Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hraun gæti farið hratt af stað ef leiðigarðarnir halda ekki Þúsundir manna lögðu leið sína að gosstöðvunum í Geldingadölum í kjöraðstæðum í gær, enda var sjónarspilið mikið þegar rökkva tók. Björgunarsveitarmenn hafa hins vegar áhyggjur af því að hraunið fari að flæða yfir leiðigarðana en þá getur skapast mikil hætta. 18.9.2021 13:07
Sextán staðfest smit á Reyðarfirði og útlit fyrir takmarkað skólahald Þrjú ný kórónuveirusmit greindust á Reyðarfirði í gær eftir umfangsmikla sýnatöku í bænum og eru staðfest smit því orðin sextán talsins. Útlit er fyrir að skólahald verði með takmörkuðum hætti næstu daga. Aðgerðarstjórn almannavarna fundaði í morgun vegna hópsmits á Austurlandi. 18.9.2021 12:52
Sekt og tilkynning til barnaverndar vegna ófullnægjandi öryggis ungabarns í bíl Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði um 300 bifreiðar á leið suður Reykjanesbraut í morgun. Tilgangurinn var eftirlit með ástandi og réttindum ökumanna. 18.9.2021 12:33
Fólk spennt fyrir Öskjugosi sem lætur bíða eftir sér Ólíklegt er að gos hefjist í Öskju á næstu vikum eða mánuðum. Landris á svæðinu gæti þó verið upphafið að langri atburðarás sem endar með gosi. 18.9.2021 12:18
Vilborg Dagbjartsdóttir látin Vilborg Dagbjartsdóttir, skáldkona og kennari, lést á líknardeild Landspítalans, hinn 16. september síðastliðinn, 91 árs að aldri. Þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins. 18.9.2021 10:47
Boðið upp á Covid-atkvæðagreiðslu í öllum sýslumannsumdæmum Sýslumenn um allt land mega á mánudag hefja utankjörfundaratkvæðagreiðslu á sérstökum utankjörfundarstöðum fyrir kjósendur sem verða í sóttkví eða einangrun á kjördag og geta því ekki kosið á almennum kjörstöðum. 18.9.2021 10:26
Heimilisofbeldi og hópslagsmál á borði lögreglu Tæplega hundrað mál voru skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17 til 05 í nótt. Karlmaður var handtekinn í Laugardal sakaður um líkamsárás og heimilisofbeldi. Var sá vistaður í fangaklefa. 18.9.2021 07:59
Svona vilja flokkarnir draga úr losun og standa við loftslagsskuldbindingar Íslands Orkuskipti og endurheimt votlendis er á meðal þess sem nær allir flokkar í framboði til Alþingis nefna sem helstu loftslagsaðgerðir sínar. Flestir þeirra vilja einnig taka upp einhvers konar hvata og skatta til að styðja grænar lausnir. 18.9.2021 07:31
Mælanleg vinstri sveifla viku fyrir kosningar Greinilega sveiflu til vinstri má sjá í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem gerð var í samstarfi við Morgunblaðið og mbl.is. Eykst fylgi Vinstri grænna, Samfylkingar, Pírata og Sósíalista milli kannanna á sama tíma og fylgi Sjálfstæðisflokksins dalar töluvert. 18.9.2021 07:29
Greiðir 300 þúsund krónur fyrir hótun um að senda nektarmyndir Karlmaður var í dag dæmdur til 45 daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar og greiðslu 300 þúsund króna í miskabætur fyrir að hafa hótað að senda nektarmyndir af fyrrverandi sambúðarkonu sinni á yfirmann hennar. 17.9.2021 22:25
MK bannar böll vegna viðbjóðslegrar umgengni Nemendur við Menntaskólann í Kópavogi eru vonsviknir og horfa öfundaraugum til annarra framhaldsskóla, sem fá loks að halda böll. Í MK eru böllin enn þá bönnuð. Ástæðan er ekki lengur sóttvarnir, heldur eru skólastjórnendur að refsa nemendum fyrir yfirgengilega slæma umgengni nýnema. 17.9.2021 21:29
