Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hvasst við suðvesturströndina og hlýjast norðaustanlands Veðurstofa Íslands spáir suðaustanátt, fimm til fimmtán metrum á sekúndu, en hvassast verður við suðvesturströndina. 9.7.2022 09:01
Gisting úti á Fjallsárlóni Á Fjallsárlóni er nú hægt að bóka ævintýraferð sem inniheldur siglingu um lónið og eftir hana er dvalið í húsbát á lóninu. Eigandi húsbátanna segir fólk ekki þurfa að hafa áhyggjur af kulda. 9.7.2022 08:29
Mikill stuðningur við færslu hringvegar út úr Borgarnesi Verulegur stuðningur er við þá tillögu að hringvegurinn um Borgarnes verður færður út á vegfyllingu utan við byggðina, samkvæmt könnun sem Samgöngufélagið lét gera. Þá er allnokkur stuðningur við að hringvegurinn milli Akraness og Borgarness liggi í framtíðinni yfir mynni Grunnafjarðar norðan Akrafjalls. 9.7.2022 08:25
Hátt í þúsund verkefni í sumar Hálendisvakt Landsbjargar sinnir hátt í þúsund verkefnum í sumar. Vaktin sinnti um þrjátíu verkefnum síðasta fimmtudag en að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar vanmeta Íslendingar og ferðamenn veðrið hér á landi. 9.7.2022 08:09
Íhaldsöfl við völd í Hæstarétti Bandaríkjanna Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur á síðustu vikum tekið afdrifaríkar ákvarðanir sem snerta bæði umhverfisstefnu landsins og mannréttindi. Lektor við lagadeild Háskóla Íslands segist eiga von á því að rétturinn haldi áfram á braut íhaldssemi og segir gjánna milli íhaldssamra og frjálslyndra dómara réttarins aldrei hafa verið meiri. 9.7.2022 07:20
Neitaði að fara út af veitingastað Klukkan rúmlega níu í gærkvöldi barst lögreglunni tilkynning um ölvaðan mann sem neitaði að fara út af veitingastað í Hafnarfirði. Þegar komið var á staðinn gat lögregla rætt við manninn og hann fór að lokum. 9.7.2022 07:08
Kia EV6 valinn bíll ársins Bandalag íslenskra bílablaðamanna, BÍBB hefur valið Kia EV6 sem bíl ársins. Fyrir nafnbótina hlýtur bíllinn stálstýrið. Bíllinn var frumsýndur í nóvember á síðasta ári, síðan þá hefur hann einnig verið valinn bíll ársins í Evrópu. 9.7.2022 07:01
Senda fleiri HIMARS og nákvæmari skot til Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að senda fleiri vopnakerfi og nákvæm skotfæri til Úkraínu. Bæði er um að ræða eldflaugakerfi af gerðinni HIMARS, sem gera Úkraínumönnum kleift að gera nákvæmar árásir á skotmörk í allt að hundrað kílómetra fjarlægð, og 155 mm skot í fallbyssur sem hægt er að skjóta af mun meiri nákvæmni en hefðbundnum stórskotaliðsskotum. 8.7.2022 23:15
Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti. 8.7.2022 22:33
Losa sig við Covid-ketti Kattholt er nærri fullt af heimilislausum köttum og hefur þeim fjölgað þar mikið að undanförnu. Rekstrarstjórinn segir kettina dvelja lengur en áður og eftirspurnina minni. 8.7.2022 21:00
Segja ólíklegt að ríkisstjórnin geti leitt nauðsynlega orkuöflun Forsvarsmenn Viðreisnar segja ólíklegt að núverandi ríkisstjórn geti haft forystu um þá orkuöflun sem þörf er talin á til að ná fullum orkuskiptum fyrir 2040. Umhverfis, orku og loftslagsráðherra þurfi að gera nánari grein fyrir orkuöflunaráformum. 8.7.2022 20:14
