Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kolefnisgjald og sala losunarheimilda skilað ríkinu 59 milljörðum Sala losunarheimilda gróðurhúsalofttegunda hefur skilað íslenska ríkinu 11,41 milljarði króna í tekjur. Tekjur ríkissjóðs af kolefnisgjaldi nema 47,72 milljörðum króna frá því að innheimta hófst árið 2010. 17.5.2022 14:52
Sveitarstjórinn fékk flest atkvæði í Súðavíkurhreppi Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, fékk flest atkvæði í óhlutbundnum kosningum í Súðavíkurhreppi síðastliðinn laugardag. Hlutkesti réði því hverjir tóku fjórða og fimmta sætið í sveitarstjórn. 17.5.2022 14:39
Anna Hildur og Þráinn vilja áfram leiða SÁÁ Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ og Þráinn Farestveit varaformaður hafa tilkynnt að þau gefi kost á sér til að halda áfram á næsta aðalfundi samtakanna. 17.5.2022 14:36
Einn listi bauð fram í Tjörneshreppi Einn listi bauð fram til sveitarstjórnar í Tjörneshreppi og var hann því sjálfkjörinn svo ekki þurfti að boða til sveitarstjórnarkosningar í hreppnum á laugardag. 17.5.2022 14:25
Skagastrandarlistinn sjálfkjörinn og engar kosningar Íbúar í sveitarfélaginu Skagaströnd gengu ekki til kosninga um helgina þar sem aðeins einn framboðslisti barst. Hann var því sjálfkjörinn í apríl. 17.5.2022 13:57
Munaði þrettán atkvæðum á listum í Svalbarðsstrandarhreppi Þrettán atkvæðum munaði á listunum tveimur sem buðu fram í Svalbarðsstrandarhreppi í Eyjafirði í kosningunum á laugardag. Svo fór að A-listinn fékk 128 atkvæði og þrjá menn kjörna, en Ö-listinn 115 atkvæði og tvo menn kjörna. 17.5.2022 13:49
Einar fundar einslega með öllum oddvitunum Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík ætlar að funda einslega með oddvitum allra flokka í borgarstjórn í dag. Það var sameiginleg niðurstaða á fundi oddvita Vinstri grænna í borginni með félögum sínum og þingmönnum flokksins í Reykjavík að sækjast ekki eftir því að taka þátt í myndun nýs meirihluta í borginni. 17.5.2022 13:17
Æsispennandi uppgötvun í Grímsey Ákveðið hefur verið að færa nýja kirkju í Grímsey um fjóra metra til að raska ekki ró þeirra sem liggja í fornum kirkjugarði sem kom í ljós við fornleifauppgröft í eyjunni. Öskuhaugur sem uppgötvaðist einnig þar í grennd getur varpar ljósi á sögu Grímseyjar frá því að hún var fyrst byggð. Fornleifafræðingur segir uppgötvunina vera æsispennandi. 17.5.2022 13:16
Yfirgnæfandi meirihluti greiddi atkvæði með NATO-aðild Yfirgnæfandi meirihluti á finnska þinginu greiddi í hádeginu atkvæði með tillögu um að landið sæki um aðild að NATO. 17.5.2022 13:12
Framsókn og Sjálfstæðisflokkur hefja formlegar viðræður í Hafnarfirði Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa hafið formlegar meirihlutaviðræður í Hafnarfirði. Flokkarnir ná meirihluta í bæjarstjórn með einum manni. 17.5.2022 13:06
Á skilorði en heldur áfram að bera sig Karlmaður hefur ítrekað berað sig fyrir framan börn í Laugardal og eru foreldrar orðnir langþreyttir á ástandinu. Móðir stúlku sem lenti í manninum í gær ætlar að kæra hann til lögreglu. 17.5.2022 12:56
Prezydent z wizytą w USA W tym tygodniu, prezydent Islandii Guðni Th. Jóhannesson, poleciał do USA, gdzie będzie brał udział w spotkaniach z dużymi amerykańskimi firmami z branży technologicznej. 17.5.2022 12:56