Útilokar ekki að mögulegt eldgos á Kanaríeyjum sé sér að kenna Yfirvöld á Kanaríeyjum hafa varað við mögulegu eldgosi á einni eyjanna. Samskiptastjóri almannavarna telur að hún gæti mögulega borið ábyrgð á ástandinu en vonar að eldgos sem hafi fylgt henni í störfum sínum láti sig í friði í fríinu. 17.9.2021 20:01
Grunur um að eldur hafi kviknað út frá rafhlaupahjóli Búið er að slökkva eld sem kom upp í íbúð að Bríetartúni 9 til 11. 17.9.2021 19:55
Stíflur hafa myndast í göngunum sem tengja Fjallabyggð við umheiminn Í sumar hafa stíflur myndast í einbreiðu göngunum sem tengja Fjallabyggð við umheiminnn vegna mikillar umferðar. Heimamenn vilja ný göng á dagskrá sem fyrst. 17.9.2021 19:53
Skurðstofur rifnar niður hjá HSS og hæð breytt í legudeild Skurðstofur og önnur aðstaða á heilli hæð hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem aldrei hafa verið notaðar fyrir samfélagið í Reykjanesbæ síðast liðinn áratug hafa verið rifnar niður. Húsnæðið verður nýtt til að tvöfalda legurými á spítalanum og bráðamóttakan verður stækkuð mikið. 17.9.2021 19:21
Angjelin Sterkaj fer fram á refsileysi Angjelin Sterkaj, sem er einn þeirra sem ákærð eru fyrir morðið á Armando Beqiri, fer fram á að honum verði ekki gerð refsing á grundvelli þess að hann hafi einungis farið út fyrir lögmæta neyðarvörn vegna þess að hann hafi orðið svo skelfdur að hann hafi ekki getað gætt sín fullkomlega. Hann heldur því fram að hann hafi gripið til örþrifaráðs þegar hann skaut Armando margsinnis þann 13. febrúar síðastliðinn í Rauðagerði. 17.9.2021 18:56
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hvergi í heiminum hafa hlutabréf hækkað eins mikið í verði á undanförnu ári en á Íslandi. Hagfræðingur segir þetta skipta miklu fyrir framgang íslensks atvinnulífs en minnir á að hlutabréfakaupum fylgir áhætta.Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast á slaginu 18:30. 17.9.2021 18:16
Bjór og mjöður, desertvín og sterkt á Bessastöðum Skrifstofa forsetaembættsins hefur gefið út upplýsingar um núverandi birgðir forsetaembættisins af áfengum drykkjum. Um tveimur milljónum er varið að meðaltali árlega í áfengiskaup fyrir forsetaembættið. 17.9.2021 16:50
SI gapandi hissa vegna milljarða stafræns verkefnis borgarinnar Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins, segir borgina þramma með yfirgengilega freklegum hætti inn á viðkvæman samkeppnismarkað. 17.9.2021 16:30
Þau bjóða fram krafta sína í Reykjavíkurkjördæmi norður Ellefu flokkar bjóða fram til Alþingis í Reykjavíkurkjördæmi norður að þessu sinni og eru í heildina 242 manns á listum flokkanna. Listana í heild má sjá hér að neðan. 17.9.2021 14:40
Covid-sýktir bíleigendur fá að kjósa á Skarfabakka Fólk sem er í einangrun eða sóttkví vegna Covid-19 verður gert kleift að kjósa til alþingis á sérstökum bílakjörstað á Skarfabakka í Reykjavík frá og með næsta mánudegi. 17.9.2021 14:19
Segja dýrkeypt mistök í uppsiglingu Fjórir yfirlæknar á Landspítalanum gera alvarlegar athugasemdir við hönnun nýs rannsóknarhúss við Landspítalann. Þeir benda á að verði ekki bætt úr gæti það orðið verulega dýrkeypt. Þeir hafi reynt að koma athugasemdunum á framfæri við stjórnendur spítalans en verið hunsaðir. 17.9.2021 13:12
