Innlent

Betra að einbeita sér að fjármálum Byggðastofnunar en skipan stjórnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Katrín Júlíusdóttir er iðnaðarráðherra. Mynd/ GVA.
Katrín Júlíusdóttir er iðnaðarráðherra. Mynd/ GVA.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segist afskaplega leið yfir þeirri gagnrýni sem hún fær frá þingflokki VG vegna skipunar nýrrar stjórnar Byggðastofnunar. Hún vill að menn einbeiti sér að því að bæta fjárhag stofnunarinnar frekar en skipan stjórnarinnar.

Iðnaðarráðherra skipaði nýja stjórn Byggðastofnunar í vikunni með fulltrúum úr atvinnulífinu en ekki pólitískt skipaða fulltrúa. Í ályktun sem þingflokkur Vinstrihreyfingar - græns framboðs sendi frá sér í morgun er þessi ákvörðun gagnrýnd harðlega. Segir þingflokkurinn að þetta sé gert þvert á óskir VG. Þá lýsir þingflokkurinn stuðningi við fráfarandi fulltrúa VG í stjórnni og þakkar þeim fyrir vel unnin störf.

Aðspurð segir Katrín að gagnrýni eins og þessi hljóti að vera einsdæmi. Hún segist hafa sent formanni VG og aðstoðarmanni hans bréf þann 20. maí síðastliðinn þar sem kemur fram að hún hyggist skipta út allri stjórninni og fá inn öflugan hóp úr atvinnulífi og menntalífi. „Og svo óskaði ég eftir samráði í framhaldi," segir Katrín.

Katrín segir að væri nær að einbeita sér frekar að fjármálum Byggðarstofnunar heldur en hvernig stjórnin er skipuð. „Verkefnið okkar núna gagnvart Byggðarstofnun er ekki að takast á um það hvernig skipað er í stjórnina heldur er það að leysa fjárhagsvanda hennar," segir Katrín.

Hún bendir á að eigið fé sé neikvætt um 2,74% og Alþingi hafi þegar samþykkt milljarð inn í stofnunina og það þurfi að sækja 2,5 milljarða til viðbótar til að koma eigið fé stofnunarinnar í það horf að Fjármálaeftirlitið samþykki starfsemi hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×