Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins Baráttudagur verkalýðsins er í dag og af því tilefni standa verkalýðsfélög landsins fyrir fjölbreyttri dagskrá víða um land. 1.5.2022 12:29
Hádegisfréttir Bylgjunnar Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins hefur áhyggjur af hækkandi verðbólgu í landinu þar sem hún bitnar helst á láglaunafólki. Stjórnvöld hafi misst tökin á húsnæðismarkaðinum og mikilvægt sé að þau bregðist við. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum. 1.5.2022 12:04
„Hvernig ætlar Öryggisráðið að refsa Rússum þegar Rússarnir sjálfir hafa neitunarvald?“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að það skorti pólitíska forystu innan alþjóðasamtaka heimsins. Hún segir að efnahagsþvinganir gegn Rússum þurfi að vera harðari. 1.5.2022 12:04
Gagnrýnir aðferðafræði Íslandsbankaútboðsins Fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir stjórnkerfið hafa tapað trausti og trúverðugleika vegna aðferðarfræðinnar við söluna á Íslandsbanka. Afar mikilvægt sé að upplýsa hvernig fjárfestarnir voru valdir til að kaupa í bankanum á afslætti. 1.5.2022 12:00
Sakar stjórn Eflingar um að vega að grundvallarréttindum launafólks Trúnaðarráð Bárunnar fordæmir uppsögn alls starfsfólks Eflingar og segir ákvörðun stjórnarinnar þess efnis ósvífna og óskiljanlega. 1.5.2022 11:51
Ísfirðingar vilja betri bæjaranda Bætt heilbrigðisþjónusta, hreinni götur og betri bæjarandi. Allt eru þetta lykilatriði hjá Ísfirðingum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Á meðan er frambjóðendum mest umhugað um uppbyggingu. 1.5.2022 10:45
Alþjóðamál og bankasalan í brennidepli Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er fyrst gestur Kristján Kristjánssonar á Sprengisandi og fjallar um alþjóðamál, áhrif Úkraínustríðsins á öryggisskipan í Evrópu. Því næst ræða meðlimir fjárlaganefndar sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. 1.5.2022 09:51
Fjölskyldan kannaðist ekkert við manninn í kistunni Hefðbundin kistulagning tók nokkuð óvænta stefnu í Neskirkju á fimmtudag þegar í ljós kom að fjölskyldan kannaðist ekki við manninn í kistunni. 1.5.2022 08:30
Bandarískur fangi greindist með fuglaflensu Fangi í Coloradofylki í Bandaríkjunum varð á dögunum fyrsta manneskjan í Bandaríkjunum sem greinist með það afbrigði fuglaflensu sem nú geisar um landið. 1.5.2022 08:30
Bifreið ekið á þrettán ára stúlkur og stungið af Um klukkan sjö í gærkvöldi var bifreið ekið á og í veg fyrir tvær þrettán ára stúlkur sem voru á hlaupahjóli. Ökumaðurinn flúði vettvang. 1.5.2022 07:53
Vaktin: Um hundrað almennir borgarar verið fluttir úr Azovstal-stálverinu Forseti Úkraínu, sagði í ávarpi sínu í gærkvöldi að landið yrði frjálst. Allar borgir þess sem Rússar þykist ráða ríkjum í verði frelsaðar og fáni Úkraínu verði dreginn að húni þar á ný. Borgarstjóri Mariupol tilkynnti í gær að tuttugu þúsund almennir borgarar hefðu verið drepnir frá upphafi innrásar Rússa. 1.5.2022 07:40
Myndband: Framkvæmdastjóri Ford skýtur á Tesla Ford F-150 Lightning er formlega farinn í framleiðslu í hinni sögulegu Rouge verksmiðju Ford og innanhúss hjá Ford er bíllinn talinn jafn mikilvægur og Model T. Jim Farley, framkvæmdastjóri Ford skaut á Tesla við fögnuð vegna upphafs framleiðslu bílsins. 1.5.2022 07:01