Telur morðið geta haft áhrif á úrslit kosninga Japanska þjóðin er slegin eftir að Shinzo Abe fyrrverandi forsætisráðherra landsins var myrtur á útifundi í dag. Toshiki Toma prestur innflytjenda segir skotárásir sjaldgæfar í Japan og telur morðið geta haft áhrif á úrslit þingkosninga í landinu á sunnudag. 8.7.2022 20:01
Umdeildar framkvæmdir við Vatnsstíg: „Ég hef mikla samúð með fólki sem býr hérna“ Atvinnurekandi við Hverfisgötu segir óbærilegt hvernig staðið hefur verið að framkvæmdum á reit við Vatnsstíg. Byggingarstjóri hefur fulla samúð með íbúum og harmar seinkun framkvæmdanna en hún eigi sér eðlilegar skýringar. 8.7.2022 19:20
Rússar halda áfram að kenna öðrum um innrásina Á sama tíma og Rússar leggja undir sig gífurlegar olíu- og gasauðlindir Úkraínu á Donbas svæðinu sem gætu farið langt með að svara orkuþörf Evrópu, halda þeir áfram að kenna Bandaríkjunum og NATO um þeirra eigin innrás í landið. 8.7.2022 19:17
Hvalfjarðargöngin opnuð aftur eftir slys Hvalfjarðargöngunum var lokað á sjönda tímanum í dag vegna slyss sem varð þar. Göngin voru þó opnuð aftur upp úr klukkan sjö. 8.7.2022 18:46
„Pútín mun ekki gráta það að hann sé farinn“ Rishi Sunak fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands lýsti því yfir í dag að hann sæktist eftir að verða næsti leiðtogi Íhaldsflokksins og þar með forsætisráðherra. Guðlaugur Þór Þórðarson, sem þekkir vel til innan Íhaldsflokksins, telur líklegt að annað hvort Sunak eða Liz Truss utanríkisráðherra hafi sigur í leiðtogakjöri. 8.7.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Japanska þjóðin er í áfalli eftir að Shinzo Abe fyrrverandi forsætisráðherra landsins var myrtur á kosningafund í dag. Toshiki Toma prestur innflytjenda segir skotárásir sjaldgæfar í Japan og telur morðið geta haft áhrif á úrslit þingkosninga í landinu á sunnudag. 8.7.2022 18:00
Rússar segjast einungis hafa notað lítinn hluta hernaðarmáttar síns Rússland hefur einungis notað lítinn hluta mögulegs hernaðarmáttar síns í innrás sinni í Úkraínu, að sögn yfirvalda í Kreml. 8.7.2022 17:17
Mörgæsir og otrar í Japan ekki sátt við ódýari fisk Ódýrari tegund af Makríl hefur verið keypt í fóður til mörgæsa og otra á Hakone-en sædýrasafninu í Japan vegna verðbólgu. Dýrin eru ekki sátt við þennan ódýrari kost. 8.7.2022 17:06
Grunaður um að hafa ógnað öðrum með eggvopni Maður var handtekinn í Múlahverfi og er grunaður um að hafa ógnað öðrum með eggvopni, hann var vistaður í fangageymslu lögreglu en látinn laus að lokinni skýrslutöku. 8.7.2022 16:52
Bílastæðið muni fyllast í júlí Líkur eru á því að bílastæðið við Keflavíkurflugvöll muni fyllast í júlí. Í tilkynningu frá Isavia eru farþegar hvattir til að bóka bílastæði með góðum fyrirvara og kanna notkun annarra samgöngumáta. 8.7.2022 16:37
Rishi Sunak tilkynnir um framboð sitt með tilfinningaþrungnu myndbandi Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra í ríkisstjórn Borisar Johnson, tilkynnti á fjórða tímanum að hann hygðist bjóða sig fram sem næsti leiðtogi Íhaldsflokksins og forsætisráðherra Bretlands. 8.7.2022 16:33
