Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Stefnt er að því að Alþingi ljúki störfum í dag en þing þarf ekki að koma aftur saman fyrr en eftir kosningar. Eitt stærsta mál Vinstri-grænna hálendisþjóðgarðurinn verður ekki afgreitt á þessu kjörtímabili og það sama á við um stjórnarskrárfrumvarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. 12.6.2021 11:40
Ný herferð Ljóssins lítur dagsins ljós Eliza Reid forsetafrú ýtti nýrri auglýsingaherferð Ljóssins úr vör í gær við hátíðlega athöfn í höfuðstöðvum Ljóssins á Langholtsvegi. 12.6.2021 10:46
Enginn greindist innanlands Enginn greindist smitaður af Covid-19 innanlands í gær. Þetta kemur fram í pósti frá Almannavörnum en um er að ræða bráðabirgðatölur. 12.6.2021 10:38
Dæmi um að fólk fari yfir lögregluborða á gossvæðinu Eitthvað hefur verið um það að ferðamenn við eldgosið í Geldingadölum hafa farið út af merktum gönguleiðum og yfir lögregluborða. 12.6.2021 10:19
Við dauðans dyr vegna drullunnar í Járnblendinu Saga Barða Halldórssonar er mögnuð. Hann veiktist alvarlega, var við dauðans dyr og eru veikindin rakin til óbærilegra vinnuaðstæðna hjá Járnblendinu á Grundartanga. Hann tók slaginn við stórfyrirtækið og hafði sigur. 12.6.2021 09:01
Hljóp upp að gígnum í Geldingadölum: „Þetta er kærulaus hegðun“ Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar hjá Veðurstofu Íslands, fordæmir hegðun kærulausra eldgosgesta og segist vona að enginn muni láta lífið í Geldingadölum. 12.6.2021 08:58
Sextán ára drengur handtekinn fyrir vopnalagabrot Sextán ára gamall drengur var handtekinn á öðrum tímanum í nótt í Breiðholti grunaður um hótanir, brot á vopnalögum og brot gegn opinberum starfsmanni. Hann er sagður hafa verið að hóta fólki með eggvopni og er málið nú unnið með aðkomu föður drengsins og fulltrúa Barnaverndar. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. 12.6.2021 07:10
Ferðavagnar tókust á loft í Mosfellsbæ Þónokkrir ferðavagnar tókust á loft af plani verslunar Útilegumannsins í Mosfellsbæ í kvöld. 11.6.2021 21:45
Alþingi hefur komist að samkomulagi um þinglok Þingheimur hefur komist að samkomulagi þess efnis að Alþingi ljúki störfum á morgun. Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, telur að Alþingi verði að störfum langt fram á næstu nótt. 11.6.2021 21:18
Ekki „skilgreindur pottur til vinnandi fólks á Íslandi“ Forseti ASÍ telur að fara þurfi varlega í að bera saman kaupmátt nú og í fyrra þegar aðstæður eru allt aðrar. Samtökin muni áfram sækja kjarabætur í formi launahækkana fyrir félagsmenn þótt Samtök atvinnulífsins telji launahækkanir algjörlega óraunhæfar. 11.6.2021 21:01
Ósátt við viðbrögð borgarinnar eftir ítrekaðar kvartanir og milljónarskemmdarverk Íbúar í miðbæ Reykjavíkur sem hafa ítrekað kvartað undan lélegum aðbúnaði í bílastæðahúsi og kenna aðgerðaleysi borgarinnar um milljónarskemmdarverk sem var unnið á bíl þeirra. 11.6.2021 19:35
Sérsveitin kölluð út á sjó Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning þess efnis að báti hafi verið stolið í Kópavogshöfn. 11.6.2021 18:50
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við vandlega yfir nýjust breytingar framundan á sóttvarnatakmörkunum og hvernig stefnir í að Ísland verði meðal fyrstu ríkja heims til að ná hjarðónæmi. Við heyrum í forráðamönnum íslensku flugfélaganna sem segja þessar breytingar hafa jákvæð áhrif á stöðu þeirra. 11.6.2021 18:14
Vill helst að fólk fái sama bóluefnið í seinni sprautunni Um 20 þúsund eiga eftir að fá seinni skammtinn af AstraZeneca-bóluefninu á höfuðborgarsvæðinu. 11.6.2021 18:10
Stirðlegt yfirtökuferli „gagnrýnivert“ en enginn gerður ábyrgur Fátt nýtt kemur fram í skýrslu sem Haraldur Briem, fyrrverandi sóttvarnalæknir, hefur unnið fyrir heilbrigðisráðuneytið um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum í leghálsi. 11.6.2021 17:28
Dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og hótanir Karlmaður var í dag sakfelldur í Landsrétti fyrir að hafa tvívegis veist að fyrrverandi kærustu sinni og að hafa ítrekað sent annarri fyrrverandi kærustu sinni og barnsmóður hótanir í gegn um samskiptaforrit. Hann var dæmdur í átján mánaða fangelsi og honum gert að greiða konunum miskabætur. 11.6.2021 17:01
Dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir að bana eiginkonu sinni Karlmaður var í dag sakfelldur í Landsrétti fyrir að hafa banað eiginkonu sinni í Sandgerði og dæmdur í fjórtán ára fangelsi. Maðurinn er sagður hafa þrengt að hálsi hennar með þeim afleiðingum að hún lést af völdum köfnunar. Landsréttur segir að um stórhættulega atlögu hafi verið að ræða og að maðurinn hafi hlotið að vera ljóst að langlíklegast væri að bani hlytist af henni. 11.6.2021 16:06
„Stærsta kerfisbreyting í málaflokki barna undanfarna áratugi“ Alþingi samþykkti í dag fjögur frumvörp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, sem tengjast málefnum barna. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að þessi frumvörp feli í sér mestu breytingu sem gerð hafi verið á umhverfi barna á Íslandi í áratugi. 11.6.2021 16:05
„Ég er orðinn einhver sérkapítuli í þessu landi“ Reynir Traustason segir dóm Landsréttar óskiljanlegan með öllu og vill áfrýja. 11.6.2021 15:50
Reyni gert að þola að vera sakaður um lygafréttir og að fólk gráti úr sér augun þeirra vegna Landsréttur snéri dómi sem féll í héraði og er nú Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri Útvarps Sögu saklaus af því að hafa látið meiðyrði falla um ritstjórann. 11.6.2021 14:59
Verkjalyf eina sem virkar á flensueinkenni eftir bólusetningu Sóttvarnalæknir segir fátt annað en verkjalyf á borð við Panodil slá á vægar aukaverkanir sem fylgja bólusetningu. Hátt í tíu þúsund voru bólusett með bóluefni frá fyrirtækinu Janssen í Laugardalshöll í gær og mátti sjá marga á samfélagsmiðlum kvarta yfir aukaverkunum í gærkvöldi eins og flensulík einkenni. 11.6.2021 14:32
„Mikil eineltismenning hefur ríkt í Ráðhúsinu“ „Mikil eineltismenning hefur ríkt í Ráðhúsinu allt frá árinu 2010 og spannar því þrjú kjörtímabil. Sá slæmi andi sem einkennt hefur störf borgarráðs og borgarstjórnar kom ekki í Ráðhúsið með þeim aðilum sem sitja í minnihluta nú.“ 11.6.2021 14:31
Hafa gengið að rótum gígsins og flúið undan flæðandi hrauni Lögreglu- og björgunarsveitarmenn í Grindavík hafa í dag hafa þurft að hafa afskipti af nokkrum einstaklingum sem hafa gengið út á nýstorknað hraunið, milli útsýnisstaða, og að rótum sjálfs stóra gígsins í Fagradalsfjalli. 11.6.2021 14:00
Bólusetning talin hafa valdið alvarlegri aukaverkun í einu tilfelli Ekki er talið líklegt að bólusetningar hafi leitt til andláts í fjórum af fimm tilfellum sem óháðir sérfræðingar höfðu til skoðunar. Í nær öllum tilvikum hafi verið hægt að rekja andlát eða blóðtappa til undirliggjandi sjúkdóma eða annarra áhættuþátta. 11.6.2021 13:36
Akureyrarbær hafði betur gegn áminntum hjúkrunarfræðingi Akureyrarbær var í dag sýknaður af kröfu hjúkrunarfræðings, sem vann fyrir bæinn, um að áminning, sem henni var veitt fyrir brot í starfi, yrði felld úr gildi og að Akureyrarbær skyldi greiða henni 5 milljónir króna í miskabætur. 11.6.2021 13:03
Fella niður þrjár ferðir til Lundúna Flugfélagið Play hefur fellt niður þrjár ferðir til Lundúna í byrjun júlímánðar vegna þess að Bretar virðast orðnir hræddir við að ferðast eftir að hafa lent óvænt í sóttkví við heimkomuna frá öðrum löndum að sögn forstjóra félagsins. 11.6.2021 12:42
Skítakuldi í kortum næstu þrjár vikurnar að minnsta kosti Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur veigrar sér ekki við því að bjóða upp á vont veður og segir kulda í kortum næstu vikurnar. 11.6.2021 12:28
Píratar sakaðir um að senda tundurskeyti inn í samningaviðræður Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir Pírata hafa sent tundurskeyti inn í samningaviðræður um þinglok með því að fara fram á umræðu um strandveiðifrumvarp formanns atvinnuveganefndar Alþingis. Þingmaður Pírata segir stjórnvöld hafa logið að smábátasjómönnum þar sem minnihlutinn hafi verið sakaður um standa því í vegi. 11.6.2021 11:51
