Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rannsókn á ásökunum SÍ gegn SÁÁ felld niður Héraðssaksóknari ákvað 2. desember síðastliðinn að hætta rannsókn á starfsháttum SÁÁ en málið varðaði ásakanir Sjúkratrygginga Íslands, meðal annars um fjölda reikninga sem voru sagðir tilhæfulausir. 19.1.2023 07:10
Árásarmaður í Bankastrætismálinu lýsir aðdraganda árásarinnar Tveir karlmenn tengdir hnífstunguárásinni á Bankastræti Club í nóvember hafa tekist á í opinskáum færslum á Facebook undanfarna daga. Annar þeirra var á meðal þeirra handteknu en hinn er vinur fórnarlambanna. Árásarmaðurinn segir að rekja megi árásina til þess að hann hafi átt í samskiptum við fyrrverandi kærustu manns tengdum fórnarlömbunum. Vinur fórnarlambanna lýsir furðu yfir því að árásarmaðurinn gangi laus. 19.1.2023 07:00
Skemmdir á sýningum Stríðsárasafnsins vegna mikils leka Mikils leka hefur orðið vart í sýningarhúsnæði Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði eftir áramót og hafa sýningar safnsins orðið fyrir tjóni. 19.1.2023 07:00
Eldur við skóla slökktur með snjó Einn var vistaður í fangageymslu í gærkvöldi vegna hótana og eignaspjalla og annar vegna ölvunarástands. Þá var tilkynnt um eld við skóla en hann var slökktur með snjó. 19.1.2023 06:24
Nýr leiðtogi og skarpari málflutningur Samfylkingunni til góðs Samfylkingin mælist stærst allra flokka samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Stjórnmálafræðingur segir stöðuna ekki mikla forspá fyrir næstu kosningar en leiðtogabreytingar og endurskipulag málefna virðist reynast flokknum vel. 18.1.2023 23:47
Dómsmálaráðherra um rafbyssur: „Við búum því miður bara við breyttan veruleika“ Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra segir stjórnleysi ríkja hér á landi í útlendingamálum. Þá sé rafvopnavæðing stór hluti af því að auka öryggi lögregluþjóna í starfi. Hann sé ekki að undirbúa brottför úr starfi. 18.1.2023 23:24
Smitsjúkdómar færist í aukana með loftlagsbreytingum Smitsjúkdómalæknir segir það einungis tímaspursmál hvenær annar heimsfaraldur líkt og Covid kemur upp. Nýlegar rannsóknir bendi til þess að allflestir smitsjúkdómar muni færast í aukana samhliða loftslagsbreytingum. 18.1.2023 21:00
Fyrstu stúdentarnir flytja á Sögu eftir tvo mánuði Þessa dagana standa yfir milljarða framkvæmdir við að breyta hótel Sögu í háskólahús og á þeim að vera lokið eftir eitt og hálft ár. Fyrstu stúdentarnir munu hins vegar flytja inn í nýjar einstaklingsíbúðir í marsmánuði. 18.1.2023 19:20
Samfylkingin stærsti flokkur landsins Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun Maskínu og er með tæplega 24 prósenta fylgi. 18.1.2023 18:34
Skúli Tómas kominn aftur til starfa hjá Landspítalanum Læknir sem grunaður er um að hafa mögulega valdið ótímabærum andlátum níu sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) er kominn aftur til starfa hjá Landspítalanum. Læknirinn starfar þó ekki með sjúklingum. 18.1.2023 18:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dómari í hryðjuverkamálinu íhugar nú hvort vísa eigi frá þeim hluta ákærunnar sem snýr að hryðjuverkabrotum. Sindri Snær og Ísidór, sem ákærðir eru í málinu, neituðu að hafa skipulagt hryðjuverk þegar málið var þingfest í dag. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 18.1.2023 18:00
