Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Loftslagsmál vega þungt í stjórnarmyndunarviðræðum Formenn ríkisstjórnarflokkanna funda áfram í dag og reyna að finna leiðir til áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarfs. Framsókn og Vinstri græn leggja mikla áherslu á loftslagsmál á komandi kjörtímabili en sýn þeirra á málaflokkinn er enn ólík. 13.10.2021 13:22
Hvetur foreldra til að ræða Squid Game við börn sín Kóreski sjónvarpsþátturinn Squid Game, sem hefur slegið öll áhorfsmet á Netflix er einnig gríðarlega vinsæll hjá börnum hér á landi þrátt fyrir mikið ofbeldi. Sérfræðingur hjá Heimili og Skóla hvetur foreldra til að ræða málið við börn sín og kynna sér hvernig hægt er að loka á slíkt efni. 13.10.2021 13:10
Krónprinsinn með þétta dagskrá og kynnir sér græna orku á Íslandi Friðrik krónprins Danmerkur segir samband Íslands og Danmerkur á sviði orkumála mikilvægt í baráttunni við loftslagsbreytingar. Þétt dagskrá er fram undan hjá krónprinsinum í dag sem mun kynna sér sjálfbærar orkulausnir í Íslandsheimsókn sinni. 13.10.2021 12:18
50 greindust með Covid-19 innanlands 50 greindust með Covid-19 innanlands í gær. 448 eru í einangrun og 1.632 í sóttkví. 13.10.2021 12:13
Skipti gríðarlegu máli að ekki sé opið í bænum fram á nótt Sóttvarnalæknir segir Landspítalann þurfa svara því hvort hann sé í stakk búinn til að bregðast við auknum fjölda smita ef aðgerðum verður aflétt innanlands. Þetta segir hann í ljósi minnisblaðs forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra þar sem litið er til Norðurlanda sem hafa aflétt öllum sínum aðgerðum. 13.10.2021 12:12
Ellefu hafa kært talningu í Norðvesturkjördæmi Alls hafa ellefu manns kært framkvæmd talningar og meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi. Sex frambjóðendur og fimm almennir borgarar. Fulltrúi Pírata í undirbúningskjörbréfanefnd segir að óskað verði eftir gögnum frá Lögreglunni á Vesturlandi í dag. 13.10.2021 12:00
Forsetafrúin spyr: #erukonurtil? Eliza Reid forsetafrú spyr að því á Facebook í dag hvort konur séu ekki til en tilefnið er myndatexti sem birtist á forsíðu Morgunblaðsins í dag. Textinn fylgir mynd af Elizu heilsa Friðriki krónprinsi Danmerkur en forsetafrúarinnar er hvergi getið. 13.10.2021 11:47
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum höldum við áfram að fylgjast með stjórnarmyndunarviðræðum í Ráðherrabústaðnum. 13.10.2021 11:34
Meiri þátttaka í hverfiskosningum og meiri peningar í húfi Mikil aukning hefur verið í þátttöku Reykvíkinga í íbúakosningunni Hverfið mitt sem lýkur á morgun. Verkefnisstjóri Hverfið mitt telur aukna þátttöku skýrast af auknum fjármunum sem lagðir eru í verkefnið og vilja íbúa til að hafa áhrif á umhverfi sitt. 13.10.2021 10:59
Möguleiki á stærstu loðnuvertíð í tuttugu ár Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í gær grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. 13.10.2021 10:55
Covid-tölurnar framvegis birtar klukkan 13 Tölfræðisíðan covid.is, sem heldur utan um tölfræði um alls sem við kemur kórónuveirusmium, innlögnum á sjúkrahús vegna Covid-19 og fleira, verður framvegis uppfærð klukkan 13 alla virka daga. Síðan hefur til þessa verið uppfærð klukkan 11. 13.10.2021 10:40
Katrín og Svandís horfa til Norðurlandanna þar sem engar takmarkanir eru í gildi Íslensk stjórnvöld líta til þess að öll hin Norðurlöndin hafa nú aflétt öllum innanlandstakmörkunum sem ætlað var að hemja útbreiðslu kórónuveirunnar. 13.10.2021 10:14
Tveir af þremur sem létust í ágúst voru erlendir ferðamenn Þrír hafa látist á Íslandi frá 1. ágúst vegna Covid-19. Tveir þeirra voru erlendir ferðamenn og einn þeirra Íslendingur. Þetta kemur fram í minnisblaði forsætis- og heilbrigðisráðherra sem lagt var fram á fundi ríkisstjórnarinnar í gær. 13.10.2021 09:57
Eitt barn lagt inn með blóðtappa og annað með fjölkerfabólgusjúkdóm Börn sem eru of ung til að fá bólusetningu eru 40 prósent einstaklinga í einangrun en innan við 15 prósent íbúa landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landlæknisembættisins. 13.10.2021 09:53
Brotthvarf Birgis gæti kostað Miðflokkinn um fimm milljónir Brotthvarf Birgis Þórarinssonar úr þingflokki Miðflokksins myndi kosta flokkinn um fimm milljónir króna á kjörtímabilinu, ef miðað er við greiðslu sem hver þingflokkur fékk úr ríkissjóði fyrir hvern þingmann á síðasta kjörtímabili. 13.10.2021 09:00