Varpa ljósi á jákvæð áhrif Covid-faraldursins Töluvert færri lögðust inn á spítala vegna lungnabólgu og hjartavandamála á árinu 2020 samanborið við árin þar áður samkvæmt nýrri rannsókn. Yfirlæknir á Landspítala segir niðurstöðurnar koma á óvart en þær varpi ljósi á áhrif smitsjúkdóma á önnur veikindi. 30.4.2022 22:30
Björgunarsveit kölluð út vegna göngumanns Göngumaður lenti í sjálfheldu í fjöllunum suður af Mýrdalsjökli í kvöld og var björgunarsveit á Suðurlandi kölluð út til að aðstoða hann. Maðurinn er sagður vera í ágætu ástandi, óslasaður en orðið kalt. 30.4.2022 22:00
Einhver þurfi að bera ábyrgð á klúðrinu: „Þetta er eins og lélegur brandari“ Hundruð manna söfnuðust saman á Austurvelli í dag til að mótmæla bankasölunni - í fjórða sinn. Mótmælendur vilja breytingar en eru ekki bjartsýnir á að ríkisstjórnin bæti sitt ráð. 30.4.2022 20:30
Gengið yfir 1.600 kílómetra í dag til að heiðra fólk með krabbamein Fyrstu Styrkleikar Krabbameinsfélags Íslands eru í fullum gangi og voru þátttakendur búnir að ganga 7.250 hringi, eða 1.600 kílómetra um klukkan 18:20 í kvöld þegar fjórðungur var liðinn af tímanum. 30.4.2022 20:00
Mjaldrarnir við hestaheilsu og fá nýja laug Sérhannaðri umönnunarlaug hefur verið komið fyrir í Klettsvík í Vestmannaeyjum svo tvær Mjaldrasystur, sem hafa síðustu mánuði verið í innilaug, geti aðlagast náttúrunni betur. 30.4.2022 18:48
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö segjum við frá því að níu Íslendingum hefur nú verið bannað að koma til Rússlands. Utanríkisráðherra segir þetta ekki koma á óvart. 30.4.2022 18:00
„Takið til í eigin ranni, losið ykkur við Bjarna og færið okkur sjálfstæðið sem þið boðið“ Fjölmenni var á mótmælum á Austurvelli í dag þar sem mótmælt var vegna sölunnar á Íslandsbanka. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hélt ræðu og sagði að Bjarni Benediktsson myndi halda áfram að selja eigur landsmanna og landið sjálft. 30.4.2022 17:10
Skoðað hvort rétt hefur verið staðið að aflífun hrossins Hestshausinn sem festur var á níðstöngina utan við bæinn Skrauthóla á Kjalarnesi er af ungu hrossi. Tilraunastöðin á Keldum er með málið til skoðunar. 30.4.2022 15:36
Sérsveitin hafði afskipti af dreng sem reyndist óvopnaður Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út á fimmta tímanum í nótt eftir að tilkynning um vopnaðan mann í miðborginni barst lögreglu. Sá reyndist ekki aðeins vopnlaus með öllu heldur einnig undir átján ára aldri. 30.4.2022 14:48
Megn óánægja sé með Sjúkratryggingar Íslands meðal lækna Formaður Læknafélags Reykjavíkur segir mikla óánægju vera meðal félagsmanna með aðgerðir Sjúkratrygginga Íslands. Hann segir stofnunina senda tilhæfulausar endurkröfur áður en leyst er úr ágreiningi um læknisþjónustu. 30.4.2022 14:40
Segir af sér eftir að hafa horft á klám í stundarbrjálæði Breski þingmaðurinn Neil Parish hefur sagt af sér eftir að hafa viðurkennt að hafa horft á klám í þingsal. Hann segir að þetta hafi gerst í stundarbrjálæði. 30.4.2022 14:34
