Fleiri fréttir

Má ekki mæta í kjólfötunum

Anders Behring Breivik fær ekki að mæta í kjólfötum fyrir rétt á morgun eins og hann hafði óskað eftir. Síðast þegar hann kom fyrir dómara óskaði hann eftir því að mæta í einkennisbúningi en því var einnig hafnað.

Pláss laus hjá dagforeldrum

Nokkuð er um laus pláss hjá dagforeldrum víðs vegar um borgina, sér í lagi í úthverfunum, að sögn Kristbjargar Jónsdóttur, stjórnarmanns í Félagi dagforeldra. Sem fyrri daginn er slíka vistun síst að fá í Mið- og Vesturbæ.

Virðisrýrnun eða ofmat við Sparisjóðinn

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að nauðsynlegt sé að leggja öll spilin á borðið vegna sameiningar SpKef og Landsbanka Íslands. Virði eigna sjóðsins hafi rýrnað frá mati stjórnvalda og það verði að skýra.

Aldursforseti katta fæddur 17. júní 1989

Læðan Öskubuska er líklegast elsti kötturinn á landinu, en hún varð tuttugu og tveggja ára á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní. Hjónin Höskuldur Stefánsson og Ebba Ólafsdóttir, sem hafa umsjón með Öskubusku, segja að Elli kerling sé vissulega farin að setja mark sitt á hana.

Viðkvæmt hellakerfi í Borgarfirði friðlýst

Kalmanshellir í Hallmundarhrauni verður friðlýstur á morgun. Markmiðið er að vernda hellinn, einstæðar jarðmyndanir hans og hellakerfið allt og koma í veg fyrir röskun og skemmdir á jarðmyndunum.

Fær 5,5 milljónir króna í skaðabætur

Ríkið og fyrirtækið Agar ehf. voru dæmd í Héraðsdómi Vesturlands 10. ágúst til að greiða rúmar 5,5 milljónir króna auk vaxta í bætur til konu sem var starfsmaður fyrirtækisins. Talið er sannað að konan hafi orðið fyrir heilsutjóni við störf sín. Frá þessu er greint á vef Bæjarins besta.

Uppreisnarsveitir þrengja að Gaddafí

Hörð átök brutust út í gær milli uppreisnarmanna og liðsveita Múammars Gaddafí í borginni Savíja, þar sem þeir börðust um yfirráð einu starfhæfu olíuhreinsistöðvar landsins.

Fræðimenn í hverju rúmi

Hvert hótelrými á höfuðborgarsvæðinu og víðar mun vera bókað helgina 25. til 27. ágúst, en þá verður í Reykjavík fjölmennasta alþjóðlega ráðstefna Íslandssögunnar.

Evruhagstjórn hafi forseta

Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og Angela Merkel Þýskalandskanslari telja nauðsynlegt að ný efnahagsstjórn evruríkjanna, sem þau vilja koma á laggirnar, hafi sérstakt forsetaembætti.

Fundi um framkvæmd verkfalls lauk án niðurstöðu

Fundur um framkvæmd verkfalls leikskólakennara fór fram í dag og lauk honum án niðurstöðu. Fundað var stíft frá klukkan 15:00 - 18:30 í dag, en fundurinn var setinn af forsvarsmönnum Kennarasambands Íslands og fulltrúum sveitarfélaganna.

Sveitafélög sýna leikskólakennurum vanvirðingu

Nýútskrifaður leikskólakennari segir sveitafélögin sýna sinni stétt vanvirðingu með því að ætla að setja ófaglærða einstaklinga í störf þeirra á verkfallstímum. Eftir fimm ára háskólanám fær hún 198 þúsund krónur útborgaðar á mánuði.

Jackass sprelligosinn Steve O til Íslands

Sprelligosinn Steve O úr Jackass er á leið til landsins í haust með uppistandið sitt. Skipuleggjandi sýningarinnar segir hana alveg örugglega verða bannaða innan sextán.

Keyra til minningar um látinn félaga

Vinir og félagar Eyþórs Darra Róbertssonar, sem lést í hörmulegu bílslysi á Geirsgötunni, segja mikilvægt að vekja fólk til umhugsunar um öryggi í umferðinni. Þeir hafa skipulagt minningarakstur um vin sinn.

Krabbameinssjúklingar gætu þurft að bera aukinn kostnað

Krabbameinssjúklingar gætu þurft að byrja að greiða hluta af lyfjakostnaði sínum ef frumvarp velferðarráðherra verður að lögum í óbreyttri mynd. Mikið óöryggi tekur við hjá sjúklingum segir forstjóri Krabbameinsfélagsins.

