Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stíga þurfi varlega til jarðar í dýravelferðarmálum vegna „íþyngjandi ákvarðana“ Matvælastofnun segir ákvarðanir í dýravelferðarmálum geta verið mjög íþyngjandi og því sé nauðsynlegt að stíga varlega til jarðar í slíkum málum. Brugðist sé við öllum ábendingum um illa meðferð dýra en oftast sé ekki þörf á þvingunaraðgerðum enda bregðist umráðamenn oftast við og bæti úr. 5.9.2022 10:21
Kaldur ágúst þrátt fyrir hitamet sumarsins Ágústmánuður var tiltölulega kaldur um allt land þrátt fyrir hlýindi undir lok mánaðarins þar sem hitamet sumarsins var meðal annars slegið. 5.9.2022 10:20
Kristján Þórður býður sig ekki fram til forseta ASÍ Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti Alþýðusambands Íslands og formaður Rafiðnaðarsambandsins, mun ekki bjóða sig fram til forseta Alþýðusambandsins á þingi þess sem fram fer þann 10. til 12. október næstkomandi. 5.9.2022 10:13
130 milljónir í uppbyggingu viðburðasvæðisins í Hljómskálagarðinum Borgarráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að leggja 130 milljónir króna í uppbyggingu á viðburðasvæðinu í Hljómskálagarðinum í Reykjavík. Skuli það gert til að garðurinn verði betur í stakk búinn til að taka á móti mannfjölda á stórum hátíðisdögum á borð við þjóðhátíðardaginn og Menningarnótt. 5.9.2022 10:01
Bein útsending: Aðlögun að breyttum heimi – hefjum samtalið Fræðslufundur um áhrif loftslagsbreytinga á byggðir landsins og íslenskt samfélag fer fram milli klukkan 9 og 12 í dag þar sem einblínt verður á þá vinnu sem framundan er til þess að aðlaga innviði, atvinnuvegi og samfélög að þeim breytingum sem vænta megi. 5.9.2022 08:35
Biðla til fólks um að taka ekki myndskeið af vettvangi slysa Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðlar til ökumanna og annarra að taka ekki upp myndskeið af vettvangi slysa þar sem það skapar mikla hættu fyrir lögreglumenn og aðra vegfarendur. 5.9.2022 06:26
Kraftaverkakötturinn Grána gamla lifði af alvarlega árás Það þykir kraftaverki líkast að átján ára köttur hafi lifað af alvarlega árás sem talin er vera eftir hund. Þetta er í annað skipti á stuttum tíma sem köttur er illa leikinn eftir slíka árás. Eigandinn biðlar til hundaeigenda að passa upp á dýrin sín. 4.9.2022 23:30
Allt í rusli í Reykjadal Blóðugur pappír, óhreinar nærbuxur og risastór poki fullur af dósum voru á meðal þess rusls sem finna mátti á víð og dreif í Reykjadal í dag. 4.9.2022 22:19
„Þetta er svo langt frá því að vera allt í lagi“ Siglufjarðarvegur er óboðlegur farartálmi að sögn formanns bæjarráðs Fjallabyggðar sem telur veginn sjálfan vera á fleygiferð. Hann segir að íbúum sé illa við að keyra veginn, en þeir hafi ekki annað val. 4.9.2022 21:37
Sverrir á Ystafelli ætlar sér að stækka bílasafnið sitt Þeim fjölgar og fjölgar alltaf bílunum á safninu á Ystafelli í Köldukinn hjá Sverri Ingólfssyni, sem ræður þar ríkjum. Safnið er sprungið og ætlar Sverrir, sem er í hjólastól, að fara að byggja nýjar byggingar til að stækka safnið og koma fleiri bílum þar inn. 4.9.2022 21:05
Merki um að yfirvöld séu að taka tilkynningum um byrlun alvarlega Fjögur mál þar sem grunur er um byrlun eru til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina. Talskona Stígamóta segir jákvætt að sýni hafi verið tekin úr þolendum og lögregla tekið tilkynningarnar alvarlega. Viðhorf til byrlana virðist hafa breyst en meira þurfi til. 4.9.2022 20:36
Segir algengt að konur á breytingaskeiði séu ranglega greindar í kulnun Sérfræðingar hafa áhyggjur af því að þau sem glíma við einkenni breytingaskeiðs séu ranglega greind í kulnun og fái þar af leiðandi ekki rétta meðferð. Nokkuð sé um að konur detti út af vinnumarkaði vegna breytingaskeiðs sem sé ekki meðhöndlað. 4.9.2022 19:42