Tilraun til ráns með leikfangabyssu á Laugavegi Maður var handtekinn rétt eftir klukkan tvö í dag vegna tilraunar til ráns í lyfjaverslun á Laugavegi. Maðurinn var í annarlegu ástandi og notaði leikfangabyssu til að ógna starfsfólki. 8.7.2022 15:46
Hótaði að myrða mann með smjörhníf Karlmaður á þrítugsaldri var á dögunum dæmdur til sextán mánaða fangelsisvistar fyrir margvísleg brot, þar á meðal líflátshótun með því að hafa hótað að myrða mann með smjörhníf í gistiskýli í Reykjavík. 8.7.2022 15:27
Kalla inn starfsmenn úr sumarleyfum Mikið álag hefur verið á Sjúkrahúsinu á Akureyri seinustu vikur og er mannekla þar á bæ mikil þar sem ekki náðist að manna allar stöður sumarafleysinga. Búið er að kalla einhverja starfsmenn inn úr sumarleyfum vegna ástandsins. 8.7.2022 15:17
Játar að hafa myrt Abe Tetsuya Yamagami hefur játað að hafa myrt Shinzo Abe, fyrrum forsætisráðherra Japan. Yamagami skaut Abe með haglabyssu í nótt þegar hann var að flytja stuðningsræðu fyrir frambjóðanda í borginni Nara. 8.7.2022 14:55
Ætla að mæta með leikskólalaus börn á fundi borgarstjórnar Fögur fyrirheit borgarstjórnar, um að öll börn tólf mánaða og eldri fái leikskólapláss í haust, virðast ekki ætla að ganga eftir. Foreldrar eru langþreyttir á ástandinu og hóta því að mæta með börn sín á áhorfendapalla Ráðhússins á næsta fund borgarstjórnar. 8.7.2022 14:49
Lokun Olís á Skagaströnd: Fólk að missa spil úr stokknum „Þetta er auðvitað sorglegt og hundleiðinlegt. Fólki hérna á Skagaströnd líður svolítið eins og það sé að missa spil úr stokknum.“ 8.7.2022 14:30
Hakkari segir starfsfólk Disney hafa gert grín að getnaðarlim sínum Brotist var inn á Instagram og Facebook reikninga Disneylands í gær, sá sem braust inn á reikningana kallaði sig „ofur hakkara.“ 8.7.2022 14:12
Áttavilltur lundi í Suðurhlíðunum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um áttavilltan lunda á vappi í Suðurhlíðunum. Hann var hinn gæfasti í höndum lögreglu sem kom honum til dýrahirðis í Húsdýragarðinum. 8.7.2022 13:14
Fyrrverandi forseti Angóla til 38 ára látinn José Eduardo dos Santos, fyrrverandi forseti Angóla, er látinn, 79 ára að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi í Barcelona eftir landvinn veikindi. 8.7.2022 13:13
Ellefu sóttu um stöðu sveitarstjóra Skaftárhrepps Ellefu einstaklingar, níu karlar og tvær konur, sóttu um stöðu sveitarstjóra Skaftárhrepps. Meðal þeirra eru tveir fyrrverandi þingmenn, Karl Gauti Hjaltason og Vigdís Hauksdóttir. 8.7.2022 13:08
Tíu ferðamannastaðir verði áhættumetnir Verkefnastjórn um öryggismál stjórnvalda og ferðaþjónustu aðila hefur óskað eftir því Fimmvörðuháls, Laugavegur, Þingvellir, Stuðlagil, Reynisfjara, Sólheimasandur, Sólheimajökull, Hvannadalshnjúkur, Reykjadalur og Djúpalónssandur verði öll áhættumetin fyrir ferðamenn. Einnig þurfi að útbúa viðbragðsáætlanir fyrir svæðin. 8.7.2022 13:01