Langt í sameiginlega hagstjórn ESB

Yfirlýsingar leiðtoga öflugustu ríkjanna á evrusvæðinu um aukna sameiginlega hagstjórn ríkja á svæðinu virtust ekki róa fjárfesta því hlutabréfavísitölur féllu í dag. Sérfræðingar segja mjög langt í að sameiginleg hagstjórn á evrusvæðinu verði að veruleika.

Allir farþegar í bílnum voru í belti

Missagt var í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að ungi maðurinn, sem lést í bílslysi á Geirsgötu á föstudaginn, hafi ekki verið í belti. Allir farþegar bílsins voru í belti þegar slysið átti sér stað. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

Seðlabankinn spáir auknum hagvexti

Stýrivaxtahækkun Seðlabankans byggir meðal annars á hagspá bankans, en þar er gert ráð fyrir kröftugri eftirspurn í hagkerfinu í ár en áður. Verðbólga gæti náð 7 prósentum og verið yfir markmiði bankans allt fram til ársins 2013.

Margir gagnrýna Seðlabankann fyrir hækkun stýrivaxta

Fjöldi hagsmunaaðila hefur í dag gagnrýnt Seðlabankann harðlega fyrir að hafa hækkað stýrivexti um fjórðung úr prósenti. Seðlabankastjóri segir hægt að veita verðbólgu mótspyrnu án þess að ógna efnahagsbata hagkerfisins.

Vilja fund í heilbrigðisnefnd

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í heilbrigðisnefnd Alþingis fara fram á að nefndin komi sem fyrst saman til fundar. Þau Guðlaugur Þór Þórðarson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir vilja ræða málefni Landspítalans, "sérstaklega í ljósi ummæla ráðherra um að færa þjónustu spítalans aftur til ársins 2004," eins og segir í tilkynningu frá þeim.

Söfnun fyrir nýfæddar tvíburasystur

Nýfæddar tvíburasystur liggja nú milli heims og heljar á vökudeild Landspítalans. Stúlkurnar komu í heiminn síðastliðinn sunnudag en móðir þeirra veiktist þegar hún var langt gengin með þær. Móðirin lést en læknum tókst að bjarga stúlkunum. Önnur stúlknanna mun nú komin úr öndurnarvél en hinni gengur verr að anda hjálparlaust.

Telja ríkisstjórnina leggja meiri áherslu á banka en heimili

Meirihluti landsmanna telur að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu bankanna en heimilanna. Rúm 67 prósent svarenda í viðhorfskönnun MMR sagðist vera þessu sammála eða mjög sammála. Þetta er lítil breyting frá því fyrir ári síðan þegar 70,8% sögðust sömu skoðunar. Um þriðjungur telur að stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en ríkisstjórnin. Rétt um 12% eru sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings. Könnunin nú var endurtekning könnunar MMR frá í júlí 2010. Þá voru 32,7% þeirra sem tóku afstöðu sem töldu að stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en ríkisstjórnin. Hins vegar kváðust 42,4% þeirra sem tóku afstöðu öndverðrar skoðunar, það er töldu að stjórnarandstaðan myndi ekki stjórna landinu betur en ríkisstjórnin. Hvorutveggja reyndist lítil breyting frá í júlí 2010, þegar 29,3% lýstu sig sammála því að landinu yrði betur stjórnað af stjórnarandstöðunni og 45,2% sögðust ósammála því að landinu yrði betur stjórnað af stjórnarandstöðunni. Einungis 12,4% þeirra sem tóku afstöðu sögðust sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings á meðan 65,1% kváðust því ósammála. Þessi niðurstaða er lítil breyting frá fyrra ári þegar 15,8% lýstu sig sammála því að Alþingi stæði vörð um hagsmuni almennings en 64,1% sögðust því ósammála.

Viktoría á von á barni

Viktoría krónprinsessa Svía er með barni. Þetta staðfesti sænska hirðin í dag en fæðingardagur er áætlaður í mars á næsta ári. Öll konungsfjölskyldan er sögð himinlifandi með tíðindin en þetta verður fyrsta barnabarn Karls Svíakonungs en hann á tvö önnur börn auk Viktoríu. Karl Reinfeldt forsætisráðherra Svíþjóðar sendi einnig frá sér tilkynningu í dag þar sem fréttunum er fagnað.

