Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Portúgalski flugherinn til Íslands til að sinna loftrýmisgæslu Flugsveit portúgalska hersins mun koma hingað til lands í vikunni til þess að hefja loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin mun koma hingað til lands með fjórar orrustuþotur og um 85 liðsmenn. 24.1.2022 12:11
„Þarna er ekki verið að flytja boðskap sem ég tek undir“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Arnar Þór Jónsson varaþingmann flokksins ekki vera að tala fyrir stefnu flokksins í starfi sínu fyrir samtökin Ábyrgð og frelsi. Arnar Þór hefur meðal annars lýst miklum efasemdum um að börn séu sprautuð með því sem hann kallar tilraunaefni. 24.1.2022 11:33
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni og hann inntur álits á því hvenær og hvernig skuli draga úr takmörkunum í samfélaginu. 24.1.2022 11:30
Lögreglan rannsakar mál skipstjórans á Herjólfi Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur hafið rannsókn á máli skipstjóra sem hélt áfram að sigla Herjólfi eftir að atvinnuréttindi mannsins runnu út rétt fyrir jól. 24.1.2022 11:00
1.151 greindust innanlands í gær 1.151 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 145 á landamærum. 24.1.2022 10:57
Berserkurinn á Reykjanesbrautinni hnepptur í varðhald Maður sem grunaður er um að hafa gengið berskerksgang á Reykjanesbraut í síðustu viku var úrskurðaður í gæsluvarðhald um helgina. 24.1.2022 10:16
Smitaður eftir rómantík með frúnni í útlöndum Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. 24.1.2022 09:56
Sjúklingum á Landspítala með Covid-19 fjölgar milli daga 38 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19. Fjórir eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. 24.1.2022 09:53
Willum boðar afléttingaráætlun Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra vinnur nú að aðgerðaáætlun um afléttingar á sóttvarnaaðgerðum og á von á því að hún verði kynnt fyrir lok vikunnar. Núgildandi samkomutakmarkanir gilda til 2. febrúar. 24.1.2022 09:34
Fimm „vel hæfir“ umsækjendur verið teknir í viðtöl í ráðuneytinu Fimm umsækjendur um stöðu forstjóra Landspítala, sem taldir eru „vel hæfir“ af hæfnisnefnd, hafa verið teknir í viðtöl í heilbrigðisráðuneytinu. Ekki er útilokað að fleiri viðtöl verði tekin svo ráðningarferlinu er ekki lokið. 24.1.2022 07:25
Skerðing hjá Strætó vegna sóttkvíar og einangrunar Áætlun leiðar númer 3 hjá Strætó verður skert í dag, mánudag. Í stað þess að aka á 15 mínútna fresti yfir háannatímann verður ekið á hálftíma fresti allan daginn. Ástæðan er fjöldi vagnstjóra í sóttkví eða einangrun. 24.1.2022 06:55
Allt niður í tíu stiga frost Búast má við suðvestanátt á landinu í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu, í dag. Skýjað með köflum, stöku él suðvestantil en annars þurrt að kalla. Frost á bilinu núll til tíu stig, kaldast í innsveitum. 24.1.2022 06:32
Grunaður um ofsaakstur undir áhrifum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann bifreiðar eftir hraðamælingu á Reykjanesbraut í Kópavogi á ellefta tímanum í gærkvöldi. Bifreiðin mældist á 46 kílómetra hraða yfir hámarkshraða, sem er 80 kílómetrar á klukkustund, og er ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 24.1.2022 06:21
Mótmæltu aðgerðum stjórnvalda í friðargöngu Alþjóðleg friðarganga var haldin í miðbænum í dag á vegum samtakanna Frelsis og ábyrgðar. Þau samtök hafa gert margvíslega athugasemdir við framkvæmdir stjórnvalda í málefnum faraldursins, meðal annars við bólusetningu barna. Á meðal þeirra sem tóku til máls er Ágústa Eva Erlendsdóttir, sem hefur áður boðað til mótmæla vegna bólusetninga barna í gegnum samfélagsmiðla. 23.1.2022 23:30
Þór gefur kost á sér í fyrsta sæti á Seltjarnarnesi Þór Sigurgeirsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. 23.1.2022 22:19
Rúmur áratugur í Súðavíkurgöng samkvæmt áætlunum Innviðaráðherra segir verið að skoða að stofna opinbert félag um jarðgangagerð að færeyskri fyrirmynd. Þannig yrði hægt í samvinnu við aðra að grafa göng á fleiri stöðum í einu með innheimtu veggjalds. Forgangsverkefnin í vegakerfinu séu mörg og brýn. 23.1.2022 20:36