Mark Zuckerberg á Íslandi Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, er sagður hafa lent í einkaflugvél sinni á Akureyrarflugvelli í dag. 17.5.2022 12:43
Sér ekki hvað lögreglan hefði getað gert öðruvísi Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, segir að það sé óþolandi að saklaus ungur drengur skyldi hafa orðið fyrir ítrekuðu áreiti af hálfu lögreglu eingöngu vegna uppruna og kynþáttar. Á sama tíma sjái hún ekki hvað lögreglan hefði getað gert öðruvísi því hún hafi verið að leita að hættulegum manni en verið var að leita að gæsluvarðhaldsfanga sem flúði úr héraðsdómi. Lögreglan hefur nýlokið stefnumótun en upp úr henni spruttu einkunnarorðin: Að vernda og virða. 17.5.2022 12:14
Słynny hot dog znów podrożał Tydzień temu najsłynniejsza budka z hot dogami w Reykjaviku, Bæjarins beztu, podniosła cenę swoich hot dogów i teraz koszt jednej bułki z parówką to 600 isk. 17.5.2022 12:07
Stapa breytt í stúdentagarð Háskóli Íslands (HÍ) hyggst selja Félagsstofnun stúdenta (FS) bygginguna Stapa við Hringbraut eftir að núverandi starfsemi HÍ þar flyst í nýtt húsnæði Heilbrigðisvísindasviðs á Landspítalasvæðinu. Til stendur að breyta Stapa í stúdentagarð sem fellur að Gamla Garði og nýrri viðbyggingu hans. 17.5.2022 12:06
Bein útsending: Leyniþjónustumálanefnd fundar um fljúgandi furðuhluti Undirnefnd Leyniþjónustumálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings heldur í dag fund um fljúgandi furðuhluti. Háttsettir embættismenn í leyniþjónustum og Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna muni sitja fyrir svörum en hluti fundarins verður í beinni útsendingu. 17.5.2022 12:01
Hlutkesti skilaði Önnu Jónu í sveitarstjórn í Fljótsdalshreppi Jóhann Frímann Þórhallsson hlaut flest atkvæði í sveitarstjórn í óbundinni kosningu til sveitarstjórnar í Fljótsdalshreppi á laugardag. Grípa þurfti til hlutkestis til að ákvarða hver myndi skipa fimmta sætið í sveitarstjórn. 17.5.2022 11:55
Óviðeigandi af Tyrkjum að setja ótengd mál á dagskrá Utanríkisráðherra segir óviðeigandi af Tyrkjum að setja ótengd mál á dagskrá vegna umsóknar Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Hún gerir ráð fyrir að málið verði leyst. 17.5.2022 11:54
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fylgjumst við áfram með meirihlutaviðræðum víðsvegar um landið að afloknum kosningum. 17.5.2022 11:36
Utanríkismálanefnd misvel til fara á fundi utanríkisráðherra Eista Utanríkismálanefnd er nú í heimsókn í eistneska þinginu en svo bagalega vildi til að töskur nefndarmanna týndust í fluginu og íslensku fulltrúarnir eru því ekki eins vel til höfð og til stóð. 17.5.2022 11:25
Einar Freyr verður sveitarstjóri Mýrdalshrepps eftir sigur B-lista B-listi Framsóknar og óháðra tryggði sér þrjá fulltrúa í sveitarstjórn Mýrdalshrepps í kosningunum á laugardag og hélt þar með meirihluta sínum. A-listi Allra náði inn tveimur mönnum. 17.5.2022 11:25
Unglingarnir hefðu kosið sama fólkið og hlaut kjör í Reykhólahreppi Skuggakosningar til sveitarstjórnar voru haldnar á nýafstöðnu ungmennaþingi í Reykhólahreppi og mikill samhljómur var með niðurstöðum þeirra og niðurstöðum sveitarstjórnarkosninganna. Ólíklegt er því að breytingar hefðu orðið á niðurstöðunum þó ungmenni væru yngri þegar þau fengju atkvæðisrétt. 17.5.2022 11:07
