Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Anton Máni kjörinn formaður SÍK Anton Máni Svansson frá Join Motion Pictures var í gær kjörinn formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SÍK, á aðalfundi félagsins. Hilmar Sigurðsson frá Sagafilm var kjörinn gjaldkeri og Inga Lind Karlsdóttir frá Skot Produtions meðstjórnandi. 3.6.2022 18:27
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forsætisráðherra þvertekur fyrir að ófriður sé á stjórnarheimilinu þrátt fyrir ágreining tveggja ráðherra sinna. Formaður Framsóknarflokksins stendur með sínum ráðherra en vill ekki að rifist sé í gegn um fjölmiðla. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 3.6.2022 18:01
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skerðir þjónustu í sumar vegna manneklu Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mun í sumar skerða ýmsa þjónustu vegna manneklu og sumarleyfa. Fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni að öllum bráðaerindum verði sinnt en öðrum erindum kunni að vera forgangsraðað í þágu öryggis skjólstæðinga stofnunarinnar. 3.6.2022 17:43
Jordan Peterson á leið til landsins og treður upp í Háskólabíó Samningar hafa tekist við Jordan Peterson, hinn umdeilda kanadíska sálfræðing og verður hann með fyrirlestur í Háskólabíó 25. júní næstkomandi. 3.6.2022 17:21
Fjóla er nýr bæjarstjóri í Árborg Fjóla Kristinsdóttir er nýr bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar en hún verður fyrstu tvö ár kjörtímabilsins bæjarstjóri, eða þegar Bragi Bjarnason tekur við og klárar kjörtímabilið. Bragi var í fyrsta sæti á D-listanum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí og Fjóla í öðru sæti. Bragi verður formaður bæjarráðs fyrstu tvö árin og svo tekur Fjóla við tvö síðustu árin. 3.6.2022 16:45
Fævý, Adele og Hlýja en enginn Senjor Fævý, Stinne, Hlýja og Adele eru meðal þeirra eiginnafna sem samþykkt voru á seinasta fundi mannanafnanefndar og færð á mannanafnaskrá. Nöfnin Ísjak og Senjor hlutu þó ekki náð fyrir augum nefndarinnar. 3.6.2022 16:31
Samtök iðnaðarins kæra auglýsingar Nova Samtök iðnaðarins (SI) hafa kært auglýsingastofuna Brandenburg til siðanefndar Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA) vegna auglýsinga Nova þar sem uppspunnið Stéttarfélag innbrotsþjófa kemur við sögu. Telja SI að auglýsingastofan hafi með þeim brotið fjölmargar siðareglur SÍA. 3.6.2022 15:45
Viðskiptavinir Íslandsbanka njóta hækkunar ekki fyrr en á næsta ári Íslandsbanki mun ekki líta til hækkunar fasteignamats fyrr en nýtt mat tekur opinberlega gildi um áramótin. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir hafa þegar byrjað að taka mið af nýju og hækkuðu fasteignamati. 3.6.2022 15:15
„Ópíumvampírur“ ferðast til Spánar í leit að auðveldri vímu Ferðamenn koma víðsvegar að úr Evrópu að árbökkum Tagus-ár á Íberíuskaga til að stelast í morfínríkan safa ópíumvalmúans. Afurðir plöntunnar eru notaðar til framleiðslu sterkra verkjalyfja en ferðamennirnir verka þær ólöglega í vímuskyni og hafa fyrir vikið hlotið heitið „ópíumvampírur“. Þessi hættulegi túrismi er liður í mikillu aukningu á neyslu ópíums og ópíum-afleiddra efna í heiminum. 3.6.2022 15:00
Handtaka höfuðpaur í einu stærsta skattsvikamáli Danmerkur Breskur auðkýfingur sem er talinn um að vera höfuðpaurinn í einu stærstu skattsvikamáli í sögu Danmerkur var handtekinn í Dúbaí í dag. Hann og aðrir eru sakaðir um að hafa svikið hátt í þrettán milljarða danskra króna út úr ríkissjóði. 3.6.2022 14:55