Forsendur harðra takmarkana séu brostnar Fjármálaráðherra telur forsendur fyrir hörðum samkomutakmörkunum brostnar. Í vikunni verði unnið að útfærslu afléttingaráætlunar. 23.1.2022 20:11
Willum stefnir á eigið frumvarp um neysluskammta Heilbrigðisráðherra stefnir á að leggja fram eigið frumvarp um lögleiðingu neysluskammta ávana- og fíkniefna á yfirstandandi þingi. Þó komi til greina að semja um innihald frumvarps sem þingflokksformaður Pírata mælti fyrir á Alþingi í vikunni. 23.1.2022 19:09
Náðu toppi Aconcagua Arnar Hauksson fjallamaður og Sebastian Garcia leiðsögumaður hans náðu toppi Aconcagua nú rétt upp úr klukkan sex. Fjallið er hæsta fjall heims utan Asíu. 23.1.2022 18:55
Fer fram á bætur vegna brottreksturs úr Allir geta dansað Javier Fernández Valiño, hefur stefnt RVK Studios til greiðslu eftirstöðva samnings sem gerður var við hann þegar hann var einn atvinnudansara í þáttunum Allir geta dansað. Javi, eins og hann er kallaður, var á sínum tíma látinn fara frá þáttunum „vegna óviðráðanlegra aðstæðna.“ 23.1.2022 18:39
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjármálaráðherra telur forsendur fyrir hörðum samkomutakmörkunum brostnar. Í vikunni verði unnið að útfærslu afléttingaráætlunar. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 auk þess sem við ræddum við fólk sem tók þátt í svokallaðri alheimsfriðargöngu gegn sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda. 23.1.2022 18:20
Enginn hefur þurft á gjörgæslu eftir örvunarskammt Enginn sem þegið hefur örvunarskammt bóluefnis við Covid-19 hefur þurft að leggjast inn á gjörgæslu vegna sjúkdómsins. Þá eru líkur á innlögn 85 ára einstaklings, sem hefur þegið örvunarskammt, þær sömu og 57 ára óbólusetts einstaklings. Þetta segir í niðurstöðum Covid-19 rannsóknarhóps Landspítala. 23.1.2022 18:09
Íbúum fjölgar og fjölgar í Bláskógabyggð Íbúum fjölgar ört í Bláskógabyggð eins og á Laugarvatni og í Reykholti. Þá hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikill uppgangur í garðyrkjunni eins og nú í sveitarfélaginu. 23.1.2022 16:30
Helga sækist eftir 2. sæti Helga Jóhannesdóttir, varabæjarfulltrúi og nefndarmaður í skipulagsnefnd sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ sem fer fram laugardaginn 5. febrúar. 23.1.2022 14:38
Skólasund verður valfag Skólasund verður frá og með næsta skólaári að valfagi á unglingastigi grunnskóla í Reykjavík, gegn því að nemendur standist hæfnispróf fyrir tíunda bekk. Þá geta þeir valið að fara í aðrar greinar í stað sunds. 23.1.2022 14:00
Nældi sér í Covid-19 á EM Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, fylgdi í fótspor fjölmargra landsliðsmanna í handbolta og nældi sér í Covid-19 er hann skellti sér á EM í handbolta í Ungverjalandi. 23.1.2022 13:41
Fann þjáningu foreldra í gegnum skilaboðin Geðheilsa barna virðist hafa farið versnandi síðustu mánuði ef marka má lengingu biðlista eftir sálfræðiþjónustu fyrir börn. Biðlistar hafa lengst töluvert á síðustu tveimur árum en börn geta þurft að bíða allt að ár eftir þjónustu. 23.1.2022 13:01
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Heilbrigðisráðherra kveðst hafa allar mögulegar afléttingar á samkomutakmörkunum til skoðunar. Forstjóri Landspítalans segir að ef farið verði í afléttingar þurfi að gera það í fáum en öruggum skrefum. Ástandið hefur batnað á spítalanum að sögn yfirlæknis. 23.1.2022 11:56
Blasir við að stefni í afléttingar Heilbrigðisráðherra kveðst hafa allar mögulegar afléttingar á samkomutakmörkunum til skoðunar. Forstjóri Landspítalans segir að ef farið verði í afléttingar þurfi að gera það í fáum en öruggum skrefum. Ástandið hefur batnað á spítalanum að sögn yfirlæknis. 23.1.2022 11:51
Dóra Björt gefur kost á sér áfram Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, ætlar að gefa kost á sér áfram í oddvitasæti flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. 23.1.2022 10:58
