Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fauci fetar í fótspor Þórólfs Sóttvarnarlæknir Bandaríkjanna, Anthony Fauci mun láta af störfum í desember á þessu ári. Fauci mun því feta í fótspor kollega síns, Þórólfs Guðnasonar, sem lætur af störfum sem sóttvarnarlæknir hér á landi í byrjun september. Báðir hafa þeir háð hetjulega baráttu við veiruna skæðu. 22.8.2022 16:19
Líðan mannsins eftir atvikum Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skotárásinni á Blönduósi miðar vel. Meðal þess sem verið er að rannsaka er hvernig andlát skotmannsins bar að. 22.8.2022 15:24
Samúðarkveðjur berast víða að til íbúa Blönduóss Samúðarkveðjur hafa borist víða að til íbúa Blönduóss eftir voveiflega atburðinn sem átti sér stað þar í gærmorgun. Nú síðast sendi Guðni Th. Jóhannesson samúðarkveðju til íbúa en einnig hafa borist kveðjur frá Katrínu Jakobsdóttir forsætisáðherra og ýmsum sveitarfélögum. 22.8.2022 15:23
Sanna sannar að hún hafi ekki tekið eiturlyf Niðurstöður úr fíkniefnaprófi sem Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, tók fyrir helgi sýna að hún hafi ekki tekið nein eiturlyf síðustu daga. 22.8.2022 15:09
Ekki gaman að sjá glæný för á heimleiðinni eftir þrotlausa vinnu við lagfæringar Vösk sveit Austurlandsdeildar Ferðaklúbbsins 4x4 hélt á fjöll í gær til að reyna eyða ummerkjum um grófan utanvegaakstur á Kverkfjallaleið, norðan Vatnajökuls. Verkið gekk vel að sögn formanns deildarinnar, en þó var leiðangursmönnum ekki skemmt þegar ný för eftir utanvegaakstur voru sjáanleg á heimleiðinni. 22.8.2022 15:00
Lögreglumenn létu höggin dynja á manni sem þeir héldu niðri Tveir lögreglumenn hafa verið sendir í leyfi eftir að myndband af þeim að kýla og sparka í mann sem þeir héldu niðri fór í dreifingu á samfélagsmiðlum. 22.8.2022 14:29
Ójöfnuður hafi aukist í fyrra Á síðasta ári jókst ójöfnuður í íslensku hagkerfi samkvæmt mánaðaryfirlit ASÍ. Þar kemur fram að stærsta breytingin á tekjum íslenskra heimila í fyrra hafi verið aukning fjármagnstekna en sú aukning hafi nær einungis verið hjá tekjuhæstu tíu prósentum heimilanna. 22.8.2022 14:25
Fuglaflensusmit viðvarandi í villtum fuglum Matvælastofnun (MAST) segir fuglaflensusmit enn vera viðvarandi í villtum fuglum og enn sé hætta á að smit berist yfir í alifugla. Dregið hefur úr tilkynningum um smit síðustu mánuði sem er þó ekki merki um að fuglaflensan sé að hverfa. 22.8.2022 13:48
Móðir Hrafnhildar Lilju fékk símtalið sem hún hafði beðið eftir í fjórtán ár Móðir Hrafnhildar Lilju, sem myrt var á ferðalagi í Dóminíska lýðveldinu fyrir fjórtán árum, segir að yfirlögregluþjónn hafi hringt símtalið sem hún hafi beðið eftir í fjórtán ár. Hún kveðst þakklát fyrir að lögregla hafi hlustað og segir stuðninginn ómetanlegan. 22.8.2022 13:38
Játa á sig mistök við lóðasamþykkt og biðjast afsökunar Verulegur ágreiningur er nú uppi meðal íbúa Þorlákshafnar vegna fyrirætlana sem munu, ef þær ná fram að ganga, gera þorpið að annasömum þungaflutninga- og námubæ. 22.8.2022 13:23
Spada aktywność wulkaniczna w Meradalur Przez weekend aktywność wulkanu w Fagradalsfjall, w dolinie Meradalur znacznie się zmniejszyła. W sobotę z krateru, z którego wypływała lawa wydobywało się tylko trochę gazów i znacznie mniej lawy niż wcześniej. 22.8.2022 13:10