Tveimur árum eftir að geimskotið misheppnaðist á að reyna aftur Geimvísindamenn NASA og Boeing stefna á að skjóta Starliner-geimfari til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á fimmtudaginn. Þróun geimfarsins hefur tafist nokkuð en síðasta geimskot Starliner, árið 2019, misheppnaðist. 17.5.2022 10:43
Dagur hefur ekki svarað símtölum Hildar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík hefur ekki svarað símtölum Hildar Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins. Hún segist hafa rætt við alla oddvitana í borginni eftir kosningar, utan tveggja. 17.5.2022 10:42
Sjálfstæðismenn náðu meirihluta í Hrunamannahreppi Sjálfstæðisflokkurinn og óháðir náðu inn þremur mönnum í sveitarstjórn Hrunamannahrepps í kosningum laugardagsins og eru því í meirihluta. L-listinn náði inn tveimur mönnum. 17.5.2022 10:35
„Landabruggarinn“ Gísli Einarsson segist ekki auglýsa viskí Gísli Einarsson, ritstjóri Landans, segir að umfjöllun hans um Reyka-viskí sé ekki áfengisauglýsing heldur sé um að ræða nýsköpun og áhugavert umfjöllunarefni sem slíkt. 17.5.2022 10:15
E-listinn vann sigur í Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi E-listinn bar sigur úr bítum í sveitarstjórnarkosningum í sameinuðu sveitarfélagi Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps. Alls greiddu 819 atkvæði í sveitarfélaginu en 1.033 eru á kjörskrá í sveitarfélaginu. 17.5.2022 10:12
Næststærsti sigur lista á landinu var í Bláskógabyggð T-listinn vann sigur í kosningum til sveitarstjórnar í Bláskógabyggð á laugardaginn og tryggði sér fimm fulltrúa af sjö í sveitarstjórn. Þ-listinn náði inn tveimur mönnum. 17.5.2022 10:07
Sautján prósent aukning í tilkynningum um nauðganir Fleiri tilkynningar um nauðganir annars vegar, og heimilisofbeldis og ágreiningsmál hins vegar, bárust Embætti ríkislögreglustjóra á fyrstu þremur mánuðum þessa árs en á sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í skýrslu sem embættið hefur birt um heimilisofbeldi og kynferðisbrot. 17.5.2022 10:03
Gísli Gunnar hlaut flest atkvæði í Grýtubakkahreppi Gísli Gunnar Oddgeirsson hlaut flest atkvæði til sveitarstjórnar í Grýtubakkahreppi í kosningum laugardagsins. Kosningin var óhlutbundin þar sem engir framboðslistar bárust. 17.5.2022 08:50
Opinn fundur í allsherjar- og menntamálanefnd: Fræðsla og menntun lögreglumanna um fjölmenningu og fordóma Allsherjar- og menntamálanefnd verður með opinn fund sem hefst klukkan 9:10 í dag. Efni fundarins er fræðsla og menntun lögreglumanna um fjölmenningu og fordóma. 17.5.2022 08:40
Ráðherra birtist óvænt í miðju viðtali og reyndist sammála viðmælandanum Svo heppilega vildi til þegar Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðingur var til viðtals í Íslandi í dag, að Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra gekk framhjá. Hannes bauð honum að setjast með sér og spyrli. Í ljós kom, ef til vill fáum til undrunar, að hann tók heils hugar undir með Hannesi, að það yrði erfitt fyrir Framsóknarflokkinn að réttlæta myndun nýs meirihluta í Reykjavík með nýföllnum meirihluta. 17.5.2022 07:31
Andlát vegna Covid-19 nokkuð fleiri hér á landi en áður var talið Yfirferð dánarvottorða hjá embætti landlæknis hefur leitt í ljós að samtals hafi orðið 153 andlát á Íslandi vegna Covid-19 frá upphafi faraldurs árið 2020 til 1. apríl síðastliðinn. Dauðsföll vegna Covid-19 eru því nokkuð fleiri en opinberar tölur höfðu áður sagt til um, en á síðunni covid.is sagði í síðustu viku að 120 manns hafi látist á Íslandi vegna sjúkdómsins. 17.5.2022 07:26
Heldur skýjaðra en í gær og sums staðar rigning Heldur skýjaðara verður á landinu í dag samanborið við í í gær og má búast við rigningu suðaustantil og jafnvel gætu komið nokkrir dropar um landið suðvestanvert eftir hádegi og fram á kvöld. 17.5.2022 07:13
Meirihlutarnir fimm sem eru í boði Eftir yfirlýsingar Vinstri grænna um að taka ekki þátt í myndun nýs meirihluta í borgarstjórn og útilokanir Pírata og Sósíalista á samstarfi við suma flokka koma aðeins fimm meirihlutamyndanir til greina í Reykjavík. 17.5.2022 07:00
Vaktin: Senda sitt stærsta teymi til að rannsaka stríðsglæpi í Úkraínu Búið er að flytja 260 úkraínska hermenn frá Azovstal-stálverksmiðjunni í Maríupól, þar af marga alvarlega særða. Ekki er ljóst hversu margir eru eftir en áætla má að þeir séu um 350. Rússar virðast nú hafa náð Maríupól alfarið á sitt vald. 17.5.2022 06:53
Baráttunni um Maríupól er lokið: Hermönnum bjargað frá Azovstal Fleiri en 260 úkraínskir hermenn, margir þeirra slasaðir, hafa verið fluttir á brott frá Azovstal-stálverksmiðjunni í Maríupól eftir margra vikna harða bardaga. Óvíst er hversu margir eru enn í verksmiðjunni. 17.5.2022 06:28
Þórólfur hafi ekki bara vísað veginn í faraldrinum Forsætisráðherra segir Þórólf Guðnason, fráfarandi sóttvarnalækni, líklega vera þann mann sem hún hefur átt flest símtöl við undanfarin tvö ár. Hún rifjar upp skemmtilega sögu af því þegar Þórólfur vísaði henni og fjölskyldu hennar veginn til Borgarfjarðar eystri. 16.5.2022 23:26
Byssumaðurinn sagður knúinn áfram af hatri á Taívönum Tæplega sjötugur karlmaður sem skaut einn til bana og særði fimm til viðbótar í kirkju í sunnaverðri Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær er kínverskur innflytjandi og var knúinn áfram af hatri á Taívönum. Árásina gerði hann í taívanskri öldungakirkju en kínversk stjórnvöld gera tilkall til Taívans. 16.5.2022 23:22
Óþol í garð átakastjórnmála hafi greitt veg Framsóknar Prófessor í stjórnmálafræði segir óþol í garð þeirra átakastjórnmála sem einkennt hafa íslenska pólitík síðan eftir hrun hafa greitt veg Framsóknarflokksins. 16.5.2022 21:58
Vill láta reisa styttu af Bobby Fischer við gröf hans í Laugardælakirkjugarði Fimmtíu ár eru í sumar var skákeinvígi aldarinnar á milli Bobby Fischers og Boris Spasskís í Laugardalshöllinni. Verðlaunaféð á núvirði var um tvö hundruð milljónir króna. Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra vill láta reisa styttu af Fischer við gröf hans í Laugardælakirkjugarð við Selfoss. 16.5.2022 21:05
Allt opið í Hafnarfirði Oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði útilokar ekki samstarf við Sjálfstæðisflokkinn en telur kjósendur kalla eftir að Samfylking og Framsókn vinni saman. Fráfarandi meirihlutaflokkarnir ræða fyrst saman. 16.5.2022 20:26
Kominn með styttuna í skottið eftir að Landsréttur sneri við dómi héraðsdóms Bronsstytta af Guðríði Þorbjarnardóttur sem hvarf af stöpli á Laugarbrekku á sunnanverðu Snæfellsnesi í apríl er nú komin í hendur bæjaryfirvalda í Snæfellsbæ. 16.5.2022 19:50
Undarlegt að hafa ekki heyrt frá Degi Oddviti Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavík telur mikilvægt að félagshyggjustjórn taki við í borginni og að undarlegt sé að borgarstjóri hafi ekki hringt í sig. 16.5.2022 19:24