Svandís sendi efasemdarmönnum sínum pillu Heilbrigðisráðherra segir að 25. júní verði búið að bjóða öllum Íslendingum, 16 ára og eldri, að koma í bólusetningu. 11.6.2021 11:38
Hætta að skima bólusetta og börn um mánaðamótin Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögu sóttvarnarlæknis að halda óbreyttu fyrirkomulagi sóttvarnaraðgerða á landamærum til 1. júlí næstkomandi. 11.6.2021 11:38
Sambærilegar launahækkanir „óraunhæfar með öllu“ Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ánægjulegt að markmið um kaupmáttaraukningu hafi náðst í kórónuveirufaraldrinum með síðustu kjarasamningum. Það sé hins vegar ekki raunhæft að búast við samskonar launahækkunum á næsta samningstímabili 11.6.2021 11:37
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um afléttingar á takmörkunum innanlands sem tilkynntar voru að loknum ríkisstjórnarfundi. 11.6.2021 11:36
Ráðherrar duglegir að kaupa auglýsingar af Zuckerberg Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra keypti auglýsingar fyrir tæpar 800 þúsund krónur á Facebook vegna prófkjörsbaráttunnar. 11.6.2021 11:10
Ísland styrkir hlutfallslega mest Ársfundur UNICEF á Íslandi fór fram í gær og tók Óttarr Proppé við sem stjórnarformaður landsnefndar. Þá kom fram á fundinum að hlutfallslega hæst framlög til baráttu UNICEF koma frá Íslandi. 11.6.2021 10:47
Einn greindist smitaður af Covid-19 Einn greindist smitaður af kórónuveirunni innanlands í gær. Þetta kemur fram í nýjum tölum á covid.is 11.6.2021 10:45
Svíar lána Íslendingum 24 þúsund skammta af Janssen Ríkisstjórn Svíðþjóðar lánar Íslendingum 24 þúsund skammta af bóluefninu Janssen. 11.6.2021 10:34
Þrjú hundruð manna samkomutakmarkanir og eins metra regla frá 15. júní Samkomutakmarkanir munu miðast við þrjú hundruð manns frá 15. júní næstkomandi og þá kemur eins metra regla í stað tveggja metra reglu. Reglugerðin mun gilda í tvær vikur, til 29. júní, en stefnt er að því að búið verði að aflétta öllum takmörkunum innanlands um næstu mánaðamót. 11.6.2021 10:13
Bein útsending: Minnisblöð Þórólfs á borði ríkisstjórnarinnar Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra minnisblöðum með tillögum sínum um aðgerðir innanlands og á landamærum. 11.6.2021 10:06
„Við erum komin með gott hjarðónæmi“ „Við erum komin með gott hjarðónæmi. Það er alveg klárt. En viðerum kannski ekki komin með fullkomið hjarðónæmi í þessa yngstu aldurshópa.“ Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við umsjónarmenn Bítisins á Bylgjunni í morgun. 11.6.2021 08:41
Ekkert bólar á skýrslu um skipulag og framkvæmd leghálskimana Enn bólar ekkert á skýrslu um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi sem 26 þingmenn óskuðu eftir frá heilbrigðisráðherra. 11.6.2021 07:26
Langtímaatvinnulausir fá eingreiðslu á næstu vikum Eingreiðsla upp á hundrað þúsund krónur til þeirra sem hafa verið atvinnulausir í 14 mánuði eða lengur verður greidd út fyrir miðjan júlí. 11.6.2021 07:00
Ekki haldið utan um tilkynningar um „fljúgandi fyrirbæri“ Engin skrá er til á Íslandi yfir fljúgandi fyrirbæri en öll óþekkt fyrirbæri sem koma inn á borð Landhelgisgæslunnar eru tilkynnt stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins (NATO). 11.6.2021 06:49
Menn í annarlegu ástandi héldu lögreglu upptekinni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti þremur tilkynningum í gærkvöldi og nótt vegna manna í annarlegu ástandi. 11.6.2021 06:14
Dæmdur fyrir nauðgun eftir að játning náðist á upptöku Karlmaður var í dag dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar fyrir nauðgun í Héraðsdómi Reykjaness. Refsing mannsins er skilorðsbundin til þriggja ára þar sem hann glímir við margþættan geðvanda. 10.6.2021 22:01
Segir sénsana vera að klárast hjá Katrínu Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segist líta svo á að koma þurfi frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um breytingar á stjórnarskrá inn í þingsal til umræðu. Annars séu tækifæri hennar til að hafa áhrif í stjórnarskrármálinu upp urin. 10.6.2021 21:51