Erlent

Depardieu pissaði á gólf flugvélar í París

Franski stórleikarinn Gerard Depardieu ákvað að láta allt vaða þegar honum var meinað að fara á klósettið í flugvél rétt fyrir flugtak í París í gærkvöldi. Sjónarvottar segja að leikarinn hafi verið nokkuð ölvaður, og þegar hann fékk þau skilaboð frá flugfreyjunni að ekki væri hægt að nota klósettið fyrr en nokkrum mínútum eftir flugtak ákvað hann að míga einfaldlega á gólfið þar sem hann stóð.

Ef þetta hefði gerst í Bandaríkjunum hefði hann væntanlega verið handtekinn umsvifalaust en eins og Frakka er siður tóku þeir þessu tiltæki stórleikarans tiltölulega rólega. Vélinni var snúið við og tafðist flugtakið um tvo klukkutíma á meðan teppi vélarinnar var þrifið.

Talskona CityJet flugfélagsins vildi lítið tjá sig um málið en staðfesti þó að Depardieu hafi kastað af sér vatni í vélinni. Hún vildi ekkert segja til um hvort eftirmál verði af uppákomunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×