Slökkvilið komst ekki inn götu fyrir lögðum bílum Dælubíll slökkviliðsins komst ekki inn götu sem hann hafði verið kallað út að nýlega vegna þess hvernig bílum við hana var lagt. Búið var að leggja bílum báðum megin götunnar og hún því orðin allt of þröng fyrir dælubíla. 13.10.2021 08:54
Dómsmálaráðuneytið telur mikilvægt að ráðast í heildarendurskoðun áfengislaga Smásala áfengis er einungis heimil Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, segir í svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn Félags atvinnurekenda um lögmæti netsölu á áfengi. 13.10.2021 08:47
Gert að standa við umdeilda launasamninga Haraldar við yfirlögregluþjóna Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt embætti ríkislögreglustjóra til að greiða fjórum yfirlögregluþjónum laun í takti við samkomulag sem Haraldur Johannessen, þáverandi ríkislögreglustjóri, gerði við þá um endurskoðun launakjara sumarið 2019. 13.10.2021 08:40
Opið þinghald í fimmta nauðgunarmáli „meðhöndlara“ Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að þinghald í máli Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar verði opið. Hann er ákærður fyrir nauðgun en hann var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrr á þessu ári fyrir að nauðga fjórum konum á meðferðarstofu sinni. 13.10.2021 08:35
Segja þörf á átaki í skriðumálum líkt og gert var í snjóflóðamálum Kanna þarf landform með tilliti til hreyfinga á lausum jarðefnum við ellefu þéttbýlisstaði á landinu. Þetta kemur fram í minnisblaði vísindamanna Veðurstofu Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands og Háskóla Íslands. 13.10.2021 07:13
Tveir öflugir skjálftar á Reykjaneshryggnum Tveir nokkuð öflugir skjálftar yfir 3 að stærð urðu á Reykjaneshryggnum undan Reykjanesskaga í gærkvöldi. 13.10.2021 06:51
Segja KSÍ hafa borist upplýsingar um meint brot sex landsliðsmanna Aðgerðahópurinn Öfgar sendi tölvupóst á stjórn Knattspyrnusambands Íslands 27. september síðastliðinn, sem innihélt meðal annars nöfn sex leikmanna karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu og upplýsingar um meint ofbeldis- og kynferðisbrot þeirra. 13.10.2021 06:37
Gátu rakið staðsetningu símans og fundu í öðrum skáp Um klukkan 22.30 í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um þjófnað úr skáp í búningsaðstöðu í Smárahverfinu í Kópavoginum. 13.10.2021 06:13
Ríkisstjórnin sögð leggja drög að tilslökunum Í minnisblaði sem forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra hafa lagt fyrir ríkisstjórnina, og fjallar um framtíðarhorfur kórónuveirufaraldursins hér á landi, segir að hættan á óviðráðanlegum faraldri hafi minnkað. Stefnt sé að minni takmörkunum og unnið sé að drögum um slíkar áætlanir. 12.10.2021 22:49
Vinningurinn trompaðist og varð 25 milljónir Þátttakandi í Happdrætti Háskóla Íslands vann í kvöld 25 milljónir króna. Hann hlaut hæsta vinning, sem er fimm milljónir króna. 12.10.2021 21:13
Ofbeldisfullt sjónvarpsefni vinsælt meðal unglinga: „Þetta er ekki í boði í félagsmiðstöðinni“ Forstöðumaður í félagsmiðstöð segir að á hverjum einasta degi biðji krakkar um að fá að horfa á hina sívinsælu og ofbeldisfullu þætti - Squid Game. Hann segir mikilvægt að samtal fari fram um skaðsemi ofbeldisfulls efnis. 12.10.2021 21:00
Risa kötturinn Skjöldur í Reykjanesbæ Skjöldur er risa köttur á heimili í Keflavík sem er rúmlega einn metri á lengd og tólf kíló á þyngd. Eigandinn segir að þrátt fyrir stærð kattarins sé hjartað hans mjög lítið enda Skjöldur feimin og inn í sig. 12.10.2021 20:53
Umkringdur rokkstjörnum á kynningu sem líktist fyrsta skóladeginum Nýir Alþingismenn sóttu kynningarfund um þingstörf í dag. Þingmennirnir segja kynninguna minna á fyrsta skóladaginn og segist einn þeirra umkringdur rokkstjörnum. 12.10.2021 20:00
Tekist á um orkustefnu í stjórnarmyndunarviðræðum Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks telja að leysa þurfi úr ágreiningi stjórnarflokkanna um orkunýtingu til framtíðar í yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræðum. Arftaki umhverfisráðherra hjá Landvernd varar hins vegar við því að „látið verði undan áróðursherferð óseðjandi orkuiðnaðar“ eins og það er orðað. 12.10.2021 19:21
