Innlent

Þingflokkur VG gagnrýnir ákvörðun Katrínar

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
Þingflokkur Vinstrihreyfingar - græns framboðs gagnrýnir harðlega þá ákvörðun iðnaðarráðherra að setja stjórn Byggðastofnunar af og skipa nýja í hennar stað þvert á óskir VG. Þá lýsir þingflokkurinn stuðningi við fráfarandi fulltrúa VG í stjórnni og þakkar þeim fyrir vel unnin störf.

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, skipaði nýja stjórn Byggðastofnunar í vikunni og í tilkynningu frá ráðuneytinu sagði að ekki hafi verið leitað eftir tilnefningum frá þingflokkum stjórnmálaflokkanna sem væri í samræmi við álit Ríkisendurskoðunar en í því segir að beint stjórnsýslusamband skuli vera milli ráðherra og stofnunarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×