Reglur ESB of strangar

Svíþjóð munu banna úlfaveiðar í ár vegna reglna Evrópusambandsins. Framkvæmdastjórn sambandsins, segir veiðarnar brjóta í bága við tilskipanir þess.

Sveltir sig í Indlandi

Tugþúsunda mótmæli í Indlandi sýna engin merki þess þau muni lognast útaf. Mótmælin hófust í gær þegar þekktur aðgerðarsinni þar í landi, Anna Hazare, var hnepptur í fangelsi fyrir mótmæli.

Ofsaakstur á Reykjanesbraut

Karl á þrítugsaldri var staðinn að ofsaakstri á Reykjanesbraut í Garðabæ á þriðja tímanum í nótt. Bíll hans mældist á 155 km hraða en manninum var veitt eftirför uns hann nam staðar í Breiðholti. Þá kom jafnframt í ljós að ökumaðurinn var í annarlegu ástandi. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.

Frumlegt húsnæði til sölu

Fimm herbergja hús með forláta grafhvelfingu og beinagrind í kjallaranum er til sölu í Svíþjóð. Húsið var reist kringum 1750 á grunni rússneskrar kirkju.

Málari í fangelsi fyrir skattsvik

Norski listmálarinn Odd Nerdrum var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir gróf skattsvik. Hann er sakfelldur fyrir að selja málverk að andvirði nær 300 milljóna íslenskra króna án þess að gefa það upp til skatts á tímabilinu 1998-2002. Hann var og dæmdur til að greiða 10.000 norskar krónur, sem samsvarar um 210.000 isk, í sekt.

Fjölgar í hópi nema í heimilislækningum

Tólf læknar hafa verið ráðnir í sérnám í heimilislækningum innan Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fleiri hafa sýnt náminu áhuga og gæti hópurinn því stækkað enn frekar áður en formlegt nám hest í lok þessa mánaðar. Forsvarsmenn heilsugæslunnar telja þennan fjölda umsókna sýna aukinn áhuga á heimilislækningum. Alma Eir Svavarsdóttir, kennslustjóri sérnáms í heimilislækningum er að vonum ánægð með þann mikla áhuga sem læknar sýna sérnáminu ekki síst í ljósi þeirrar vöntunar sem er á heimilislæknum hér á landi um þessar mundir. Fyrir eru 12 læknar í sérnámi í heimilislækningum á vegum Velferðarráðuneytisins en þær stöður sem nú bætast við eru kostaðar af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Til að mæta þeim kostnaði hefur lausum stöðum sérfræðinga innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verið breytt í sérnámsstöður í heimilislækningum. Sérnámsstöðurnar eru til þriggja ára en námið er skipulagt í samvinnu við Landspítala háskólasjúkrahús. Að þeim tíma loknum taka læknarnir þau tvö ár sem þá vantar til að ljúka fimm ára sérnámi í heimilislækningum ýmist hér heima eða erlendis.

Depardieu pissaði á gólf flugvélar í París

Franski stórleikarinn Gerard Depardieu ákvað að láta allt vaða þegar honum var meinað að fara á klósettið í flugvél rétt fyrir flugtak í París í gærkvöldi. Sjónarvottar segja að leikarinn hafi verið nokkuð ölvaður, og þegar hann fékk þau skilaboð frá flugfreyjunni að ekki væri hægt að nota klósettið fyrr en nokkrum mínútum eftir flugtak ákvað hann að míga einfaldlega á gólfið þar sem hann stóð.

Frekari niðurskurður skerðir þjónustu

Þjónusta við sjúklinga skerðist ef gengið verður lengra í niðurskurði hjá Landspítalanum segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga og tekur þar með undir orð forstjóra spítalans. Þjónustan geti alls ekki farið aftur sem nemur þremur til fjórum árum líkt og velferðarráðherra vill meina.