Tvö hundruð starfsmenn spítalans í einangrun 35 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og hefur þeim því fækkað um tvö á milli daga. Fjórir eru á gjörgæslu. Starfsmönnum spítalans í einangrun hefur fjölgað mikið um helgina. 23.1.2022 10:41
Löngu horfið listaverk gæti litið dagsins ljós á ný Verði landfylling í tengslum við nýja byggð í Nýja-Skerjafirði að veruleika eru hugmyndir uppi um að listaverk sem löngu er horfið ofan í fjöruna verði grafið upp og komið fyrir á nýjum stað. 23.1.2022 10:01
1.198 greindust innanlands Í gær greindust 1.252 með Covid-19, þar af voru 54 sem greindust sem landamærasmit. Innanlandssmit voru því 1.198. Alls voru 715 í sóttkví. 23.1.2022 09:57
Dómskerfið og kynferðisbrot, pólitík og Covid í Sprengisandi Gestir Kristjáns Kristjánssonar í Sprengisandi í dag munu ræða ýmis málefni sem snerta á landanum. Fyrstu gestir Kristjáns í dag eru þær Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, lögmaður, og Dr. María Rún Bjarnadóttir. Báðar fluttu þær nýverið erindi á málþingi HR þar sem spurt var hvort réttarkerfið virki ekki sem skyldi fyrir þolendur kynferðisofbeldis. 23.1.2022 09:45
Ekki mættur í ráðuneytið til að sækja kaffi fyrir Guðlaug Þór Steinar Ingi Kolbeins er nýr aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra. Steinar Ingi er 24 ára gamall Reykvíkingur, bráðungur að árum en hann bendir á að í ráðuneytinu sé einmitt málaflokkur unga fólksins og framtíðarinnar. 23.1.2022 08:02
Umhleypingasöm vika framundan Eftir stormasama helgi mun stytta upp og lægja í kvöld og nótt. Umhleypingasöm vika er þó framundan. 23.1.2022 07:49
Kom sér fyrir í sameign og veittist að lögreglu Lögreglan þurfti að hafa afskipti af manni sem komið hafði sér fyrir í sameign í húsi í Breiðholti. 23.1.2022 07:30
Skoða nú allar mögulegar afléttingar Heilbrigðisyfirvöld skoða nú, í samráði við sóttvarnalækni, allar mögulegar afléttingar með hliðsjón af skynsemi og öryggi. 23.1.2022 07:00
Öll rök og tölfræði segi okkur að aflétta takmörkunum „Ég er þeirrar skoðunar að við ættum að fara að huga að því að létta af þessum takmörkunum með einhverjum hætti,“ segir þingmaður Viðreisnar og bendir á að sérfræðingar innan Landspítala séu á sama máli. 22.1.2022 23:46
Færeyskur Íslandsvinur útskýrir hvað við þurfum að gera Hvergi í heiminum smitast eins margir af kórónuveirunni daglega og í Færeyjum, en enginn er á sjúkrahúsi. Þess vegna ætla stjórnvöld þar í landi að aflétta öllum samkomutakmörkunum í næsta mánuði - það var ekkert annað í stöðunni, segir færeyskur Íslandsvinur. 22.1.2022 22:02
Dýrin svíkja þig ekki og þau kjafta ekki frá Hundurinn Sólon og hestarnir hennar Elísabetar Sveinsdóttur á Selfossi hafa reynst henni stórkostlega í veikindum hennar því hún segir að samvera með dýrum geti haft úrslita áhrif, ekki síst fyrir andlega þáttinn, við að komast í gegnum veikindi. Það sé alltaf hægt að treysta dýrunum og þau kjafti ekki frá. 22.1.2022 21:00
Gera þurfi gangskör í að uppræta stafrænt kynferðisofbeldi Ungar stúlkur verða fyrir ofbeldi á netinu í sívaxandi mæli. Breskur sérfræðingur í stafrænu kynferðisofbeldi segir að ríki heims þurfi að gera gangskör að því að uppræta ofbeldi af þessu tagi enda hafi þau alla burði til þess. 22.1.2022 20:35
Umboðsmaður barna varar við villandi upplýsingum Umboðsmaður barna stendur ekki að baki upplýsingablaði sem dreift hefur verið í heimahús, þó það sé gefið í skyn á blaðinu. 22.1.2022 18:44
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 tökum við Færeyinga tali en þar ríkir mikil gleði með ákvörðun stjórnvalda um að aflétta samkomutakmörkunum, þrátt fyrir að nýgengi smita sé það hæsta í heimi. 22.1.2022 18:08
Fólki í tveimur bílum bjargað af lokaðri Öxnadalsheiði Meðlimir björgunarsveita á Akureyri og í Varmahlíð voru kallaðir út í dag vegna bíla sem voru fastir í snjó á Öxnadalsheiði. Verið var að keyra bílnum frá Reykjavík til Akureyrar en heiðin hefur verið lokuð frá því í gærkvöldi. 22.1.2022 16:50