Reynt að brjótast inn í hraðbanka Arion við Vallakór Reynt var að brjótast inn í hraðbanka Arion banka við Vallakór í Kópavogi í nótt. 8.7.2022 12:42
Skotárásin í Japan: „Það eru allir í sjokki“ Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans, lést af sárum sínum eftir að hann var skotinn í bakið í nótt. Íbúi í Japan segir japönsku þjóðina í áfalli enda skotárásir mjög fátíðar í landinu. 8.7.2022 12:32
Udaremniono próbę przemytu narkotyków Policja we wschodniej Islandii prowadzi obecnie śledztwo w sprawie skonfiskowania znacznej ilości narkotyków, które znaleziono w jednym z samochodów, które przypłynęły na Islandię, promem Norræna. 8.7.2022 12:30
Kona lést í umferðarslysi í Skaftárhreppi Kona lést í umferðarslysinu sem varð á Meðallandsvegi í Skaftárhreppi í nótt. Konan var farþegi í bílnum, en tveir aðrir farþegar voru fluttir mikið slasaðir á sjúkrahús með þyrlu. Ökumaður bílsins slapp ómeiddur. 8.7.2022 12:05
Rigningasuddi og grámygla sunnan-og vestantil um helgina Lægð úr suðvestri mun valda usla um helgina einkum sunnan og vestantil. Veðurfræðingur segist varla sjá nokkra vonarglætu í veðrinu á Suðurlandi um helgina, þar verði rigningasuddi. Framkvæmdastjóri Kótelettunnar eygir enn von um sólargeisla. 8.7.2022 12:00
Annar hver fangi með ADHD Rannsóknir nýs geðheilbrigðisteymis fangelsa landsins benda til þess að um helmingur fanga sé með taugaþroskaröskunina ADHD. 8.7.2022 11:58
Poważny wypadek koło Kirkjubæjarklaustur Wczoraj w nocy doszło do wypadku samochodowego, w wyniku którego ciężko ranne zostały dwie osoby. 8.7.2022 11:52
Pożar w kamperze nad jeziorem Hvaleyrarvatn Minionej nocy, straż pożarna z okręgu stołecznego została wezwana do pożaru, który wybuchł w kamperze niedaleko jeziora Hvaleyrarvatn w Hafnarfjörður. 8.7.2022 11:44
Fundu mögulegar sprengjur heima hjá banamanni Abe Mögulegt sprengjuefni fannst við leit lögreglunnar í íbúð hins 41 árs gamla Tetsuya Yamagami sem skaut Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans, til bana í nótt. Abe var fluttur á sjúkrahús í kjölfar árásarinnar en lést af sárum sínum nokkrum tímum síðar. 8.7.2022 11:42
Nýr leiðtogi Íhaldsflokksins í fyrsta lagi kjörinn eftir sex vikur Nýr leiðtogi breska Íhaldsflokksins verður í fyrsta lagi kjörinn eftir sex til sjö vikur en kjörið gæti dregist fram á haustið. Ben Wallace varnarmálaráðherra þykir líklegasti arftaki Borisar Johnson en fleiri þykja þó sigurstranglegir. Wallace segir Úkraínu ekki þurfa að óttast að Bretar láti af stuðningi sínum. 8.7.2022 11:42
Sóttu áttatíu manns á Laugaveginn Ferðaskrifstofan South Coast Adventure sótti um áttatíu manns frá Emstrum, þriðja áfanga gönguleiðarinnar um Laugaveginn, í gær. Veðrið var slæmt og höfðu tveir ofkælst, þar af annar þeirra verulega. 8.7.2022 11:29
Leggur til að einkaþotur hætti að fljúga um Reykjavíkurflugvöll Borgarfulltrúi Vinstri grænna vill að einkaþotur hætti að fljúga um Reykjavíkurflugvöll og lagði fram tillögu þess efnis í borgarráði í gær. Hún telur að tillagan fái ágætan hljómgrunn innan borgarstjórnar og er einnig bjartsýn á afstöðu samgönguyfirvalda. 8.7.2022 11:29