Fleiri fréttir

Flaug til Noregs í yfirheyrslur

Breski þjóðernissinninn Paul Ray kom til Óslóar í gær til að fara í yfirheyrslur hjá lögreglu vegna hryðjuverkanna í Noregi 22. júlí. Ray kom sjálfviljugur til landsins til að ræða við lögreglu.

100 tonn af gulli yfir hafið

Seðlabanki Englands fékk óvenjulega beiðni í síðustu viku þegar Hugo Chávez, forseti Venesúela, vildi fá heim gullforða lands síns, eins fljótt og unnt væri. Það þýðir að flytja þarf 99,2 tonn af gullstöngum frá London til Caracas.

Fyrrverandi fréttastjóri vill vinna fyrir fjölmiðlanefnd

Karl Garðarsson, fyrrverandi fréttastjóri Stöðvar 2, er einn 27 umsækjenda um stöðu framkvæmdastjóra fjölmiðlanefndar. Fjölmiðlanefnd var skipuð samkvæmt nýjum lögum um fjölmiðla sem samþykkt voru í apríl síðastliðnum. Eiríkur Jónsson, kennari við lagadeild Háskóla Íslands, er formaður nefndarinnar.

Heita 180 milljónum hverjum þeim sem finnur Gaddafi

Rúmlega einni og hálfri milljón dollara eða sem samsvarar hundrað og áttatíu milljónum íslenskra króna og friðhelgi hefur verið heitið hverjum þeim sem handsamar eða drepur Gaddafi fyrrum einræðisherra Líbíu. Þrjátíu og sex erlendum blaðamönnum hefur nú verið sleppt úr sex daga gíslingu í Trípólí.

Ráðherra rúntar á vetnisbíl

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, mætti á óvenjulegu farartæki á ríkisstjórnarfund í gær. Um er að ræða Hyundai Tuscon jeppling sem gengur fyrir vetni.

Gefast upp á þjóðarhundinum

Þýska lögreglan er smám saman að skipta þjóðarhundinum, þýskum fjárhundi (sheffer), út fyrir belgísku tegundina. Ríkislögreglan heldur nú aðeins 26 þýska fjárhunda á móti 281 belgískum.

Besti árangur á lestrarprófi

Um 71% nemenda í öðrum bekk í grunnskóla geta lesið sér til gagns samkvæmt þeim viðmiðum sem sett hafa verið. Þetta sýnir könnun sem gerð var á lesskilningi síðasta vor. Þetta er besti árangur frá upphafi lesskimana sem hófust í grunnskólum borgarinnar árið 2002. Af þeim 1.241 nemanda í öðrum bekk sem tók lesskimunarprófið töldust 875 þeirra geta lesið sér til gagns. Aftur á móti náðu 366 nemendur í 36 grunnskólum ekki þessum árangri eða 29% og þarf sá hópur stuðning í lestri með einstaklingsáætlun eða einstaklingsnámskrá.

Fær hugsanlega ævifangelsi fyrir að fara óboðinn inn í landið

Þrjátíu ára gamall pólskur karlmaður gæti orðið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að heimsækja son sinn til Danmerkur. Jyllands Posten segir að þetta yrði þá í fyrsta sinn sem maður fengi slíkan dóm þar í landi fyrir að koma inn í landið í óleyfi.

Nemendur Kvikmyndaskólans lesa upp úr Animal Farm

Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands tóku sér stöðu fyrir framan forsætisráðuneytið klukkan hálfþrjú. Þar lesa upp úr bókinni Animal Farm eftir George Orwell. Þau eru öll með dýragrímu á andlitinu.

Blaðamennirnir lausir

Blaðamennirnir sem voru í haldi á Rixos hótelinu í Tripoli eru lausir úr prísundinni. Blaðamaður CNN segir á twitter-síðu sinni að þeir hafi yfirgefið hótelið í bíl nú síðdegis.

Hadzic segist saklaus

Stríðshöfðingi Serba, Goran Hadzic, lýsti sig saklausan fyrir Stríðsglæpadómstólnum í Haag í dag. Hadzic er ákærður fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni fyrir hlutdeild sína í Júgóslavíustríðinu 1991-1993. Verði hann fundinn sekur bíður hans lífstíðarfangelsi.

Sektuð fyrir að gefa barninu ekki nafn

Kona frá Kaupmannahöfn hefur verið sektuð um 500 danskar krónur, sem jafngildir um 10 þúsund íslenskum, fyrir að hafa ekki gefið barninu sínu nafn.