Líklegt að niðurstaða fáist í leikskólamálum í dag

Líkur eru á að niðurstaða fáist í ágreiningsmáli deiluaðila í dag vegna kjarasamnings Félags leikskólakennara um framkvæmd boðaðs verkfalls. Ríkissáttasemjari hefur enn ekki boðað til nýs fundar í deilunni. Enginn fundur hefur verið boðaður í kjaradeilu leikskólakennara og samninganefndar sveitarfélaganna nú þegar fimm dagar eru í fyrirhugað verkfall, en síðasti fundur í deilunni var haldinn var í fyrradag. Leikskólakennarar og foreldrar leikskólabarna eru ekki einungis í óvissu með hvort að af verkfallinu verður, heldur einnig hvaða skólar verða fyrir áhrifum, þar sem deilt er um framkvæmd þess. Samband íslenskra sveitarfélaga telur leikskóladeildir geta starfað áfram ef deildarstjórinn er í verkfalli en lögfræðingur Kennarasambandsins er á öndverðum meiði og segir sveitarfélögin hvetja til verkfallsbrota. Björg Bjarnadóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands, segir að óskað hafi verið eftir fundi með forsvarsmönnum sveitarfélaganna vegna ágreiningsins og verður hann haldinn um þrjúleytið í dag. Hún vill sem minnst gefa upp, en segir þó alla helstu forsvarsmenn sveitarfélaganna ætla að mæta ásamt henni sjálfri, formanni og lögfræðingi Kennarasambandsins og aðilum frá Félagi Leikskólakennara.

Netskráningu í Reykjavíkurmaraþonið lýkur í dag

Rúmlega fjórar klukkustundir eru nú þar til netskráningu í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka ljúki. Skráning fer fram á síðunni marathon.is og lýkur klukkan 16.00. Þegar hafa 8.110 skráð sit til þátttöku. Búist er við að um 10 þúsund manns taki þátt. Hægt verður að skrá sig á hlaupadegi í Laugardalshöllinni. Áheitasöfnun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka gengur einnig vel en als hafa tæplega 19 milljónir safnast til góðra málefna. Á sama tíma í fyrra var búið að safna 15,4 milljónum og því ekki ólíklegt að söfnunin fari yfir þær tæpu 30 milljónir sem söfnuðust árið 2010.

Dómar fyrir facebook-færslur

Tveir ungir menn í Norður-Englandi voru í gær dæmdir í fjögurra ára fangelsi fyrir að hvetja til óeirða gegnum facebook. Dómana fengu þeir fyrir að búa til event inná síðunni með tíma- og staðsetningu fyrir þá sem vildu taka þátt í óeirðum.

Gibb-bróðir syngur með Bo Hall

Einn þeirra Gibb-bræðra úr hljómsveitinni Bee Gees, Robin Gibb, er væntanlegur til landsins fyrir jólin og mun hann koma fram á Jólatónleikum Björgvins Halldórssonar. Bee Gees var skipuð þremur Gibb-bræðrum, Maurice og Barry, auk Robin. Eitt þekktasta lag þeirra er diskósmellurinn Staying alive úr dansmyndinni Saturday Night Fever. Við skyndilegt fráfall Maurice árið 2003 ákváðu Barry og Robin að leggja niður Bee Gees sem hljómsveit eftir 45 ára starf. Samkvæmt tilkynningu frá Senu hafa aðeins Elvis Presly, Bítlarnir, Michael Jackson, Garth Brooks og Paul McCartney selt jafn mikið af plötum, eða meira, en Gibb bræður og eru þeir söluhæsta tríó heims. Á fjörutíu ára ferli sendu þeir rúmlega 220 milljónir platna og fengu sjö Grammý verðlaun. "Fáar hljómsveitir hafa haft jafn mikil áhrif á dægurmenningu samtímans og í heildina liggja eftir Bee Gees bræður rúmlega 60 toppsmellir. Á meðal þeirra er mörg þekktustu og mest spiluðu lög veraldar: How Deep is Your Love, You Should Be Dancing, Stayin' Alive, Night Fever, More Than a Woman, Nights on Broadway, Jive Talkin', Tragedy, Massachusetts, I've Gotta Get A Message To You, Lonely Days, How Can You Mend A Broken Heart, You Win Again og For Whom The Bell Tolls. Bræðurnir þrír voru einkar samrýmdir og sömdu alla tíð öll lög og alla texta í sameiningu," segir í tilkynningu.

Vilja flýta réttarhöldum yfir Mladic

Saksóknarar við stríðsglæpadómstólinn í Haag vilja flýta réttarhöldunum yfir Serbneska hershöfðingjanum Ratko Mladic. Ástæðan ku vera sú að þeir óttast um heilsu Mladic og að hann hrökkvi uppaf meðan á réttarhöldunum stendur.

Munu leita til félagsdóms

Félag leikskólakennara mun leita til félagsdóms ef ekki kemst á hreint hversu langt leikskólastjórar mega ganga til að halda leikskólum opnum í boðuðu verkfalli leikskólakennara, sem hefst að óbreyttu á mánudag.

Sjá næstu 50 fréttir