Risafjárveiting á að draga úr slagsmálum og eiturlyfjum á Litla-Hrauni Dómsmálaráðuneytið steig í dag eitt af þremur stærstu skrefum sem stigin hafa verið í sögu fangelsismála hér á landi að sögn fangelsismálastjóra. Tæplega tveggja milljarða króna fjármögnun hefur verið tryggð til að ráðast í löngu tímabærar endurbætur á Litla-Hrauni. 17.9.2021 12:12
Einungis um annar hver kjósandi kynnt sér frambjóðendur að ráði Nú þegar um vika er í kosningar hefur um annar hver kjósandi varla kynnt sér frambjóðendur samkvæmt nýrri Maskínukönnun. Þeir sem hyggjast kjósa Samfylkinguna telja sig hafa kynnt sér frambjóðendur best. 17.9.2021 11:53
Allir fá aðgang að endurgjaldslausum hraðprófum Sjúkratryggingar munu taka þátt í kostnaði við töku hraðprófa hjá einkaaðilum frá og með 20. september. Með breytingunni verður hægt að taka hraðpróf án tilkostnaðar óháð tilgangi sýnatökunnar. 17.9.2021 11:43
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um gagnrýni fjögurra yfirlækna á Landspítalanum sem eru ekki sáttir við hönnunina á nýju rannsóknarhúsi spítalans. 17.9.2021 11:30
Hætta leit að Hollendingnum sem sigldi frá Heimaey Ákveðið hefur verið að hætta leit að hollenskum karlmanni sem sigldi frá Vestmannaeyjum áleiðis til Grænlands þann 8. ágúst síðastliðinn. Ekkert hefur spurst til mannsins frá því hann lét úr vör. 17.9.2021 11:13
Tuttugu og fimm greindust með Covid-19 innanlands í gær Tuttugu og fimm greindust með kórónuveiruna SARS-CoV-19 í gær.354 eru nú í einangrun og 765 í sóttkví. 17.9.2021 11:00
Bein útsending: Heilbrigði 2025 BHM, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Læknafélag Íslands standa fyrir pallborðsumræðum undir heitinu Heilbrigði 2025 í dag. 17.9.2021 10:01
Kosningapróf Vísis og Kjóstu rétt: Hver flokkurinn þinn? Landsmenn ganga að kjörborðinu þann 25. september og eflaust fjöldi fólks sem á enn eftir að taka lokaákvörðun um hvert atkvæðið á að fara. 17.9.2021 10:00
Hefur áhyggjur af sprengingu í stofni hnúðlaxa Hnúðlaxinn hefur gert sig heimakominn á Íslandi og er gríðarlegur vöxtur í stofninum á milli ára. Sérfræðingur hefur áhyggjur af áhrifum tegundarinnar á íslenska náttúru. 17.9.2021 09:29
Mögulegt nýtt eldgos reyndist vera tunglið Næturvakt Veðurstofunnar fékk töluvert af tilkynningum í gærkvöld um að mögulegt væri annað eldgos hafið á Reykjanesskaga, nú austan við Fagradalsfjall. 17.9.2021 09:15
Húsnæðisskorturinn verði vonandi úr sögunni strax á næsta ári Lýðskólinn á Flateyri hefur þurft að vísa frá umsækjendum vegna húsnæðisskorts í bænum. Ráða á bót á húsnæðisvandanum með byggingu nemendagarða, fyrstu íbúðarhúsum sem byggð verða í bænum í 25 ár. 17.9.2021 09:01
Afstaða efast um lögmæti þess að fangelsa menn á reynslulausn vegna meintra brota Afstaða, félag fanga, hefur kvartað til Umboðsmanns Alþingis fyrir hönd skjólstæðings síns en málið varðar meðal annars efasemdir félagsins um lögmæti þess að senda menn á reynslulausn aftur í fangelsi vegna nýrra brota sem lögregla hefur til rannsóknar. 17.9.2021 08:11
Stjórnarflokkarnir með samtals 44 prósenta fylgi Ríkisstjórnarflokkarnir – Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri græn og Framsókn – fá samtals 44 prósenta fylgi í nýrri könnun Prósents sem unnin var fyrir Fréttablaðið. 17.9.2021 07:47