Kristrún tekur annan hring Kristrún Frostadóttir, alþingismaður og frambjóðandi til formanns Samfylkingarinnar, hefur ferð kringum landið á Akranesi á morgun. Hún segist vilja eiga opið samtal við fólkið í landinu og svara spurningum þess. 4.9.2022 19:23
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan 18:30 segjum við frá málum sem komu upp um helgina þar sem grunur er um byrlun. 4.9.2022 18:00
Heilbrigðiseftirlitið kallað til vegna olíuleka eftir að flutningabíll valt Flutningabíll frá Eimskip fór á hliðina á Suðurlandsvegi á vatnsverndarsvæði. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu og fulltrúar frá Heilbrigðiseftirlitinu eru mættir á vettvang. 4.9.2022 16:33
Fagnar því að olíufélögin séu farin að taka við sér en segir það löngu tímabært Bensínlítrinn er kominn undir 300 krónur hjá Costco og virðast önnur félög einnig lækka sín verð um þessar mundir. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda segir þetta löngu tímabært þar sem Ísland sé með hæsta bensínverð í Evrópu. Þó undirliggjandi verðlækkanir séu til staðar sé mikil óvissa fram undan og viðbúið að eldsneytisverð verði enn hátt. 4.9.2022 16:22
Fjórtán frumsýningar í Borgarleikhúsinu Þeir tvö hundruð starfsmenn, sem vinna í Borgarleikhúsinu munu hafa meira en nóg að gera í vetur því þar verða fjórtán leikrit frumsýnd, auk verka, sem hafa verið i gangi eins og Emil í Kattholti og Níu líf. Leikhússtjóri Borgarleikhússins segir leikhúsið ekki vera í samkeppni við Þjóðleikhúsið né önnur leikhús. 4.9.2022 14:10
Vaxtahækkanir biturt meðal sem Seðlabankinn beiti ekki með glöðu geði Seðlabankastjóri segir ljóst að skarpar vaxtahækkanir bankans hafi borið árangur, þó um sé að ræða biturt meðal. Ísland hafi komið mun betur út en önnur lönd og vonandi hafi toppi verðbólgunnar verið náð. Slæmar horfur í Evrópu, og jafnvel kreppa þegar líða fer á veturinn, geti þó breytt þeirri stöðu. Allir þurfi að vera samstíga til að ná verðbólgunni niður, ekki síst í kjaraviðræðum. 4.9.2022 12:55
Otaði hnífi að fólki á veitingastað um miðjan dag Lögreglan á Norðurlandi eystra segir mann hafa verið handtekinn um miðjan dag í gær eftir að hann otaði hnífi að fólki á veitingastað á Akureyri. Hann er sagður hafa otað hnífnum að starfsfólki og viðskiptavinum og haft í hótunum við lögregluþjóna. 4.9.2022 12:24
Forsetahlaupið vakti mikla lukku Forsetahlaup UMFÍ var haldið í fyrsta sinn með pompi og prakt á Álftanesi í gær. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson hljóp í báðum hlaupunum sem stóðu þátttakendum til boða og veitti verðlaun að þeim loknum. UMFÍ vonast með hlaupinu til þess að hvetja fólk til þess að hreyfa sig meira í góðum félagsskap. 4.9.2022 12:23
Dansað og sungið við upptöku á rófum Það á ekki að vera leiðinlegt að taka upp rófur og þannig er það alls ekki hjá rófubónda í Árborg því þar er dansað og sungið um leið og unnið er með rófurnar. 4.9.2022 12:00
Lögreglan lýsir eftir jeppling Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir gráum Kia Sportage jeppling. Bíllinn er árgerð 2019 og með númerið UL-G00. 4.9.2022 11:36
Spyr hvort ekki megi endurskilgreina hvenær lax teljist veiddur Hvenær telst lax veiddur? Þegar maður er kominn með hann í hendurnar eða þegar hann er kominn alveg upp að bakka eftir viðureign um nokkra stund, og jafnvel þótt hann sleppi þá af önglinum? Borgarfulltrúi, sem jafnframt er mikill veiðimaður, kallar eftir umræðu um nýja talningaraðferð á veiddum löxum. Hví ekki, þegar þeim er nær öllum sleppt hvort eð er. 4.9.2022 10:01