Hnífaárás í New York

Nakinn ungur maður gekk berserksgang í íbúðarblokk í New York í dag. Maðurinn var vopnaður eldhúshníf, drap einn og særði fjóra. Hann virðist hafa gengið milli íbúða, knúið dyra og ráðist á þann sem opnaði, segir í frétt vefmiðilsins www.mailonsunday.co.uk

Mamma kærði son sinn fyrir fjárdrátt

Karlmaður sem ákærður var fyrir að hafa dregið sér tæplega þrjár milljónir króna af reikningi móður sinnar var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Malaría í Grikklandi

Ferðalangar í Grikklandi hafa verið varaðir við malaríusmitum. Þetta kemur fram í frétt Telegraph. Síðan í júní á þessu ári hafa sex manns greinst í landinu með sjúkdóminn. Tilvikin urðu á Euboea, stórri eyju norður af Aþenu og Laconia svæðinu. Enginn smitaðra hafði ferðast nokkuð út fyrir Grikkland.

8.7 milljónir lífvera á jörðinni

Um 8.7 milljónir tegunda lífvera fyrirfinnast á jörðinni. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Public Library of Science Biology. Talan var fundin með nýju kerfi til að flokka lífverur og meta fjölda þeirra. Áður hefur hún verið áætluð frá 3 milljónum og allt upp í 100.

Þú mátt nefna stelpuna þína Sophie

Mannanafnanefnd samþykkti í byrjun ágúst eiginnöfnin Mara og Sophie og hafa nöfnin verið færð í mannanafnaskrá. Nöfnunum Marias, Dania og Vikingr var hins vegar hafnað. Nöfnunum Marias og Dania var hafnað á þeirri forsendu að þau töldust ekki geta verið í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Nafnið Vikingr taldist hins vegar brjóta í bága við íslenskt málkerfi.

N-Kórea tilbúin að gera hlé á kjarnorkuáætlun

Kim Jong-il gaf það út á fundi í dag með rússlandsforseta, Dimitry Medvedev, að Norður Kórea væri reiðubúin að gera hlé á framleiðslu kjarnavopna og tilraunum sínum með kjarnorku. Þessi tilkynning gæti greitt götu viðræðna milli sex þjóða sem sigldu í strand árið 2008.

Ísland er eins og tilraunastofa

Ísland er eins og tilraunastofa fyrir afdrif vestrænna hagkerfa við fjármálakreppu, segir Eiríkur Bergmann Einarsson, doktor í stjórnmálafræði.

Fundur SÞ og Suu Kyi

Lýðræðissinnin Aung San Suu Kyi frá Búrma segir heimsókn sendifulltrúa Sameinuðu Þjóðanna (SÞ) hafa verið uppörvandi. Suu Kyi átti 90 mínútna fund með mannréttindafulltrúanum, Tomas Ojea Quintana, sem snerist helst um aðstæður 2.000 pólitískra fanga í Búrma og önnur málefni tengd mannréttindum.

Ekkert „like“ í Þýskalandi

Yfirmaður Persónuverndar í þýska fylkinu Schleswig-Holstein telur að „like" hnappurinn svokallaði á Facebook, sem notendur smella á til að lýsa velþóknun sinni á færslum og öðru, brjóti í bága við persónuverndarlög í Þýskalandi.

Blaðamenn í stofufangelsi í Tripoli

Um 35 erlendir blaðamenn eru fastir á Rixos hótelinu í Tripoli. Hótelið er umkringt stuðningsmönnum Gaddafi sem varna blaðamönnunum útgöngu. Bardagar geisa í kring. Byssumenn eru á göngunum, leyniskyttur á þakinu. Ef þeir reyna að sleppa út er byssum beint að þeim.

Staðan í Líbíu

Þó sprengingar og skothvellir heyrist enn í Líbíu eru þær blandnar hamingjuhrópunum fólks og barnasöng. Það eru fagnaðarlæti í Tripoli eftir einstakan og sögulegan dag.

Áframhaldandi átök á Gaza

Árásir héldu áfram á landamærum Gaza-svæðisins og Ísrael í dag. Ísrael gerðu loftárásir á Gaza og Palestínumenn skutu sprengjum til baka. Hamas samtökin segja einn Palestínumann látinn eftir árásirnar.

Nakin Nigella hneykslar nágranna sína

Nágrannar stjörnukokksins Nigellu Lawson kvarta nú undan því að þeir geta séð þessa kynþokkafullu konu ganga um nakta í íbúð sinni.

Borgarstjóri á metsölulista

Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, blandar sér í toppbaráttuna um mest seldu bók vikunnar í Eymundsson þessa vikuna.

Segja frekari niðurskurð bitna á þjónustu

Hjúkrunarráð Landspítalans varar eindregið við frekari niðurskurði á fjárveitingum til Landspítalans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Hjúkrunarráðið sendi frá sér í morgun. Halli á fjárlögum var sem kunnugt er um helmingi meiri en lagt var upp með og þykir líklegt að bregðast verði við því með auknum álögum og meiri niðurskurði á næsta ári.