Kaupa fjögur tonn af berjum af harðduglegum Vestfirðingum Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík ætlar að kaupa alls fjögur tonn af bláberjum í haust, sem Vestfirðingar hafa keppst við að tína. Sá afkastamesti hefur mætt með um 150 kíló af berjum í hvert sinn sem móttakan er opin. 17.9.2021 07:00
Kynjaskráning liðin tíð en hægt að velja úr átta persónufornöfnum Framhaldsskólarnir eru hættir að skrá kyn nemenda og geta þeir nú valið á milli átta persónufornafna í nemendakerfinu Innu. Að sögn konrektors Menntaskólans við Hamrahlíð er aðeins hægt að velja eitt fornafn eins og stendur en þessu verður breytt. 17.9.2021 06:46
Handtóku Covid-smitaðan mann í mjög annarlegu ástandi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að sóttvarnarhúsi í nótt og handtók þar mann í mjög annarlegu ástandi. Maðurinn var vistaður í fangageymslu en hann er grunaður um líkamsárás og eignarspjöll. 17.9.2021 06:20
Pure North Recycling hlaut Bláskelina Endurvinnslufyrirtækið Pure North Recycling hlaut í dag Bláskelina, viðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins fyrir framúrskarandi lausn í plastmálefnum. 16.9.2021 23:04
Hljóðfæraleikarar hittust varla utan sviðsins um tíma Sinfóníuhljómsveit Íslands spilaði í dag í fyrsta sinn fyrir nær fullum Eldborgarsal í Hörpu síðan í mars 2020. Samkomutakmarkanir hafa haft mikil áhrif á starf hljómsveitarinnar á meðan á kórónuveirufaraldrinum hefur staðið. 16.9.2021 22:42
Loksins undið ofan af mismunun barna með fæðingagalla Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra setti á dögunum bráðabirgðaákvæði inn í reglugerð um greiðsluþátttöku til kostnaðar vegna nauðsynlegra tannlækninga og tannréttinga. Með ákvæðinu eru tekin af öll tvímæli um að öllum börnum með skarð í efri tannboga eða klofinn góm, harða eða mjúka, sé tryggð 95% endurgreiðsla vegna tannlækninga eða tannréttinga. 16.9.2021 21:31
Stjórnmálamenn ekki allir jafnduglegir að styðja við aðeins öðruvísi fólk Stjórnmálamenn mættu huga betur að málefnum barna með fötlun og 16 ára og eldri ættu alla vega að fá að kjósa í sveitarstjórnarkosningu, enda eru mörg þeirra farin að borga skatta. Þessar kröfur voru á meðal þeirra sem börn settu fram á kosningafundi með frambjóðendum allra flokka í Hörpu í dag. 16.9.2021 21:20
Árshlutareikningur Akureyrarbæjar: Afkoma 369 milljónum betri en áætlað var Afkoma samstæðu Akureyrarbæjar á fyrri hluta ársins var nokkru betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. 16.9.2021 20:43
Iðnó verður hús fólksins: Opið frá morgni til kvölds alla daga Iðnó verður opnað aftur á laugardaginn eftir eins og hálfs árs lokun. Í fyrsta sinn í langan tíma mega borgarbúar búast við að dyrnar standi þeim opnar frá morgni til kvölds. Og forsalurinn hefur verið tekinn í gegn, að því marki sem hrófla má við heilögu innra byrði þessa sögulega húss. 16.9.2021 20:30
Dregur úr vilja til ferðalaga til Íslands Dregið hefur úr áhuga á ferðalögum til Íslands eftir að allir farþegar voru skyldaðir í lok júlí til að framvísa neikvæðu PCR eða hraðprófi á brottfararstað, hvort sem þeir eru bólusettir eða ekki. Mest munar um Bandaríkjamenn í fjölgun farþega í sumar sem leið. 16.9.2021 20:15