Herskip, Búddastyttur og ýmsar fornminjar komið í ljós vegna þurrka Hitabylgjur og þurrkar um Evrópu og í Kína hafa leitt til þess að vatnsborð í ám og stöðuvötnum hefur lækkað gríðarlega. Við það hafa ýmsar gersemar, sem áður voru á bólakafi, komið í ljós. Þar á meðal forsögulegir spænskir bautasteinar, kínverskar búddastyttur og fornminjar úr seinni heimsstyrjöldinni. 22.8.2022 13:01
Strzelanina w Blönduós. Dwie osoby nie żyją W niedzielę rano w miejscowości Blönduós, doszło do strzelaniny w wyniku, której zmarły dwie osoby, a trzecia odniosła poważne obrażenia. 22.8.2022 13:00
Best að segja börnum sannleikann um harmleikinn en velja orðin vel Fjölmargir þáðu áfallahjálp í Blönduóskirkju vegnar harmleiksins í bænum um helgina að sögn sóknarprestsins. Hann segir samráðshóp um áfallahjálp hittast í dag varðandi frekari viðbrögð. Best sé að segja börnum sannleikann, en velja orð sín vel. 22.8.2022 12:47
Ekki annað hægt en að tárast yfir ákalli um stuðning Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að ekki hafi verið annað hægt en að tárast yfir ákalli forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar í gær, þar sem hann óskaði eftir stuðningi þjóðarinnar eftir skotárás á Blönduósi í gærmorgun. 22.8.2022 12:30
Útilokar friðarviðræður og segir langt stríð framundan Gennady Gatilov, fastafulltrúi Rússlands við Sameinuðu þjóðirnar, segir beinar viðræður milli Vladimir Pútín Rússlandsforseta og Vólódimírs Selenskís Úkraínuforseta ekki koma til greina. 22.8.2022 12:18
Harmar það að þurfa að stefna Köru Connect Embætti landlæknis hefur stefnt Köru Connect til þess að fá úrskurði kærunefndar útboðsmála í máli sem tengist innkaupum embættisins á hugbúnaðarþróun. Embættið segist harma það að þurfa að fara þessa leið. 22.8.2022 12:09
Hrósar unglingum sérstaklega í ferðum sínum um Breiðafjörð Kristján Lár Gunnarsson hefur siglt í mörg ár með ferðamenn um Breiðafjörðinn og finnst það alltaf jafn gaman enda mikill sögumaður og nýtur þess í botn að fræða fólk um ævintýri eyjanna, skoða fuglalífið og njóta náttúrunnar, sem svæðið hefur upp á að bjóða. 22.8.2022 12:06
Hópárás á ungan mann á Menningarnótt Sex manna hópur réðst á ungan mann í miðborginni og lét höggin dynja á höfði hans. Myndband af árásinni er nú í dreifingu á samfélagsmiðlum og má sjá það hér neðar. 22.8.2022 11:35
Konur dansa til stuðnings Sönnu Myllumerkið #SolidarityWithSanna, lauslega þýtt sem samstaða með Sönnu, hefur slegið í gegn á Twitter í kjölfar þess að myndbönd af Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands, dansa láku á netið. Undir myllumerkinu hafa konur byrjað að birta myndbönd af sér að dansa til stuðnings við forsætisráðherrann. 22.8.2022 11:31
Telja sig hafa fundið móður barnanna í ferðatöskunum Lögreglan í Seúl í Suður-Kóreu telur sig hafa fundið móður barnanna sem fundust látin í ferðatöskum í borginni Auckland í Nýja-Sjálandi í síðustu viku. Við krufningu kom í ljós að börnin voru á aldursbilinu fimm til tíu ára. 22.8.2022 10:47
