Evrópu þar sem þeir urðu minnihlutahópur í álfunni eftir að nútímamenn hófu að flytja þangað í stórum stíl frá Afríku.

Þrír þjóðhátíðargestir fluttir á sjúkrahús

Þrír þjóðhátíðargestir voru fluttir á sjúkrahúsið í Eyjum í nótt til aðhlynningar. Einn hafði dottið og handlegsbrotnað. Annar hafði meiðst á baki, þagar sparkað var í hann og sá þriðji snérist á fæti.

Sprenging í kolanámu kostar 16 mannslíf

Sprenging í kolanámu í Úkraníu hefur kostað 16 námumenn lífið og a.m.k. 10 annarra er saknað. Náman er staðsett í Lugansk héraðinu í austurhluta landsins.

Jesús tók við af Jack Daniel"s hjá Duane

Eflaust hafa margir vegfarendur í Reykjavík tekið eftir götupredikaranum Duane H. Lyon á leið sinni um götur og torg. Fréttablaðið ákvað að forvitnast um hann og erindið sem bar hann hingað.

Taldi sig sloppinn en var gripinn heima hjá sér

Lögregla stöðvaði þrjú ungmenni sem voru að koma á bíl úr Heiðmörk í nótt og fundu lögreglumennirnir kannabislykt í bílnum. Ekkert saknæmt fannst þó í bílnum og fékk fólkið að halda áfarm.

Upplausn á bandaríska þinginu

Hálfgerð upplausn virðist ríkja á bandaríska þinginu þessa stundina. Þannig tókst leiðtoga Repúblikana í fulltrúadeildinni ekki að safna saman nægilegum stuðningi meðal eigin flokksmanna fyrir frumvarpi sem átti að hækka skuldaþakið og skera niður opinberan kostnað á móti.

Ekkert bólar á Skaftárhlaupi

Ekkert bólaði á Skaftárhlaupi í nótt þrátt fyrir mikla leiði í vatninu, sem yfirleitt er fyrirboði hlaups. Vatnið er líka gruggugt.

Sjá næstu 50 fréttir