Glaumgosar féflettu Madrid í Covid-farsóttinni Lystisnekkja, 12 sportbílar og nokkur Rólex úr eru á meðal þess sem tveir meintir svikahrappar keyptu sér fyrir gróðann af því að selja stjórnvöldum í Madrid sóttvarnabúnað á uppsprengdu verði í upphafi Covid19-farsóttarinnar. Spillingardeild lögreglunnar rannsakar málið og mennirnir eiga langa fangelsisvist yfir höfði sér. 30.4.2022 14:31
Fjörug dagskrá á mótmælum á Austurvelli Gert er ráð fyrir fjölmennum fundi á Austurvelli í dag þar sem sölunni á Íslandsbanka verður mótmælt í fjórða sinn. 30.4.2022 13:14
„Þetta er áfram á ábyrgð okkar allra“ Gert er ráð fyrir fjölmennum fundi á Austurvelli í dag þar sem sölunni á Íslandsbanka verður mótmælt í fjórða sinn. Einn af ræðumönnum fundarins í dag segir mikilvægt að fólk láti ekki deigan síga og gerir ráð fyrir að áfram verði mótmælt þar til ríkisstjórnin bregst við. 30.4.2022 12:30
Ýmsum þætti upphafning að vera á svörtum lista Rússa Utanríkisráðherra segir svartan lista Rússa vera útspil sem hefur minnstu áhrif á utanríkisstefnu Íslendinga. Þá segir hún að henni þyki ekki ósennilegt að af níu Íslendingum á listanum séu einhverjir sem myndu telja það upphefð. 30.4.2022 12:07
Hádegisfréttir Bylgjunnar Níu Íslendingar hafa verið settir á svartan lista rússneskra stjórnvalda, og verður því meinað að ferðast til Rússlands. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. 30.4.2022 11:50
Segir níðstönginni hafa verið beint gegn starfsemi Sólsetursins Íbúi við Skrauthóla við Esjurætur segir að honum hafi borist nafnlaus ábending um að níðstöng, sem reist var nærri húsi hans í gær, hafi verið beint gegn starfsemi Sólsetursins. 30.4.2022 11:38
Hópurinn lagður af stað til Ítalíu Íslenski Eurovisionhópurinn lagði af stað til Ítalíu í morgun en systurnar Sigga, Beta og Elín stíga á svið í Tórínó þann 10.maí. 30.4.2022 11:18
Gæti misst þingsætið eftir að hafa horft á klám í þingsal Breski þingmaðurinn Neil Parish hefur verið rekinn úr þingflokki Íhaldsflokksins eftir að hafa viðurkennt að hafa horft á klám í þingsal. 30.4.2022 11:01
Þingmenn og ráðherrar í hópi níu Íslendinga sem fá ekki að fara til Rússlands Níu Íslendingar eru komnir á svartan lista rússneskra stjórnvalda og hefur verið bannað að koma til Rússlands. Ráðherrar, þingmenn og fjölmiðlafólk er meðal aðila á listanum. 30.4.2022 09:52
Segir skelfilegt ef formaður fær endurnýjað umboð þrátt fyrir einelti Grunnskólakennari segist myndi telja það hneyksli ef sitjandi formaður Félags grunnskólakennara fengi endurnýjað umboð til formennsku í kosningum í næstu viku. Skýrslu, sem flokkaði samskipti formannsins við félagsmann sem einelti, var lekið á dögunum. 30.4.2022 09:18
Sjálfstæðisflokknum sé með engu móti treystandi fyrir sölu ríkiseigna Formaður Viðreisnar segir ríkisstjórnina hafa klúðrar sölunni á hlut ríkisins í Íslandsbanka nokkuð hressilega. Það séu vonbrigði fyrir þau sem vilja að ríkið losi um eignarhluti sína í bankakerfinu. 30.4.2022 09:01
Aðsetur Vatnajökulsþjóðgarðs verður flutt til Hafnar Formlegt aðsetur og lögheimili Vatnajökulsþjóðgarðs verður flutt til Hafnar í Hornafirði næsta haust. Frá þessu greindi Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. 30.4.2022 08:32