Skotfélagið tilkynnti manninn til lögreglu í nóvember Skotfélagið Markviss á Blönduósi tilkynnti árásarmanninn í manndrápsmáli á Blönduósi í gær til lögreglu í nóvember á síðasta ári. Maðurinn hafði áður keppt fyrir hönd félagsins og gegnt trúnaðarstörfum þar. 22.8.2022 10:23
„Eiginlega alveg öruggt“ að gosinu sé lokið Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, segir að það sé eiginlega alveg öruggt að eldgosinu í Meradölum sé lokið. 22.8.2022 09:23
Krókódíll synti meðfram brú með lík í kjaftinum Gestum Carpintero-lónsins í Mexíkó brá í brún þegar krókódíll synti meðfram og undir göngubrú með lík í kjaftinum. Stranglega bannað er fyrir fólk að synda í lóninu vegna fjölda krókódíla sem búa þar. 22.8.2022 09:01
Rauðpanda kom eins og kraftaverk í heiminn mánuði eftir dauða föðurins Fæðingu rauðpöndu í dýragarði í Bretlandi í síðasta mánuði hefur verið lýst sem kraftaverki. Bæði vegna þess að rauðpöndur eru í útrýmingarhættu og af því að faðir dýrsins lést fyrir mánuði síðan eftir margra ára æxlunarátak dýragarðsins. 22.8.2022 09:00
Svíþjóðardemókratar mælast stærri en Moderaterna Fylgi Svíþjóðardemókrata mælist umtalsvert meira en hægriflokksins Moderaterna í nýrri könnun, nú þegar um þrjár vikur eru til þingkosninga í Svíþjóð. Jafnaðarmannaflokkurinn, undir stjórn forsætisráðherrans Magdalenu Andersson, mælist sem fyrr stærstur. 22.8.2022 08:22
Ætla að þvinga rigningu úr skýjum í von um að bjarga uppskerum Yfirvöld í Kína hyggjast framkalla rigningu með því að sá efnum í ský til að vernda kornuppskeru landsins. Sumarið í ár er það heitasta og þurrasta frá því mælingar hófust í Kína fyrir 61 ári. Vegna þess hafa uppskerur visnað og uppistöðulón eru helmingi vatnsminni en venjulega. 22.8.2022 07:52
Gosið enn í dvala og órói liggur niðri Eldgosið í Fagradalsfjalli er enn í dvala og óróinn liggur sömuleiðis niðri eftir að hafa farið niður í gærmorgun. 22.8.2022 07:26
Evrópusambandið ætlar að hefta aukin áhrif Kína og Rússlands í S-Ameríku Evrópusambandið ætlar að ráðast í herferð til að bæta stöðu sína á meðal ríkja Suður-Ameríku. Sambandið þykir hafa vanrækt ríki álfunnar á sama tíma og Rússland og Kína hafa styrkt stöðu sína. 22.8.2022 07:00
Hæg breytileg átt og víða dálitlar skúrir Veðurstofan spáir fremur hægri, breytilegri átt í dag og víða dálitlar skúrir. Norðantil á landinu verður þó bjart með köflum og yfirleitt þurrt. 22.8.2022 06:44
Gætu tekið á móti fleiri læknanemum á Akureyri Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segir að sjúkrahúsið geti tekið á móti fleiri læknanemum í grunnnámi, að því gefnu að stofnunin og Háskóli Íslands ráðist í skipulagsbreytingar og tímabil starfsnáms læknanema verði samræmt. 22.8.2022 06:35
Khan ákærður á grundvelli hryðjuverkalaga Lögregla í Pakistan hefur ákært fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Imran Khan, á grundvelli hryðjuverkalaga. 22.8.2022 06:18
Eldur kviknaði í St. Jósefsspítala Tilkynnt var um eld í viðbyggingu við St. Jósefsspítala í Hafnarfirði um klukkan hálf ellefu í kvöld. Mikið var að gera hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu en mannskapur einnar slökkviliðsstöðvar var upptekinn annar staðar þegar útkallið barst. 21.8.2022 23:56
