Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ágúst hættir sem sveitarstjóri Ágúst Sigurðsson, sveitastjóri í Rangárþingi ytra, ætlar ekki að gefa kost á sér til frekari starfa að loknum kosningunum í vor. Hann mun þá hafa gengt starfi sveitastjóra í átta ár en Sjálfstæðisflokkurinn er með meirihluta í sveitarstjórninni. 14.1.2022 11:32
Lýsti upplifun sinni af nuddtímunum í sögulegu þinghaldi Fjöldi vitna var kallaður til við aðalmeðferð í sakamáli á hendur meðhöndlaranum Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni í dag og í gær. Jóhannes hefur verið sakfelldur fyrir fjórar nauðganir en aðalmeðferð í fimmta málinu á hendur honum hófst í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Jóhannes neitaði sök fyrir dómi en vildi annars lítið tjá sig og vísaði til lögregluskýrslu sem tekin var af honum vegna málsins. Þinghald í málinu var opið, sem er óvenjulegt fyrir kynferðisbrotamál. 14.1.2022 11:03
1.133 greindust innanlands 1.133 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 88 á landamærum. 14.1.2022 10:32
Ríkisstjórnarfundi lokið: Tilkynnt um hertar aðgerðir Ríkisstjórnarfundur hófst klukkan 9.30 en en á dagskrá fundarins er meðal annars nýtt minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Ráða má í yfirlýsingar Þórólfs í vikunni að hann leggi til hertar sóttvarnaaðgerðir. 14.1.2022 10:15
42 sjúklingar nú á Landspítala með Covid-19 42 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19. Átta eru á gjörgæslu, fjórir þeirra í öndunarvél. Meðalaldur innlagðra er 64 ár. 14.1.2022 10:03
„Umtalsverðar fjárhæðir“ en óljóst hvernig á að skattleggja þær Talið er að þúsundir Íslendinga hafi hagnast verulega á rafmyntarviðskiptum á meðan enginn skýr lagarammi er til um skattlagningu í málaflokknum. Lögfræðingur segir tímabært að stjórnvöld bregðist við breyttum tímum. 14.1.2022 09:26
Flutningaskip Eimskips strandaði í Noregi í gærkvöldi Flutningskipið Polfoss, sem er í eigu Eimskips, strandaði í gærkvöldi við eyjuna Skorpa í Kristiansund í Noregi. Samkvæmt NRK varð skipið vélarvana. 14.1.2022 08:32
Danir hafi vanrækt handritasáttmálann Danir hafa ekki uppfyllt öll skilyrði hins sögulega handritasáttmála að mati menningarmálaráðherra. Hún kallar eftir því að Danir efli rannsóknir sínar á miðaldabókmenntum og mun áfram berjast fyrir því að fá þau flest flutt til Íslands. 14.1.2022 07:01
Ríkisstjórnin ræðir nýjar tillögur sóttvarnalæknis Ríkisstjórnin mun funda fyrir hádegi í dag og meðal annars ræða minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Þórólfur hefur skilað nýju minnisblaði til heilbrigðisráðherra en hefur ekki viljað gefa upp efni þess. 14.1.2022 06:45
Breyti engu ef fólk breyti ekki hegðun sinni Formaður farsóttanefndar Landspítalans bindur vonir við að hertar samkomutakmarkanir komi til með að skila árangri og draga úr álagi á spítalann. Þær muni þó engu breyta ef fólk breyti ekki hegðun sinni. 14.1.2022 18:50
Lýst eftir Karli Dúa Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Karli Dúa sem fór frá heimilinu sínu upp úr klukkan 17.00 í dag. Uppfært: Karl er kominn í leitirnar, heill á húfi. 13.1.2022 22:38
Eldur í Brekkubæjarskóla á Akranesi: „Þetta fór vel“ Eldur kviknaði í Brekkubæjarskóla á Akranesi fyrr í kvöld. Slökkviliðsstjóri segir að vel hafi gengið að slökkva eldinn eða um tíu til fimmtán mínútur. 13.1.2022 22:11
„Spáin núna ætti eiginlega að heita vondur, verri, verstur“ Bjartsýnasta spá Landspítala um innlagnir á legudeild vegna Covid-19 virðist nú vera að rætast. Verkefnastjóri hjá farsóttanefnd Landspítala segir orðalagið um bjartsýna spá villandi og telur nauðsynlegt að herða takmarkanir. 13.1.2022 20:32
Verkfall væri sérkennilegt útspil kennara í heimsfaraldri Grunnskólakennarar kolfelldu nýjan kjarasamning við sveitarfélögin í dag. Deilan fer nú aftur til ríkissáttasemjara sem gæti reynst erfitt að greiða úr málinu. Formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) er undrandi yfir málinu. 13.1.2022 20:01
„Náum þessu niður áður en við göngum af heilbrigðiskerfinu dauðu“ Formaður Læknafélags Íslands og formaður Félags hjúkrunarfræðinga kalla eftir því að stjórnvöld bregðist við því mikla álagi sem sé á heilbrigðisstarfsfólk, til dæmis með tímabundnum álagsgreiðslum í faraldrinum. Ekki sé hægt að leggja það á fólk árum og mánuðum saman að einangra sig og vinni ítrekað langt um fram eðlilega vinnuskyldu. 13.1.2022 19:16
Boðar mesta uppbyggingarskeið í sögu borgarinnar Reykjavík tekur miklum breytingum í aðalskipulagi til ársins 2040, sem undirritað var í Höfða í dag. Á grundvelli þessa skipulags verður auðveldlega hægt að byggja 1200 íbúðir á ári, að sögn borgarstjóra. 13.1.2022 19:00
„Algjörlega óviðráðanlegar aðstæður“ Ökumaður stærðarinnar vöruflutningabíls lenti í miklu basli á Háreksstaðaleið seinni partinn í gær í gríðarlegu hvassviðri og hálku. Framkvæmdastjóri Smyril Line þakkar fyrir að ekki hafi farið illa en einn reyndasti bílstjóri fyrirtækisins var undir stýri. 13.1.2022 18:46
„Þetta er gjörsamlega út í hött“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er alls ekki sáttur við svar stjórnar Persónuverndar sem stofnunin sendi Íslenskri erfðagreiningu fyrr í dag. Hann segir Persónuvernd hafa sýnt ómældan sóðaskap og hyggst leita til dómstóla. 13.1.2022 18:28
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir hefur sérstakar áhyggjur af notkun hraðgreiningarprófa fyrir stærri viðburði því talsvert sé um að þau gefi falskar niðurstöður. Hann leggur til hertar aðgerðir í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra, aðeins tveimur dögum eftir að síðustu aðgerðir voru kynntar. 13.1.2022 18:00
Ólöf Helga fremst á lista Eflingar Ólöf Helga Adolfsdóttir, varaformaður Eflingar og fyrrverandi hlaðmaður hjá Icelandair, er formaður á lista sem uppstillinganefnd Eflingar lagði fram í dag og stjórn félagsins samþykkti á fundi sínum. 13.1.2022 17:56
Fella niður kennslu fyrir austan Aðgerðastjórn Austurlands ákvað á fundi í dag að fella niður kennslu í Nesskóla í Neskaupstað, Eskifjarðarskóla og Grunnskóla Reyðarfjarðar á morgun, föstudaginn 14. janúar. Það er gert vegna fjölgunar smitaðra á landshlutanum undanfarna daga. 13.1.2022 17:29
Óvissan er gríðarleg: „Eigum við að segja upp fólki? Eða ekki?“ Veitingamenn eru í mikilli óvissu varðandi hertar aðgerðir sem talið er líklegt að kynntar verða á morgun. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skilaði minnisblaði til heilbrigðisráðherra í dag en hann hefur talað um að hertra aðgerða sé þörf. 13.1.2022 17:02
Lokuðu leikskólanum í dag vegna stórrar hópsýkingar 38 börn og starfsmenn í leikskólanum Sæborg í Reykjavík hafa greinst með Covid-19. Tvær deildir af fjórum hafa verið lokaðar seinustu daga vegna þessa en ákveðið var að loka skólanum alfarið í dag og á morgun eftir að þriðja deildin var send í sóttkví. 13.1.2022 16:44
Þórólfur búinn að skila minnisblaði til Willums Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur lokið við skrif nýs minnisblaðs vegna stöðunnar í kórónuveirufaraldrinum hér á landi. Blaðinu hefur hann skilað Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Hann vill ekkert gefa uppi um innihald þess að svo stöddu. 13.1.2022 14:46
„Mjög mikilvægt að það sé búið að börnum eins vel og við mögulega getum“ Umboðsmaður barna hefur beint því til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja að gera úrbætur þegar kemur að sýnatökum barna, meðal annars með tilliti til umhverfis og samskipta. Umboðsmaður barna segir mikilvægt að búa sérstaklega að börnum nú þegar mörg þeirra eru að mæta í sýnatökur. 13.1.2022 14:35
Seljaskóla skellt í lás fram á þriðjudag Allt skólastarf fellur niður í Seljaskóla á morgun, föstudaginn 14. janúar og mánudaginn 17. janúar vegna fjölda nemenda og starfsfólks em greinst hefur verið Covid-19. Frístundastarf og íþróttaæfingar hjá ÍR falla einnig niður. 13.1.2022 14:05
Helgi Seljan frá RÚV á Stundina: „Veitir mér leyfi til að svara fyrir mig“ Fréttamaðurinn Helgi Seljan hefur sagt upp störfum hjá RÚV. Helgi, sem hefur starfað á miðlinum frá árinu 2006, hefur verið í leyfi frá störfum og hyggst ekki snúa aftur. Hann tekur við sem rannsóknarritstjóri Stundarinnar þann 15. febrúar. 13.1.2022 13:15
Grunnskólakennarar kolfelldu nýjan kjarasamning Mikill meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennara felldi nýjan kjarasamning félagsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nei sögðu 73,71 prósent en já sögðu 24,82 prósent. 13.1.2022 12:58
Persónuvernd svarar Kára Stjórn Persónuverndar hefur birt bréf sem hún sendi í dag á Íslenska erfðagreiningu, vegna ummæla Kára Stefánssonar, forstjóra fyrirtækisins um ákvörðun Persónuverndar sem Kári hefur gagnrýnt mjög. 13.1.2022 12:52
Vill leiða jafnaðarmenn til sigurs á ný Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra og fyrrverandi ráðherra sækist eftir því að leiða lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hann segist ekki vera í framboði til bæjarstjóra á þessari stundu en hann gegndi því embætti fyrir rúmum þrjátíu árum. 13.1.2022 12:43
Kári telur rétt að halda aðgerðum óbreyttum: „Ég held að þetta verði allt í lagi“ Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að eina leiðin til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu kórónuveirunnar sé útgöngubann, en telur það þó ekki skynsamlegt hér á landi. Hann telur óbreyttar aðgerðir bestu leiðina en að styðja þurfi Landspítalann mun betur en gert hafi verið hingað til. 13.1.2022 12:01
„Íbúar eru foxillir“ Forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ segir engan vilja fyrir því meðal íbúa að kísilverið í Helguvík verði endurræst. Slíkum fyrirætlunum verði ekki leyft fram að ganga. Fyrirætlanir PCC á Bakka liggja þó ekki fyrir en ljóst er að ráðast þyrfti í kostnaðarsamar framkvæmdir, eigi að endurræsa kísilverið. 13.1.2022 11:40
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum heyrum við í Kára Stefánssyni forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar um stöðuna í kórónuveirufaraldrinum. 13.1.2022 11:34
Taka þátt í krefjandi þrautum til styrktar stúlkunni sem slasaðist alvarlega í hoppukastalanum Aðstandendur stúlkunnar sem slasaðist alvarlega í hoppukastalaslysinu á Akureyri í sumar hafa hafið söfnun til styrktar stúlkunnar og fjölskyldu hennar. 13.1.2022 10:45
1.101 greindist innanlands í gær 1.101 einstaklingur greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og 105 á landamærum. 46% þeirra sem greindust innanlands voru í sóttkví við greiningu og 54% utan sóttkvíar. 13.1.2022 10:38
Neitar að hafa snert brjóst eða kynfæri á óviðeigandi hátt Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson segist hvorki hafa komið á óviðeigandi hátt við brjóst eða kynfæri ungrar konu sem sætti meðferð hjá honum á meðferðarstofu hans árið 2012. Hann vildi lítið tjá sig fyrir dómi í morgun um ásakanir sem bornar eru á hann, umfram það sem hann hefur áður tjáð sig í skýrslutöku hjá lögreglu. 13.1.2022 10:25
Andlát vegna Covid-19 Karlmaður á tíræðisaldri lést á Landspítala í gær af völdum Covid-19. Um er að ræða fimmta andlátið vegna Covid-19 hérlendis á þessu ári, en alls hafa 43 nú látist af völdum Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins. 13.1.2022 09:59
Umboðsmaður barna beinir því til HSS að gera úrbætur á sýnatöku barna Salvör Nordal, umboðsmaður barna, hefur sent forstjóra Heilbrigðisstofnun Suðurnesja erindi þar sem því er beint til stofnunarinnar að gera úrbætur á framkvæmd sýnatöku barna vegna Covid-19. 13.1.2022 09:51
Þak fauk af skúr í Ólafsvík Björgunarsveitarmenn í Ólafsvík á Snæfellsnesi voru kallaðir út á tíunda tímanum í gærkvöldi þegar tilkynnt var um að þakplötur væru að fjúka af skúr í bænum. 13.1.2022 09:03
Auður Perla Svansdóttir er látin Auður Perla Svansdóttir, matvælafræðingur og formaður Mótettukórsins, er látin, 52 ára að aldri. Hún lést á Landspítalanum 6. janúar síðastliðinn. 13.1.2022 07:17
Listamannalaunin hækka um 80 þúsund krónur á árinu Listamannalaunin hækkuðu um tæpar 20 þúsund krónur um áramótin, til samræmis við launa- og verðlagshækkun fjárlaga 2022. Þau munu hækka enn meira á árinu vegna ákvörðunar ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra um að hækka framlög til launasjóðs listamanna um 100 milljónir króna. 13.1.2022 07:03
Nær 300 svartfuglar fundist dauðir á Suðausturlandi Á dögunum fannst mikill fjöldi svartfugla dauður á Suðausturlandi. Matvælastofnun hefur ákveðið að láta rannsaka sýni úr fuglunum á Tilraunastöð HÍ að Keldum, meðal annars með tilliti til fuglaflensu. 13.1.2022 06:36
Guðmundur Árni snýr aftur í pólitík eftir sextán ár í utanríkisþjónustunni Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra, fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði og ráðherra fyrir Alþýðuflokkinn, sækist eftir því að leiða lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir kosningarnar í maí. 12.1.2022 23:33
Auknar takmarkanir á háskólastarfi Ráðherra hefur gefið út nýja reglugerð um takmarkanir á háskólastarfi sem gildi tekur á miðnætti í kvöld. Í reglugerðinni felst meðal annars að nemendum ber að viðhafa tveggja metra fjarlægð í kennslu- og lesrýmum. 12.1.2022 22:56
Þjást í reykvískri náttúru en fjölga sér eins og kanínurnar sem þær eru Gælukanínur sem látnar eru lausar í Elliðaárdal hljóta oft grimmileg örlög eftir stutta dvöl í náttúrunni. Nú á samstillt átak að koma þeim í skjól, enda stofninn að stækka of hratt. 12.1.2022 22:31