Fundur með Frakklandsforseta

Leiðtogi uppreisnarmanna í Líbíu, Mahmoud Jibril, er á leið til Frakklands. Í kvöld mun hann eiga viðræður við Nicolas Sarkozy, frakklandsforseta. Viðræðurnar munu helst snúast um ástandið í Líbíu og framlag alþjóða samfélagsins til umskiptanna þar í landi.

Sex handteknir á Selfossi

Sex voru handteknir á Selfossi í gær þegar lögregla gerði húsleit í bænum. Málið hófst á því að bifreið var stöðvuð þar sem grunur lék á að ökumaðurinn væri undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bílnum fannst eitthvað að marijúana í neysluskömmtum.

Þingflokkur VG gagnrýnir ákvörðun Katrínar

Þingflokkur Vinstrihreyfingar - græns framboðs gagnrýnir harðlega þá ákvörðun iðnaðarráðherra að setja stjórn Byggðastofnunar af og skipa nýja í hennar stað þvert á óskir VG. Þá lýsir þingflokkurinn stuðningi við fráfarandi fulltrúa VG í stjórnni og þakkar þeim fyrir vel unnin störf.

Írena nálgast Bandaríkin

Fellibylurinn Írena fór yfir Bahama-eyjar og aðrar minni eyjar á Karabískahafinu í nótt en ekki er vitað um tjón eða mannfall.

Átta börn fórust í eldsvoða

Ellefu fórust, þar á meðal átta börn, þegar eldur kom upp í tveggja hæða húsi bænum Logan í Ástralíu á miðnætti. Fjölmiðlar á svæðinu segja að tvær fjölskyldur hafi búið í húsinu en þrír náðu að flýja út úr húsinu. Börnin er sem brunnu inni eru á aldrinum ellefu til sautján ára en ríkisstjóri Queensland-héraðsins hefur sent sérstaka ráðgjafa í skóla barnanna til að huga að bekkjarsystkinum og vinum þeirra. Eldsupptök eru ókunn en rannsókn stendur yfir.

Eru ekki að skilja

Bandaríski leikarinn Will Smith og eiginkona hans Jada Pinkett-Smith neita sögusögnum um skilnað. Í sameiginlegri yfirlýsingu segjast þau vera hamingjusöm og hjónabandið sé óskaddað.

Landsbankinn gæti tapað 25 milljörðum

Landsbankinn lýsir yfir miklum áhyggjum af frumvarpi um stjórn fiskveiða og segir að ef frumvarpið verði samþykkt geti tap bankans numið 25 milljörðum króna.

Gaddafí segist vera í Trípólí

Tvær loftárásir voru gerðar í Trípólí, höfuðborg Líbíu, í nótt en talið er að Atlantshafsbandalagið beri ábyrgð á árásinni. Engar fréttir hafa borist á manntjóni.

Barnið átti grunlausan blóðföður á Íslandi

Niðurstöður DNA rannsóknar hafa leitt í ljós að sveinbarn sem litháísk móðir skildi eftir nýfætt og andvana í ruslageymslu við Hótel Frón í júlí í sumar átti blóðföður hér á landi, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.

Fundu hafstraum sem gæti breytt loftslagskenningum

Uppgötvun tveggja íslenskra haffræðinga hefur vakið alþjóðlega athygli þar sem hún er talin skipta máli í samhengi við loftlagsbreytingar og hlýnun jarðar. Um er að ræða djúpstraum sem mælst hefur yfir landsgrunnshlíðinni norðan Íslands. Þessi straumur var rannsakaður fyrst og honum lýst af sérfræðingum Hafrannsóknastofnunarinnar, þeim Steingrími Jónssyni, sem jafnframt er prófessor við Háskólann á Akureyri, og Héðni Valdimarssyni.

Lokkar hrefnuna af leið

Svo virðist sem hrefnan hafi breytt matarvenjum sínum. Það kemur hrefnuveiðimönnum í bobba, en þeir finna hana ekki lengur á þeim slóðum þar sem hún hefur haldið sig síðustu ár.

Endanleg ákvörðun eftir áralangt þjark

„Loksins nú, eftir margra ára og áratuga biðstöðu og þjark, liggur fyrir endanleg ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að reisa nýtt fangelsi,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.

Opna í Háskólanum í Reykjavík

Líkamsræktarstöðin World Class mun opna í húsnæði Háskólans í Reykjavík í byrjun september. Í staðinn hefur stöðinni í Orkuveituhúsinu verið lokað.

Rétt viðbrögð vinnufélaga skiptu sköpum

Starfsmaður löndunarþjónustu var hætt kominn í gærmorgun þegar hann var við vinnu í uppsjávarveiðiskipinu Álsey VE. Hann missti meðvitund í lest skipsins en skjót viðbrögð vinnufélaga mannsins, skipverja og björgunarfólks skiptu sköpum.

Sjá næstu 50 fréttir