Þetta hefur komið fram um skotárásina á Blönduósi Samfélagið á Blönduósi er í sárum eftir að skotárás var framin þar á sjötta tímanum í morgun. Kona var myrt í árásinni og eiginmaður hennar liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Sonur hjónanna réð niðurlögum árásarmannsins. 21.8.2022 23:44
Afnema lög sem banna kynlíf milli karlmanna Stjórnvöld í Singapúr munu afnema bann við kynlífi milli karlmanna. Hinsegin samfélagið fagnar ákvörðuninni sem sigri mannréttinda en lögin voru sett þegar Singapúr laut nýlendustjórn Breta. 21.8.2022 23:18
Erilsöm helgi hjá björgunarsveitum: Koma örmagna göngukonu við Kattarhryggi til bjargar Töluverður erill hefur verið hjá björgunarsveitum um helgina. Björgunarsveitarfólk veitir nú örmagna göngukonu hjálp á Kattarhryggjum í Þórsmörk. 21.8.2022 22:45
Flúði lögreglu og hafnaði í kjallaratröppum Ökumaður keyrði bíl sínum utan í húsvegg á Egilsstöðum í dag og hafnaði í kjallaratröppum hússins að lokinni eftirför lögreglu. 21.8.2022 21:46
Ekki farið fram á gæsluvarðhald Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur tilkynnt að fólkinu, sem handtekið var í tengslum við rannsókn á skotárás á Blönduósi í morgun, hafi verið sleppt úr haldi. Ekki verði farið fram á gæsluvarðhald yfir manni sem fengið hefur stöðu sakbornings í málinu. 21.8.2022 21:41
Sonur fórnarlambanna hafi ráðist á árásarmanninn Sonur fólksins sem skotið var á Blönduósi í morgun er sagður hafa ráðist á árásarmanninn og ráðið niðurlögum hans. 21.8.2022 21:12
Ætlar til Rússlands til að krefjast lausnar Griner Körfuboltamaðurinn fyrrverandi Dennis Rodman kveðst hafa fengið leyfi til þess að ferðast til Rússlands í þeim tilgangi að krefjast lausnar annarrar körfuboltastjörnu, Brittney Griner, úr fangelsi. 21.8.2022 21:06
Magnea Hrönn Örvarsdóttir er látin Magnea Hrönn Örvarsdóttir, listakona og fyrrverandi blaðamaður, er látin fimmtíu ára að aldri. 21.8.2022 19:58
Svipting skotvopnaleyfis var í ferli Lögregla lagði hald á skotvopn í eigu árásarmannsins, sem myrti konu í morgun og særði eiginmann hennar alvarlega í dag, fyrir nokkrum vikum. Að sögn lögreglustjórans á Norðurlandi vestra var í ferli að svipta manninn skotvopnaleyfi til bráðabirgða. 21.8.2022 19:57
Biðla til landsmanna að standa með íbúum Blönduóss Sveitarstjórn Húnabyggðar hefur gefið frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem segir að íbúar Húnabyggðar séu í áfalli eftir að skotárás var framin í bænum í morgun. „Við erum brotin og þiggjum alla þá góðu strauma sem þið getið veitt okkur,“ segir forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar. 21.8.2022 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Samfélagið á Blönduósi er slegið eftir banvæna skotárás sem átti sér stað snemma í morgun þegar tveir létust og einn særðist. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum og ræðum við lögreglustjórann á svæðinu og forseta sveitastjórnar í Húnabyggð. 21.8.2022 17:57
Árásarmanninum banað á vettvangi Lögreglan á Norðurlandi vestra segir að svo virðist sem manninum, sem skaut einn til bana og særði annan á Blönduósi í dag, hafi verið banað á vettvangi morðsins. Tveir eru í haldi lögreglu. 21.8.2022 17:02