Votlendið, húsnæðiskerfið og seðlabankastjóri á Sprengisandi Sprengisandur verður að mestu með hefðbundnu sniði í dag. Rætt verður um endurheimt votlendis, lífeyrissjóði og uppbyggingu stöðugs húsnæðiskerfi, uppbyggingu á Austurlandi og þá mun Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, fara yfir stöðuna í efnahagsmálum. 4.9.2022 09:30
Fjórar byrlanir tilkynntar til lögreglu Lögregluþjónar höfðu aftur nóg fyrir stefni vegna margra útkalla og verkefna í nótt. Fjórar tilkynningar um mögulegar byrlanir bárust lögreglu. Málin eru í rannsókn og var blóðsýni tekið úr öllum þolendum. 4.9.2022 07:30
Hvernig risajeppinn komst í kaldan faðm Norður-Íshafsins og aftur burt Það reyndist þrautin þyngri fyrir íslenska sérfræðinga Arctic Trucks að bjarga Ford F-150 jeppa sem fór niður um ísinn í Norður-Íshafi í könnunarleiðangri fyrir umfangsmikið ferðalag svissneskra samtaka sem ætla sér að keyra á báða póla jarðar. Covid-19, innrás Rússa í Úkraínu og flökkusögur um að gríðarlegt magn eldsneytis hafi farið niður með bílnum auðvelduðu ekki verkið. Björgunin tókst hins vegar vonum framar. 4.9.2022 07:00
Segir nauðsynlegt að efla íslenskukennslu fyrir innflytjendur Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir erlent vinnuafl nauðsynlegt til þess að sinna megi þeim stöfum sem skapist þegar þjóðin eldist og færri verða á vinnumarkaði. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði segir bráðnauðsynlegt að efla íslenskukennslu fyrir þá sem komi erlendis frá til landsins og vilji vinna. Hann hafi áhyggjur af íslensku máli. 4.9.2022 00:22
Aldrei fleiri mætt á Ljósanótt Það var sannkölluð hátíðarstemmning í Reykjanesbæ þar sem Ljósanótt náði hámarki í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn í þrjú ár sem hátíðin fer fram en henni var aflýst síðustu tvö ár vegna kórónuveirufaraldursins. 3.9.2022 23:14
„Það flæddi hérna bara eins og beljandi stórfljót“ Ljóst er að heilmikið tjón hafi orðið þegar vatnslögn rofnaði í höfuðborginni í gær. Íbúar segjast aldrei hafa séð annað eins en ekki liggur fyrir hvað varð til þess að lögnin rofnaði. Þá liggur ekki heldur fyrir hver muni bera kostnaðinn vegna tjónsins. 3.9.2022 22:20
Erlent starfsfólk gæti orðið helmingur vinnuaflsins innan nokkurra áratuga Erlent starfsfólk gæti verið orðið allt að helmingi vinnuafls á Íslandi á næstu áratugum samkvæmt mati framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Þjóðin eldist og það vantar fleiri vinnandi hendur; náttúruleg fólksfjölgun dugar þar engan veginn. 3.9.2022 20:30
Eldur logaði í ruslatunnu hjá leikskólanum Grandaborg Eldur kviknaði í ruslatunnu inni á lóð leikskólans Grandaborgar í Vesturbænum, ekki er vitað hvort um íkveikju sé að ræða. 3.9.2022 19:03
Þrír fluttir á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur á Hafnarfjarðarvegi Þrír voru fluttir á slysadeild eftir að bíll hafnaði á ljósastaur á Hafnarfjarðarvegi. 3.9.2022 18:38
Stjörnu-Sævar hvetur fólk til að horfa til himins Sævar Helgi Bragason, oftar þekktur sem Stjörnu-Sævar segir norðurljós gærkvöldsins aðeins hluta af því sem megi sjá á næturhimninum um þessar mundir en þrjár reikistjörnur skíni nú skært. Haustið sé besti tíminn til þess að sjá vetrarbrautina í allri sinni dýrð. 3.9.2022 18:13
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ljóst er að heilmikið tjón hafi orðið þegar vatnslögn rofnaði í höfuðborginni í gær. Íbúar segjast aldrei hafa séð annað eins en ekki liggur fyrir hvað varð til þess að lögnin rofnaði. Þá liggur ekki heldur fyrir hver muni bera kostnaðinn vegna tjónsins. Fjallað er um þetta og annað í kvöldfréttum Stöðvar 2. 3.9.2022 18:01