Kæru Miðflokksins vegna meints ágalla á kjörseðlum hafnað Úrskurðarnefnd kosningamála hafnaði kröfu Miðflokksins í Garðabæ um ógildingu sveitarstjórnarkosninganna þar vegna ágalla sem flokkurinn taldi á kjörseðlum. Frágangur kjörseðla hafi verið innan svigrúms sem yfirkjörstjórnir hafa um útlit þeirra. 3.6.2022 14:27
Kópavogsbær sýknaður af 75 milljarða króna kröfu Kópavogsbær var í dag sýknaður af öllum kröfum erfingja Sigurðar Hjaltested, eigenda Vatnsendajarðarinnar, í Landsrétti en þeir kröfðust 75 milljarða króna úr hendi bæjarins. 3.6.2022 14:05
Hrafn gæðir sér á þresti fyrir framan Seðlabankann Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri náði einstöku myndskeiði þar sem hrafn nokkur er að háma í sig þröst fyrir utan Seðlabankann. 3.6.2022 13:59
Gagnrýnir ákvörðun flokkssystur um „enn eina nefndina“ Varaþingkona VG gagnrýnir sjávarútvegsráðherra og flokkssystur fyrir að setja á laggirnar enn eina nefndina um endurskoðun kvótakerfisins. Það sé brýnt að taka til hendinni strax og byggja á þeim gögnum sem nú þegar liggja fyrir. 3.6.2022 13:52
Stary Herfjólfur otrzymał nowe życie na Wyspach Owczych Prom Herjólfur, który służył jako statek pasażerski dotarł na Wyspy Owcze gdzie będzie służył głównie jako statek towarowy. 3.6.2022 13:51
Þrír látnir eftir að lest fór út af sporinu í Þýskalandi Að minnsta kosti þrír eru látnir og sextán alvarlega slasaðir eftir að lest fór út af sporinu í suðurhluta Þýskalands. 3.6.2022 13:36
Tyrkir breyta alþjóðlegu nafni lands síns Yfirvöld í Tyrklandi hafa sent Sameinuðu Þjóðunum beiðni þess efnis að til Tyrklands skuli framvegis vísað sem Türkiye, að því er fram kemur í ríkisfjölmiðlum í Tyrklandi. 3.6.2022 13:33
Þingmaður sýndi vopnabúrið á fundi um skotvopnalöggjöf Greg Steube, fulltrúadeildarþingmaður Repúblikana í Bandaríkjunum, sýndi vopnabúr sitt er hann þótt þátt í nefndarstörfum dómsmálanefndar fulltrúadeildarinnar í gær, þar sem frumvarp um hert aðgengi að skotvopnum og tengdum vörum var til umræðu. 3.6.2022 13:30
Hlær að kenningum um að hann sé að refsa Lilju Fjármála- og efnahagsráðherra þvertekur fyrir að hann sé að refsa Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, fyrir gagnrýni sína á Íslandsbankamálið. Hann segir málið vera storm í vatnsglasi. 3.6.2022 13:20
ESB-ríki náðu losunarmarkmiði fyrir 2020 leikandi létt Losun Evrópusambandsríkja á gróðurhúsalofttegundum dróst saman um 34% árið 2020 miðað við árið 1990, mun meira en yfirlýst markmið þeirra um fimmtungssamdrátt á tímabilinu. Umhverfissamtök segja árangurinn aðeins sýna að markið hafi verið sett af lágt til að byrja með. 3.6.2022 12:25
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður stríðið í Úkraínu til umfjöllunar en í dag eru liðnir hundrað dagar síðan Rússar réðust inn í landið. 3.6.2022 11:34
Gamli Herjólfur kominn með framhaldslíf í Færeyjum Gamli Herjólfur, eða Herjólfur III er kominn til Færeyjar, þar sem ferjan verður aðallega nýtt sem vöruflutningaskip. 3.6.2022 11:27
Steingrímur J. leiðir „spretthóp“ Svandísar Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ákveðið að skipa þriggja manna „spretthóp“ sem skila skal ráðherra tillögum og valkostagreiningu vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi. Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi þingmaður, mun leiða vinnu hópsins. 3.6.2022 11:16