Ók rafvespu á lögreglubíl Laust fyrir miðnætti í gær hugðust lögreglumenn stöðva för konu á rafvespu. Sú sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og ók þess í stað á lögreglubílinn. 30.4.2022 07:43
Vaktin: Þorp enn á floti tveimur mánuðum eftir að flugskeyti hæfði nærliggjandi stíflu Úkraínuforseti segir árás Rússa á Kænugarð í fyrradag vera markvissa og grimma niðurlægingu á Sameinuðu þjóðunum, en aðalritari þeirra var í heimsókn í borginni þegar Rússar gerðu loftskeytaárás. 30.4.2022 07:24
Þriðja kynslóð af Formúla E bílum er fljótasti rafkappakstursbíll sögunnar Bíllinn heitir Spark Gen3 og verður fyrst notaður á níunda tímabili Formúla E. Kynning bílsins fór fram í Mónakó. Miklar breytingar hafa verið gerðar á yfirbyggingu bílsins og loftflæðishönnun. 30.4.2022 07:01
Hrópandi ósamræmi í svörum ráðherranna Ráðherrum ber ekki saman um hvort þeir hafi verið með efasemdir um útboðið á Íslandsbanka. Innviðaráðherra kennir Bankasýslunni um það sem misfórst og segist svekktur vegna málsins á meðan fjármálaráðherra segist treysta Bankasýslunni. 29.4.2022 23:55
Menn hafi boðist til að hýsa ungar og einhleypar úkraínskar konur Aðgerðarstjóri teymis sem heldur utan um móttöku flóttafólks frá Úkraínu segist persónulega hafa fengið mýmörg skilaboð frá mönnum sem boðist hafa til að hýsa flóttamfólk en þó með ýmsum skilyrðum. Einn vildi til að mynda aðeins hýsa einhleypa konu undir 35 ára aldri. 29.4.2022 22:05
Fær engar bætur fyrir hálsbrot eftir eftirför lögreglu Karlmaður sem slasaðist alvarlega þegar lögreglubifreið var ekið aftan á bifreið hans, með þeim afleiðingum að hún valt og hann hálsbrotnaði, fær engar bætur úr tryggingum eða frá íslenska ríkinu. 29.4.2022 21:21
Styrkleikar Krabbameinsfélagsins í sólarhring á Selfossi Það fæst engin hvíld frá krabbameini og sá eða sú sem tekst á við krabbamein gerir það allan sólarhringinn. Í ljósi þessa þá verða Styrkleikarnir haldnir í fyrsta skipti á Íslandi í heilan sólarhring um helgina til að styðja við, heiðra eða minnast þeirra, sem hafa fengið krabbamein. 29.4.2022 21:02
„Þetta er bara líflátshótun“ Kona sem þurfti að flýja heimili sitt eftir að níðstöng með hrossahaus var þar komið upp segist óttast að snúa aftur heim. Hún telur ljóst að um líflátshótun sé að ræða og að mögulegt sé að nágrannar þeirra hafi verið að verki. 29.4.2022 20:00
Reykjavíkurborg hótar að afturkalla lóð fyrir tæplega 200 íbúðir í Vesturbugt Reykjavíkurborg hefur gefið lóðarhöfum tæplega tvö hundruð íbúða í Vesturbugt frest út næsta mánuð til koma framkvæmdum af stað ella verði lóðin kölluð til baka. Framkvæmdir áttu að hefjast haustið 2018 en enn hefur ekki verið stungið niður skóflu. 29.4.2022 19:30
Bandaríkjaþing uppfærir lög frá seinni heimsstyrjöld til stuðnings Úkraínu Bandaríkjaþing hefur endurvakið lög sem sett voru til að styðja Breta í seinni heimstyrjöld til að forseti Bandaríkjanna geti nánast milliliðalaust útvegað Úkraínu vopn með litlum fyrirvara. Úkraínuforseti segir eldflaugaárás Rússa á Kænugarð í gær sýna fyrirlitningu þeirra á Sameinuðu þjóðunum. 29.4.2022 19:21