Kona féll af baki á Tröllaskaga Um klukkan fjögur í dag var þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar kölluð út að beiðni lögreglu. Áhöfnin vinnur nú að því að sækja konu á Tröllaskaga. 3.9.2022 16:47
Lögnin sem fór í sundur er sextíu ára gömul Lögn sem fór í sundur í gærkvöldi með þeim afleiðingum að gríðarlegt magn vatns flæddi í Hvassaleiti er frá árinu 1962. Hún er ein tveggja lagna sem sjá vestari hluta Reykjavíkur fyrir köldu vatni. Því mun fólk ekki finna fyrir því að lögnin hafi verið tekin úr rekstri. 3.9.2022 15:29
Fjöldi tilkynninga um launaþjófnað á Suðurlandi: „Þetta blasir við okkur sem grafalvarleg staða“ Á fjórða tug mála eru á borði Verkalýðsfélags Suðurlands þar sem grunur er um launaþjófnað en fjárhæðirnar sem um ræðir eru allt frá nokkrum tugum þúsunda upp í milljónir. Eftirlitsfulltrúi félagsins segir grafalvarlega stöðu blasa við og kallar eftir því að stjórnvöld komi með alvöru viðurlög. 3.9.2022 14:50
Fatlað fólk fær ekki rafræn skilríki á Íslandi Formaður Þroskahjálpar segir að það sé verið að brjóta mannréttindi á fötluðu fólki á Íslandi, því að bankastofnanir og opinberir aðilar vilja ekki veita fólki með þroskahömlun, einhverfu og skyldar fatlanir rafræn skilríki. Ástæðan er sú að þessi hópur fær ekki rafræn skilríki er sú að það getur oft ekki valið fjögurra stafa PIN númer og lagt það á minnið, án aðstoðar eða leiðbeiningar. 3.9.2022 13:05
Sýknaður af ákæru fyrir að nauðga unglingsstúlku Ungur karlmaður var á dögunum sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins eftir að hafa verið ákærður fyrir að nauðga stúlku á unglingsaldri. Minnisleysi stúlkunnar var helsta ástæða sýknunnar. 3.9.2022 12:27
Aðrar orsakir en mannleg mistök Forstöðumaður vatns- og fráveitu hjá Veitum segir að nóttin hafi farið í hreinsa upp eftir stóran vatnsleka í Hvassaleiti. Nú sé fram undan hefðbundin vinna við að komast að því hvað orsakaði lekann. Engar framkvæmdir séu á svæðinu og því engin augljós orsök. 3.9.2022 10:40
Íslendingar á meginlandinu glíma við margfalt hærri reikninga Staðan á orkumarkaði í Evrópu er grafalvarleg að sögn Íslendinga búsettra á meginlandinu. Dæmi eru um að fólk sé að fá allt að 200 prósentum hærri reikninga fyrir hita og rafmagni nú en fyrir ári síðan. Rússar munu ekki opna fyrir Nordstream gasleiðsluna til Evrópu á morgun líkt og til stóð, sem er talið viðbragð við nýjum aðgerðapakka G-7 ríkjanna. 3.9.2022 09:31
Vatn flæddi inn í hús og bíla Vatn flæddi um götur í Hvassaleitinu í gærkvöldi eftir að 800 millimetra kaldavatnslögn fór í sundur. Vatnið flæddi inn í nokkur hús á svæðinu, kjallara, bílskúra og bíla. Ljóst er að nokkuð tjón varð. 3.9.2022 07:46
Sameinast um að fægja og lífga upp á falda perlu á Blönduósi Sveitarstjórn Húnabyggðar og fyrirtækið Info Capital hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu gamla bæjarkjarnans á Blönduósi. Gömlu götumyndinni er lýst sem einstakri perlu sem ætlunin er að fægja og lífga upp á. 3.9.2022 07:37
Erill vegna mikillar ölvunar Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt og var sérstaklega mikið af ölvunartengdum málum á borði hennar. Í dagbók lögreglu segir að óvenju margar tilkynningar um ofurölvi fólk og vandræði vegna ölvunar hafi borist í nótt. 3.9.2022 07:22
Ólga meðal aðventista vegna sölu á heilu fjalli Gavin Anthony, formaður Kirkju sjöunda dags aðventista á Íslandi, sem eiga Litla-Sandfell sem til stendur að nýta sem íblöndunarefni í sement úti í Evrópu, segir að sér lítist vel á verkefnið. Samkvæmt heimildum Vísis fer því þó fjarri að allir innan safnaðarins séu á eitt sáttir um hvernig að málum er staðið. 3.9.2022 07:00
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent