Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kallar eftir aldurskvóta á listamannalaun Rithöfundur telur að koma ætti á einhvers konar aldurskvóta við úthlutun listamannalauna. Hann óttast að ungir og efnilegir listamenn leiti á önnur mið, verði kerfið ekki endurskoðað. 14.1.2022 19:30
Einstöku „Íslandshjóli“ stolið af miklum Íslandsvini Hjóli ofurhugans og ljósmyndarans Chris Burkard var stolið úr íbúð hans í Reykjavík í dag. Gluggi var spenntur upp á íbúð hans og það eina sem innbrotsþjófurinn tók var hjól sem var sér hannað fyrir Ísland. Einungis tvö svona hjól eru til. 14.1.2022 18:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Einar hörðustu aðgerðir frá upphafi kórónuveirufaraldursins taka gildi á miðnætti. Aðeins tíu manns mega koma saman. Sóttvarnalæknir vildi þó ganga lengra. Við förum yfir aðgerðirnar í fréttatímanum okkar á samtengdum Rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan 18:30. 14.1.2022 18:01
Vegfarandi stöðvaði ofurölvi ökumann Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í morgun tilkynning um rásandi aksturlag og mögulegan ölvunarakstur. Sá sem lét lögregluna vita stoppaði sjálfur akstur ökumannsins er hann stoppaði á rauðu ljósi. 14.1.2022 17:36
Lagði til að öllu yrði skellt í lás í tíu daga Til greina kemur að beita víðtækum lokunum í samfélaginu sem ná til fyrirtækja, stofnana og skóla í takmarkaðan tíma til að ná fjölda kórónuveirutilfella hratt niður, að mati sóttvarnalæknis. Gætu slíkar lokanir til að mynda staðið í tíu daga og í kjölfarið verið aflétt í skrefum. 14.1.2022 14:48
Fá svigrúm til að greiða aukalega næstu fjórar vikurnar Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tryggja Landspítala svigrúm sem gerir kleift að greiða starfsfólki sérstaklega fyrir viðbótarvinnuframlag næstu fjórar vikurnar. Talið er að þannig megi betur tryggja mönnun við erfiðar aðstæður meðan mesti þunginn í faraldrinum gengur yfir. 14.1.2022 13:44
Mun algengara að konan sé heima með börnin þegar skólum er lokað Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að það sé bæði prinsipp- og jafnréttismál, að halda skólum opnum eins og hægt er, í gegnum kórónuveirufaraldurinn. 14.1.2022 13:08
Stjórnvöld taka á móti 35 til 70 manns til viðbótar frá Afganistan Ríkisstjórnin hefur samþykkt að taka á móti 35 til 70 manns frá Afganistan til viðbótar við þann hóp sem tekið var á móti í haust. Ákvörðunin var tekin í ljósi þeirrar ólgu og upplausnar sem ríkir í landinu í kjölfar valdatöku talibana. 14.1.2022 12:58
Listi með Ólöfu og Agniezsku í fararbroddi samþykktur af trúnaðarráði Trúnaðarráð Eflingar samþykkti í gærkvöld A-lista stjórnar Eflingar með Ólöfu Helgu Adolfsdóttur í formannssætinu. Agniezska Ewa Ziólkowska, starfandi formaður, verður varaformaður. Guðmundur Jónatan Baldursson vinnur nú að því að setja saman lista og ætlar í formannsslag. 14.1.2022 12:04
Tíu mega koma saman Sóttvarnaraðgerðir verða hertar og taka þær gildi á miðnætti. Heilbrigðisráðherra segir að sóttvarnalæknir hafi lagt fram þrjár leiðir: Óbreyttar aðgerðir, færa samkomutakmarkanir úr tuttugu manns í tíu, eða lokun á samfélaginu í tíu daga. Ríkisstjórnin hafi valið leið tvö. 14.1.2022 12:03
Nýjar hæðir í sýnatökum Heilsugæslan er komin yfir þolmörk þegar kemur að sýnatöku vegna kórónuveirunnar að sögn framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Búist er við miklu álagi á morgun þegar yfir 900 börn mæta í sýnatöku en til skoðunar er að lengja opnunartíma. 14.1.2022 11:54
Hafna athugasemdum Sjúkratrygginga og 175 milljóna kröfu Formaður SÁÁ hafnar öllum athugasemdum sem eftirlitsdeild Sjúkratrygginga Íslands gerir við starfshætti samtakanna, sumar mjög alvarlegar. Sjúkratryggingar krefja SÁÁ um tæpar 175 milljónir í endurgreiðslu, meðal annars vegna reikninga fyrir ráðgjafaviðtöl sem eftirlitsnefnd telur tilhæfulausa. 14.1.2022 11:44
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um ríkisstjórnarfundinn sem nú stendur yfir og greinum frá ákvörðun ráðherra varðandi sóttvarnaaðgerðir, að því gefnu að fundi verði lokið í tæka tíð. 14.1.2022 11:36
Níu íbúar á Eir hjúkrunarheimili með Covid-19 Níu íbúar á Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi hafa greinst með Covid-19. Íbúarnir eru sagðir vera með lítil eða engin einkenni en flestir þeirra hafa verið þríbólusettir. 14.1.2022 11:34
Ágúst hættir sem sveitarstjóri Ágúst Sigurðsson, sveitastjóri í Rangárþingi ytra, ætlar ekki að gefa kost á sér til frekari starfa að loknum kosningunum í vor. Hann mun þá hafa gengt starfi sveitastjóra í átta ár en Sjálfstæðisflokkurinn er með meirihluta í sveitarstjórninni. 14.1.2022 11:32
Lýsti upplifun sinni af nuddtímunum í sögulegu þinghaldi Fjöldi vitna var kallaður til við aðalmeðferð í sakamáli á hendur meðhöndlaranum Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni í dag og í gær. Jóhannes hefur verið sakfelldur fyrir fjórar nauðganir en aðalmeðferð í fimmta málinu á hendur honum hófst í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Jóhannes neitaði sök fyrir dómi en vildi annars lítið tjá sig og vísaði til lögregluskýrslu sem tekin var af honum vegna málsins. Þinghald í málinu var opið, sem er óvenjulegt fyrir kynferðisbrotamál. 14.1.2022 11:03
1.133 greindust innanlands 1.133 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 88 á landamærum. 14.1.2022 10:32
Ríkisstjórnarfundi lokið: Tilkynnt um hertar aðgerðir Ríkisstjórnarfundur hófst klukkan 9.30 en en á dagskrá fundarins er meðal annars nýtt minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Ráða má í yfirlýsingar Þórólfs í vikunni að hann leggi til hertar sóttvarnaaðgerðir. 14.1.2022 10:15
42 sjúklingar nú á Landspítala með Covid-19 42 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19. Átta eru á gjörgæslu, fjórir þeirra í öndunarvél. Meðalaldur innlagðra er 64 ár. 14.1.2022 10:03
„Umtalsverðar fjárhæðir“ en óljóst hvernig á að skattleggja þær Talið er að þúsundir Íslendinga hafi hagnast verulega á rafmyntarviðskiptum á meðan enginn skýr lagarammi er til um skattlagningu í málaflokknum. Lögfræðingur segir tímabært að stjórnvöld bregðist við breyttum tímum. 14.1.2022 09:26
Flutningaskip Eimskips strandaði í Noregi í gærkvöldi Flutningskipið Polfoss, sem er í eigu Eimskips, strandaði í gærkvöldi við eyjuna Skorpa í Kristiansund í Noregi. Samkvæmt NRK varð skipið vélarvana. 14.1.2022 08:32
Danir hafi vanrækt handritasáttmálann Danir hafa ekki uppfyllt öll skilyrði hins sögulega handritasáttmála að mati menningarmálaráðherra. Hún kallar eftir því að Danir efli rannsóknir sínar á miðaldabókmenntum og mun áfram berjast fyrir því að fá þau flest flutt til Íslands. 14.1.2022 07:01
Ríkisstjórnin ræðir nýjar tillögur sóttvarnalæknis Ríkisstjórnin mun funda fyrir hádegi í dag og meðal annars ræða minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Þórólfur hefur skilað nýju minnisblaði til heilbrigðisráðherra en hefur ekki viljað gefa upp efni þess. 14.1.2022 06:45
Breyti engu ef fólk breyti ekki hegðun sinni Formaður farsóttanefndar Landspítalans bindur vonir við að hertar samkomutakmarkanir komi til með að skila árangri og draga úr álagi á spítalann. Þær muni þó engu breyta ef fólk breyti ekki hegðun sinni. 14.1.2022 18:50
Lýst eftir Karli Dúa Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Karli Dúa sem fór frá heimilinu sínu upp úr klukkan 17.00 í dag. Uppfært: Karl er kominn í leitirnar, heill á húfi. 13.1.2022 22:38
Eldur í Brekkubæjarskóla á Akranesi: „Þetta fór vel“ Eldur kviknaði í Brekkubæjarskóla á Akranesi fyrr í kvöld. Slökkviliðsstjóri segir að vel hafi gengið að slökkva eldinn eða um tíu til fimmtán mínútur. 13.1.2022 22:11
„Spáin núna ætti eiginlega að heita vondur, verri, verstur“ Bjartsýnasta spá Landspítala um innlagnir á legudeild vegna Covid-19 virðist nú vera að rætast. Verkefnastjóri hjá farsóttanefnd Landspítala segir orðalagið um bjartsýna spá villandi og telur nauðsynlegt að herða takmarkanir. 13.1.2022 20:32
Verkfall væri sérkennilegt útspil kennara í heimsfaraldri Grunnskólakennarar kolfelldu nýjan kjarasamning við sveitarfélögin í dag. Deilan fer nú aftur til ríkissáttasemjara sem gæti reynst erfitt að greiða úr málinu. Formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) er undrandi yfir málinu. 13.1.2022 20:01
„Náum þessu niður áður en við göngum af heilbrigðiskerfinu dauðu“ Formaður Læknafélags Íslands og formaður Félags hjúkrunarfræðinga kalla eftir því að stjórnvöld bregðist við því mikla álagi sem sé á heilbrigðisstarfsfólk, til dæmis með tímabundnum álagsgreiðslum í faraldrinum. Ekki sé hægt að leggja það á fólk árum og mánuðum saman að einangra sig og vinni ítrekað langt um fram eðlilega vinnuskyldu. 13.1.2022 19:16
Boðar mesta uppbyggingarskeið í sögu borgarinnar Reykjavík tekur miklum breytingum í aðalskipulagi til ársins 2040, sem undirritað var í Höfða í dag. Á grundvelli þessa skipulags verður auðveldlega hægt að byggja 1200 íbúðir á ári, að sögn borgarstjóra. 13.1.2022 19:00
„Algjörlega óviðráðanlegar aðstæður“ Ökumaður stærðarinnar vöruflutningabíls lenti í miklu basli á Háreksstaðaleið seinni partinn í gær í gríðarlegu hvassviðri og hálku. Framkvæmdastjóri Smyril Line þakkar fyrir að ekki hafi farið illa en einn reyndasti bílstjóri fyrirtækisins var undir stýri. 13.1.2022 18:46
„Þetta er gjörsamlega út í hött“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er alls ekki sáttur við svar stjórnar Persónuverndar sem stofnunin sendi Íslenskri erfðagreiningu fyrr í dag. Hann segir Persónuvernd hafa sýnt ómældan sóðaskap og hyggst leita til dómstóla. 13.1.2022 18:28
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir hefur sérstakar áhyggjur af notkun hraðgreiningarprófa fyrir stærri viðburði því talsvert sé um að þau gefi falskar niðurstöður. Hann leggur til hertar aðgerðir í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra, aðeins tveimur dögum eftir að síðustu aðgerðir voru kynntar. 13.1.2022 18:00
Ólöf Helga fremst á lista Eflingar Ólöf Helga Adolfsdóttir, varaformaður Eflingar og fyrrverandi hlaðmaður hjá Icelandair, er formaður á lista sem uppstillinganefnd Eflingar lagði fram í dag og stjórn félagsins samþykkti á fundi sínum. 13.1.2022 17:56
Fella niður kennslu fyrir austan Aðgerðastjórn Austurlands ákvað á fundi í dag að fella niður kennslu í Nesskóla í Neskaupstað, Eskifjarðarskóla og Grunnskóla Reyðarfjarðar á morgun, föstudaginn 14. janúar. Það er gert vegna fjölgunar smitaðra á landshlutanum undanfarna daga. 13.1.2022 17:29
Óvissan er gríðarleg: „Eigum við að segja upp fólki? Eða ekki?“ Veitingamenn eru í mikilli óvissu varðandi hertar aðgerðir sem talið er líklegt að kynntar verða á morgun. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skilaði minnisblaði til heilbrigðisráðherra í dag en hann hefur talað um að hertra aðgerða sé þörf. 13.1.2022 17:02
Lokuðu leikskólanum í dag vegna stórrar hópsýkingar 38 börn og starfsmenn í leikskólanum Sæborg í Reykjavík hafa greinst með Covid-19. Tvær deildir af fjórum hafa verið lokaðar seinustu daga vegna þessa en ákveðið var að loka skólanum alfarið í dag og á morgun eftir að þriðja deildin var send í sóttkví. 13.1.2022 16:44
Þórólfur búinn að skila minnisblaði til Willums Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur lokið við skrif nýs minnisblaðs vegna stöðunnar í kórónuveirufaraldrinum hér á landi. Blaðinu hefur hann skilað Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Hann vill ekkert gefa uppi um innihald þess að svo stöddu. 13.1.2022 14:46
„Mjög mikilvægt að það sé búið að börnum eins vel og við mögulega getum“ Umboðsmaður barna hefur beint því til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja að gera úrbætur þegar kemur að sýnatökum barna, meðal annars með tilliti til umhverfis og samskipta. Umboðsmaður barna segir mikilvægt að búa sérstaklega að börnum nú þegar mörg þeirra eru að mæta í sýnatökur. 13.1.2022 14:35
Seljaskóla skellt í lás fram á þriðjudag Allt skólastarf fellur niður í Seljaskóla á morgun, föstudaginn 14. janúar og mánudaginn 17. janúar vegna fjölda nemenda og starfsfólks em greinst hefur verið Covid-19. Frístundastarf og íþróttaæfingar hjá ÍR falla einnig niður. 13.1.2022 14:05
Helgi Seljan frá RÚV á Stundina: „Veitir mér leyfi til að svara fyrir mig“ Fréttamaðurinn Helgi Seljan hefur sagt upp störfum hjá RÚV. Helgi, sem hefur starfað á miðlinum frá árinu 2006, hefur verið í leyfi frá störfum og hyggst ekki snúa aftur. Hann tekur við sem rannsóknarritstjóri Stundarinnar þann 15. febrúar. 13.1.2022 13:15
Grunnskólakennarar kolfelldu nýjan kjarasamning Mikill meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennara felldi nýjan kjarasamning félagsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nei sögðu 73,71 prósent en já sögðu 24,82 prósent. 13.1.2022 12:58
Persónuvernd svarar Kára Stjórn Persónuverndar hefur birt bréf sem hún sendi í dag á Íslenska erfðagreiningu, vegna ummæla Kára Stefánssonar, forstjóra fyrirtækisins um ákvörðun Persónuverndar sem Kári hefur gagnrýnt mjög. 13.1.2022 12:52
Vill leiða jafnaðarmenn til sigurs á ný Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra og fyrrverandi ráðherra sækist eftir því að leiða lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hann segist ekki vera í framboði til bæjarstjóra á þessari stundu en hann gegndi því embætti fyrir rúmum þrjátíu árum. 13.1.2022 12:43
Kári telur rétt að halda aðgerðum óbreyttum: „Ég held að þetta verði allt í lagi“ Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að eina leiðin til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu kórónuveirunnar sé útgöngubann, en telur það þó ekki skynsamlegt hér á landi. Hann telur óbreyttar aðgerðir bestu leiðina en að styðja þurfi Landspítalann mun betur en gert hafi verið hingað til. 13.1.2022 12:01