Að minnsta kosti bið fram á haust eftir forgangsröðun jarðganga Það ætti að koma í ljós á næsta löggjafarþingi hvaða jarðgangakostum verður forgangsraðað. Þá mun þingið taka fyrir þingsályktunartillögu um nýja samgönguáætlun fyrir árin 2023-2037 þar sem jarðgangakostum verður forgangsraðað 3.6.2022 11:10
Fær bætur fyrir að hafa verið skikkuð í sóttvarnarhús Kona sem skikkuð var í sóttkví í sóttvarnarhúsi við komuna til landsins á rétt á sextíu þúsund króna miskabótum vegna þess. Konan hafði ætlað sér að fara í sóttkví á heimili sínu við komuna til landsins. 3.6.2022 09:24
Segja að lögreglustjórinn hafi ekki verið látinn vita af örvæntingarfullum símtölum nemendanna Lögreglustjórinn sem stýrði aðgerðum þegar byssumaður skaut nítján börn og tvo kennara til bana í Texas var ekki látinn vita af því að börn sem væru föst inni í skólastofu með honum hefðu hringt í neyðarlínu. Viðbrögð lögreglu hafa sætt harðri gagnrýni. 3.6.2022 09:15
Hryðjuverkamaðurinn í Buffalo lýsir yfir sakleysi Átján ára karlmaður sem skaut tíu blökkumenn til bana í stórmarkaði í Buffalo í síðasta mánuði lýsti yfir sakleysi sínu þegar ákæra á hendur honum fyrir haturshryðjuverk var tekin fyrir. Saksóknarinn lýsir sönnunargögnunum gegn honum sem yfirgnæfandi. 3.6.2022 08:41
Kallaði eftir banni gegn árásarskotvopnum Joe Biden Bandaríkjaforseti kallaði í gær eftir banni gegn árásarskotvopnum eftir röð skotárása í Bandaríkjunum. Forsetinn ávarpaði þjóðina og spurði meðal annars að því hversu mikið blóðbað Bandaríkjamenn væru reiðubúnir til að sætta sig við. 3.6.2022 07:55
Vaktin: „Við höfum varið Úkraínu í 100 daga. Við munum vinna sigur,“ segir Selenskí á 100. degi stríðsins Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti birti í morgun myndskeið sem er tekið á nákvæmlega sama stað og annað myndskeið var tekið fyrir 99 dögum, degi eftir að innrás Rússa hófst. Þá lét forsetinn þau fleygu orð falla að hann þyrfti ekki brottflutning frá Kænugarði, heldur vopn. Í myndskeiðinu frá því í dag sagði forsetinn „Við höfum varið Úkraínu í 100 daga. Við munum vinna sigur. Dýrð sé Úkraínu!“. 3.6.2022 07:37
Snjór og varasöm hálka á Öxnadalsheiði í nótt Nú er regnsvæði á leið yfir landið frá vestri til austurs og því rignir um tíma í dag í flestum landshlutum. Í kvöld kemur kalt loft úr vestri og fer hratt yfir. Á Öxnadalsheiði og eflaust víðar á fjallvegum norðanlands gerir seint í kvöld og nótt snjó eða krapa með varasamri hálku. 3.6.2022 07:30
Maður með hamar réðst á konu í Kópavogi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út upp úr miðnætti þegar tilkynnt var um að maður með hamar í hönd var sagður hafa ráðist að konu og kastað hamrinum í bíl hennar í Kópavogi. 3.6.2022 07:25
Nýr Land Rover Defender 130 kynntur Land Rover í Bretlandi kynnti á dögunum nýjan Defender, 130, sem er fjórða og nýjasta útgáfa bílsins á eftir Defender 90, Defender 110 og Defender Hard Top sem kynntir hafa verið frá því í júní 2020. Nýi Defender 130 er 34 sentimetrum lengri að aftan en Defender 110. Bíllinn verður frumsýndur hjá BL í haust. 3.6.2022 07:00
Leitaði uppi lækni vegna bakverkja og skaut hann Maður sem skaut skurðlækni sinn og þrjá aðra til bana í Tulsa í Bandaríkjunum í gærkvöldi, kenndi lækninum um sársauka sem hann fann fyrir eftir aðgerð á baki. Maðurinn keypti sér hálfsjálfvirkan riffil af gerðinni AR-15 nokkrum klukkustundum fyrir ódæðið. 2.6.2022 23:31
Andrés missir af hátíðarhöldunum vegna kórónuveirunnar Andrés prins mun missa af hátíðarhöldunum í tilefni af sjötíu ára valdaafmæli móður sinnar, Elísabetar Bretlandsdrottningar, þar sem hann hefur greinst með Covid-19. 2.6.2022 23:21
Betra fyrir andlega heilsu að borða nóg en að borða hollt Næringarfræðingur segir nýja rannsókn, sem Heilbrigðisvísindastofnun HÍ hefur tekið þátt í, benda til þess að heilbrigt mataræði geti hjálpað til við að draga úr þunglyndiseinkennum og þannig stuðlað að bættri geðheilsu. Meira máli skiptir þó að fólk borði nóg en að það borði hollt. 2.6.2022 23:02
Segir lykkjumálið á Grænlandi glæpsamlegt Ritari grænlensks stjórnmálaflokks segir reiði og sorg hafa gripið um sig í samfélaginu eftir að í ljós kom að dönsk stjórnvöld hefðu komið lykkjunni fyrir í þúsundum ungra kvenna í landinu. Íslenskur læknir segir málið glæpsamlegt. 2.6.2022 22:00
Fylgi VG ekki verið minna síðan 2013 Fylgi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur ekki verið minna síðan fyrir alþingiskosningarnar árið 2013. Ný könnun Þjóðarpúls Gallup sýnir að stuðningur við ríkisstjórnina heldur áfram að minnka. 2.6.2022 21:46
Fjölmiðlanefnd úrskurðar Mannlífi í vil í deilu við Róbert Wessman Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sólartúni ehf., fjölmiðlaveitu Mannlífs, hafi verið heimilt að synja beiðni Róberts Wessman um andsvör vegna umfjöllunar á vef Mannlífs í maí á þessu ári. 2.6.2022 20:59
Avenatti aftur dæmdur í fangelsi fyrir svik Michael Avenatti, sem hlaut frægð vestanhafs og víðar þegar hann var lögmaður klámleikkonunnar Stormy Daniels í máli hennar gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi. Hann sat þegar í fangelsi fyrir fjárkúgun gegn stórfyrirtækinu Nike. 2.6.2022 20:43
Elísabet mætir ekki í valdaafmælismessu á morgun vegna slappleika Elísabet Bretlandsdrottning mun ekki mæta til þakkargjörðarathafnar í dómkirkju St. Paul í Lundúnum á morgun, í tilefni sjötíu ára valdaafmælis hennar, vegna slappleika, sem hún fannn fyrir við hátíðarhöldin í dag. 2.6.2022 20:26
Almar Guðmundsson nýr bæjarstjóri Garðabæjar Almar Guðmundsson hefur verið ráðinn nýr bæjarstjóri Garðabæjar. Hann tekur við starfinu af Gunnari Einarssyni sem lætur af störfum eftir sautján ár sem bæjarstjóri. 2.6.2022 20:07
Alvarlegir gallar á rússneska hernum Rússneski herinn er ekki uppbyggður fyrir þau verkefni sem hann átti að leysa af hólmi í Úkraínu. Frá upphafi stríðsins hefur herinn átt í basli og frammistaða hans verið langt undir væntingunum, ef svo má að orði komast. 2.6.2022 19:32
Tugir þúsunda fögnuðu drottningu allra drottninga Hún á tvo afmælisdaga, fæðingardaginn og opinberan afmælisdag og hefur setið lengur en nokkur annar í hásæti Bretlands. Elísabet II Bretlandsdrottning er elskuð og dáð í heimalandinu og víða um heim og í dag var því fagnað með miklum hátíðarhöldum að sjötíu ár eru liðin frá því hún varð drottning. 2.6.2022 19:31
Ellefu nýjar verslanir og veitingastaðir opnaðir eftir nokkrar vikur Her iðnaðarmanna leggur þessa dagana lokahönd á nýtt torg í miðborginni. Þar taka ellefu nýir veitingastaðir og verslanir til starfa eftir um fimm vikur. 2.6.2022 19:21
Erna Kristín tekur við sem ráðuneytisstjóri mennta- og barnamálaráðuneytis Erna Kristín Blöndal, skrifstofustjóri, hefur verið skipuð í embætti ráðuneytisstjóra mennta- og barnamálaráðuneytisins og tók við starfinu í dag. Hún tekur við af Páli Magnússyni, sem fer til starfa hjá fastanefnd Íslands í Genf og mun þar vinna á sviði málefna barna. 2.6.2022 18:44