Sigríður Pálína er Suðurnesjamaður ársins 2022 Sigríður Pálína Arnardóttir, lyfjafræðingur og eigandi Reykjanesapóteks, er Suðurnesjamaður ársins 2022 að mati Víkurfrétta. Sigríður er sú 33. til að hljóta nafnbótina. 18.1.2023 17:28
262 nauðganir tilkynntar árið 2022 Alls voru 634 kynferðisbrot tilkynnt til lögreglu árið 2022. Fleiri nauðganir voru tilkynntar miðað við síðastliðin þrjú ár og þá fjölgaði brotum gegn kynferðislegri friðhelgi (stafræn brot) um helming miðað við árið á undan. Fjöldi tilkynntra kynferðisbrota gegn börnum var nánast óbreyttur. 18.1.2023 16:39
Elsti Íslendingurinn er 105 ára Í dag eru 47 einstaklingar á Íslandi 100 ára og eldri. Þrír af þessum 47 einstaklingum eiga maka á lífi. Þetta kemur fram í nýlegri samantekt Þjóðskrár yfir elstu íbúa landsins. 18.1.2023 15:20
Sundlaugunum í Reykjavík lokað á morgun vegna skerðingar á heitu vatni Veitur munu á morgun skerða framlag á heitu vatni til stórnotenda, þar á meðal sundlauga á höfuðborgarsvæðinu vegna álags á hitaveitukerfi í kuldatíðinni. 18.1.2023 15:05
Rjúfa veginn til að vernda nýju brúna Vegagerðin mun rjúfa Skeiða- og Hrunamannaveg í sundur við brúna yfir Stóru-Laxá á morgun til þess að vernda nýja brú sem þar er nú í smíðum. Reiknað er með vatnavöxtum á næstu dögum vegna yfirvofandi hlýinda. 18.1.2023 14:33
Dómari tekur til skoðunar hvort vísa eigi hryðjuverkalið frá Tveir karlmenn sem sæta ákæru fyrir skipulagningu hryðjuverka neituðu sök við þingfestingu málsins í dag. Þeir játuðu hluta ákærunnar sem sneri að vopnalagabrotum auk þess sem annar játaði fíkniefnabrot. Dómari ætlar að skoða hvort tilefni sé til að vísa frá þeim hluta ákærunnar sem snýr að hryðjuverkabrotum. 18.1.2023 13:44
„Við búum öll við geðheilsu rétt eins og við erum með hjarta“ Geðhjálp hefur sent frá sér yfirlýsingu í tengslum við fyrirtöku í héraðsdómi Reykjavíkur í máli hjúkrunarfræðings sem ásakaður er um að hafa valdið andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans, og fjölmiðlaumræðu vegna fyrirtökunnar. 18.1.2023 13:20
Stöðvaður við akstur og reyndist með gróft barnaníðsefni í símanum Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur ákært karlmann, sem handtekinn var vegna umferðarlagabrots á Akureyri í júní 2019, fyrir að hafa haft mikið magn barnaníðsefnis í sinni vörslu í tveimur símum og spjaldtölvu. Maðurinn hafði sömuleiðis dreift efni til ótilgreindra einstaklinga. 18.1.2023 13:19
Borgin styrkir Ríkisútvarpið um rúmar 18 milljónir Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í gær að endurnýja sérstakan samstarfs- og styrktarsamning við Ríkisútvarpið ohf. sem snýr að dagskrárgerð fyrir ungt fólk og greiða fyrir hann rúmar 18 milljónir. 18.1.2023 12:41
Ganga lausir en grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Tæpir fjórir mánuðir eru liðnir síðan ríkislögreglustjóri handtók tvo karlmenn og lýsti því yfir að hættuástandi hefði verið aflýst. Á blaðamannafundi var greint frá því að mennirnir hefðu verið grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Mál gegn þeim verður þingfest klukkan 13 í dag en athygli vekur að dómstólar landsins telja mennina ekki hættulegri en svo að þeir ganga lausir. 18.1.2023 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um hryðjuverkamálið svokallaða en síðar í dag fer fram þingfesting gegn tveimur mönnum sem sakaðir eru um að hafa áformað að fremja hryðjuverk hér á landi. 18.1.2023 11:37
Kastar fram hugmynd um mjúklokun sem stoppi vanbúna bíla „Við sjáum þetta þannig að lokanir eru til gagns sé þeim beitt rétt, sagði Harald Teitsson, formaður félags hópferðaleyfishafa og formaður hópbifreiðanefndar Samtaka ferðaþjónustunnar á fundi Vegagerðarinnar um vetrarþjónustu stofnunarinnar. Harald varpaði fram þeirri hugmynd að beita mætti svokallaðri mjúklokun vega í meira mæli, þegar veður eru válynd. 18.1.2023 11:32
Hámarkinu náð með tilliti til flóttamanna: „Við ætlum að setja punktinn þarna“ Reykjanesbær mun ekki taka á móti fleiri flóttamönnum en samið hefur verið um. Bæjarstjóri segir hámarkinu náð og kallar eftir því að fleiri sveitarfélög axli ábyrgð. Stór hluti flóttamanna sem Reykjanesbær hafi samið um að taka á móti séu nú þegar komnir og ætti húsnæði ekki að vera vandamál. Sveitarfélagið sé tilbúið til að miðla sinni reynslu. 18.1.2023 11:32
Læknar segjast úrvinda og upplifa kulnun Skráðum samskiptum heimilislækna við sjúklinga hefur fjölgað gríðarlega á síðustu árum og fleiri læknar segjast úrvinda og upplifa kulnun. Þetta kom fram í erindi forstjóra Heilsugæslunnar á Höfuðborgarsvæðinu á læknaráðstefnu sem nú fer fram í Hörpu. Hann tengir þetta ástand við aukin rafræn samskipti. 18.1.2023 10:16
Eilíft líf líklega handan seilingar Tæplega 300 núlifandi einstaklingar eru eldri en 110 ára gamlir, svokallaðir „íturöldungar“. Sá elsti er 118 ára og sá næst elsti 115 ára. Fjórir einstaklingar á Norðurlöndum tilheyra hópnum en Íslendingur hefur aldrei náð þessu marki; sá elsti varð 109 ára. 18.1.2023 08:51
Bein útsending: Hvernig þjónum við vegfarendum á veturna? Fyrirkomulag vetrarþjónustu og starfsemi vaktstöðvar Vegagerðarinnar verða til umfjöllunar á morgunfundi Vegagerðarinnar sem fram fer milli klukkan 9 og 10:15. 18.1.2023 08:31
Hrapaði við leikskóla í úthverfi Kænugarðs Þyrla eða dróni rakst á byggingu sem hýsir leikskóla í Brovary, úthverfi Kænugarðs, í Úkraínu í morgun. 18.1.2023 07:50
Reglugerðin var tilbúin áður en ráðherra tilkynnti ákvörðunina Reglugerð um heimild lögreglu til að nota rafbyssur hefur verið samin og undirrituð af dómsmálaráðherra. Hún tekur gildi um leið og hún birtist í Stjórnartíðindum, sem verður á næstu dögum. 18.1.2023 06:54
Réðst á starfsmann bráðamóttökunnar og olli skemmdum á munum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Landspítalanum í Fossvogi í gærkvöldi eftir að einstaklingur veittist að starfsmanni bráðamóttökunnar og olli skemmdum á innanstokksmunum. 18.1.2023 06:21
Eldur í ruslagámi við JL-húsið Eldur kviknaði í ruslagámi við JL-húsið í vesturbæ Reykjavíkur fyrr í kvöld. Einn dælubíll var sendur á svæðið og unnið er að því að slökkva eldinn. 17.1.2023 22:24
„Ósmekkleg fyrirsögn“ sem hefði ekki átt að birtast Ritstjóri Viðskiptablaðsins segir fyrirsögn á skoðanapistli sem birtist í blaðinu í síðustu viku hafa verið ósmekklega. Beðist verður velvirðingar á fyrirsögninni í næsta tölublaði blaðsins en fyrirsögninni var breytt í netútgáfunni í gær. 17.1.2023 21:42
Vill fjölbreyttari starfsemi í atvinnuhúsnæði á Hlíðarenda Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir nauðsynlegt að endurhugsa skipulag í nýjum hverfum og búa til hvata svo atvinnurekendur vilji hefja þar starfsemi. Óeðlilegt sé til dæmis að nærri allt atvinnuhúsnæði í nýju Hlíðarendahverfi standi enn tómt. 17.1.2023 21:30
Óttast flóð í Ölfusá vegna mikillar hláku framundan Formaður Almannavarnaráðs Árborgar hvetur íbúa á Selfossi að vera ekki á óþarfa vappi í kringum Ölfusá á föstudaginn þegar spáð er asahláku á svæðinu. Elstu menn muna ekki jafn mikinn klaka í ánni eins og þessa dagana. 17.1.2023 21:30
„Fáránlegt árið 2023 að við séum ekki með einhverja varaleið“ Alvarleg staða kom upp þegar bilun í Suðurnesjalínu leiddi til rafmagnsleysis á öllum Suðurnesjum í gær. Rof á símasambandi er áhyggjuefni og kalla íbúar eftir betri tengingum með Suðurnesjalínu tvö. Bæjarstjóri Voga segir Landsnet bera ábyrgð meðal annars en að skömminni hafi verið skellt á sveitarfélagið. Þó þau vilji jarðtengingu hafi þau aldrei staðið í vegi fyrir að línan yrði lögð. 17.1.2023 20:30
Telur mengunina líklegustu skýringuna á daglegum blóðnösum Líklegt er talið að met hafi verið slegið í mengun af völdum útblásturs bíla á þessari öld. Reykvíkingar segja mengunina farna að hafa áhrif á heilsuna og kalla eftir tafarlausum aðgerðum. 17.1.2023 20:01
Eldur kviknaði í strompi Hamborgarbúllu Tómasar Slökkviliðið slökkti fyrr í kvöld eld á Hamborgarabúllu Tómasar í Ofanleiti. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu gekk slökkvistarf vel en eldurinn var staðbundinn við stromp staðarins. 17.1.2023 19:53
„Það er áhættuatriði að fara hér um á veturna“ Betur fór en á horfðist þegar kona lenti í lífsháska er hún féll ofan í gjá við Öxará á Þingvöllum á sunnudag. Konan fór á bólakaf í ískalt vatnið en um átján gráðu frost var á svæðinu. Þjóðgarðsvörður segir ljóst að mun verr hefði getað farið en aðeins er tæpt ár frá því að ungt barn féll ofan í sprungu á svipuðum stað. 17.1.2023 19:21
„Þetta er þjóðaröryggismál, orkumál eru þjóðaröryggismál“ Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra segir Íslendinga vera barnalega þegar kemur að öryggismálum. Þá sé þjóðin ekki tilbúin fyrir áföll framtíðarinnar. 17.1.2023 19:04
Engin skipulögð leit að Modestas Engin skipulögð leit er í gangi að Modestas Antanavicius en síðast sást til Modestas á laugardag síðastliðinn 7. janúar. 17.1.2023 18:13
Lögregla aðstoðaði í fjölskyldudeilum um sígarettueign Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var í dag kölluð til vegna ósættis milli tveggja skyldra aðila í hverfi 108. Deilumálið var eign á sígarettum. 17.1.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Alvarleg staða kom upp þegar bilun í Suðurnesjalínu leiddi til rafmagnsleysis á öllum Suðurnesjum í gær. Íbúar segja rof á símasambandi áhyggjuefni og kalla eftir betri tengingum með Suðurnesjalínu tvö. Bæjarstjóri Voga segir Landsnet bera ábyrgð en að skömminni hafi verið skellt á sveitarfélagið. Við heyrum í íbúum og fjöllum nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 17.1.2023 18:00
Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt 26 ára karlmann, Ómar Örn Reynisson, í þriggja ára fangelsi fyrir nauðga konu sem var gestkomandi á heimili hans. Brotið átti sér stað árið 2020. 17.1.2023 16:30
Hættir sem framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, hefur tilkynnt að hann muni láta af starfi sínu þann 1. maí nk. og fara á eftirlaun. Þetta kemur fram á vef sambandsins. Hann segist ætla að skila af sér góðu búi til arftaka síns. 17.1.2023 16:21
Hafnarfjörður tekur við 450 flóttamönnum Hafnarfjarðarbær tekur á móti 450 flóttamönnum samkvæmt nýjum samningi. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, undirrituðu í dag samning þess efnis. 17.1.2023 16:10