Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjögurra bíla árekstur við Leifsstöð Árekstur varð við Leifsstöð nú á fjórða tímanum. Fjórir bílar eru nokkuð skemmdir, lítil rúta og þrír fólksbílar. 1.6.2022 15:34
Borgin sýknuð í þriðja sinn í innviðagjaldsmálinu Reykjavíkurborg var í dag sýknuð af kröfum verktakafyrirtækisins Sérverk ehf. í Hæstarétti. Fyrirtækið krafði borgina um endurgreiðslu á rúmlega 120 milljónum króna sem þeir höfðu greitt í tengslum við uppbyggingu í Vogabyggð. 1.6.2022 15:24
Mikil fjölgun á nýskráningum erlendra ríkisborgara Alls fæddust 1.105 börn á Íslandi á fyrsta ársfjórðungi ársins. 109 íslensk börn fæddust erlendis og eru nýskráðir erlendir ríkisborgarar 2.567 talsins. 1.6.2022 14:49
Langar biðraðir á flugvöllum um alla Evrópu Ferðasumarið er hafið og langar biðraðir hafa myndast á flugvöllum um alla Evrópu. Kerfisbilanir og skortur á starfsfólki spila inn í það, ásamt mikilli aukningu á ferðamönnum eftir tvö sumur í röð með heimsfaraldri. 1.6.2022 14:10
Diljá segir hatur og mannfyrirlitningu vella upp úr séra Davíð Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, 4. varaforseti Alþingis, vandar séra Davíð Þór Jónssyni sóknarpresti í Laugarneskirkju ekki kveðjurnar í pistli sem birtist í Fréttablaðinu. 1.6.2022 13:45
Eldur í malarhörpu austur af Grindavík Eldur kom upp í malarhörpu í malarnámu austur af Grindavík skömmu eftir klukkan 13 í dag. 1.6.2022 13:42
Árásarmaður í Grafarholti þarf að afplána níu hundruð daga af fyrri dómi Maðurinn sem grunaður er um tilraun til manndráps í tengslum við skotárás á bílastæði í Grafarholti í Reykjavík í febrúar síðastliðnum þarf að afplána 900 daga eftirstöðvar af fimm ára fangelsisdómi sem hann hlaut árið 2018. 1.6.2022 13:35
Mikilvægt að missa ekki fólkið: „Ef við höfum ekkert starfsfólk þá er enginn spítali“ Forstöðumaður bráðaþjónustu Landspítala segist kvíða því að fleiri starfsmenn muni fá nóg og segja upp störfum sökum álags, þar sem spítalinn er ekkert án þeirra. Verið sé að gera allt til að bregðast við stöðunni en ljóst er að miklar áskoranir séu fram undan. 1.6.2022 13:01
Minnir á að fasteignagjöld íbúðarhúsnæða eru lægst í Reykjavík Dagur B. Eggertsson, starfandi borgarstjóri, segir að fasteignagjöld íbúðarhúsnæða í Reykjavík séu þau lægstu á Íslandi. Álagning skatta verður ekki ákveðin fyrr en í haust við gerð fjárhagsáætlunar og því ekki ákveðin við myndun meirihluta í borginni. 1.6.2022 12:19
„Við megum ekki nota tungumálið til að mismuna fólki“ Prófessor emeritus í íslensku fagnar því að til standi að breyta orðalagi bóklegra ökuprófa en það hefur verið gagnrýnt harðlega undanfarið, meðal annars af ökukennurum sem segja vísvitandi villt um fyrir próftökum með flóknu orðalagi og gamaldags setningagerð. 1.6.2022 12:17
Olli skemmdum á lögreglubíl eftir berserksgang Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann sem hafði gengið berserksgang við hótel í miðborg Reykjavíkur og veist að fólki og farartækjum. 1.6.2022 12:10
Hólmfríður skipuð í embætti skrifstofustjóra húsnæðis- og skipulagsmála Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur skipað Hólmfríði Bjarnadóttur í embætti skrifstofustjóra húsnæðis- og skipulagsmála hjá innviðaráðuneytinu. 1.6.2022 12:06
Umbi slær á putta stjórnar Miðstöðvar íslenskra bókmennta Nýtt álit umboðsmanns Alþingis hlýtur að setja styrkveitingar á Íslandi í uppnám. Í álitinu kemur fram að gögn skorti sem skýri hvers vegna þessi fær styrk og annar ekki. 1.6.2022 11:57
Ekki eðlilegt að nýr sólpallur hækki skatt á nágrannann Sveitarstjóri Ölfuss segir fasteignagjöld ósanngjarnan skatt í eðli sínu og telur að skoða þurfi tekjumódel sveitarfélaga. Lækka þurfi skatta á heimilin í landinu. 1.6.2022 11:43
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um fasteignagjöldin sem hækka verulega á næsta ári. 1.6.2022 11:39
Danir greiða atkvæði um þátttöku í evrópsku varnarsamstarfi Danir greiða í dag atkvæði um það hvort að ríkið eigi að taka fullan þátt í varnarsamstarfi Evrópusambandsríkja. Ellefu af fjórtán flokkum á danska þinginu eru fylgjandi því að Danmörk hefji þátttöku í samstarfinu af fullum þunga. Sömuleiðis benda skoðanakannanir til þess að almenningur sé nú fylgjandi þátttöku, en talið er að kjörsókn muni ráða miklu um niðurstöðuna. 1.6.2022 11:19
Guðni heimsækir íbúa í Skaftárhreppi Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, mun fara í opinbera heimsókn í Skaftárhrepp á morgun. Þar mun hann eiga fund með nýkjörinni sveitarstjórn og svo sækja með henni málstofu um sóknarfæri Skaftárhrepps sem haldin verður í Kirkjubæjarstofu – þekkingarsetri. 1.6.2022 10:49
Kaupandinn gat ekki staðið við tilboð sitt Ríkiskaup hafa fallið frá sölu á varðskipunum Tý og Ægi. Búið var að ganga frá sölunni en samkvæmt lögfræðingi hjá Ríkiskaupum gat kaupandinn ekki staðið við tilboð sitt. 1.6.2022 10:48
Vinabæirnir fylgjast að Málefnasamningar þeirra flokka sem munu mynda meirihluta í bæjarstjórnum vinabæjanna Hafnarfjarðar og Akureyrar verða undirritaðir í dag. 1.6.2022 10:35
Ógiltu ákvörðun ESA sem gaf grænt ljós á ríkisaðstoð til Farice EFTA-dómstólinn hefur fellt úr gildi ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að aðstoð til Farice ehf. vegna fjárfestingar í sæstreng frá Íslandi til Evrópu fæli í sér ríkisaðstoð sem samræmdist framkvæmd EES-samningsins. 1.6.2022 10:33
Stærsta planta í heimi á við 20.000 fótboltavelli Vísindamenn frá Ástralíu uppgötvuðu að sjávargrös sem þekja um tvö hundruð ferkílómetra svæði séu í raun ein og sama plantan. Þeir telja að hún hafi vaxið af einu fræi á að minnsta kosti fjögur þúsund og fimm hundruð árum. 1.6.2022 10:27
Tveir einstaklingar höfða mál gegn Derek Chauvin Tveir svartir einstaklingar hafa höfðað mál gegn Derek Chauvin, lögregluþjóninum fyrrverandi sem myrti George Floyd í Minneapolis í maí árið 2020, og Minneapolis-borg. Chauvin er gefið að sök að hafa kropið á hálsi þeirra, líkt og hann gerði við Floyd, þegar hann var lögregluþjónn í borginni. 1.6.2022 09:52
Cosby svarar enn fyrir ásakanir um kynferðisofbeldi Málflutningur í einkamáli konu gegn Bill Cosby hefst fyrir dómstóli í Kaliforníu í dag. Konan sakar Cosby um að hafa neytt sig til kynferðislegra athafna á Playboy-setrinu þegar hún var sextán ára gömul árið 1975. 1.6.2022 08:40
Nokkuð um hávaðaútköll hjá lögreglu í nótt Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var nokkrum sinnum kölluð út vegna hávaða í nótt. 1.6.2022 07:43
Vaktin: Segja Úkraínumenn hafa lofað að skjóta ekki á skotmörk í Rússlandi Bandaríkjamenn munu verða við óskum Úkraínumanna og senda þeim háþróuð og langdræg eldflaugakerfi en aðeins eldflaugar með miðlungs drægi. Joe Biden Bandaríkjaforseti segist vilja styðja við Úkraínu án þess að stigmagna átökin. 1.6.2022 07:30
Víða vætusamt og svalt veður Veðurstofan reiknar með suðlægum áttum í dag þar sem víða verður vætusamt og fremur svalt veður. Þó verður úrkomulítið og heldur hlýrra norðaustanlands. 1.6.2022 07:27
Létta á takmörkunum vegna kórónuveirunnar í Sjanghæ Yfirvöld í kínversku stórborginni Sjanghæ hafa létt á reglum vegna kórónuveirunnar eftir að íbúar milljónaborgarinnar hafa þurft að halda sig heima um tveggja mánaða skeið. 1.6.2022 07:21
Hyggjast mörg hver lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ætla mörg hver að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta til að bregðast við hækkun fasteignamatsins sem kynnt var í gær en gjöldin hafa aldrei áður hækkað jafn mikið í einu skrefi frá bankahruninu 2008. 1.6.2022 07:15
Bandaríkin sjá Úkraínu fyrir háþróuðum eldflaugakerfum New York Times birti í gær grein eftir Joe Biden Bandaríkjaforseta þar sem hann útlistar hvað Bandaríkjamenn muni og hvað þeir muni ekki gera í Úkraínu. Markmiðið sé skýrt; að tryggja lýðræðislega, fullvalda og stönduga Úkraínu. 1.6.2022 06:56