Íbúa grunar sömu aðila um endurtekin innbrot Um og yfir tvöfalt fleiri innbrot hafa verið framin inn á heimili í Háaleitis- og Bústaðahverfi á þessu ári en á sama tíma síðustu fimm ár. Þrátt fyrir að íbúar gruni oft sömu aðila um brotin reynist gjarnan erfitt að koma þeim bak við lás og slá. 12.10.2021 19:00
Taki tvö ár að vinda ofan af vandanum Forstjóri eins stærsta verktakafyrirtækis landsins segir húsnæðisskortinn í Reykjavík hafa verið fyrirséðan í langan tíma og telur að það muni taka allt að tvö ár að vinda ofan af vandanum. 12.10.2021 19:00
Íbúar í sveitinni hjálpuðu áhöfninni að hreinsa upp hræin Áhöfnin á varðskipinu Þór dró um fimmtíu grindhvalshræ úr fjörunni í Melavík á Ströndum um borð í skipið í dag. Íbúar á nærliggjandi bæjum aðstoðuðu áhöfnina við verkið. 12.10.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks telja að leysa þurfi úr ágreiningi stjórnarflokkanna um orkunýtingu til framtíðar í yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræðum. 12.10.2021 18:00
Óskar aftur eftir upplýsingum vegna ábendinga um að börn séu lokuð inn í sérstökum rýmum Umboðsmaður Alþingis hefur á nýjan leik óskað eftir upplýsingum frá nokkrum sveitarfélögum um aðstæður barna sem eru aðskiliðin frá samnemendum sínum í grunnskólum. Ábendingar hafi borist frá foreldrum um að börn hafi verið lokuð inni í sérstökum rýmum, jafnvel einsömul. 12.10.2021 17:44
Aflétta rýmingu og aflýsa hættustigi á Seyðisfirði Rýmingu sem var í gildi á nokkrum húsum á Seyðisfirði vegna hreyfinga í hlíðum ofan bæjarins hefur verið aflétt að fullu. Þá hefur hættustigi almannavarna verið aflýst. 12.10.2021 17:22
Karl Axelsson hæstaréttardómari orðinn prófessor við HÍ Karl Axelsson, dómari við Hæstarétt, er orðinn prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Undanfarið hafa dómarar við réttinn sætt gagnrýni vegna aukastarfa sinna utan dómstólanna og töluverð umræða skapast um það fyrirkomulag. 12.10.2021 16:31
Ákærusvið skoðar kæru Karls Gauta Rannsókn lögreglunnar á Vesturlandi á kæru Karls Gauta Hjaltasonar á niðurstöðu kosninganna er lokið og málið nú komið til ákærusviðs. 12.10.2021 15:05
Leita enn svara við því sem gerðist í Sky Lagoon Rannsókn lögreglunnar á andláti í baðlóninu Sky Lagoon á Kársnesi stendur enn yfir. 12.10.2021 14:12
Aldrei jafn mikil umferð á höfuðborgarsvæðinu í september Aldrei áður hefur mælst jafnmikil umferð á höfuðborgarsvæðinu í septembermánuði. Var síðasti mánuður jafnframt næst mesti umferðarmánuður frá upphafi mælinga en örlítið meiri umferð mældist í maí 2019. 12.10.2021 14:11
Segist hafa misskilið að Erna vildi í flokkinn Erna Bjarnadóttir varaþingmaður Miðflokksins segist ekki hafa ætlað að fylgja Birgi Þórarinssyni í Sjálfstæðisflokkinn. Hann hafi oftúlkað orð hennar um það. Tilkynningu þar sem Erna var boðin velkomin í Sjálfstæðisflokkinn var breytt rétt fyrir hádegi. 12.10.2021 14:00
Tæplega 60 prósent vilja Katrínu áfram sem forsætisráðherra Tæp 58% kjósenda vilja að Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, verði áfram forsætisráðherra Íslands. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu. 12.10.2021 13:33
Íhuga hópmálsókn á hendur ríkinu vegna áhrifa bólusetningar Hópur kvenna sem hefur upplifað breytingar á tíðahring eftir bólusetningu gegn Covid-19 íhugar nú að hefja hópmálsókn á hendur íslenska ríkinu vegna málsins. 12.10.2021 13:00
„Að sjálfsögðu er áherslumunur milli flokkanna“ Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagði stjórnarmyndunarviðræður hafa gengið ágætlega. Á þeim tveimur vikum sem þær hefðu staðið yfir hefði verið farið yfir mörg ólík málefni. 12.10.2021 12:51
Gunnar Atli og Linda Ramdani nýir aðstoðarmenn dómara í Hæstarétti Gunnar Atli Gunnarsson, aðstoðarmaður Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Linda Ramdani, lögmaður hjá Mörkinni, hafa verið ráðin aðstoðarmenn dómara í Hæstarétti. 12.10.2021 12:39
Gefa sér þann tíma sem þarf Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir hann og formenn Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna, vilja vanda sig í stjórnarmyndunarviðræðum. Það séu áskoranir í viðræðunum sem hafi ekki verið leystar á síðustu fjórum árum og það sé verið að vinna í því. 12.10.2021 12:24